Þjóðólfur - 28.01.1887, Side 3
15
an bæ að konungssetri, en það stóð
skamma stund, þvi flmm árum eptir
dauða hans var bærinn eyddur af Vind-
um, og hefur hann aldrei náð sínum
fyrri blóma síðan. Við Kungelf grein-
ist Grautelfi í tvær kvíslar, sem falla
sin hvorum megin við eyna Hísing. Þar
bjuggu þeir Sigtryggur og Hallvarður,
er knörrinn góða tóku upp fyrir Þór-
ólfi Kveldúlfssyni, bróður Skallagríms,
er hann hefndi með því, að ræna bæ
þeirra og brenna. en Skallagrímur og
Kveldúlfur með því að drepa þá á leið
sinni til íslands.
Til Gautaborgar kom jeg um kl. 3.
Það er stór bær. Hann liggur við
mynni Gautelfar. Verzlun erlijermjög
mikil, enda er einhvers konar fjárreiðu-
bragur á öllum bænum. Jeg var að
skoða bæinn í gærkveldi, og fannst
mjer ekki sjerlega um neitt þar fram-
ur því, er sjá má í liverjum stórbæ.
Það helzta eru siki þau sem ganga um
þveran bæinn. Skal hjer nú staðar
numið, því eptir liálfa stund stíg jeg á
skipsfjöl, og fer með eimskipi til Kaup-
mannahafnar. Hlakka jeg mjög til að
sigla út um Elfarsker, því útsiglingin
hjer kvað vera framúrskarandi fögur.
, t
Arui IljáInisson.
Hinn 8. ágúst síðastl. andaðist á Hamri í
Borgarlireppi í Mýrasýslu söðlasmiður Árni
Hjálmsson, 30 ára að aldri. Hann var sonur
hins alkunna merkismanns Hjálms Pjetursson-
ar, amtsráðsmanns á Hamri í Þverárhlíð, og
honu hans Helgu Árnadóttur frá Kalmanns-
Hingu. Heima hjá foreldrum sínum dvaldi
hann alla tíð að undanteknum tíma jieim, sem
hann varði til að nema handverk sitt, þar til hann
fyrir tveim árurn byrjaði búskap. Kvæntist
bann jiá og gekk að eiga frændkonu sína ung-
hú Guðrúnu Hjálmsdóttir frá Þingnesi. Þeim
hjúnum varð tveggja barna auðið, sem bæði
eru á lífi.
Árni sál. var gæddur góðum gáfum, vandað-
höfðinglegur og hreinn i lund. Poreldrum
s>num, systkinum og eiginkonu var hann hinn
óstúðlegasti, og hinn hugþekkasti öllum, er hon-
11m hynntust, því að hvarvetna kom hann fram
fftgurlega og til góðs eptir þvi, sem honum var auð-
Ef ytri hagur hans hefði ekki að nokkru leyti
tálmað honum að koma fram, eptir því sem
bann hafði hæfilegleika til, þá er víst, að al-
nrennt hefði verið talið, að þjóð vor hafi, þar
8ein hann var, misst einn af sínum beztu og
KJörvulegustu sonum. — J. O. M.
Reykjavlk 28. jan. 1887.
Skipskaðar urðu stórkostlegir á Skagaströnd
3. þ. m. Um þá er oss skrifað úr Húnavatns-
sýslu 11. þ. m.: „3 þ. m. rern 7 skip til fiskj-
ar af Skagaströnd, en er menn voru nýrónir,
laust á ofsaveðri af austri með sortahríð og
snjókomu, svo að af þessum 7 skipum náðu að
eins 2 til lands á ströndiuni, en hin 5 fórust,
bátur frá Hofi með 3 mönnum (formaður (tuð-
mundur að nafni), skip frá Háagerði með 5
mönnum (form. Tómas Tómasson), skip frá Bakka
með 4 mönnum (form. Páll Pálsson), skip frá
Viðvik með 6 mönnum (form. Árni Sigurðsson)
og skip frá Árbakka raeð 6 mönnum (forra.
(luðmundur Olafsson), og drukknuðu allir raenn-
irnir, 24 að tölu, flestir úrvalsmenn, bændur
og vinnuinenn. Urðu við þetta stórkostlega
slys 9 ekkjur og að sögn 27 börn föðurlaus.
Skipin ráku 1 á Þiugeyrasandi, hináVatnsnesi
beggja megin meira og minna brotin, en er
siðast frjettist enginn maður fundinn. Sum
heimili af þessum, sem misstu menuina, eru
sögð bjargarlaus. Vindhælishreppur hefur við
þetta beðið mikið tjón, að missa jafnmarga dug-
lega menn. Verður erfitt fyrir það sveitarfje-
lag, að ráða fram úr þeiin vandræðum, sera
leiða af þessu. í haust hefur verið góður afli
á Skagaströnd og þar hlutir komnir frá 400
til 1000“.
Nauðsynlegt væri að leita samskota til að
draga ur bágindum, sem leiða af þessu mikla
manntjóni. Þess er þvi fremur þörf, sem hag-
ur manna þar, sumra hverra að minnsta kosti,
mun eigi hafa verið góður áður, þvi að Vind-
hælishreppur fjekk hallærislán siðastliðið ár, enda
er það útkjálka- og harðindasveit, sem harðindi
nndanfarinna ára hafa lagzt þungt á.
Húshruni. Nóttina milli þess 3. og 4. þ. m.
brann pakkhús kaupmanns Bærndtsens á Skaga-
strönd, en þvi, sem var í húsinu, var bjargað
„fyrir dugnað og ráðdeild hinna fáu manna,
sem hægt var að ná í til að bjarga úr liúsinu.
Sagt er að húsið hafi verið votryggt“.
Tíðarfar. Veturinn hefnr verið allgóður
fram undir árslok víðast þar, sem til hefur
trjetzt. Síðan hefur sunnan lands verið fremur
óstöðug tið og mikill snjór kominn, svo að til
fjalla er haglaust, en í sumum lágsveitum nokkr-
ir hagar. Norðanlands hefur tíðin verið svip-
uð, og haglaust þar viðast einkum til dala og
fjalla, sömuleiðis vestan lands.
Suðra-þref ritstjóra ísafoldar.
Hversu mikið lið ritstjóra ísafoldar er að
vottorðinu frá L. A. Knudseu í siðasta blaði
ísafoldar, sjest á því, að Knudsen sagði 26. þ.
m. i votta viðurvist, að liann vissi ekki til
þess, að ritstjóri Þjóðólfs hefði falazt eptir kaup-
um á Suðra hjá Einari Þórðarsyni, enda sýnir
eptirfylgjaudi vottorð, að Einar Þórðarson stað-
festir ekki sögusögn ísafoldar um daginn.
„Að ritstjóri Þorleifur Jónsson hafi ekki fal-
azt hjá mjer eptir kaupum á Suðra síðastliðið
ár, votta jeg fúslega eptir beðni, lieldur kom það
til orða, að jeg seldi honum Suðra árið áður.
Ueykjavík 26. jan. 1887.
Einar Þórðarson11.
Annars bætir ritstjóri ísafoldar ekkert sinn
málstað út af opinberu auglýsingunum með þess-
um útúrdúrum frá hinu upphaflega efni, ef sá
er tilgangur hans með þessu þrefi.
AUGLYSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orö 15 stafa frekast; m. ööru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálUs-lenj*dar. Borgun útíhönd.
Nýtt hús er til sölu og íbúðar með
góðum skilmálum frá 1. maí þ. á. nálægt lat-
ínuskólannm með 7 herbergjum auk kokkhúss
og kjallara ásamt góðnm kálgarði. Ritstj. þessa
blaðs vísar á seljandann. 25
Undirskrifaður kaupir velskotnar rjúpur með
hæsta verði þangað til póstskip fer hjeðan.
Reykjavík 28. jan. 1886.
Br. H. Bjarnason. 26
ÍSLENZKI
GOOD - TEMPLAR.
Árg. 12 blöð (hvert 8 bls., 16 dálkar) kostar að eins
75 au. — Tvö nr. komin út (októb. og nóvemb.). — Rit-
stjórn: Jón Ólafsson, Indriði Einarsson, Þórhallur
Bjarnarson. — Utanáskrift á pantanir: „Afgi'diðslu-
stofa ísl. Good-Templars, Reykjavik. 27
Ágætur reiðhestur fæst næstkomandi
vor til kaups. Ritstjórinn visar á seljanda. 28
Nýju fjelagsritin öll í bandi fást til
kaups. Ritstjóri vísar á seljandann. 29
Yfirlýsing.
Vottorð það, sem jeg hafði gefið alþingis-
inanni Jóni Olafssyni, og hanu hefur látið
prenta í Þjóðólfi 21. þ. m., er af honum heim-
ildarlaust sett, i Þjóðólf eða nokkurt annað blað.
Reykjavik 27. janúar 1887.
8. Jónsson, fangavörður. 30
Við undirskrifaðir vorum viðstaddir, er Sig-
urður Jónsson fangavörður skrifaði undir vott-
orð það, sem birt er i siðasta „Þjóðólfi11, og var
það skýrt og skorinort tekið fram, að það væri
til þess að það yrði prentað i blöðunum.
Reykjavík 28. jau. 1887.
Magnús G-unnarsson.
Þorlákur Ó. Johnson. 31
Ávarp
til safnaðarins í Stokkseyrarsókn.
—:o:—
Mínir kæru bræður og systur i Stokkseyrar-
kirkjusókn! Eins og yður öllum er kunnugt
höfuin vjer tekið að oss umsjón og fjárhald
kirkju vorrar og sem af prófastinum var út-