Þjóðólfur - 04.06.1886, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 04.06.1886, Blaðsíða 4
92 Reykjavík 4. júni 1886. Stranðfer'ðaskipið „Thyra“ kom hingað fyrra mánudagskveld, 24. f. m.; komst alla leið á Skagaströnd, varð vart við hafís undan Horn- ströndum og sneri við jiað aptur austur um land, stóð hér við 1. kl. stund, og fór síðan til Vestfjarða. Með j>ví komu nokkrir farþegar, einn þeirra, Bjarni Jensson, læknir á Seyðis- firði, og annar, Benedikt Þórarinsson, laxafræð- ingur, sem ætlar að ferðast hjer um land með Feddersen í sumar. „Thyra“ kom aptur að vestan 27. s. m. ogfór hjeðan aptur 1. þ. m. vest- ur og norður um land með margt aí ferðafólki. Prestvígsla. Sunnudaginn 23. f. m. vígði biskup prestaskólakandídat Jón Sveinsson til Garða á Akranesi. Prestaköll. Hinn 29. f. m. veitti lands- höfðingi Kálfliolt sjera Oddgeiri Guðmundssen á Miklaholti og Hof í Álptafirði sjera Stefáni Sigffissyni á Skútustöðum. Tíðarfar. AJla vikuna sem leið hafa verið norðanstormar og frost á hverri nóttu. En i fyrra dag brá tíl sunnanáttar með nokkurri úrkomu, sem enn hclzf. Skepnuhöld sögð gðð um allt Suðurland og Borgarfjörð. Hafís sagð- ur fyrir Norðurlandi vestanverðu, og ótekinn snjór upp til sveita. Öndvegistíð á Austurlandi allt vorið, og skepnuhöld góð. Kaupskip komin á flestallar hafnir norðan lands og austan. Aílabrögð. Góður afli við sunnanverðan Faxaflóa síðustu 2 vikurnar, þegar gæftir hafa verið, 60—100 i hlut. Á Austurlandi talsverð- ur afli, einkum af sild og upsaseiði. Vestan lands viðast hvar góður afli allt vorið. Samsöngur var haldinn á salnum i latínuskólan- nm af Söngfjélagi skólapilta 21. og 23. f. in. og boðið til hans bæjarbúum. Söngurinn fór yfir höfuð mætavel fram, og höfðu bæði piltar og sóngkennari þeirra mikinn sóma af. Fyrirlestur. Sunnud. 30. f. m. hjelt stud. theol. Hafsteinn Pjetursson fyrirlestur um N. F. S. Grundtvig (sjá augl. i síðasta nr.), lýsti hann æfiferli Grundtvigs, skoðunum hans og þýðingu þeirra, og kritíseraði kirkjuskoðanir hans. Fyrirlesturinn sóttu nálægt 50 menn, og líkaði hann prýðilega, enda þótti hann fram fluttnr með þeirri mælsku og ræðumannssnilld, sem vjer höfum eigi haft dæmi til hjer í höf- uðstaðnum um Iangan tíma. Bdkmenutafjelagsfundur var haldinn 1. þ. I m. Allar þessa árs bækur eru þegar prentað- | ar: Tímaritið VII árg., Frjettir frá íslandi 1885 (eptir Jón Steingrímsson, stud. theol.), Kvæði Steíáns Ólafssonar II. bindi, Hirðstjóra annáll Jóns próf. Halldórssonar, Skírnir 1885 og Skýrslur og reikningar. Bækur Hafnar- deildarinnar eru þó enn ókomnar. — Hafnar- deildin hafði á fundi 30. marz þ. á. vísað heim- flutningsmálinu á bug. Reykjavíkurdeildin var ekki á því að leggja árar í bát og fitjaði upp á nýjan leik með þvi að setja nefnd i málið, er skyldi hafa lokið störfum sínum fyrir næsta fund, 8. júlí. Þessir voru kosnir: ritstj. Björn j Jónsson, Dr. Björn Ólsen, dómkirkjuprestur H. Sveinsson, landsh. M. Stephensen og presta- skólakennari Þórhallur Bjarnarson. — Cand. phil. H. Melsteð bauð fjelaginu handrit af nýrri Forn- aldarsögu. Þvi rnáli var frestað fyrst um sinn. Þiugmannakosningar í Gullbringu- og Kjósarsýslu fóru fram í Hafnarfirði 2. þ. m. Kosnir voru próí. Þórarinn Böðvarsson og skóla- stjóri Jón Þórarinsson með 146 og 143 atkv. Báðir með endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þorkell prestur á Reynivöllum og Þórður bóndi á Hálsi fengu 82 og 101 atkvæði. Um aðra var ekki að velja þegar til kosninga kom. Um 240 manns greiddi atkvæði á fundinum eða tæpur helmingur allra þeirra, sem kosningar- rjett liafa í kjördæminu. Úr brjefi úr Dalasýslu 24. apríl þ. á.: „.. . Á sýslufundi, sem hjer var haldinn 20. og 21. þ. m. var afráðið að skora á landstjórnina gegn um næsta þing að fjölga sumum póstferðunum í minnsta lagi um fjórar ferðir. Það var mik- ill kongakraptur að þessu máli var hreyft. Af- sakanlegt er, þó að vetrarpóstgöngurnar gangi skrikkjótt og sjeu strjálar, en hitt er ðfyrir- gefaulegt, að sumarpóstferðirnar skuli vera verri en engar. Það er hlægilegt, að þjóðin skuli ár eptir ár horfa dottandi á þessar dæma- lausu póstgöngur, sem eru til hneykslis fyrir þjóðina, en öllum, sem einhverja tilfinningu hafa fyrir verklegum framförum, til skapraunar og tjóns. I rauninni væri ekki til mikils inælzt, þótt beðið væri uin póst í hverri viku á sumrin, og ólíklegt er, að þingið leitist ekki við, að koma póstgöngunum innan skamms í það horf. Sýslunefndin í Dalasýslu hefur líklega ekki þorað að stinga upp á meiru, en hún gjörði, af þvi að hún liefur verið hrædd um, að þingið vaknaði með andíælum og kastaði öllu fyrir borð, ef beðið væri um nokkuð verulegt, og þvi hefur hún viljað að eins ýta við þinginu og biðja um úrlausn í þetta sinn. . . . “ Misprentazt hefur í síðasta bl. Þjóðólfs bls. 85 : þjóðleiksins fyrir þjóðliðsins. AUGLYSÍNGAR í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a. hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út i hönd. íslenzk frímorki brúkuð eru kcypt á liæzta verð í Tlioiusensbúð, Itvík. Yfirsetukona lœrð, œfð, vel látin JÞÓrunn A. Bjarnardóttir í húsi Lúðvigs Alexiussonar, Rvik. ’ Med því að jcg hef afsaiað herra capt. Jolin Coghill allar útistandandi bóka- skuldir mínar, samkvæmt í dag út gefn- um lista, að fráteknum bókaleifum hjá útsölumönnum, eins og þær voru við síðastliðið nýjár, þá leyfi jeg mjer hjer með að skora á viðskiptamenn, að greiða bókaskuldir sínar við mig til herra Coghills hið fyrsta. Reykjavík 20. maí 1886. Einar iJúrðarson. Samkvæmt framanskrifaðri auglýs- ingu frá herra Einari Þórðarsyni er hjer með skorað á hlutaðeigendur, að greiða skuldir sínar liið fyrsta til herra cand. juris Guðlaugs Guðmundssonar í Keykjavik, er jeg hef falið innheimtuna á hendur. Reykjavík 20. maí 1886. John Coghill. Þessu samkvæmt er skorað á hlutað- eigendur að gjöra mjer hið fyrsta skil fyrir skuldum sínum við herra Einar Þórðarson, eða semja við mig um borg- un á þeim. Þeir, er eigi liafa gjört það fyrir lok júníniánaðar þ. á., geta bú- izt við lögsókn án ýtrari fyrirvara. d. u. s. Guðl. Guðniundsson, cand. juris. Til athugunar. Yjer undirskrifaðir álítum það skyldu vora að biðja almenning gjalda varhuga við hinum mörgu og vondu eptirlíkingum á Brama-lifs- elescír hra. Mansfeld-Búlner & Lassens, sem fjöldi fjárhuga kaupmanna heíur á boðstólum; þykir oss þvi meiri ástæða til þessarar aðvör- unar, sem margir af eptirhermum þessum gera sjer allt far um, að líkja eptir einkennismiðan- um á egta glösunum, en efnið í glösum þeirra er eklci Brama-lífs-elixír. Vjer höfum um lang- an tíma reynt Brama-lífs-elixír, og reynzt hann vel, til þess að greiða fyrir meltingunni, og til þess að lækna margskonar magaveikindi, og get- um því mælt með honum sem sannarlega heilsur siimum bitter. Oss þykir það uggsamt, að þess- ar óegta eptirlíkingar eigi lof það skilið, sem frumsemjendurnir veita þeim, úr því að þeir verða að prýða þær með nafni og einkennismiða al- þekktrar vöru, til þess að þær gangi út. Harboöre ved Lemvig. Jens Christian Knopper. Thomas Stausholm'. C. P. Sandsgaard. Laust Bruun. Niels Chr. Jensen. Ove Henrik Bruun. Kr. Smed Bónland. I. S. Jensen. Gregers Kirk. L. Dahlgaard Kokkensberg. N. C. Bruun. I. P■ Emtkjer. K. S. Kirk. Mads Sögaard. I. C. Paulsen. L. Lassen. Laust Chr. Cristensen. Chr. Sörensen. _______N. B. Nielsen. N. E. N'örby._______ Eigandi og ábyrgðarmaður: Þorleifur Jónsson, cand. phil. Skrifstofa: á Bakarastíg. Prentari: Sigm. Quðmundsson.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.