Þjóðólfur - 25.02.1887, Page 3
31
1879. Almennt róið hjer 12. febr. og
fiskaðist frá 20—45 í lilut af
stútungi og þorski og daginn ept-
ir (13. febr.) fiskuðu Álptnesing-
ar um 30 í hlut; 15. fiskaði al-
menningur hjer vel ogþeireinna
bezt, sem grynnst voru á „Sviði“,
allt að 40 í hlut afvænum stút-
ungi og þorski, ýsuvart. Síðast
í febrúar var fiskur hjer um
allan sjó. [Rvíkin og Gylfifóru
út 23. febr.].
1880. 16. febrúar reru þrennir og
fiskuðu allt að 38 í hlut af væn-
um fiski; þorraþrælinn fiskaði al-
menningur 20—40 í hlut af þorski
og stútungi, en nokkuð dró úr
aflanum síðari part mánaðarins,
því þá gjörði norðanhörku. [Rvík-
in og Gylfi fóru út 13. marz].
1881. Hjer varð aldrei á sjó komið
fyrir hörkugaddi; 26. reru Álpt-
nesingar og fiskuðu allt að 17 í
hlut [Rvíkin og Gylfi fóru eigi
út fyrr en fyrst í apríl].
1882. 27. leitaði einn víða og fjekk
að eins 2 í hlut af stútungi [R-
víkin og Gylfi út 1. apríl].
1883. Einlægir útsynningsbyljir allan
mánuðinn, 28. reru tvennir og
fjekk annar 20 en hinn 4 í hlut
af stútungi og þorski á vestri
brún [Reykjavíkin og Gylfi út
13. marz).
1884. 21. febr. reyndu tvennir, en
urðu ekki fiskvarir; reynt apt-
ur 25. febr. og komu þá 2 kol-
ar á skip [Rvíkin ogGylfiútl3.
marz].
1885. 5. febr. fór einn vestur í Kambs-
leiru og fiskaði 18 fiska á skip
(vænn stútungur ogýsa). Norð-
anbál um miðjan mánuðinn; 20.
rera Akurnesingar og fengu
hæst ellefu á skip (ýsa, stútung-
ur og þorskvart); 21. og 23. var
hjer reynt en ekki fiskvart. [R-
víkin og Gylfi út 8. marz).
Reykjavík 21. febr. 1887.
J. Jönassen.
Reykjavík. 25. febr. 1887.
ttannalát og slysfarir. „18. janúar
andaðist að Húsavík, eptir 10 daga
þunga legu í taugaveiki, hjeraðslæknir
Jón Sigurðsson. Hann var fæddur í
Flatey á Breiðafírði 30. maí 1853; var
sonur fyrrum kaupmanns Jóhnsens sál.
í Flatey og konu hans, Sigríðar, sem
nú er í Flatey. Þar ólst hann
upp ásamt systrum sínum 4, sem nú
eru á lífi, konu Jóns kaupmanns Guð-
mundssonar í Flatej, konu síra Sig-
urðar prófasts í Flatey, konu Geirs
Zoega skólakennara í Reykjavík og
einni sem ógipt er.
Jón heitinn útskrifaðist úr Reykja-
víkurskóla árið 1877 og gekk þá á
læknaskólann, tók þar embættispróf
sumarið 1881. Dvaldi svo í Khöfn
næsta vetur. Hann fjekk veitingu fyr-
ir Þingeyjarsýslu (12. læknishjeraði) 29.
apríl 1882. Kom um sumarið til Húsa-
víkur og dvaldi þar einhleypur, þar til
27. ágúst síðastliðinn að hann kvæntist
Guðrúnu Birgittu Gísladóttur Oddsonar
bónda á Loðkinnhömrum við Arnar-
fjörð. Jón sál. var mesta prúðmenni og
ljúfmenni í allri framgöngu og reynd-
ist mjög góður og samvizkusamur lækn-
ir. Það eru því eigi að eins ástvinir
hans og vandamenn fjær og nær, sem
sakna hans mjög, heldur og allir inn-
búar þessa hjeraðs, því að allir, sem
þekktu hann, finna til þess fnikla skaða,
sem orðið hefur við fráfall hans. Hann
var jarðaður að Húsavík 2. febr.“— R.
26. f. m. urðu 2 skipskaðar í Bolungarvík
fyrir vestan; 8 menn fórust, en báðum formönn-
unum varð bjargað. Hafa pannig farist 36 menn
í sjóinn hjer við land i f. m. —
Yinnumaður í Vigur í ísafjarðardjúpi drekkti
sjer fram af kletti par á eyjunni snemma í f.
m. — Yinnumaður frá Hvítadal i Dalasýslu
hrapaði til dauðs 31. f. m. 2. þ. m. varð úti
Eigill Benediktsson, bóndi frá Köldukinn i
Haukadal i Dalasýslu.
Aflabrögð. Nýl. var róið á Akranesi og fenga
menn þar 2—12 í hlut; annarstaðar eigi vart
við Paxafl. Á Eyrarb. var róið á föstudaginn var;
aflaðistþááStokkseyri 10-20 í hl. af þorski og ýsu.
-Md'M O Ð.
—:o:—
Ný lækningaraðferð við brjóstveiki. Lækn-
ar tveir í París, Prengrueber og Beurmann
læknuðu i vetur 12 ára gamla stúlku, sem þjáð-
ist af brjóstveiki og var svo lángtleidd, að menn
bjuggust þá og þegar við dauða hennar. Gerðu
þeir það á þann hátt, að þeir skáru upp brjóst-
holið undir herðarblaðinu, flóu skinnið á dálitl-
um bletti, skáru sundur vöðvana með krosskurði,
svo að 5. og 6. rifbeinið varð bert, skáru sundur
beinhimnuna og tóku 5 sentímetra (tæpra 2 þuml.)
langt stykki úr hverju rifbeini, svo að lungað
varð bert. Siðan brenndu þeir burt hinn sýkta
hlut lungans. Yið þetta missti sjúklingurinn
mjög lítið blóð, og eptir 3 vikur var sárið gró-
ið svo, að menn sáu fram á, aðsjúklingurinnyrði
svo alheill. Læknarnir ljetu í skýrslu sinni um
þetta i ljósi, að lungskurður væri næsta auð-
veldur, og mjög sennilegt væri, að þessi lækn-
ingaraðferð gæti gjört mikið gagn, þegar um
lækning á brjóstveikum mönnum vœri að ræða.
AUGLYSINGAR
Uppboðsauglýsing.
Þar eð boð það, er 22. f. m. vargjört
í sexæring með áhöldum, tilheyrandi
dánarbúi Gísla sál. Björnssonar áBakka,
ekki hefur orðið samþykkt af skipta-
rjettinum, verður tjeður sexæringur boð-
inn upp á ný og seldur hæstbjóðanda
við opinbert uppboð á skrifstoíu minni
miðvikudaginn 9. marzmán. næstkom-
andi kl. 12 á hádegi. — Söluskilmálar
verða birtir við byrjun uppböðsins.
Bæjarfógetinn í Keykjavík 25. febr. 1887.
Halldór Haníelsson. 65
Út er komið á minn kostnað :
Spánnýtt stafrófskver
eptir Jón Ólafsson.
Auðveldasta aðferð til að kenna börnum að stafa.
Kostar bundið að eins 25 aura, og er þannig
ódýrasta íslenzkt stafrófskver. Með nokkr-
um myndum og mörgum leturtegundum, þar
á meðal snarhönd (skrifletur).
Eæst i Reykjavik hjá mjer og Sigurði Krist-
jánssyni.
Sigfús Eyinundsson. 66
Kirkjusöngsbók
um, eptir Jónas Helgason, er til söiuí Reykja-
vik hjá Sigurði Kristjánssyni. 6.7
Lýsing á óskilaQe,
seldu í Húnavatnssýslu haustið 1886.
í Yindliælishreppi. Hv. ær: líkast hvatt
og gagnvaglskorið h., sýlt gagnbitað v. — Sv.
lambgeldingur: blaðstýft fr. h., fj. fr. bitar
2 apt. v. — Hv. lamb: sýlt i hálft. fr. h., blað-
stýft fr. v.
í Bólstaðahlíðarhreppi. Hv. lamb : stýft
hangfj. apt. h., sneitt fr. hangfj. apt. v. —
Hv. lamb: hvatt h., hálftaf fr. v. — Mórautt
lamb : sýlt biti apt. h., blaðstýft og biti apt. v.
í Svínavatnshreppi. Hv. sauður vgl.. lögg
apt. fj. fr. h., sneitt apt. fj. fr. v. — Hv. sauð-