Þjóðólfur - 03.12.1886, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 03.12.1886, Blaðsíða 3
211 Markúsar Bjarnasonar, Páll Bjarnarson og Pjetur Þórðarson. í stýrimanna- fræði leystu þeir úr 6 skriflegum spurn- ingum, sem póstskipstjóri P. Christjan- sen hafði valið; gerðu þeir það í við- urvist hans eða stýrimannsins af póst- skipinu. í viðurvist þeirra voru læri- sveinarnir eínnig reyndir í þekking á siglingareglum og notkun sextants og laterna. G-af Christjansen þeim vitnis- hurð fyrir það allt saman ásamt hinum prófdómendunum, dósent Eríki Briem og skipstjóra G-uðmundi Kristjánssyni. Munnlega voru lærisveinarnir og reynd- ir í stýrimannnafræði, talnafræði og rúm- málsfræði. Páll fjekk 67 stig, en Pjet- ur 64. (Flest stig við þess konar próf eru 84, en fæst 24). Námsmeyjar á kvennaskólanum á Ytriey. (Eptir stafrofsriiJ). 2. bekkur: Martha Stephensen, Sigríður Briem, Þuríður Jakobsdóttir. 1. bekkur: Björg Sigfúsdóttir, Guðrún Gfísladótt- ir, Guðrún Kjerúlf, Gróa Sveinsdóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ingibjörg Sig- urðardóttir, Jóhanna Kjerúlf, Kristín Guðmundsdótfir, Sigurbjörg Daníelsdótt- ir, Steinvör Lárusdóttir, Sigríður Sig- urðardóttir. Handvinnubekkur Guðríður Árnadóttir, Guðbjörg Pálma- dóttir. Við lok fyrra tímabilsins 22. des. fer ein úr 1. bekk. Við byrjun seinna tím- bilsins 2. jan. koma sex. Auk þeirra verða tíu mismunandi langan tíma ept- ir nýár. Verzlunarfrjettir. í síðari hluta október seldust íslenzkar vörur í Kaupmannahöfn með þessu verði: Saltfiskur vestflrzkur jaktjafiskur, beztategund lmakkakýldur40 kr. skpd., óhnakka- kýldur 37,50, lakari tegundir stór 28,30, smár 26, ýsa 25, norðlenzkur fiskur stór 26,28, smár 25,26, ýsa 24,25. Engín verðhækkun á salt- fiski á Spáni. Gufubrætt hákarlslýsi ljóst 33,80 tunnan, dökkt 28, venjulega brætt hákarlslýsi !jöst 32,75—31,32, dökkt 26 til 27. Þorska- lýsi vanaleg tegund 26 kr. Beztu sundmagar 70 a. pd., lakari sundmagar 50 a. Hvít lamb- skinn 30 a. hvert, mislit 15 a., saltaðar sauð- argærur 3,50 til 4,75 vöndullinn (2 gærur) ept- ir vikt; vestfirzkt sauðakjöt 36 kr. tunnan 1) Þar er eingöngu kennd handavinna. (224 pd.), norðlenzkt 40 kr. tunnan, vestfirzkir sokkar 40 a. parið, norðlenzkir 50 a.; ull með líku verði sem í sept. allt að 68 a. pd. (sbr. 46. tbl. Þjóðólfs); æðardúnn heldur að lækka í verði. líý útflutningslína er eptir áreiðunlegum frjettum í undirbúningi með að taka að sjer fólksflutninga hjeðan af landi til Ameriku i sumar komandi með betri kostum en fæst hjá nokkurri annari línu, og munu koma greinlegri skýrslur um pað með næsta póstskipi. Þjóðviljinn heitir hið nýja blað ísfirðinga. Ritnetnd þess er stjórn prentfjelags ísfirðinga. Ábyrgðarmaður er próf. Þorvaldur Jónsson. Þjóðviljinn kemur út að minnsta kosti tvisvar í mánuði og kostar 3 kr. árgangurinn. Síðan Þjððólfur kom út síðast, hefur ýmislegt komið fyrir í blaðamálum, sem vert er eptir að taka. ísafold hefur komið út og ber ýms merki þess, að hún sje að snúast, og að hr. Gestur Pálsson sje nú að syngja síðasta versið með Suðra. Það er talið sem sjálfsagt, að Suðri muni hætta um nýjár ; þótt stjórnin hafi reynt að halda í honum lífinu með auglýsingunum, verður hann samt að deyja, af þvi að almenn- ingur vill eigi halda hann. íslenzkri alþýðu kann að vera ábótavant í mörgu, en það verð- ur hún þó að eiga, að hún hefur hafnað þessu blaði. En hvert blaðið á þá að verða stjórnar- blaðið og fá þennan feita bita auglýsingarnar ? Það verður ekki Þjóðólfur. Ekki fær Fjallkon- an hann heldur; hún fer sinna ferða og lítur ekki við bitanum. Austri, Norðurljósið og Þjóðviljinn eru sjálfstæð blöð, sem ekki liugsa um stjórnarhylli. Fróði er norður á Akureyri, svo að hann getur þess vegna ekki borðað bit- ann, og þar að auki er hann nú líklega sálað- ur eða þá í andarslitrunum, af því að almenn- ingur er eins harðbrjósta við hann eins og Suðra sjálfan. Það er þá ekki eptir anuað blað en ísafold. Hún mun þiggja bitann, segja meun, enda er hún auðsjáanlega að búa sig undir að taka við stjórnar hyllinni. Það muna víst flestir, hvernig ísafold var stofnuð, og hvert starf henni var ætlað. Það muna menn einnig, hvernig seglin voru hjá henni sumarið 1883, og þess vegna hafa margir furðað sig á, hversu hún hefur verið þögul um langan tíma um ýmislegt i landsstjórnarmálum, sem miður hefur farið, enda hafa margir getið þess, að þetta logn væri undanfari einliverra veðra- breytinga. Vjer viljum eigi fullyrða neitt um þetta, en það er óhætt að segja að ísafoldar- blaðið, sem út kom síðasta miðvikudag, bar mikihn keim af Arnljótsku. Fyrst og fremst er þar brjef úr Eyjafirði dags. 9. nóv., þar segir: „Engimi maður minnist á stjórnarmál- efni, og sá hinn míkli áhugi, er var á stjórn- arskrármálinu í vor, er nú annaðhvort sofnað- ur eða dáinn, enda mun annað nær garði um að hugsa í vetur“. Þetta eru sannlega ein- kennileg orð, þvi að það er þó undarlegt að vera að prjedika um áhugaleysi Eyfirðinga á sjálfstjórnarmálinu, eptir að þeir ráku jafn greinilega af sjer slyðruorðið við þingkosning- arnar í vor, og ekki siður undarlegt er það að koma með þessa gömlu tuggu allra apturhalds- manna, að í'slendingum sje nær að hugsa um eitthvað annað en bætur á landsstjórninni. Enn fremur er það einkennilegt, hvernig Isa- fold fagnar hinu nýja blaði ísfirðinga Þjóðvilj- anum. Með síðasta pósti kom fyrsta tölublað af honum, sem bar á sjer einarðlegan og drengi- legan svip, og gefur loforð um, að blaðið muni fylgja frjálslyndri stefnu. Það hefði mátt bú- ast við, að ísafold tæki á móti þessum nýjaliðs- manni með fögnuði, en það er öðru nær. Henni far- ast þannigorð: ,,„Þjóðviljinn“ hefur núloks „brot- izt fram“ úr skauti ísfirðinga 30. okt. þ. á. ept- ir að „grýlan er dottin úr sögunni og frelsi fósturjarðarinnar fagurlega borgið“ — „bráð- látur í allt það er hann ætlar að fleygt geti þjóð vorri fram i andlegu og efnalegu tilliti“ og kostar 3 kr. árgangurinn, ekki minna en 24 blöð“. Mikið einstaklega hefur ritstjóranum tekizt þarna vel. Þessi skynsamlegi samtýn- ingur og útúrsnúningur er dæmalaust skemmti- legur. ísafold minnist og á hindranir þær, sem stjórnarvöldin lögðu í veg fyrir blað ísfirðinga og segir, að Þjóðviljinn „skelli þar skuldinni upp á stjórnarvöldin ; — annars heldur hann sig ekki geta komið fram eins og skilgetinn Þjóð- vilji. Inn í þennan harmagrátprjónarhannsvo of- urambögulegum skætingi til ritstjóra ísafoldar — sem veit sig annars enganvegin hafa kom- ið fram eins og meinsmaður þessa fyrirtækis ísf.—, fyrir það, að hann vill ekki undirskrifa þá trú- arjátning þjóðviljabvítvoðunga að allt sje rangt, illt eða ljótt, sem stjórnin gérir, en allt rjett, gott og fagurt, sem hver sjálfboðinn þjóð- garpur gerir eða segir“. Yjer ætlum eigi að fara neinum orðum um Arnljótskuna í þessum orðum, en vjer ætlum aðeins að spyrja ritstjóra ísafoldar, hverjir þessir þjóðviljahvítvoðungar eru og þessir sjálfboðnu þjóðgarpar. Er þessu beint að þingmönnum eða hvað ? Það vita all- ir, að enginn hefur verið harðari í horn að taka við stjórnina en Jón Sigurðsson. Er hjer ver- ið að sneiða hann? Var það hans trúarjátning, að „allt sje rangt, illt eða ljótt, sem stjórnin gerir, en allt rjett, gott og fagurt, sem hver sjálfboðinn þjóðgarpur gerir eða segir“ ? ísafold minnist á rökstuddar dagskrár og segir um þær: „Og er þó orð á því gert, að þingið neyti annars harla óspart þess breiða vopns, eins og það ímyndi sjer, að það geti aldrei sljóvg- ast hvernig sem þvi er sargað“. Þessi orð verðum vjer að kalla bæði óviðurkvæmileg og órjettlát við alþing, því að það er sannarlega eitthvað hægt að finna að þinginu fremur en að það sýni ofmikla snerpu og hörku við stjórn- ina. Annars viljum vjer spyrja ritstjóra ísa- foldar, við hvað hann á, og biðja hann að segja með tullri einurð, hvenær þingið hefur sýnt þessi afglöp, sem lianu er um að dylgja. Oss hafa f'undizt þessi orð bera vott um veðraskipti hjá ísafold ogþess vegna höfum vjer vakið eptir-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.