Þjóðólfur - 01.10.1886, Page 2

Þjóðólfur - 01.10.1886, Page 2
174 brúarmálið 1883, það er að landssjóð- ur kosti alla aðalpóstvegi um landið og þá líka að brúa stórárnar á þeim leiðum, að því leyti, sem það er mögu- legt, sjerstaklega þar sem eins stend- ur á sem lijer, að mest vörumagn er innfiutt af öllum vegum á landinu, og af liafnaAejú fyrir suðurströnd landsins hlýtur það svo að verða meðan land byggist. p. t. Reykjavík 24. ágúst 1886. P. Guðmundsson. + Ásgeir Einarsson, Nú er að foldu hníginn höldur Húnvetninga kjörsnillingur Ásgeir prúði Einars niður aldar blóm og hjeraðs sómi, þingskörungur þarfur mengi þreki studdur veg sem ruddi ítri þjóð á ísaláði að Iiugsnild með huga mildum. Hönd að hvar og huga sneri, hann ótrauður fram að dauða áfram keppti, og með krapti i forvígis sporum týginn stóð sem bjarg og bifaðist hvergi við bylgjuvastur heims aðkasta; áfram vildi ætíð halda, efla þjóða hagsæld góða. Hver af mengi Húnvetninga hefur sjer betri orðstír getið, og verðugri reist sjer varða traustan vígðan hjörð er guð sjer kjörði? Þingeyra kirkjan það er merka þess burt dána sigurfáni; lífs þar saga lausnarans fögur ljómar skær með snild frábæra. Hver og meir af höldum vorum hefur starfað lýð til þarfa að þjóðbrauta endurbótum er til hvatir gaf ólatur? Hver og frarnar happasamur höfn rjeð kjósa’ á Blönduósi fyrir kneri fermda vörum, sem frjóvga þjóðar velferð góða? Maðurinn var, þess minnast gjörum, mjög fjölbreyttum gáfum skreyttur, vel sannkristinn, vináttu fastur, virðing bar fyrir skyldum rara. elsku ríkur ekta maki, arfa studdi vel til þarfa, heimilisstoð og hjeraðs prýði, hug af bezta veitti gestum. Hvað vill tjá og tölu drýgja tunga mín, því verkin skína látins öldungs ofar moldum eins og ljós, og mæring hrósa? Þörf var hvildin þjáðum höldi þreyttum af sinna daga vinnu trúrra þjóna verðlaun vinur víst hefur hreppt þá æfi sleppti. H. N. Reykjavik 1. okt. 1886. Konulát. Hinn 9. f. m. dó eptir nýafstaðna barnsfæðing Guðrún Jóns- dóttir, kona Jóns G-uðmundssonar á Guðlaugsstöðum í Húnavatnssýslu, dótt- ir Jóns Pálmasonar og I. Salóme Þorleifsdóttur í Stóradal. Hún var fædd árið 1856 ; var hjá foreldr- um sínum til þess, er hún fluttist að Guðlaugsstöðum vorið 1878 og gipt- ist Jóni Guðmundssyni um haustið saina ár. Guðrún sál. var merkiskona í sinni stöðu, virt og vel látin af öllum, sem hana þekktu. Prófastar skipaðir af biskupi 2. f. m.: Hjörleifur Einarsson á Undirfeili fyrir Húnavatns-prófastsdæmi og sjera Jónas Hallgrímsson á Skorrastað fyrir Suðurmúlasýslu-prófastsdæmi. Heiðursverðlaun úr styrktarsjóði Kristjáns konungs hins níunda hefur landshöfðingi veitt dbr.m. Þorkeli Jóns- syni á Ormsstöðum í Grímsnesi og Guð- brandi Sturlaugssyni bónda í Hvítadal, hvorum 160 kr. fyrir frábæran dugnað í búnaði. Gufuskipið Minsk kom hingað 27. f. m. frá Newcastle með vörur frá Laur- itzen & Co. Það fer aptur meðlifandi fje og hesta. Gufuskipið Boniny fór hjeðan til Hafnar 25. þ. m. og Strandferðaskip- ið Thyra 26. f. m. norður og vestur um land; sneri aptur hingað daginn eptir og fór síðan um nóttina 28. f. m. Tíðarfar. Eptir því sem frjetzt hef- ur nú áreiðanlegar en áður, með kaupa- fólki og fl., kom þurkatíð fyrir norðan og vestan um 20 vikur af sumri (í fyrri hluta september) svo að hey náð- ust öll inn, en meira og minna hrakiu. Heyskapur norðanlands og vestan frá- munalega lítill svo að menn þurfa að að lóa miklu af fjenaði sínum i haust. Yerzlunarfrjettir. Eptir skýrslum, sem vjer höfum fengið, hafa eptirnefndar íslenzkar vör- ur selzt pannig erlendis í sumar: Ull. Haust. ull (ópvegin) í jímí á 39 a. pd.; síðast í júlí á Englandi leyfar af beztu norðlenzkri ull frá í fyrra 73/4 Pence enskt pd. þ. e. röma 64 a. danskt pd. 11. ág. kom til Hafnar með norsku gufuskipi Dronning SopMc firá Seyðisfirði 324 ballar af ull, sem seldist með umbúðum á 66 a. pd. (sbr. 42. tbl.) svo að ull hefur stígið í verði, — Æðardúnn síðast í júlí 17—18 kr. pd., síðast er frjettist 17—19 kr. pd. — Salt- fishur. Síðast í júní i Höfn mestmegnis frá vesturlandi hnakkakýldur 36—40 kr. skpd., óhnakkakýldur 33—35 kr., þyrsklingur 32—33 kr., ísa 30 kr.: þá voru og seldar leifar af gömlum fiski á 20 kr. stór óhnakkakýldur, 25 —28 kr. hnakkakýldur. Snemma í júlí seld- ust 2 skipsfarmar frá Vestmannaeýjum til Spánar á 37—36 ríkismörk skpd. þ. e. tæpar 33 og 32 kr. skpd.; þá var og boðinn sunn- lenzkur saltfiskur til Spánar með sama verði, án þess að hann gengi út. í Höfn seldist þá nokkuð af stórum saltfiski á 35, 36, 37Y2 og 40 kr. skpd., ísa 30 kr. Um það leyti seldist i Liverpool á Englandi þyrsklingur á 13 pd. sterling tonið þ. e. hátt á 37. kr. skpd., og ísa 11 pd. st. tonið þ. e. liðugar 31 kr. skpd., en þá seldist þar ekki stór saltfiskur, Síðast í júlí seldist fiskur frá Vesturlandi, sem kom með Lauru, stór hnakkakýldnr 38—40 kr., stór óhnakkakýldur 36—37 kr., þyrsklingur 32—33 kr. og ísa 30 kr. — Harðfiskur ijúníog júliekkiihærraverðien 70—80 kr. skpd. Lýsisíð- astíjúnigufubr. 37J/2,36og 35Y4kr. hver 210 pd.; vanal. br. hákarlsl. ljðst 35,32y2, 32, og 31 kr.; dökkt 26 og 25. Snemma i júlí ljóst hákarlslýsi 32V2—34V2 kr.. dökkt soralaust 28 kr. Síðast í júli 321/,, 333/4. 35, 35V4 og 351/,, kr., dökkt 27—28 kr.; þorskalýsi 30—31 kr., allt sora- laust og eptir gæðum. — Sundmagar í júlí 70 —80 a. pd. með umbúðum eptir gæðum.— Ept- ir seinustu frjettum frá byrjun þ. m. var salt- hjöt 35 kr. tunnan (14 lpd.) þ. e. liðuga 11 a. pd., gœrur 2 kr., tólg 20—22 a. pd. Verð á sláturfje er hjer mjög lágt; hjót 14 a. (eða jafnvel 12 a.) pd. i kindarfalli und- ir 30 pd., 16 a. i 30—40 pd. falli, 18 a, i 40—50 pd. falli, og 20 a. i kindarfalli yfir 50 pd. Gœrur 7 pd. og þar yfir 28—30 a. pd. rýrari gærur 22—25 a. pd. Mör 25—28a. pd. Haustull 35—40 a. pd. -— Að norðan að frjetta mjög lágt verð á fje. Á Sauðárkrók

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.