Þjóðólfur - 12.10.1888, Blaðsíða 2
186
ráðsmanni Þorláki G-uðmundssyni. Meðal
annars var þar tekið fyrir:
1. Bkkju Guðlaugu Þorvarðardóttur í
Dalbæ í Hrunamannahreppi voru veittar
200 kr. af jafnaðarsjóðnum fyrir að hafa
uppalið og kennt til fermingar munaðar-
lausum heyrnar- og málleysingja, Jóni
nokkrum Jónssyni.
2. Sjera 0. V. Gíslasyni voru veittar
100 kr. af jafnaðarssjóði til að lialda á-
fram ferðalagi við Faxaflóa og austan-
fjalls til að gefa mönnum leiðbeiningar
um sjávarútveg og fiskiveiðar.
3. Var rætt „um stofnun búnaðarskóla
fyrir Suðuraintið á Hvanneyri í Borgar-
firði og kaup á þessari jörð í því skyni
af sýslunefnd Borgarfjarðarsýslu fyrir allt
að 16000 kr., og ef unnt er, í viðbót við
hið árlega búnaðarskólagjald og vexti af
búnaðarskólasjóði Suðuramtsins, aðfá nægi-
legt peningalán, að setja þar á stofn að
vori komandi búnaðarskóla, og felur amts-
ráðið forseta sínum að semja um kaup
jarðarinnar við sýslunefnd Borgarfjarðar-
sýslu og að taka lán þau, er nauðsynleg
eru fyrirtæki þessu til framkvæmdar, og j
veðsetja fyrir þessum lánum veðskulda-
brjef búnaðarskólasjóðs Suðaramtsins, og
að gera aðrar nauðsynlegar ráðstafanir
málinu til framkvæmdar“.
Gufuskip norskt, „Norau, lítið hval-
veiðaskip, kom hingað frá Kristjaníu 10.
þ. m. Kom við í Trangisvogi á Færeyj-
um á leiðinni. Laura ókomin þangað 7.
þ. m. „Nora“ fór í gær til ísafjarðar; er
að skoða sig um hjer við land, líklega upp
á hvalveiðar næsta ár.
Fj’árkaup Sliinons. Coghill gefur líkt
fyrir fje og í fyrra, almennast allt að 14 j
kr. fyrir sauði. Af Sauðárkróki fór gufu-
skipið Penelope með 1400 fjár og af'Borð-
eyri Princess Alexandre með 1800 fjár, sem
hann keypti fyrir norðan.
Gufuskipið Galvanic, fjárkaupaskip
Slimons, kom hingað í gær; hafði farið
frá Granton 3. þ. m.; hafði eigi meðferðis
nokkur blöð eða póst, sem hafði vorið
sendur með Lauru, er fór s. d. frá Leith.
Latínuskóiinn. Útskrifaður þaðan
5. þ. m.: Einar Þórðarson (frá Skjöld-
ólfsstöðum) með 3. einkunn (58. st.). 5 ný-
sveinar hafa bætst við í haust.
Afiabrögð. Mokafli má heita alstaðar við
Faxaflóa, alveg upjn á grunni. Á Reykja-
víkurhöfn t. d. fengust í fyrra dag og í
gær 40—50 í hlaut af þorski á nokkrum
klukkustundum.
Mannslát. 5. þ. m. andaðist hjer í bæn-
! um fyrverandi kaupmaður Sveinn Guð-
mundsson, frá Búðum, um sextugt.
Drukknun. í ofsa norðanveðri snemma
j í morgun drukknuðu á sigiingu í fiski-
j róður vestan til á Hrauninu bræður tveir
j hjeðan úr bænum, Bergur og Jón, Þórð-
arsynir, látins bónda á Einholti á Mýrum,
hinn fyrri vinnumaður Jóhannesar Zoega,
hinn síðari vinnumaður Ám. Ámundason-
j ar í Hlíðarhúsum, sem átti skipið. Yoru
7 á, en 5 var bjargað af Runólfi Runólfs-
syni í Hábæ.
Gufuskipið Mauritius kom aptur að
vestan í morgun.
Útlendar frjettir.
„Noralí hafði meðferðis norsk blöð, sem
ná til 26. f. m. fíelstu frjettir í þeim
eru þessar:
í Noregi var verið að kjósa til þings-
ins með kappi miklu, bæði frá hægri og
vinstri mönnum, en eigi sjeð fyrir endann
á þeim, eða hvor flokkanna mundi taj»a
eða græða við kosningarnar.
A Frakklaiuli í fylkinu Correze varð j
verkfall í f. m. meðal járnbrautarverkmanna j
og róstur miklar, svo að Iierlið varð að
skakka leikinn, og einu sinni lenti því
saman við 1000 karlmenn og 200 kvenn-
menn af verkamönnunum.
Varnarrit Mackenzies gegn árásum
hinna þýsku lækna út af meðferð hans I
á banameini Friðriks keisara er nú út
komið bæði á ensku og í þýskri útlegg- j
ingu. Sem dæmi um, hve fýknir menn !
eru að sjá rit þetta, má geta þcss, að
þýskur bóksali, sem kostar útgáfuna á !
þýsku, hafði, áður en ritið kom út, feng-
ið 90,000 áskrifendur að því.
Um kvennmorðin í Loiulon, sem get-
ið var í 45. tbl., ekkert nýtt að frjetta.
Eigi komið upp enn, hver að þeim sje
valdur.
Leikliús brann í London aðfaranótt
' 20. f. m. upp til kaldra kola, án þess, að
j nokkur maður biði bana af.
Skurðurinn gegn um Korintueiðið
lialda menn að verði albúinn í apríl næsta
ár. Nú sem stendur vinna að honum um
1700 verkamenn. Kostnaðurinn var áætl-
uður um 18 miljónir króna, en verður um
27 miljönir. Suezskurðurinn kostaði 20
miljónir pd. sterl. og í Panamaskurðinn er
búið að eyða 36 milj. pd. sterl.
Akaficgir vatnavextir liafa orðið á
Norður Ítalíu. Árnar iiafaflætt þar yfir land-
ið og borgir, svo að hús hafa hrunið, brýr
og járnbrautir sópast burtu og sumstaðar
margir menn beðið bana; ástaudið hörmu-
legt. í fylkinu Sondrio í Lombardíinu er
skaðinn metinn margar miljónir.
Nýdáinn er frakkueski hershöfðing-
inn Bazaine, fæddur 1811, nafnkendur
fyrir herforustu í mörgum stríðum, t. d. í
Krimstríðinu 1854, í Mexikó 1863 og í
stríðinu milli Frakka og Þjóðvcrja 1870,
er liann var yfirforingi alls hers Frakka
og varð að gefa Metz upp 27. okt 1870.
Yar hann ákærður fyrir að hafa eigi gjört
þar skyldu sína og síðan dæmdur til dauða,
en náðaður með 20 ára fangelsi á eyjunni
Marguerite; þaðan flýði liann með tilstyrk
konu sinnar til Spánar og dvaldi þar til
dauðadags.
Yfirlit
yflr veðráttu á Vestinaniiaeyjum árin 1881—85.
1 Ár. Hiti Veðurlag. Lopt- vog. Úr- koina.
Meðal Mestur Minst- nr. Skýja- megn. Ur- komu dagar. Snjó- dagar. Hagl- dagar. Þoku- dagar. Rok- dagar. Þrum- udag. 1 milli- rnetium í þuml- nngum
1881 16,o 216 41 21 39 36 3 753,2 46,„
1882 4,0 15,s -f- 15,, 228 39 32 49 19 rt 751,4 49,8
1883 5,3 14,o -5- 9,s 6.3 241 47 25 52 36 4 750,8 56,»
1884 5,, 1^5 - 9,3 6,5 267 57 28 54 29 4 750,5 60,o
1885 4,3 14,7 • 14,0 6,1 245 60 20 43 23 1 752,8 37,,
Meðaltal. 4,8 15,6 12w 239 49 25 47 29 751„ 50,,
Aths. Árið 1880 var meðalhiti: 5„ me.stur, 16,„ minnstur -f- 17,8.
Með úrkomu er meint hvers kyns úrferð, hvort sem það er regn, snjðr eða hagl.
Með roki er meint það, sem almennt er kallað drifaveður; veðurfræðingar tákna þessa vindhæð
með tölunni 5.
Með því að ýmsum kynui að þykja fróðlegt að sjá, hvernig viðrar á hinum syðsta og heitasta
bletti landsins, þá leyfi jeg mjer að senda Þjóðólfi ofanritað yfirlit yfir veðráttuna hjer á Yest-
mannaeyjum árin 1881—85. Skýrslan nær nú að vísu að eins yflr stutt árabil, en mun þó geta gefið
mönnum nokkurn veginn rjetta hugmynd um veðráttu hjer; þó ætla jeg, að meðalhiti þessi 5 ár sje