Þjóðólfur - 28.05.1886, Síða 1
Kemur út á föstudags-
morgna. Verö árg. 4 kr.
(erlendis 5 kr.). Borgist
fyrir lö.júli.
ÞJÓÐÖLFUR.
(Jppsögn (skrifleg) bund-
in viö áramót, ógild nema
komi til útgef. fyrir 1.
október.
XXXVIII. árg.
lteykjavík, föstudaginn 28. maí 188G.
Nr. 22.
POLITÍK
Politísk fjelög, einkum Þjóðlið
íslendinga.
Það er fátt, sem er jafnöflugt til
framkvæmda, sem íjelagsskapur og
samtök, og það í stjórnmálum ekki
síður en í öðrum málum. Það sýnir
ljóslega stjórnbarátta Islendinga. Jafn-
vel þótt sjálfsforræði vort styðjist við
eðlilegar þarfir og sögulegan rjett,
eins og opt hefur verið tekið fram,
þá var þó oss Islendingum algjörlega
synjað um þennan dýrgrip í heilan
fjórðung aldar eptir að samþegnar
vorir, Danir, höfðu fengið stjórnarbót
hjá sjer. Það má fullyrða, að vjer
mundum aldrei hafa fengið nokkra
mynd á stjórnarbót, ef eigi hefði ver-
ið beitt samheldi og fylgi. Að vísu
var lengst af ekkert reglulegt fjelag,
sem barðist fyrir frelsi voru, en Is-
lendingar höfðu þann mann, J. Sig-
urðsson, sem gat haldið mönnum sam-
an. Má þá telja víst, að samheldi og
samtök hefðu orðið enn meiri, ef alls-
herjarfjelag hefði verið og stutt
að þeim. Þetta sáu menn lika, og
stofnuðu Þjóðvinafjelagicf, til að berj-
ast fyrir þjóðrjettindum og stjórnfrelsi
voru. Það bar ekki alllítið á fjelagi
þessu i fyrstu, og í ritgjörð í Andvara
1876 byggir Jón Sigurðsson miklar
vonir á því, og telur víst, að það muni
verða hinn bezti styrkur til að fram-
fylgja boturn á stjórnarskránni, enda
má eiga það víst, að það hefði orðið
öflugt verkfæri í hendi J. Sig., ef hans
hefði notið við lengur. En þjóðvina-
fjelagið hefur villzt æ meir og meir
frá hinu upphaflega marki sínu og er
nú orðið bókútgá^úf j elag að eins. Þvi
verður auðvitað ekki neitað, að það
hefur gefið út þarflegar bækur, en því
verður hins vegar heldur ekki neitað,
að það hefur algjörlega brugðizt und-
an merkjum og horfið frá hinum upp-
haflega tilgangi sinum. Það hefði þó
ekki veitt af,- að það hefði haldið hon-
um fram, þvi að íslendingar hafa ekki
enn fengið nema að hálfu það stjórn-
frelsi, sem þeim er eðlilegt að hafa
og þeir eiga heimting á. Þetta fundu
menn þegar 1874 og hafa jafnan fund-
ið það siðan, þótt eigi hafi það jafn-
an birzt svo skýrt og greinilega, sem
skyldi, en það hefur aptur komið af
því, hve litið pólitiskt samlif og sam-
tök eru meðal íslendinga. Menn hafa
þó fullkomlega fundið til þess, að þörf
var á samtökum í stjórnmálum. Má
nefna sem dæmi upp á það samtök og
tilraun Vestfirðinga vorið 1884, til að
koma á Þingvallafundi, og stofnun
Þjóðfrelsisfjelagsins, þótt eigi hefði það
tilætlaðan árangur, og einkum stofn-
un Þjóðliðs Islendinga. Þessar hreyf-
ingar urðu á sama ári, en þó sitt á
hverju landshorni. Þegar' áskorun
Vestfirðinga til Þingvallafundar barst
út um landið, tóku Þingeyingar fegins
hendi móti henni og höfðu viðbúnað
til að taka þátt í fundinum. En er
áskoruninni var lítill gaumur gefinn
nálega hvarvetna annars staðar á land-
inu, svo að ekkert varð af fundinum,
varð mönnum, einkum Þingeyingum,
enn ljósara, hvílík nauðsyn var á því,
að pólitiskur framsóknarflokkur mynd-
aðist og setti sjer það mark og mið,
og þau lög, sem líklegt væri að allir
framsóknarmenn vildu aðhyllast, og
sameinaði þannig hina dreifðu krafta,
bæði til þess að uppræta svo sem unnt
væri deyfð og doða, sundrung og sann-
færingarleysi sjálfra vor Islendinga,
og til þess að leitast við að fá rjett
vorn til sjálfsforræðis viðurkenndan
ekki að eins í orði heldur og i verki. \
Þjóðvinafjelagið var stofnað af Þing- I
eyingum. Það var fyrir löngu komið j
úr þeirra höndum. Þeir gátu nú með
engu móti talið tiltækilegt að „dubba
það upp“, eins og sumir komust að
orði og vildu, þvi að þeir höfðu reynsl-
una fyrir sjer með það, og gátu búizt
við, að það færi i sömu gönurnar apt-
ur, þótt því væri hrundið í sitt upp-
haflega horf. Auk þess hefði þá eigi
orðið komizt hjá mjög óþægilegri lim-
stýfingu, — þeirri að taka af því höf-
uðið, og næsta óvíst, hverjar afleið-
ingar það hefði haft.
Þá er stofnun Þjóðléiksins var í
undirbúningi sumarið 1884, vakti þetta
allt mjög fyrir mönnum. Öllum, er
þar stóðu að, kom sarnan um, að hin
pólitisku samtök þyrftu að vera girt
þeim böndum, er jafnframt væri sterk
og eðlileg. Eðlileg að þvi leyti, að
þeir einir tæki þátt i samtökunum,
er af frjálsum vilja gerði sig á eitt
sáttir; og sterk á þann hátt, að sam-
tökunum væri mörkuð fastákveðin leið
að takmarki sinu, svo að engin sundr-
ung út af smámunum og aukaatriðum
hnekkti þýðingu þeirra og fyrirætlun.
(NiðurL).
Um þlngmannakosningar í Kjósar-
og Giullbringusýslu.
Það litur út fyrir að verða talsverð
keppni um kosningar í Kjósar- og
Grullbr.s. í þetta sinn; að minnsta kosti
er mikið um þær rætt meðal kjósenda
og veit jeg fyrir mitt leyti að ekki
allfáir hafa ráðfært sig við mig um þær.
Sjera Þórarinn ætti þó að vera viss
um kosningu, þrátt fyrir árásir og
undirróður sjera Þorkels, Sjera Þór-
arinn hefur nú um mörg ár verið sí-
fellt endurkosinn þingmaður sýslunn-
ar, þótt hún hafi skipt um hinn þing-
manninn, og er auðsjeð að hann liefur
lengi notið almenns trausts sýslubúa.
Hvaða breyting er þá sú orðin á hon-
/
>