Þjóðólfur - 14.01.1887, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 14.01.1887, Blaðsíða 1
Kemur út á föstudags- morgua. Verö árg. 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyrir lö.júlí. ÞJÓÐÓLFUR. Uppsögn (skrifleg) bund- in við áramót, ógild nema komi til útgef. fyrir 1. október. XXXIX. árg. Reykjavík, lostudaginn 14. janúar 1887. Nr. 2. Um menntamál. f ágústmánuði síðastliðið sumar var haldið skólamót í Kaupmannahöfn; á þvi mættu hjer um bil hálft þriðja þús- und manna, karlar og konur, flest kenn- endur. Á móti þessu voru rædd ýms skólamál t. d. um sögukennsluna, trú- bragðakennslu, um handvinnu (Slöid) í skólum og um hlutkennslu(?) (Ansku- elsesundervisning). Þar var og rætt um nýtt frumvarp til alþýðuskólalaga, sem nú er á ferðinni hjá Dönum; sýnd Voru þar og skólaáhöld, bekkir, púlt, ritföng, landabrjef, myndir, kennslubæk- Ur o. s. frv,, þar á meðal voru og skóla- Veglugjörðir, skólabækur og skólaáhöld frá Englandi og Frakklandi. Nú á dög- um er mjög mikið rætt og ritað i flest- um löndum um skólamál og skólamennt- un. Menn vita, að á Þýzkalandi eru prentuð allra mestu ósköp af bókum, þó segir svo í nýlegri skýrslu um bóka- prentun þar, að eigi sje prentað jafn- mikið í neinni einstakri fræðigrein sem uppeldisfræðinni. í flestum löndum í Norðurálfunni, að vjer ekki tölum um Ameríku, er fjöldi af skólum með föst- um kennurum. Víða hafa kennararnir stofnað fjelög; vinna þau á ýmsan hátt að því, að bæta kennslu alla og hag kennaranna. Eitt slíkt fjelag var stofn- að í Danmörku 1874. Landstjórnir, fjelög og einstakir menn gefa út mörg blöð og tímarit, er mestmegnis eða ein- göngu ræða um skólamál og uppeldis- fræði, og kennarar eiga við og við mót Þeð sjer, svo sem það, sem lijer var í?etið um, til að ræða um skólamál. ^viinarar á Norðurlöndnm liafa átt sam- eiRinleg mót með sjer. í fyrra komu ^eir 4 fund í Kristjaníu, var þá svo ráðfyrir gjört, að halda næsta allsherj- ®ót í Kaupmannahöfn árið 1890. Það 'iggur i augum uppi, að þessar kenn- ^rasanikomur muni hafa mikla þýð- ing. Þótt tíminn sje að vísu stuttur, geta kennarar þó nokkuð rætt ýms mik- ilsvarðandi mál, leitað ráða hver hjá öðrum og komizt í kynni liver við ann- an. Þá er það eigi lítilsvert fyrir kenn- ara að sjá saman komin á einn stað hin beztu skólaáhöld, eins og var á kaupmannahafnarmótinu, og eiga að minnsta kosti að nokkru leyti kost á að velja sjer það af þeim, sem bezt er og liagkvæmast fyrirþá. FlestarNorð- urálfuþjóðir hafa fengið töluverða reynslu í skólamálum, að minnsta kosti meiri en vjer íslendingar. Nefndir manna hafa setið ár eptir ár við að semja skólareglugjörðir, og álits skólatróðra manna hefur verið leitað um, hvernig þær mundu geta orðið sem bezt úr garði gjörðar. Sum af frumvörpum þeim, sem þannig hafa til orðið, hafa náð laga- gildi. En þegar til framkvæmdanna hefur komið, hafa menn fundið agnúa; þá hefur venjulega verið reynt að breyta til, til að nema þá af. Svo hefur það gengið og svo mun það sjálf- sagt ganga, því að bæði er það, að mannaverk eru ófullkomin, og mennt- unarþarfir mannsandans sífelldum breyt- ingum háðar. Þó munu flestir játa, að þessar framfara tilraunir hafi borið all- mikinn árangur og að menn standi nú , allmiklu fremur að minnsta kosti í ýmsum greinum uppeldisfræðinnar en fyr. Jeg get ekki betur sjeð, en að vjer íslendingar hefðum mjög gott af að kynna oss skólasögu og skólareynslu annara þjóða, og það því fremur, sem það sýnist töluverð alvara hjá mönn- um að reyna að auka almenningsfræðslu og almenningsmenntun. Jeg veit það mjög vel, að það liagar svo til hjá oss, að vjer getum ekki tekið alþýðuskóla- reglugjörð Dana, Svía, Norðmanna eða annara þjóða og lögleitt hjá oss. En vjer getum lært eigi svo fátt af þeim, bæði hvað vjer þurfum að varast og hvað vjer munum geta gjört. Það eru ýms atriði í uppeldisfræðinni eins og öðrum greinum, sem að mestu leyti eiga alls staðar við, atriði, sem sjerstak- lega taka breytingum að eins eptir.því, . sem vísindin opna möunum nýja heima, eða hugvitið finnur ný og betri áhöld. Þessu þurfum vjer að gefa gaum og hagnýta oss það. Börn vor þurfa að anda að sjer hreinu lopti eigi síður en börn annara þjóða, þau þurfa að hafa hæfilega og hagkvæma birtu og hita. Ef vjer byggjum oss skólahús, eða þótt ekki sje nema baðstofa, sem liklega verður æðilengi enn þá skólahús margra ungmenna .eins og verið hefur, þá er mjög liklegt, að vjer liugsum fyrir því, hvernig vjer getum haft húsið sem lopt- bezt og með sem hagkvæmastri birtu og liita eptir þeim efnum, sem vjer höfum fyrir hendi. En til þess þarf töluverða þekking, og það mundiverða til eigi lítilla bóta, ef vjer þekktumog hagnýttum oss betur reynslu annarra þjóða í því efni, en vjer höfum gjört. Kennsluaðferðir liafa og rutt sjer til rúms, sem oss er lítt kunnar, en sem þó eru þess verðar að þeim sje gaum- ur gefinn, hvort sem kennsla fer fram í skólum eða heimahúsum. í allmörgu fleiru getum vjer sjálfsagt hagnýtt oss skólareynslu annara þjóða, eða haft gagn af að þekkja hana, en nú ætla jeg ekki að fara lengra út í það mál. Tilgangur minn er alls eigi sá, að rita langa ritgjorð um skólamál, heldur miklu fremur að vekja máls á því efni enn á ný; það er svo mikilsvert, að vjer þnrfum að halda því sívakandi og oss sivakandi yflr því. Vona jeg, að þeir, sem mjer eru fróðari í kennslu- fræði og reyndari við kennslu, riti ná- kvæmar bæði um þau atriði, sem jeg hef að eins lauslega minnzt á, og annað fleira viðvíkjandi skólamálum vorum. — s.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.