Þjóðólfur - 06.01.1888, Síða 1

Þjóðólfur - 06.01.1888, Síða 1
Kemur út á föatudaga- morgna. VerB árg. (60 arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyrir 15. JAU. ÞJÓÐÓLFUR. Oppsögn skrifleg. bund- in viö áramöt, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. XL. árg. JÓN SIGURÐSSON. á G autlön dum. „Bóndi er bústólpi, bú er landstólpi" segir gamalt máltæki. Þetta er satt; það eru bændurnir, sem velferð landsins styðst við. Þegar bændurnir eru ónýtir og framtakslausir, er landið í voða, en þegar bændurnir eru duglegir og fram- takssamir og setja sig i brodd framfara og stórfyrirtækja, þá má eiga víst, að það befur einhvern árangur landinu til frama og heilla. Þetta kemur þvi bet- ur fram, þegar vjer íhugum, hve mikil áhrif bændur vorir hafa á löggjöf lands- ins. Það eru þeir, sem ráða mestu um, hverjir eiga setu á þingi. Þetta gæti komið enn betur fram, ef vjer fengj- um innlenda stjórn og fullkomið þing- ræði kæmist á hjá oss; þá mætti segja, að það væru bændurnir, sem hefðu mest áhrif á löggjöfog stjórn landsins. Þar sem nú staða bændanna er svo þýðingarmikil, eru það því miður allt of fáir úr þeirra flokki, sem hingað til hafa haft beinlín- is áhrif á stórmál landsins. Til þess eru þeir allt ofmikið önnum kafnir í búsýslu o. fl., og til þess er þeim veitt oflítil menntun, o. s. frv. Það eru þvi að eins fáir, sem hefja sig yfir hið almenna og gerast forkólfar framfara og stórfyrirtækja, eins og sá bóndi, er Þjóðólfur flytur mynd af í dag, Jón Sigurðsson á Grautlönd- um. „Hann er“, eins og danskt blað eitt (Morgunblaðið 5. maí f. á.) kemst að orði um hann, „mjög mikils metinn af landsmönnum sínum og hefur á sjertraust bæði þjóðarinnar og stjórnarinnar ", eins og hefur komið berlega fram í þvi, að honum hefur verið falið, að gegna öllum mikilverðustu störfum, bæði innan ogutanhjer- aðs, sem hægt er að fela mönn- um í hans stöðu. Hann er fæddur á Grautlöndum 12. maí 1828. Yorið 1848gekkhann Reykjavík, föstudaginn 6. janúar 1888. að eiga konu sína Solveigu Jónsdóttur, prests frá Reykjahlíð. Hafa þau búið á Gautlöndum síðan. Þeim hefur orðið 11 barna auðið; af þeim lifa 9, öll upp komin. Siðan 1856 hefur hann verið hreppstjóri í Skútustaðahreppi, nema 1861—64. Auk þess hefur hann verið sýslunefndarmaður, amtráðsmaður og hreppsnefndaroddviti. Sýslumaður var hann settur 1861 og gegndi þá sýslu- mannsembættinu i Þingeyjarsýslu í ná- lega 1 ár í umboði kanselliráðs Þ. Jóns- sonar; árið 1868 var hann aptur settur sýslumaður og gengdi þá embættinu ár- langt á eigin ábyrgð. Árið 1858 var hann kosinn alþingismaður í fyrsta skipti fyrir Suður-Þingeyjarsýslu; hefur hann síðan setið á þingi fyrir það kjördæmi til 1886. Þá gaf hann þar ekki kost á sjer, heldur sótti fram í fylkingunni, þar sem örustan var hörðust og bauð sig fram í Eyjafjarðarsýslu, og vann þar á- samt Benedikt Sveinssyni frægan sigur Nr. 1. á andvígismönnum sínum í stjórnarskrár- málinu. — Eins og menn muna ætluðu þeir Arnljótur prestur og Jón Hjaltalin að fá miklu fram komið með tilstyrk em- bættlinga á Akureyri. Þeir náðu Fróða undir sig, stofnuðu Akureyrarpóstinn og Jón Rauða. Skrifuðu þeir í blöðin af svo miklu kappi, að svo má kalla að grein- arnar gengju eins og skæðadrífa yfir all- an Eyjafjörð; en þetta kom fyrir ekki. Á þinginu 1877 var Jón Sigurðs- son kosinn varaforseti neðri deildar, en 1879 aðalforseti og hefur verið það síð- an, nema 1885. Hann átti sæti í land- búnaðarlaganefndinni frá 1869 til þess er hún lauk störfum sínum 1876, svo og í skattanefndinni, sem undir bjó hin nýju skattalög. Á öllum Þingvallafund- um hefur hann mætt síðan hann varð þingmaður. Enn fremur hefur hann verið formaður flestra fjelaga, sem stofn- uð hafa verið til almennra framfara í Þing- eyjarsýslu, og nú er hann form. Kaupfjel. Þingeyinga. — 26. maí 1867 var hann gerður að dannebrogsmanni, og 10. marz 1885 var hann skip- aður umboðsmaður. Hver áhrif Jón Sigurðsson hafi haft á framfaramál vor allan þann tíma, sem hann hefur fengist við þau í ræðum og ritum, er ómögu- legt að meta til fulls. Hann hef- ur verið meðal hinna helstu for- vígismanna í stj órnarbaráttunni hin síðustu ár, og það var hann, sem kvaddi til Þingvallafundar- ins 1885, þar sem kosnir menn úr öllum kjördæmum landsins komu saman til að hrinda áfram stjórnarbótamáli voru, og krefj- ast endurskoðunar á stjórnar- skránni. Jón Sigurðsson er hvítur af hær- um, en hann ber hærurnar eins og hetja. Hann er sómi bænda- stjettarinnar og hann er sómi alls landsins. Fyrir því óska allir góð- ir íslendingar honum langra líf- daga og að honum megi auðnast að vinna fósturjörðu vorri enn margt til heiðurs og heilla. JÓN SIGUliÐSSON.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.