Þjóðólfur - 28.10.1887, Síða 4
196
sögulegum mei'kisatburði þess ríkis, o. s. frv.
Auk þess sem frímerkin gera póstflutninga
og póstsamgöngur heimsins hægri en ella, má
nota þau í stað peninga við smáborganir, enda
eru þau notuð þannig, og jafnvel lijer á landi
er farið til þess. £>að er þægilegra og ódýr-
ara en senda t. d. 1—2 kr. í silfri með pósti.
Það er ekki að undra þótt menn færu að
saína frímerkjum, þar sem þau eru svo marg-
breytt og opt mjög haglega gjörð, enda er frí-
merkjum safnað víðsvegar um heim, af háum
og lágum og mönnum af ýmsum stjettum, eigi
að eins til gamans, heldur og til fróðleiks, því
að af þeim má fá ýmis konar fróðleik; þar á
meðal má telja þau sem einn lið í menningar-
sögu hverrar þjóðar. Það er enda sumir, sem
halda því fram, að með frimerkjunum sje kom-
in á fót ný vísindagrein, sem stundum er nefnd
á útlendu máli Philafelie og mætti nefna á
voru máli frímerlejafrœði.
í'rímerkjasafnendur hafa gengið í fjelög til
að gera sjer hægra fyrir að afla sjer frímerkj-
anna o. s. frv. Eitt hið helzta þessara fjelaga
hefnr aðalaðsetur sitt í Dresden; í því eru
menn i flestum löndum heimsins. — Gömul og
sjaldgæt frímerki ern mjög dýr. Þannig eru
t. a. m. boðin 1500 ríkismörk (1333V3 kr.) fyr-
ir umslag með eins shillings frímerki frá Maur-
itius frá árinu 1863. — í mörgum borgum eru
stórverzlanir, sem verzla að eins með frímerki.
— Opt eru frímerki, einkum sjaldgæt, tölsuð,
og það svo haglega, að frímerkjasafnendurnir
mega gæta sín vandlega að kaupa þau ekki.
— Mörg blöð, tímarit og bækur, eru gefin út
að eins um frímerki. —- í París er kaupmanna-
samkunda, sem að eins er sótf af frímerkja-
kaupmönnum. — Það er þess vegna ekki furða,
þótt útlendingar vilji fá brúkuð íslenzk frí-
merki keypt, því að þau eru tiltölulega sjaldgæt.
Reykvíkingar!
Laugardaginn 29. þ. m. (á morgun) kl. 4
e. ni. er almennur safnaðarfundur. Þar verð-
ur til atkvæða gengið um innleiðslu nýju sálma-
bókarinnar. Gleymið nú ekki að mæta og af-
stýra því, að atkvæðagreiðslan verði annar eins
vansi fyrir söfnuðinn eins og í fyrra.
Sólcnarmaður í Reykjavík.
AUGLÝSINGAR
Almennur safnaöarfundur
verður haldinn í Reykjavík næsta laugardag
kl. 4 í leikfimishúsi barnaskólans, samkvæmt á-
lyktun siðasta safnaðarfundar, til að gera á-
lyktun viðvíkjandi innleiðslu hinnar nýju sálma-
bókar.
Hallgrímur Sveinsson. 452
Hið konunglega
o k t r o j e r a ð a á b y r g ð a r f j e 1 a g
tekur í ábyrgð hús, alls konar vörur og innan
húss muni fyrir lægsta endurgjald. Afgreiðsla í
J. P. T. Brydes verzlun í Reykjavík. 453
REKIN AP SJÓ reita af hvitum sauð vet-
urgömlum, mark: hamarskorið hægra, gagn-
bitað vinstra; brennimark: A. Þ.; verð, að
frádregnum kostnaði, fæst til nýárs hjá hrepp-
stjóranum i Grindavíkrhreppi. 454
Examíneraður tannlæknir,
eand. pharm. Niekolin,
gegnir lækningum frá kl. 11 til 3, nema á
sunnudögum. Fyrir fátæklinga þriðjudag,
fimmtudag og laugardag kl. 10—11
Holar tennur eru fylltar sársaukalaust fyrir
1—3 kr. hver.
JNTIO. Tannpínan stillist þegar i stað, og
meðalið með fyrirsögn um notkun þess fæst
fyrir 1 kr. Það er ómissandi á hverju heimili,
þar sem tannpína þekkist. — Bústaður í húsi
Guðnýjar Möller í Reykjavík. 455
Magakvillar.
Jeg umlirskrifaður hef í mörg ár
þjáðst af sívarandi taugaveiklan í sam-
bandi við kveisu og alls konar maga-
veiki, og enn fremur af illri meltingu
og veiklan í meltingarfærunum. Jeg
hafði reynt ótal ráð og læknismeðöl,
en það kom að engu gagni. Eg hafði
þannig að fullu og öllu örvœnt um að
verða heilbrigður aptur. En með því
j jeg heyrði marga Ijúka slíku lofs-
1 orði á Brama-lífs-elixír þeirra Mans-
feld-Bullner & Lassens fyrir það hvað
það væri gott við öllum sjúkdómum,
þá reyndi jeg þenna ágæta bitter, og
er jeg nú hef brúkað hann i hjer um
bil 14 daga, er jeg fullkomlega hraust-
ur og hef alls ekki kennt míns forna
meins síðan. Jeg skal því ótilkvadd-
ur tilkynna yður þennan ágæta árang-
ur, til þess að vekja eptirtekt annara
sjúkra og þjáðra manna á þessum á-
gæta bitter, ef þjer viljið birta orð
mín opinberiega.
N. Petersen,
skraddarameistari.
Einkenni á vorum eina egta Brama-lífs-el-
ixír eru firmamerki vor á glasinu, og ámerki-
skildinum á miðanum sjest blátt ljón og gull-
hani, og innsigli vort MB & L í grænu lakki
er á tappanum.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
sem einir búa til hinn verðlannaða Brama-lifs-elixír.
Kaupmannahöfn.
Vinnustofa: Ríirregade No. 6. 456
VAÐMÁLSUNDIRDEKK.
rauðbryddað með stöfunum: H. S. skatteruðum
í hornum, týndist 29. sept. þ. á., á leiðinni frá
Herdísarvík út að Geitarhlið miðri. Sá, sem
fundið hefur, umbiðst að skila þvi til Halldórs
Sigurðssonar i Merkinesi eða Einars Jóns-
sonar í Garðhúsum. 457
Svart hrútlamb með mínu marki: hvattog
hangfjöður apt. hægra, tvírifað í stúf vinstra,
var mjer dregið í haust, en jeg á ekki lamb
I þetta. Eigandinn getur vitjað þess til mín og
| samið við mig um markið.
Arnarstaðakoti, 17. okt. 1887.
G. F. Þorvarðarson. 458
A L M A N A K
Þjóðvinafjelagsins um árið 1888 er til sölu á
afgreiðslustofu Þjóðólfs. Kostar 45 a. 459
Silfurprjónn týndist lijer í bænum. Pinn-
andi skili honum á afgreiðslustofu Þjóðólfs. 460
Af því að mörgum hefur líkdð vel við
hið svo kallaða bií-kaffi, sem liúsböndi
minn í samar flutti hingað, þá leyfljeg
mjer lijer með, að auglysa, að nú með
Lauru er komið mikið af þessurn kaffl-
blendingi, sem vel má nota eingöngu í
kaffl stað og er mikill sparnaður á hverju
heimili, þar eð yrísinn er að eins 55 a.
pundið, þar sem kaffl kostar hjer um
bil helmingi meira.
Líka er komið aptur til verzlunar H.
Th. A. Thomsens
ekta Carbolineum,
sem er ágœtt meðal til að verja trje og
timbur frá fúa, og kostar 30 aura pund-
ið í smákaupum, en 28 aura í stœrri
kaupum.
Reykjavik. 14. okt. 1887.
Joh. Hansen, 461
factor við verzlun H. Th. A. Thomsens.
Einkasala fyrir bamnörku á
prjúnavjelum frá Miililliaiiscn
og spálunarvjelum frá Cliemnitz
með nýjasta og bezta lagi fyrir verk-
smiðjuverð. Menn geta fengið að sjá
unnið á vjelarnar.
Simon Olsen & Co. s Tricotagefabrik.
Kjöbmagergade 50, C, 2. Kbhvn K.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: á Bakarstíg. /
Prentari: Th. Jensen. y
/
i
/