Þjóðólfur - 04.06.1886, Side 3

Þjóðólfur - 04.06.1886, Side 3
91 konur, gætið þess, að enguxn ætti heill yðar og heiður að liggja ríkara áhjarta en yður sjálfum, þjer eigið að færa yður sem bezt i nyt þær litlu rjettar- bætur, sem þjer þegar hafið fengið, þjer eigið að kappkosta að sýna yður færar um, að neyta þessara og annara meiri rjettinda, þjer eigið að vinna að því með þreki, stillingu og þolgæði, &ð þjer getið náð þeirri stöðu i þjóð- fjelaginu, sem yður með sanni ber. Yjer getum einnig dregið það af þvi, hve konur neyta lítt rjettinda sinna, að löggjafarvaldið hafi eigi knúð hinn rjetta streng, er það fór að auka rjettindi kvenna vorra. Þegar gjöra skal mikilvægar breytingar á skipu- lagi þjóðfjelagsins, fer því fjarri að einu gildi á hverju er byrjað. Allir hlutir taka framförum eptir vissum allsherjarlögum; sjerhvert framfarastig heimtar sitt ákveðna skilyrði. Framför einstakra manna, heilla Þjóða og alls mannkynsins fylgir sömu meginlögum i stóru sem smáu. Mun- ur á framförum ei er að eins fólginn í því, hvað þær eru skjótar og hve langt þær komast, en allir menn og allar þjóðir feta hinn sama fastákveðna feril að takmarki fullkomnunarinnar. Ef vjer því viljum bæta hag kvenna, verðum vjer fyrst að íhuga, hvað út- heimtist til þess, að hagur þeirra geti tekið bótum, og því næst fullnægja þeim skilyrðum, sem til þess eru nauð- synleg, og síðan hrinda hag þeirra í l&g smátt og smátt, en þó svo fljótt, sem auðið er og undanfarandi ómiss- audi skilyrðum er fullnægt. Það er ekki til neins að ætla sjer að aflúka elíku stórræði á einu eða fáum árum. Þegar menn gjöra það í einum svip, er samkvæmt eðli sínu þarf langan tíma,hlýtur að koma apturkast(reaction). Höfum vjer gætt þessaí kvennfrelsis- uiálum? Því fer fjarri. (Niðurl.). Til ritsljóra Þjóðólfs. —0— • . . Menn heimta stjórnarbót, en jeg vil sPyrja, hvað eigum við að gjóra við hana. þeg- ar við líðum yfirmönnum okkar að við hafa skaðlegan og óbrúkanlegan emb.rekstur til tjóns skammar þjóðinni? — Ekki svo að skilja, að jeg sje á móti stjórnarbót, nei langt frá; en jeg vil, að þjóðin láti sjer ant um, að verkamenn hennar, hinir afardýru emb.m. standi sómasamlega í þjónustu hennar, jeg er á því, að við hjer í Þverárþingum sjeum of þagmælskir um driptaleysi sýslumanns okkar, og þó mun sumt, er almenningi mun ekki kunnugt. Dað mundi nauðsynlegt, að hreppstjórum væri gjört að skyldu, að gefa í tvennu lagi, einu sinni á ári, skýrslur um dauðsföll nfl. til amts- ins eða landshöfðingja, jafnframt sýslumönnum, því með því gæti amtm. ekki sagt, að hann vissi ekki af, að dánarb.ú lægi svo árum skipti óskipt hjá skiptaráðanda, eins og mun eiga sjer stað hjer í Þverárþingum, og ætti þingið að taka það til íhugunar nú í sumar, ef tími leyfði frá stjérnarskránni, því skeð getur að öll kurl ekki komi þar til grafar fyrir landssjóð á stundum ; en ómak það, er hreppst. hetðu við þá skýrslu, er ekki teljandi. Það væri gaman að heyra frá yður, hvað mörg ár sýslumenn mættu draga, að dæma þá menn, er uppvisir væru að fengsemi, því hjer munu menn vera til fleiri ára gamlir. Það er í mæli, að Jón Hannesson, sem kvað hafa verið vinnumaður Páls læknis á Stafholtsey yfirstandandi ár, muni vera kom- inn á þriðja ár síðan hann meðgekk, og heyrzt hefur, að Jón nokkur Kunólfsson muni vera á 6. ári siðan hann varð uppvis að gripli; jeg i- mynda mjer að sýslum. ekki eigi að draga slikt í það óendanlega, af þvi að það sýnist mjög skaðlegt, kemur, ef til vill, miður vönduðum mönnum til hins sama, sem þeir sjá aðra kom- ast vel af með o. s. frv. Heyrzt hefur, að þeir hjer i vestri partin- um muni vilja fá hjeraðslæknirinn fluttanvest- ur yfir Hvitá, og er það eðíilegt, siðan læknis- umdæmið náði ekki lengra en að Hafnarfjöllum, þvi siðan situr hann á enda umdæmisins, en lækniriún fremur þungur til ferðalaga, og þarf að sitja sem haganlegast fyrir sig og þá, er þurfa að vitja hans. Hvitárvöllum 22. apríl 1886. A. Fjeldtsted. Herra ritstjóri! Af því að hvergi er enn þá greinilega sagt frá, hvernig slys það vildi til, er talað er um i Þjóðólfi 9. þ. m., finn jeg skyldu mina að gefa um það skýrslu mina, svo sanna og greini- lega, sem mjer er unnt, sem jeg bið yður um að taka sem allra fyrst i blað yðar, til að fyrirbyggja allar missagnir, og er hún svo hljóðandi: 7. þ. m. rjeri jeg til fiskjar og aflaði fremur vel (á að gizka 30 í hlut i 21 stað). Litlu eptir hádegi lagði jeg á stað heimleiðis og sigldi til lands; vindur stóð af landsuðri (s. a.); hjelt jeg nálægt vindi eða fullkomlega í austur. Þegar við höfðum litla stund siglt, sáum við hvar frakknesk skúta kom siglandi og hjelt sömu leið, nálgaðist hún óðum og lijelt á hlje- borða við okkur. En þegar hún hafði færzt svo nærri mjer, að jeg sá að mjer var einn kostur nauðugur, hleypti jeg upp í vindinii, því ekki var hægt fyrir mig að slá undan, og ljet leggja út árar, en í stað þess að slaka nokkuð til, hleyptu Frakkar líka upp í vind og sigldu þannig beint á skip mitt, var þetta hjer um bil mílu sjávar undan landi, engir boðar, sker nje grynningar að óttast. Hið frakkneska skip lenti þá með hraðri ferð á skip mitt við austurrúmið, braut það ogsökkti því svo, að að eins sást í hnifla þess og við skipverjar allir í grænan sjó, að fáum undan- teknum, er náðu í kaðla á skútunni, er þeir náðu í og gátu haldið sjer á um tíma, og 2 er komust strax með snarræði upp á skútuna og unnu þeir ásamt nokkrum af Frökkum mest og bezt að því að bjarga okkur, með þvi að fleygja til okkar kaðalendum og draga þá upp, eríþánáðu og sem gátu haldið sjer; enmargir þeirra frakknesku virtust mjög kærulitlir við björgunina og enginn bátur settur út nje önn- ur tilraun höfð til að hjálpa okkur. Loksins eptir langt og strangt volk (o: nokkuð á aðra kl.st.) komumst við fyrir guðs náð og hjálp þessara fáu frakknesku manna og háseta minna er hjálpuðu eptir megni þá þeir komust upp, hver fyrir sig, 15 að tölu, upp á skútuna. Einn háseti minn drukknaði Jiania, Árni Guð- mundsson frá Kirkjubæ, duglegur maður á bezta aldri, en 2 bjargaði annað róðrarskip, er var skammt frá og kom til hjálpar, þó því gæti ei orðið meir ágengt, þvi illt var hjer við að eiga fram undan brjóstum skútunnar í talsverðum vindi. Annað skip kom siðar úr landi, er ætl- aði okkur til hjálpar, flutti það 5 af okkur í land, en mig og 9 háseta mína flutti hin frakkn- eska skúta til Rvíkur, flesta meir eður minna þjakaða og komumst við þangað daginn eptir. Þess má geta Frökkum til hróss, að þeim fórst vel við okkur, þá við vorum um borð komnir og veittu þeim veiku góða aðhlynningu. Mjer finnst og skylt að votta mitt innileg- asta þakklæti þeim Reykvíkingum, er sýndu okkur staka alúð og aðstoð við þetta tækifæri, og vil jeg þartil nafngreina þá herra, Consul G. Finnbogasen, verzlunarmann Arnb. Ólafsson og kaupmann M. Johannessen. Fyrir manua- sjónum er ekki sjáanlegt, hvort jeg næ nokk- urn tima sömu heilsu og jeg áður hafði, en ligg sárveikur og 1 skipverji minn og fleiri þeirra eru enn mjög mikið eptir sig. Skip mitt með öllu fórst algjörlega. Jeg vil ei fleir- um orðum fara um viðburð þennan að þessu sinni. En ekki mætti álíta ósennilegt, að hlut- aðeigandi yfirvöld ljetu sjer hann koma við. Það er ekki í fyrsta sinni, að við sjómenn höf- um orðið fyrir óskunda og blekkni af þessari útlendu þjóð, er næg vitni geta borið, þó ei hafi fyr svo ósvífurlega verið að farið. Á slíkt lengi að líðast? Gerðakoti, 21. apríl 1886. Yirðingarfyllst, Tómas Eyjólfsson.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.