Þjóðólfur - 04.03.1887, Qupperneq 4
36
sem gengrir upp um smágöt á lokinu út í
loptið. Verkfæri þetta er mjög fyrirferðar-
lítið og ódýrt. Það hefur verið reynt á sjúkra-
húsi einu i Kaupmannahöfn og gefizt, vel. Lækn-
ar hæla því sem hentugu i sjúkrastofum,
svefnherhergjum og skólum. Það er nú komið
í verzlanir í Höfn.
Koltjörusykur. Prófessor einn, er Fahl-
herg heitir, hefur fundið upp á að vinna sykur
úr koltjörn, og hefur nefnt þann sykur saccha-
rin, og er hann sagður 230 sinnum sætari en hinn
hezti sykur úr svkurrevr. Læknum þykir
einkum mikið varið i þennan sykur, af því að
með honum má gera sætan mat fyrir sjúklinga
þá, er þjást af þvagstreymi (diabetes), og hef-
ur hann því verið fenginn lianda sjúkrahúsi
einu í Berlín. Af tilraunum er það sannreynt,
að hann er öldungis óskaðlegur. Enn hann er
dýr, því að pundið kostar 36 krónur; enn ef
hann gæti orðið nokkru ódýrari mundi hann
að líkindum fá útrýmt öðrum sykurtegundum.
-H|M OÐ.|+
—:o:—
Tuttugu synir. í þorpinu Kamdorf nálægt
Magdeburg i Austurríki eru hjón nokkur, sem
hafa átt tuttugu sonu; liinn tuttugasta eignuð-
ust þau í okt. i haust. Þau giptnst 1857; var
maðurinn þá 22 ára, en konan 19 ára. Allir
þessir 20 synir eru á lífl, af þeim eru einir
þríburar og þrennir tvíburar. Hjón þessi eiga
enga dóttur.
í Teheran í Persíu kom i sumar sem leið
sendinefnd af konum fyrir konunginn (Shainn)
og kvörtnðu yfir því, að karlmennirnir þar í
höfuðborginni sætu lengst af á veitingastofum
til mikils tjóns og niðurdreps fyrir heimili
þeirra. Konungurinn ljet rannsaka þetta og
komst að raun um, að það var alveg satt; brá
því skjótt við og bauð að loka öllum veitinga-
stöðum í riki sínu. —
Fyrstu blöð norðurálfunnar. Prentlistin
var uppfundin um 1450. Eptir það voru stofn-
uð fyrstu 20 blöðin í álfunni á þeim tíma og
með þvi millibili, sem hjer segir : 1. blaðið Gazet-
te í Niirnberg á Þýzkalandi 1457. 2. Chronik
í Köln 1499. 3. Gazzetta í Feneyjum 1570. 4.
die Frankfurter Oberpostamtszeitung í Frank-
furt a. M. 1615. 5. Weekly News í Lundún-
um 1622. 6. Gazette de Erance í París 1631.
7. Post-och Inrikes Tidning í Stokkhólmi 1644.
8. Mercurius Politicus í Leith á Skotlandi 1653.
9. Courant í Harlem á Hollandi 1656. 10.
Public Occurrences i Boston 1690. 11. Pue’s
occurrences í Dyflinni 1700. 12. Gazette í Pjet-
ursborg 1703. 13. News Letter í Boston 1704.
14. Gaceta de Madrid í Madríd á Spáni 1704.
15. Mercury í Filadelfíu 1725. 16. Gazette í
New York 1725. 17. Gazette í Annapolis 1727.
18. Gazette í Charleston 1731. 19. Hamburg-
ischer Correspondent í Hamborg 1731. 20.
Gazette í Williamburg 1736. (Bibl. d. Unterh.).
AUGLYSINGAR
í sarafeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a.
hvert orö 15 stafa frekast; ni. ööru letri eða setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd.
Poki með kvennkápu í og blikkmáli
hefur nýlega fundizt upp i Þingholtum
og getur eigandi vitjað þessa hingað á
skrifstofuna gegn því að greiða fund-
arlaun og auglýsingarkostnað. Sömu-
leiðis má vitja hingað 3 régnhlífa, sem
skildar hafa verið eptir í húsi Jensens
bakara hjer í bænum næstliðið sumar
og haust.
Skrifstofu bæjarfógeta í Reykjavík 3. marz 1887.
Halldór Daiiíelsson. 80
Gylliniæö og harðlífi í 25 ár.
Kona mín hefur um 25 ár verið þjáð
af gylliniæð, magaveikindum, melting-
arleisi, lángvinnu harðlífi og gylliniæð-
arhnútum. Um þenna tíma hafa 5 mik-
ils metnir læknar reynt til við hana,
án þess nokkuð hafi dugað. I tvö ár
reyndi hún að drekka „eplavín“ og í eitt
ár „Hoffs maltextrakt“, en versnaði æ.
Þjáðist hún svo mjög, að dauðinn mundi
hafa verið henni þæg lausn. Vinir mín-
ir rjeðu mjer að reyna hið orðlagða
Brama-lífs-elixír þeirra Mansfeld-Búllner
& Lassens, og eptir að hún nú hefur
neytt 12 glasa af því, er hún svo á
batavegi að eg giöri mjer góða von um
að hún verði brátt alheil heilsu, og
þakka eg það næst guði herra Mans-
feld-Búllner og „bittir“ hans.
Berlín J. C. Rieneck.
Manteufelsstræti 71.
Einkenni á vorurn eina egta Brama-lífs-el-
ixír eru firmamerki vor á glasinu, og ámerki-
skildinum á miðanum sjest blátt ljón og gull-
hani, og innsigli vort MB & L í grænu lakki
er á tappanum.
Mansjéld-Btíllner & Lassen,
sem einir baa til hinn verðlaunaóa Brama-lífs-elixir.
Kaupmannahöfn.
Yinnustofa: Nörregade No. 6. 81
Zuckerkrankheit.
wird nach Professor Wilkensons neuester
Methode dauernd beseitigt. Prospect gratis.
Carl Kreikenbaum,
Braunschweig. 82
Ár 1887 dag 25. janúar samdist fyrir sætta-
nefnd Reykjavíkur svolátandi sætt á milli bók-
sala Kr. Ó. Þorgrimssonar sem kæranda, og
ljósmyndara og agents Sigfúsar Eymundssonar
sem kærða, í tilefni af meintum meiðandi um-
mælum í viðankablaði við „Þjóðólf".
Kærði Sigfús Eymundsson lýsir yfir þvi,
að hann með hinum kærðu ummælum: „sam-
dóma óflekkaða dánumanninum Kristjáni Ó.
Þorgrímssyni o. s. frv.........hreinleik
hvata hans“, hafi eigi hið minnsta viljað -
ærumeiða Kr. Ó. Þorgrímsson og gjörir kær-
andi sig þar með ánægðan.
Sátt þessari til staðfestingar undirskrifa
málspartar.
Kr. Ó. Þorgrímsson, Sigfús Eymundsson.
Rjettan útdrátt úr sættabók Reykjavikur-
kaupstaðar staðfestir.
Reykjavík, 28. febr. 1887.
■ Hallgrímur Sveinsson.
* *
*
Við undirritaðir höfum hjer með gjört svo-
fellda sætt okkar í milli:
Jeg Kristján Ó. Þorgrímsson, apturkalla
hjer með að öllu leyti ]iau óvirðingarorð og
meiðyrði, er jeg hefi viðhaft um Ijósmynd-
ara Sigfús Eymundsson í grein þeirri með
yfirskript „Viðaukablaðið“, er prentuð er i
4. árg. 31. blaði „Suðra“ og i sjerstöku auka-
blaði, er jeg hef látið prenta. Apturkalla
jeg hjer með að öllu leyti öll orð í tjeðri
grein, er að nokkru geti hniðrað æru. eður
virðing herra Sigfúsar Eymundssonar, og er
svo að skoða, sem þau aldrei hafi skráð ver-
ið. — Svo borga jeg einnig allan kostnað
þessa máls. — Sætt þessa lofa jeg að aug-
lýsa í einhverju af bliiðum þeim, er út koma
nú í Reykjavík.
Sætt þessari er jeg, Sigfús Eymundsson,
samþykkur og er þar með burtfallið mál það,
er jeg hef höfðað gegn hr. Kr. Ó. Þorgríms-
syni út af ofanrituðu efni.
Reykjavík, 2. febr. 1887.
Kr. Ó. Þorgrímsson, Sigfús Eymundsson.
83
Selt óslíilafje í Borgarhreppi
haustið 1886.
1. Gráhöttóttur sauður 2. vetra: ómarkaður
á hægra eyra; tvístýft fr. vinstra.
2. Hrútlamb: stýft hægra, hvatt vinstra.
3. Lambgimbur: sýlt biti fr. h.; stýft biti
apt. vinstra.
Til undirskrifaðs má eigandi vitja andvirð-
is til næstk. ágúst mán.
Kárastöðum 1. febr. 1887.
S. Sigurðsson. 84
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarastig.
Prentari: Sigm. Ouðmundsson.