Þjóðólfur - 03.12.1886, Side 4
212
tekt manna á þeira. Vjer vildum ðska, að rit-
stjórinn skýri þau á annan veg og sýni að ísa-
fold sje söm og áður.
Fyrirspurn.
—:o:—
Eru nokkur núgildandi lög til, sem ákveða
að safnaðir (sðknarmenn) skuli skyldir að vinna
án endurgjalds að uppbyggingu sóknarkirkju
sinnar, svo sem að flytja timbur og annað
byggingarefni frá næstu kauptúnum, vinna að
grjóti til grunnmúra o. s, frv., hvenær sem
hlutaðeigandi kirkjueigandi eður umboðsmaður
hans ákveður að verkið skuli framkvæmast.
S.
í reglngjörð 17. júli 1782 um tekjur presta
og kirkna á íslandi 15. gr. stendur: „Bænd-
urnir í sókninni skulu byggja kirkjugarða og
veggi kirkjunnar, sömuleiðis leggja þakið á
kirkjuna á sinn eigin kostnað; þó má gefa hin-
um allrafátækustu, sem geta ekki sjálflr fætt
sig, meðan þeir eru heimanað við vinnuna, mat
einu sinni á dag á kostnað kirkjunnar og leggja
þeim til verkfæri til vinnunnar. Þegar ein-
hver mikil aðgerð á kirkju fer fram, skulu
bændurnir sömuleiðis hjálpa til að flytja timb-
ur og byggingarefni til kirkjunnar, og skal
jafna því sanngjarnlega milli þeirra eptir efn-
um hvers eins“. — Hjer er sjálfsagt gengið
út frá torfkirkjum, og ef byggja skal torf-
kirkju er svarið ljóst i framanskrifaðri grein,
en þegar um timbur- eða steinkirkju er að
ræða, er vafasamt, að hve miklu leyti sóknar-
bændur eru skyldugir til að [hjálpa til bygg-
ingarinnar, og úr þeim vafa eru dómstólarnir
einir bærir að skera.. Mál þetta hefur komið
fyrir stíptyfirvöldin, en þau eigi uppkveðið
neinn almennan úrskurð. — Að líkindnm kom-
ast sóknarbændur engan veginn hjá að flytja
timbur i kirkjuna frá næstu kauptúnum og
grjót í grunnmúr og jafnvel hlaða hann upp.
Sjálfsagt verður kirkjubyggjandinn að ráða
miklu um það, hvenœr það skuli gjöra.
Bitstj.
AUGLYSINGAR
I samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun útihönd.
KYÖLDSKEMMTUN í GLASGOW
til ágóða fyrir eptirlátnar
fjölskyldur þeirra er drukknuðu
hjeðan 30. fyrra mánaJar.
Laugardaginn þann 4. þ. m. kl. 8 e. m.
„Yesturfararnir11 eptir síra Mattías Joch-
i umsson, 2. act;
„Box og('ox“. Æ
Steingrímur Johnsen, Halldór Jónsson og Úlaf-
ur Stepensen sýngja (úr „Glunt,arne“, „Frithiof
och Biörn“, m.fl.)
Aðgöngumiðar á 2 kr., 1 kr. 50 a. og 1 kr.
fyrír fullorðna og 50 aurar fyrir börn fást á
laugardaginn á venjulegum stöðum.
Veitingar á drykkjum Good-Templara verða
á hinum efra sal og stendur hótelhaldari Ein-
ar Zoéga fyrir þeim.
Allt það, er kenmr inn fyrir aðgöngumiða-
ana og fyrir veitingarnar verður öldnngis ó-
skert afhent dómkirkjuprestinum til úthlutun-
ar milli eptirlifenda, barna og ekkna þeirra,
er drukknuðu 30. f. m., því allir, sem að skemmt-
uninni vinna, gjöra það ókeypis, hús og ljós
leyfa Glasgow-leigjendur fyrir ekkert, en Ein-
ar Zoéga leggur til gefins það er veitt verður.
Vjer skorum nú alvarlega á bæjarbúa, að þeir
bregðist við drengilega. til að hjalpa þessum
munaðarlausu fátæklingum og kaupi sem llest-
ir og sem mest.
Reykjavlk 2. des. 1886.
í framkvæmdarnefnd Glasgow-leigjenda.
Guðl. Guðmundsson. Konráð Maurer
form. skrifari.
Björn Kristjánsson. Þorlákur O. Johnson.
Jón Ólafsson.
Lífsábyrgð.
„Leiðarvísir til að nota lífsábyrgðar- og fram-
færslustofnunina frá 1871“, eða leiðbeiningar
og töluskrár um það, hvernig maður getur
fengið ábyrgð á lífi sínu og þannig átt vísa
fjárhæð handa erfingjum sínum, eða tryggt
skuldunautnm skilríka borgun á skuldum sín-
um, o. s. frv., eða keypt sjer eða vandamönn-
um sínum lífeyri eða uppeldisstyrk á elliárum
— fæst ókeypis hjá dr. med. .7. Jónassen i
Beykjavík og öllum hjeraðslæknum landsins,
svo og hjá ritstjórunum. — Hjá dr. Jónassen
fást einnig eyðublöð, sem gerð eru handaþeim,
er kaupa sjer lifsábyrgð, og þurfa menn hjer
á landi ekki annað en að fylla þau út og senda
þau dr. J. Jónassen, ásamt hinu fyrsta trygg-
ingargjaldi.
Dr. J. Jónassen veitir hverjum sem óskar
allar nauðsynlegar upplýsingar áhrærandi lífs-
ábyrgð.
Tannlæknir.
Hjer með leyfi jeg mjer að tjá mönnum, að
jeg ætla mjerað dvelja nokkra mánuði í Reykja-
vík, og að jeg tek að mjer tannlækningar, án
þess að draga tennurnar út, með þvi að fylla
holar tennur (Plombering), hreinsa tennur, setja
í menn Amerikanskar glerungs- (Emaille) tenn-
ur af beztu tegund og koma reglu á tanntöku
hjá börnum. Auk allskonar tannlækninga tek
jeg enn fremur að mjer lækning á allskonar
munnsjúkdómum.
O. Nickolin
cand. pharm., tannlæknir.
Þegar jeg fyrir tveim árum varð að fara hjeð-
an til útlanda til að leita mjer heilsubótar, var
jeg svo lánsöm, að hr. Eggert Gunnarsson, sem
varð mjer samferða til útlanda, tókst á hendur
að annast mig og sýndi mjer hvervetna þá um-
önnun, sem faðir eða bróðir hefði bezt getað
gjört, og sparaði hvorki fje nje ómak tíl að
útvega mjer hjálp beztu og nafnkunnustu lækna
og alla hjúkrun og aðhlynning, sem jeg ann-
ars þurfti. í Englandi kom jeg til vors nafn-
kunna landa herra Eiríks Magnússonar i Cam-
bridge, og sýndi hann mjer þá dæmalausustu
gestrisni, sem jeg get hugsað mjer, og leystí
mig síðan út með höfðinglegri gjöf, sem jeg
get eigi bundizt að þakka honum, þótt hann
bannaði mjer að geta um þetta.
í Kaupmannahöfn naut jeg hjúkrunar margra
lækna, en engum lækni, hvorki hjer nje þar1,
á jeg jafnmikið að þakka, sem hinum gððfræga
landa vorum Móritz lækni Halldórssyni Frið-
riksson. Honum má jeg næst drottni þakka
heilsubót mína, og fæ jeg honum ekki fullþakk-
að alla hans hjálp og velvild.
Eptir að jeg naut ekki herra Eggert Gunn-
arssonar lengur við, þar eð hann ferðaðist burt,
tók bróðir hans herra Tryggvi Gunnarsson við,
og gjörði hann ekki endasleppt við mig, held-
ur hjálpaði mjer allt til síðustu stundar, og
má jeg þakka honum, auk ótalmargs annars,
að jeg nú er heim komin eptir að jeg er orðin
aptur heil heilsu minnar.
Reykjavík 30. nóv. 1886.
Þorbjörg Sveinsdóttir.
1) Hjer heíi jeg ekki veriö undir læknis hendi, þar
eð hjer voru engin tök á að veita mjer þá umönnun,
sem sjúkdómur minn þurfti. ____
Jörðin SYÐSTAMÖRK í Yestur-
Eyjafjallahreppi fæst í komandi fardögum 1887
til ábúðar. — Þeir, sem vilja sinna þessu, snúi
sjer til ábúandans, sem nú er, fyrir lok febrú-
armánuðar 1887.
Með þvi að jeg bregð mjer nú utan með
þessari ferð póstskipsins, hef jeg falið syni mín-
um Ásgeiri á hendur að standa fyrir verzlun
minni meðan jeg er erlendis. Er það því vin-
samleg bón min til allra viðskiptavina minna,
að þeir sýni honum sömu velvild og þeir á-
vallt hafa sýnt mjer, og haldi áfram viðskipt-
um sínum við verzlan mína eins og jeg væri
sjálfur viðstaddur.
Reykjavík 27. nóv. 1886.
Eyþór Fclixson.
Mig undirskrifaðan vantar af fjalli úr næst-
liðnum rjettum 2 veturgamlar ær, svartar, með
brennimark: Þ. G. Rvk. Hver sem hitta
kynni þessar kindur, er vinsamlega beðinn að
fóðra þær í vetur upp á minn kostnað, eða láta
mig þá vita um þær sem allra fyrst.
Görðunum 1. des. 1886,
Þórður Guðmundsson.
kBETRI KJÖR”.
Af þvl mjer skilst á „fsafold“ 1 gœr, að ritstjóri
hennar vilji bráðum fá ódýrt far til Ameriliu, vil jeg
nú bjðða honum — sem er fremur ljettur I viktina — að
„slæðast" mjög „billega“ með til Canada, á „voldugu“
skipi, þ. e. að segja, ef hann ekki tekur „Mosfellið"
með sjer „aukreitis". Sigm. Quðmundsson,
umboðsm. Anch. Ununnar.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastig.
Prentari: Sigm. Guilmundsson.