Þjóðólfur - 27.05.1887, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 27.05.1887, Blaðsíða 3
87 Tíðarfar. Norðangarðinum, sem netndur var í síðasta blaði, slotaði á sunnudaginn var ; síðan allgott veður. — Af Austfjörðum að frjetta líkt tíðarfar og hjer. Dar hafði komið hafís inn á firði í sumarmálakastinu, en farið aptur. Aflahrögrð. Hjer er nú ágætur afli. ÁAust- fjörðum enginn afli, er Miaea fór þaðan. — Rákarlaskúturnar hjeðan hafa aflað: Grylfi 172'/2 tunnu, Oeir 143 tn., Tieykjavíkin 140 tn. og Njáll 212‘/2 tn. Dær eru nú hættar við hákarlsaflann í [lefta sinn, en farnar á flsk- veiðar. Stramlferðaskipið Thyra kom liing- að í gærkveldi; haíði komist að Langa- nesi og lá þar í grendinni (á Bakkafirði) 3 fyrstu dagana af kastinu í moldviðr- isbyl, „sáu ís, en sigldu burt“, áðttr en birti vel upp, fór svo austur og hringinn í kring allt vestur og norður að Horni á Hornströndum, en varð þar frá að hverfa sakir íss, fór síðan inn á ísafjörð, þaðan á komustaðina vest- anlands og hingað. — Með Tliyru komu hingað stúdent Jón Jakobsson, Chr. Johnasson kaupmaður á Akureyri frá Höfn, Jón Vidalin frá útlöndum og kon- súll Sigfús Bjarnarson frá ísafirði, o. fl. af Vesturlandi. Að norðan kom maður í morgun úr Vesturhópi í Húnavatnssýslu ; fór þaðan 22. þ. m.; sagði hann að í kast- inu seinasta hefði verið 5 daga inni- stöðubylur nyrðra, er skepnur hefðu sakir heyleysisins orðið að standa meira og minna málþola, og ár lögðu aptur. ■— Norðanpóstur í Hrútafirði á norður leið 23. þ. m.; Húnaflói fullur af hafís ; skip eigi komin nema á Sauðárkrók, og bjargarskortur því mikill víða. Mannslát. 24. þ. m. andaðist einn af merkismönnum prestastjettarinnar, ttppgjafajirestur Sigurður B. Sivertsen af dbr. á Útskálum, fæddur 1808, vígður 1831 sem aðstoðarprestur til föður síns Brynjólfs Sigurðssonar að Útskálum, fjekk brauðið að honum Iátii- ttm 1837, og þjónaði því til þess, er hann í fyrra fjekk lausn frá prestskap. Útlendar frjettir. Khöfn 6. mal 1887 Vorið er komið en stríðið ókomið. Dá- !tið atvik hefur þó komið fyrir, sem hefði getað orðið lítill neisti til að kveykja stórt bál. 20. apríl var fransk- ur lögreglustjóri, Schnábele að nafni, ginntur yfir landamærin oghandsamað- ur af Djóðverjum. Honum var gefið að sök að hann liefði haldið uppi njósn- um um varnir og víggirðingar Þjóð- verja, spanað Frakka i Elsass-Lothring- en upp á móti stjórninni og fengið þá til að flytjast úr landi. Maðurinn var settur í varðhald í Metz og nú byrjuðu brjefaskipti og vafningar úlilli stjórn- anna. Frakkar sátu vel á sjer, en sögðu að maðurinn hefði verið tekinn þeirra megin við landamærin og ýms smáblöð ljetu ófriðlega. 28. apríl fjekk sendi- herra Frakka í Berlín brjef frá Bis- marck á þá leið að manninum mundi sleppt næsta dag, þó að sekt hans væri sönnuð með brjefum og öðrum skýr- teinum, afþví að þýzkur embættismað- ur hefði sent honum boð að finna sig við landamærin og þetta væri griðarof. Maðurinn er nú í París og menn kvað ætla að gefa honum heiðurskross þar og safna til með almennum samskotum. Flestir leggja þetta svo út sem Bis- marck hafi ekki þorað móti Frökkum vegna Kússa núna, og svo borið griða- rofi við til að geta sleppt manninum. Það verður því varla stríð í ár, þó þýzku blöðin flytji lista yfir menn sem hafa verið teknir í njósnarerindum fyrir frönsku stjórnina á Þýzkalandi. Þjóð- verjar liafa nýlega tekið 176 miljónir marka til aukaútgjalda fyrir herinn. Á Englandi situr þingið enn yfir írska málinu. Times hefur horið upp á Par- ttell, að hann væri í vitorði með morð- ingjunum, sem drápu Lord Cavendish og Bourke 1882. Til að sanna þetta, birti Times brjef frá Parnell,-ritað 1882, sein á að sýna, að þessi launmorð voru að skapi hans. Parnell lýstiyfir áþingi næsta dag, að brjefið væri falsað. Ekki vill hann samt höfða mál á móti blað- inu, og Times hótar að birta fleira úr leynikofum íra. Þing ýmsra fylkja í Bandaríkjunum og þingin í Canada og Nýja-Skotlandi hafa lýst yfir óánægju sinni með hin nýju lög, sem eiga að kúga íra. írland verður ekki yfir- bugað með þessu lagi. Á Rússlandi hafa þeir 15, sem voru riðnir við banatilræðið við Alexander keisara 13. marz, verið dómfelldir fyrir luktum dyrum og voru 7 dæmdir til hengingar en 8 í Síberíu-útlegð. Keis- arinn má búast við mörgum banatilræð- um enn, því Níhilistar kvað vera í mörgum flokkum, og hver þeirra fyrir sig. Kosningar í Svíaríki eru um garð gengnar. Tollfjendur fengu 60 atkv. meir en tollvinir. Fólk fer í stórhóp- um til Ameríku, frá Noregi, Svíaríki og Danmörk. Á einni viku hafa farið 4000 manns nýlega. í sumar eru margar stórar sýningar víða um heiminn. Ein er í Lundúnum og á að sýna allt hvað Bandafylkin geta framleitt, dautt og lifandi, þar eru meðal annars 160 Indíánar og foringi þeirra, sem opt liefur gert mlkil spell- virki þar vestur frá. Lifs- og búnaðar- hættir í hverju fylki eru sýndir og væri víst gott fyrir Ameríkufara að kynna sjer Baudafylkin á þessari sýning. Svo er sýning i Manchester, sem er afmæl- issýning 50 ára stjórnar Yiktoríu og sýnir hverjum framförum verknaður og iðnaður hefur tekið á þessu tímabili. 1888 verður sýning hjer í Höfn ogtekur að eins yfir Norðurlönd. Hún er haldin í minning þess, að þá eru 100 ár síðan bænda þrælkun var af tekin hjer og 25 ár síðan Kristján IX. kom til ríkis. Nýlega var haldinn stjörnufræðinga- fundur í París. Þar var samþykkt að gera nákvæm kort yfir himininn með Ijósmyndum. Stjörnur allt að 14. stærð eiga að sjást á því korti. Nýdáinn er í Kómaborg einn af mestu auðmönnum Dana Jacobsen semkallað- ur var gamli Jacobsen til aðgreiningar írá syni sínum, sem líka er mikill auð- maður. Allur þeirra auður er fenginn með því að brugga og selja öl eða bjór; gamli Karlsberg svo kalaður eptir brugg- staðnum, er bjór, sém er drukkinn um allan heiminn. Bjór sonarins hetir nýi Karlsberg. Jacobsen gaf ógrynni fjár til almennings þarfa þar á meðal yfir 2 miljónir króna til Karlsbergs-sjóðs, sem styrkir gagnleg fyrirtæki vísindaleg og önnur. Hann varði stóríje til að efia listir og kaupa listaverk. Þess vegna er minningu lians haldið liátt á lopti í Danmörk. AUGLÝSINGAR ' í samfeldu m&li m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3a. hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eða setning 1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út í hönd. Leiðarvísir til lífsábyrgðar fæst 6- keypis hjá ritstjórunum og hjá Dr. med. Jón- assen, sem einnig gefur þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. 190 Lækningabók dr. Jónassens og „Hjálp í viðlögom“ fást hjá höfundinum og öllum bóksölum. 191

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.