Þjóðólfur - 01.07.1887, Page 3

Þjóðólfur - 01.07.1887, Page 3
111 að eittlivað af hinum skæðu og sótt- næmu sjúkdómum, er geisa opt er- lendis, mundi geta flutzt hingað til landsins, þegar ferðir þeirra skipa, sem höfð eru til búpeningsflutninga, færu að verða svo tíðar hingar ; því að það er svo eðlilegt, að sóttnæmisefni geti komizt á þau og leynzt í þeim. Þetta gaf tilefni til þess, að farið var að gefa málinu gaum á ný. I hrjefi, frá 15. des. 1873, til innanrík- isráðgjafans ljet dýralækninganefndin enn í ljósi, hve mikil þörf væri fyrir dýralækna hjer á landi, og benti sjer- staklega á þá hættu, sem yfir vofði, ef sóttnæmir sjúkdómar flyttust inn i landið. — Þessi hætta fer sívaxandi að því skapi, sem verzlunarviðskipti við útlönd aukast. A Alþingi hefur einnig optar en einu sinn verið komið með frum- Varp frá einstökum mönnum, sem hafa lotið að því at útvega landinu dýralækna. Árið 1875 kom t. a. m. Benedikt Sveinsson sýslum. með frumv. um að koma á fót einu dýralæknisem- hætti; en það var fellt, að nokkru leyti af þeirri mjög einkennilegu ástæðu, að fleiri en einn dýralækni myndi þurfa*. Þá lagði og stjórnin fyrir Alþing 1877 ft'uruvarp um, að stofnuð yrðu fjögur dýralæknaembætti, sitt í hverjum fjórðungi, með 1200 kr. árslaunum, en það var fellt á Alþingi með litl- Um atkvæðamun**. (Niðurl.). Alþing Vai' sett i dag. Að lokinni guðs- Þjóuustu í dómkirkjunni, þar sem sJera Sigurður Stefánsson prjedikaði °g flutti ágæta ræðu, gengu þing- mennirnir í þinghúsið. Okomnir voru þingmennirnir Einar Thorlacius, Lár- Halldorsson og Þorvarður Kjorúlf. handshöfðingi las fyrst upp umboð 8ht frá konungi til að setja þing'ið °g iýsti yfir að Alþing væri sett. ^•ð því búnu bað Jón Siqurðsson ^onung Imgi lifa og tóku þingmenn ^hdir það með níföldu húrra. Elzti Jdugmaðurinn, Jakob Guðmundsson *) Alþt. 1875 II. bls. 239. **) Alþt. I. bls. 623—625. stýrði siðan umræðum. Skiptust þing- menn þá í 3 deildir, til að prófa kjörbrjef hinna konungkjörnu og hinna tveggja uýju þjóðkjörnu þingmanna. Fannst ekkert við þau að athuga, nema hvað landshöfðingi hreyfði því, að eigi væri sem heppi- legast, að á kjörfundinum i Snæfells- nessýslu hefði kjörstjórinn í forföllum sínum sett i sinn stað einmitt þann mann, sem var í boði og var kosinn þingmaður. Sjera Þórarinn Böðvars- son lagði til að setja nefnd til að rannsaka gildi þeirrar kosningar, en það var fellt með 23 atkv. móti 7, sjera Þ. B. og hinna konungkjörnu, sem greiddu atkvæði, áður en þingið hafði viðurkennt kosningu þeirra gilda. Forseti sameinaðs þings var kosinn Benedikt Sveinsson með 18 atkv., vara- forseti Benedikt Kristjánsson með 21 atkv. og skrifarar Eiríkur Briem og Þorleifur Jónsson hvor með 23 atkv. Síðan skiptust þingmenn í deild- irnar. Var í neðri deild kosinn for- seti Jón Sigurðsson með 13 atkv., varaforseti Þórarinn Böðvarsson með 17 atkv., skrifarar Jón Þórarinsson með 16 atkv. og Páll Ólafsson með 15 atkv. I efri deid gekkst Jakob Guðmunds- son fyrir forsetakosningu og kaus sjálf- ur forseta, en slikt þótti liinum konung- kjörnu eigi lögmætt, af því að J. G. hefði eigi rjett til þess og í öðru lagi, af því að J. G. hefði skrifað kosn- ingarmiðann, áður en hann var kominn í forsetasæti, og af þessari síðari á- stæðu gerði deildin með atkvæða- greiðslu þá kosning ógilda; en lands- höfðingi og hinir þjóðkjörnu þingm. sáu ekkert á móti því, að J. G. kysi forseta og það gerði hann við kosn- inguna á eptir. Var síðan Arni Thorsteinsson kosinn forseti eptir þrí- teknar kosningar og síðast með hlut- kesti, með ‘ því að hann og Ben. Kristjánsson fengu 6 atkv. hvor. Varaforseti var þar kosinn Lárus E, Sveinhjörnsson með 6 atkv. og skrif- arar .Tón Olafsson með 6 og Jakoh Guðmundsson með 4 atkv. Stjórmu’fruinviirp þessi verða lögð fram á morgun í neðri deild: 1. frumv. til fjárlaga fyrir árin 1888 og 1889. 2. ----—fjáraukalagafyrir árin 1886 og 1887. 3. ----— fjáraukalaga fyrir árin 1884 og 1885. 4. ----—laga um samþykkt álands- reikningnum fyrir 1884 og 1885. 5. ---— laga um, að umsjón og fjár- hald Flateyjarkirkju skuli fengið söfnuðinum í Flat- eyjarsókn i hendur. 6. ---— laga um að stjórninni veit- ist heimild til að selja nokkra þjóðjarðir. I efri deild: 1. frumv. til laga um aðfÖr. 2. ---— laga með nokkrum ákvæð- um um veð. 3. --------— laga með nokkrum ákvæð- um um þeginn sveitar- styrk m. m. 4. ---— laga, er hafa inni að halda nokkrar ákvarðanir um fiskiveiðar fjelaga í land- helgi. 5. ---— laga, sem snerta bátafiski á fjörðunum. Reykjavlk, 1. júM 1887. Lærða skólanum var sagt upp í gær. Þessir 20 útskrifuðust: 1. Guðm. Bjarnarson I. eink. 102 stig 2. Guðm.Guðmundsson1!. — 101 — 3. Eggert Briem I. — 98 — 4. Þórður Þórðarson I. — 92 — 5. Guðm. Hánnesson I. — 89 — 6. Marínó Hafstein I. — 89 — 7. Jón Þorvaldsson I. — 87 — 8. Geir Sæmundsson I. — 87 — 9. Halldór Bjarnason I. — 86 — 10. Þórður Guðjohnsen I. — 86 — 11. Ólafur Thorberg II. — 79- 12. Magnús Jónsson II. — 73 — 13. Ólafur Helgason II. — 71 — 14. Einar Stefánsson II. — 68 — 1) Þessi piltur tók fyrra hluta burtfararprófs- ins í fyrra og var í 5. bekk skólans í vetur; en fjekk leyfi yfirstjórnenda skólans til að taka burfararpróf með þeim, er útskrifast áttu.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.