Þjóðólfur - 28.10.1887, Side 2

Þjóðólfur - 28.10.1887, Side 2
194 skipunina óbrotnari, en nú er o. s. frv. sem vjer munum síðar við hentugleika sýna Ijósara fram á. En ekkert af þessu, eða að minnsta kosti ekki um- bætur á embættaskipun og launamál- um er auðið að fá, meðan vjer ráð- um eigi meir vorum málum en nú og meðan vjer höfum útlenda stjórn, sem ekkert þekkir hagi vora, og læt- ur sjer litlu eða engu skipta um fram- farir vorar. .Kemur því í þessu sem öðru fram, hve nauðsynlegt oss er að fá innlenda stjórn. „Marie A. Brown: The lcelandic Discovery of Amerika oi' llonoui' to whom lionour is due“. London 1887. Höfundur þessarar bókar á þakkir skilið fyr- ir að hafa framsett rannsóknir og hugsanir margra manna með fullum orðum og á rjettum stað, og það þvi freinur sem þessi verk eru flestum ókunnug eða varla aðgengileg. Hversn óhreinlega hæði Kólflmhusi og öðrum hafi far- izt með tiiliti til landafunda lians, það liefur Miss Brown styrkt með þeim setningum, sem torvelt mun verða að hrekja. Hfln hefði raun- ar einnig getað minnzt á (en það hefur hún ekki gert), að Jóhannes Barros, frægur sagna- ritari í Portflgal, sem var uppi skömrnu eptir Kólflmhus, segir, að konungurinn hafl skoðað hann sem „svikara og gortara og slúnginn í að trana sér fram“ (homem falladore glorioso em mostrar suas habilidades)1. Kólflmbus átti marga fjandmenu og öfundarmenn, eins og við var að bflast, en það er og auðsætt af sögunni, að hann knflðist fram af ágirnd og fordild miklu fremur en af sannleiksást og vísindalegri löng- un; og þrekmikill hefur hann verið og fram- gjarn; en gullauður, konúngstigu og þræla- verzlun, þetta voru hugmyndirnar, bornar og blessaðar af krossinum helga með manndrápum og bálförum trúarinnar. Hversu ólikur blær er ekki á landaleitum íslendinga! — Það er al- kunnugt og „opinbert leyndarmál", að íslend- ingar fundu Ameríku fyrstir allra Evrópu- manna, að því er menn vita sögulega og sanu- að verður. Getgátur um, að írar hafi fyrri komizt þangað og hyggt „Hvítramannaland“ hafa ekk- ert við að styðjast nema sögurnar um Ara Márs- son og Björn Breiðvíkingakappa, sem ekkert verður ráðið af með nokkurri vissu. Þetta nefnir Miss Brown hvergi, nje heldur það, að Ameríka hefur efalaust verið einhverjum kunn löngu fyrir Krists burð. Hún fæst einflngis við það, hverir Evrópumenn fyrstir hafi fundið i ’) Al. Humboldt till'ærir petta í Kosmos eins og það sje orð Barros, en þaðer ekkirjett. B. segirhann hafi verið reyndur, mælskur og' góður í latinu (esperto elocuente e hom latino). Ameríku. En það liggur við menn geti sagt, að Ameríka hafl í rauninni aldrei fundizt, frein- ur en hinar álfur heimsins, því að enginn tal- ar um að Evrópa, Asía og Afríka hafi „fund- izt“, þær voru þekktar og byggðar frá alda öðli. Heldur iná tala um „fund“ á Ástralíu, því í þá átt visa engar fornaldarsögur. En á því getur enginn vafi leikið, að hinar eldgömlu sögur um Atlantis, þessa stóru eyju eða land í vesturátt, sem Sólon frjetti hjá Egyptum, og sem geymdar eru af Plato (í Timænsi og Krit- iasi) Diodorus Siculus, (pseudo-) Aristoteles (de mirabil. auscylt.) og endurteknar af Strabo — að þessar sögur liafi við sannindi að styðjast, og efast vísindamenn nfl ekki um það margir hverjir að minnsta kosti; en allar þessar sögur eru svo óljósar, að ekkert verður af þeim sann- að, enda eru þær allar gegnumofnar af goða- fræðislegum draumum og hamslausu hugmynda- flugi. En það má ætla sem víst, að Kólúmhus hafi aflað sér þekkingar á öllum þessum sögum uin stór lönd í vesturátt; öll miðaldar-þekking var, hvort sem er, bygð á ritum Grikkja og latneskum þýðingum þeirra. Hinn fyrsti Ame- ríkufundur, er því í rauninni eins óljós og ó- hreinn eins og fundur íslands; því það er ekki víst, að Naddoddur hafi fyrstur fuiulið það, með- an vjer vituin ekki, hvenær „Paparnir" komu þangað. Sú trfl hefur lengi verið í Ameriku (Mexíkó) að síðklæddir menn hafi komið úr austur-átt og kennt frá sér jarðyrkju og ýms- ar listir. — Þessi trú var þar þegar Cortes kom þangað 1519; þeir áttu að hafa horfið apt- ur, en sagt að þeir mundu koma einhverntíma seinna og gefa landinu heill og hamingju; og svo seig og rótgróin var þessi trfl, að almflg- inn í Mexikó hélt, að Maximilian keisari, sem skotinn var i' Queretaro 1867, væri einn af niðj- um þessara Ása og hefði átt að veita þeim gleði og gæfu. Til var og saga um einhvern Yotan, sem einnig liafði átt að koma austan um haf, og var hið sama sagt um hann; þessi saga var til á bókfelli, rituð með eiuhverju myndaletri og geymd í ljelegu hflsi, en katólsk- ur biskup, Franoiscus Nunes de la Yega, frjetti til bókfellsins og ljet ná því og brenna það vegna trúarinnar; en samt ljet hann ráða hvað á þvi stóð og ritaði það upp síðan, og af því vita inenn þetta. Það var árið 1691. Miklar og merkilegar fornmenjar eru til í Ameriku, sem enginu veit hvernig á stendur, en þær eru ekki eptir neina Indiana, eptir þvi sem menu þekkja þá nú. Það var trfl manna, að „At- lantis“ hefði sokkið — það var satt, hfln sökk í gleymskunnar haf, og l’slendigar lyptu henni upp úr því aptur. (Niðurl.) B. G. Reylíjavlk, 28. okt. 1885. Mannslát. Hinn 24. þ. m. anáað- ist eptir barnsburð frú Kristín Guð- mundsdóttir Briem, kona yfirrjettar- málfærslumanns Páls Briems, rúmlega tvítug að aldri. Hún hafði verið gipt manni sínum i hálft annað ár, og getið sjer ástsæld allra, er hana þekktu. Brauð veitt. Reynistaðarþing 25. þ. m. prestaskólakandídat Árna Björns- syni samkvæmt kosningu meiri hluta safnaðarins. S. d. Dýrafjarðarþing prestaskólakandídat Þórði Ólafssyni; eigi lögmætur kjörfundur þar. Skipstrand. Norskt kaupskip Co- lumbus, skipstj. Hille strandaði á Akra- nesi 22. þ. m. Voru í þvi 180 skpd. af saltfiski, 70 tnr. af kjöti og fleiri vörur islenzkar, sem verða seldar á- samt skipinu. Póstskipið Laura, sem kom vest- an af Isafirði hingað 21. þ. m., fór hjeðan 24. áleiðis til Khafnar með nokkra farþegja. ARFLEIÐSLUSKRÁIN. Eptir handrili málfærslumaans. (Niðurl.). Jegkomst síðan að því, að það varhrein- asta alvara Jóns Hinriks, sem hann hafði sagt mjer um arfleiðsluskrána. Hann sendi einu sinni eptir mje'r til að búa til arfleiðsluskrána, en jeg gat ekki annað en lagt pennann frá mjer, þegar hann kvaðst vilja arfleiða yngra systurson sinn Filipp að öllum eigum sínum, nema smágjöfum til þjóna sinna. „Er þetta þá ekki næsta ranglátt?" sagði jeg- „Gáðu nfl að“, sagði hann, „nú ert þfl bara málfærslumaður minn“. „Káðgjafi þinn“, sagði jeg, „og jeg ræð þjer til að gjöra skyldu þina og skipta eigum þín- ‘ um milli beggja systursona þinna“. „Það geri jeg alls ekki“, mælti liann, Filipp skal hafa þær allar". Jeg hafði á móti þvi, en niðurstaðan varð, að Samflel fengi að eins 30,000 kr., en Filipp allt. anuað, yfir 1,800,000 kr. „Gáðu nfl að“, sagði Jón hlægjandi, „pilt- arnir munu spyrja þig, livort þú hafir arf- leiðsluskrá mina, en jeg vil leika dálítið á þá. Við skulum þess vegna koma henni til geymslú í bankanum, og ef þeir spyrja þig, hvort hún sje hjá þjer, þá getur þú sagt nei“. Það var gert, sein hann óskaði. Við og við næstu 5 ár reyndi jeg að fá hann til að breyta arfleiðsluskránni, eíi hann var ófáanlegur til þess. Hann þekkti alls ekki skapferli systur- soua sinna. Jeg varð að láta þar við sitja. Þetta var þó injög slæmt, þvi að Filipp var slægur ónytjungar, alveg eins og faðir hans.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.