Þjóðólfur - 14.10.1887, Blaðsíða 3
187
tTmþað leyti var lijer samankomið mik-
ið konungmenni, yfir BO manns, Riissa-
keisari, prinsinn af AVales, (frikkja-
konungur o. fl. með Öllu þirra kyski.
Rússakeisari er hafður í hávegum hjer
og er ekki hræddur við nihilista, því
hann er víða einn á ferð. Nýfct blað
„Aftenbladet“'j kemur úfc fyrsta sinn
á morgun, verður ódýrasta Hafnar-
hlað, ritstjóri þess verður Korsgárd,
sá er áður stýrði Morgunblaðinu og
Islendingum er að góðu kunnur.
Ymislegt. Anarkistarnir í Chicago
manndrápararnir frá 4. maí 1886, eiga
að hengjast 11. nóvember, hvort sem
nú verður af því. — Vikingaskip líkt
á stærð og Grokstaðskipið hefur verið
grafið upp í Noregi, og halda menn
að Guttormur Eiriksson blóðaxar hafi
verið grafinn i því. — Edison, hinn
nafnkunni Ameríkumaður, kveðst hafa
fundið upp að brúka megi rafurmagn
og segulafl i vjel sem sje ódýrari, hættu-
minni og einfaldari en gufuvjelin, en
geri sama gagn. Þessi maður hefur
fundið svo margt áður að orð hans
verða að takast trúanleg.
Snemrna i september hjelt hið
brezka vísindafjelag ársfund i Man-
chester. Þar bar margt fróðlegt á
góma; fundinum þótti líklegt, að
gufumagnið, mundi bráðum víkja úr
sæti fyrir rafurmagninu, og tveir nafn-
togaðir vísindamenn rökstuddu þá
skoðun, að hinn ariski þjóðflokkur,
sem vjer erum af, væri ekki kominn
austan úr Asíu eins og hingað til
hefur haldið verið, heldur norðan til
úr Evrópu.
Nú hafa Englendingar gert samn-
ing við Frakka um, að Suez-skurður-
inn skuli vera öllum þjóðum jafnheim-
ill, enda hafa þeir fengið nýja leið til
Indlands yfir þvera Norður-Ameríku
gegn um sitt eigið land á járnbraut
og svo yfir Kyrrahafið á gufuðkip-
um.
Kólera á Suður-Ítalíu er i rjenun,
hefur verið mannskæð i Sikiley.
Rússar segjast hafa fundið sprengi-
efni, sterkara en nokkurt annað, sem
nienn þekkja.
Reyl.-javik 14. okt. 1887.
Póstskipið Laura kom hingað í nótt frá
Höín; varð þstta á eptir áætluninni, af því að
hún varð svo síðbúin frá Höfn. Hún kom við
á Seyðisfirði eins og til stóð; fór þaðan á mið-
vikud. va* hingað sunnan um land. Með henni
komu um hundrað farþegav, nokkrir stúdentar
og skólapiltar, en flest af farþegunum Voru
Sunnlendingar, sem verið liafa á Austfjörðum
i sumar. — Laura fer á morgun til Hafnar-
fjarðar, þaðan til ísafjarðar og kemur þaðan
aptur hingað, áður en hún fer tíl Hafnar.
Strandferðiiskið Thyra, sem fór hjeðan 1.
þ. m., kom til Seyðisfjarðar á mánudaginn var
og fór þaðan daginn eptir áleiðis til Kaupm.-
hafnar.
Gufuskipið Minsk fór hjeðan 10. þ. m. til
Englands með 60 hesta og 1500 fjár, sem Laur-
itzen kaupmaður hefur keypt hjer. Lauritzen
sigldi með skipinu.
Tíðarfar hefur mátt heita gott lijerum tíma.
Mannalát og slys. 6. þ. m. andaðist Sig-
' wrður Ingjaldsson á Hrólfsskála á Seltjarnar-
nesi, rúmlega áttræður að aldri, einn meðal
hinna merkustu bænda hjer um sveitir.
í haust drukknaði maður i Hjaltadalsá i Skaga-
fjarðarsýslu, Björn faðir Jóseps húnaðarskóla-
stjóra á Hólum.
Póstar eru nú nýkomnir. Helztu frjettir
með þeiin sjást á eptirfylgjandi hrjefköflum :
Þingoyjarsýslu 26. sept. — — — „Heyafli
manna er almennt með mesta og bezta móti,
svo að ef menn hefðu ekki verið orðnir svo að-
þrengdir áður, hefði hjer nú verið góðæri.
Pöntunarfjelaginu gengur heldur vel; vöruskip-
ið nýkomið með talsvert af vörum með lágu
verði, einkum rúgur með óvanalega lágu verði.
Kaffi aptur óvanal. dýrt. Skipið fór aptur 23.
þ. m. með 3900 sauði frá fjelaginu og var það
álitlegt matartrog11.
Húnavatnssýslu, 26. sept. — — — „Mikill
munur er nú á fjárfjölda eða að undanförnu.
í fjTrra voru 13 rjettir i Kúlurjett, en nú i
| haust að eins 5 rjettir. Þó að slikt sje eigi
nákvæmt, getur það þó að nokkru leyti sýnt
muninn. — Eje má heita heldur vænt“.
Skagaströnd, 28. sept. í gær og í fyrradag
var hjer norðanhríð (ein af hinum stórkostlegri)
með mikilli fannkomu, en frostvægt var. í dag
er hann að hirta upp. Pyrra daginn (26. þ.
m.) skyldi vera Coghills-markaður á Höskulds-
stöðum, og fórst hann eðlilega fyrir, þó að marg-
ir væru komnir með fje sitt áleiðis eða alla
leið. — Nýlega (20. þ. m. að haldið er) drukn-
aði Jakob bóndi Bjarnason á Illugastöðum á
Yatnsnesi við fjórða mann. Skipið rak á land
nálægt Króki á Sagaströnd og var Jakob sál.
fastur við það (hálfur útbyrðis), en hinum hafði
skolað út“.
Strandasýslu, 8. okt. — — — „Heyskapur-
inn var stirður og þerralítill. Þó hafa aflazt
hey öllu betur en i meðallagi að vöxtunum til,
en menn eru hræddir um skemmdir vegna dæma-
fárra úrfella, sem hafa gengið hinn síðasta hálta
mánuð. Piskilaust er hjer enn, nema dálítill
reitingur kominn á Steingrímsfjörð. Afarbágar
horfur á afkomu almennings í sýslunni vegna
fiskileysisins í sumar og skepnufæðar eptir fyr-
irfarandi harðæri. — í norðangarði 26.—27. f.
m. sleit upp tvö skip á Reykjarfirði, fiskiskipið
Storrn og kaupskipið Axel bæði eign Thorar-
ensens kaupmanns, rak þau upp í kletta og
löskuðust svo að eigi er talið að við þau muni
verða gjört. í kaupskipinu voru nokkrar vör-
ur, fiskur og lýsi. Yerður það sjálfsagt selt á
uppboði. Thorarensen líður þar eflaust tals-
vert tjón og má telja það skaða fyrir allt fje-
lagið, því hann er hvorttveggja mesti dugnað-
ar og frarokvæmdarmaöur og mesti bjargvætt-
ur sveitanna þar i kring, svo fágætt mun vera
þó víða væri leitað".
AUGLÝSINGAR
í samfeldu máli m. smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.
hvert orð 15 stafa frekast; m. öðru letri eöa setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun útíhönd.
Uppboösauglýsing.
Mánudaginn 17. þ. m. og eptirfylgj-
andi daga verður við opinbert upp-
boð, sem haldið verður bjá búsi &þg-
fúsar Eymundssonar bjer í bænum,
seldur búðarvarningur klæðasala F. A.
Löve, svo sem Duffél, ldœði, svart og
blátt, buchskin, fóðurefni, tilbúin föt,
líntau og glisvarningur o. fl.
Uppboðið byrjar kl. 11 f. hád. nefnd-
an dag og verða söluskilmálar birtir
á uppboðsstaðnum.
Bæjarfógetinn i íteykjavík, 7. okt. 1887.
Halldór Daníelsson. 431
Aí 0*11 fæst nú Þegar 1 miðj‘
LA um bænum 3 herbergi á-
samt kokkhúsi, ef þess er óskað, fyrir familíu.
Þessi staður er einknr vel settur fyrir skóla-
pilta og aðra nemendur, sem óska eptir að fá
leigt nærri skólunum.
Sömuleiðis fæst eitt herbergi leigt nærri lat-
inuskólanum; allt með mjög lágri leigu.—■ Rit-
stjóri visar á. 432
Tannpínumeðul.
#
Samskonar tannpínumeðul ogjeghef liingað til
við haft við tannlækningar heima hjá mjer, en
engum selt, verða nú eptirleiðis til sölu hjá
mjer.
Þess skal getið, að meðul þessi eru samsett
eptir hinum beztu ráðleggingnm (recept) hr. A.
Préterre í Parísarborg, sem ekki er einungis
álitinn frægastur tannlæknir meðal Prakka,
heldur jafnvel beztur tannlæknir sem nú er uppi.
L