Þjóðólfur - 05.11.1888, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 05.11.1888, Blaðsíða 2
202 staka sinnum er hann fjekk aðra með sjer eða í sinn stað, er hann var fjar- verandi. Fyrsta blað undir hans rit- stjórn kom út 10. nóv. 1852, en hið síð- asta 18. apr. 1874. Jón Guðmundsson ritaði ekki eins lipurt mál og fyrirrenn- ari hans Sveinbjörn Hallgrímsson, en var aptur á móti atkvæðameiri i öll- um þjóðmálum. Það má með sanni segja, að er hann tók við Þjóðólfi, gekk hann næst Jóni Sigurðssyni í þeirri grein, enda kom það fram í blaðinu, sem undir hans hendi styrkti og hvatti ís- lendinga í baráttunni fyrir landsrjettind- um sínum og flutti marga snarpa og gagnorða grein um landsmál vor, vítti með einurð það, sem aflaga fór hjá em- bættismönnunum og öðrum, og var yfir höfuð einbeitt, frjálslynt og gagnort blað. Það má fullyrða, að Þjóðólfur hef- ur undir hans stjórn beint í rjett horf mörgum málum, sem þá voru á dag- skrá hjá þjóðinni, og ekki að vita, hverja stefnu sum þeirra hefðu tekið, ef hann hefði ekki verið. Eptir Jón Guðmundsson varð sjera Matthías Jochumsson útgefandi og rít- stjóri Þjóðólfs og var það í 6‘/2 ár. Margt skrifaði hann lipurt og fjörugt í Þjóðólf, en um þetta leyti var fögnuð- ur manna yfir „frelsisskrá í föðurhendi", sem Nellemann hefur gjört að ófrelsis- skrá, og almenn deyfð í stjórnmálum vorum. Þjóðóifur varð eins og almenn- ingur; hann gaf sig minna að stjórn- málum en áður hafði verið, en var þó frjálslyndur öll þessi ár. Sjera Matthías fjekk blaðið í hendur bóksala Kristjáns 0. Þorgrimssonar, sem kostaði útgáfu þess í tvö ár, en skrifaði ekkert í það sjálfur. Fyrst var Egilson í Glasgow aðalritstjóri þess hjá honum, og síðan Jónas Jónasson, er þá var presta- skólastúdent, en nú er prestur að Grund í Eyjafirði. Eptir það tók alþingismaður Jón Ó- lafsson við Þjóðólfi. Þá varð Þjóðólfur harðorður mjög og vakti megnt hatur á sjer hjá embættismönnum í Reykjavík. En fyrir þrem árum tókum vjer við Þjóðóifi, og þótt vjer höfum jafnan tal- að með mestu hógværð og stutt mál vort með rökum, þá hefur Þjóðólfur þó eigi getað aflað sjer vinsælda hjá sum- um hærri embættismönnum höfuðstaðar- ins, en hitt verðum vjer að segja Þjóð- ólfi til hróss, að aldrei hefur hann áður haft jafnmikið alþýðufylgi sem nú. Kaup- endur Þjóðólfs eru nú fleiri en nokkru sinni áður. Kaupendur hans hafa ekki verið „að blása upp“ á síðustu árum. Þjóðólfur horfir með ánægju á fortíðina og góðum vonum til framtíðarinnar. Amtsráðið fyrlr norðan, Amtsráðið fyrir norðan hjelt fund í vor, eins og lög gera ráð fyrir. Meðal ann- ars fór amtsráðið að gera aðfinningar við sýslunefndina i Suðurmúlasýslu fyr- ir — hvað hún styrkti mikið búnaðar- j skólann á Eyðum. Hið göfuga ráð vildi samt leyfa þetta í þetta sinn, „en bjóst við, að nefndin eptirleiðis hefði sem mest- ar gætur á því að gjaldþegnum yrði ekki íþyngt um of með háu sýslusjóðs- gjaldi“. Þarna hefur maður eitt af afreksverk- j um amtmannanna, því að vjer erum sann- færðir um, að þetta stafar frá amtmann- inum sjálfum. En þetta er ljóta afreks- verkið. Það er nærri því eins og amts- ráðið væri að reisa sjálfu sjer ævarandi minnisvarða. + Það er fyrst og fremst að amtsráðið með þessu gjörir tilraun til að hnekkja búnaðarskólanum á Eyðum, og sýnir með því, hversu því er illa við, að menntun eflist í landinu. I öðru lagi gjörir það sig að talsmanni hins ljeleg- asta og lúalegasta hugsunarháttar, sem fyrir kemur í mannlegu fjelagi, en það er sá hugsunarháttur, þegar menn barma sjer og kvarta yfir því, að leggja fram nokkraskildingatil almenningsþarfa, þeg- ar menn eyða í munað og óþarfa ærnum peningum, en tala þegar um, að þeim verði „íþyngt um of“, ef þeir eiga að láta dálítið af hendi rakna til að efla mennt- un og framfarir almennings. En í þriðja lagi hefur það gjört árás á skynsamlegt hjeraðafrelsi. Hefur amtsráðið þannig drýgt þrjár syndir, og er hin síðasta verst, því að það liggur í augum uppi, hversu fráleitt það er, þegar þrír menn fara að blanda sjer í innanhjeraðsmál, sem þeir ekkert þekkja, og ætla sjer að skoða bestu menn hjeraðsins eins og ó- myndug börn. Ef almenningur í Suðurmúlas. tímir ekki að leggja peninga til Eyðaskólans, þá er það hans að fá breytt stefnu sýslunefnd- arinnar, en amtsráðinu er best að lata sem allra minnst bera á sjer. Með þvi gjörir það landinu mest gagn. Ráöleggingar gamla Þjóöólfs. -'W-'irV-tyt-VV Heyrið þjer, góðir drengir! Gætið að yður við skuldunum. Skuldirnar eru eins og snara um hálsinn á góðum dreng ; þegar skuldheimtumaður tekur i snöruna, þá finnið þjer, að þjer eruð eigi frjálsir menn. Hvað margir hafa eigi logið, af því þeir voru í skuldum ? Hvað marga áhyggjustund hafa eigi skuldirnar gjört yður ? Svo sagði Kíkarður gamli (Frank- lín): „Lántakan er fyrsta rimin í mis- gerðastiganum; lygin er einu stigi neð- ar. Lántakan situr í hnakknum, en lyg- in situr á lendinni“. Gáið þjer í kring um yður. Nágranni yðar skuldar bankanum og afborgar skuld sína, eins og vera ber, eru nokkuð bágari yðar ástæður, því getið þjer þá eigi lagt hið sama í sparisjóðinn og hann afborgar? Viljann og kjarkinn vantar. Hann má til, en ykkur vantar viljann. Það er munurinn. Vjer þekkjum mann, sem kom 15 ára til góðs bónda, hann átti varla fötin utan á sig, og fjekk fyrst 80 kr. í kaup, sem smáhækkaði; þegar hann var 22 ára, átti hann 800 kr. í sparisjóði. Hann fjekk margt orð i eyra fyrir samhaldssemi sina, en vjer erum vissir um, að hann verður með tímanum góður bóndi og sveitarstoð. A sama heimili var annar vinnumaður; hann fjekk 80 kr. í kaup; liann átti kofort með dálitlu af fötum í; þegar drengur- inn var búinn að spara saman 300 kr., átti hinn kofortið sitt og ekkert meira. Nú er hann farinn að lýjast, og efhann verður gamall, fer hann á sveitina ; hann kann að verða settur niður einhverstað- ar, þar sem hann fær slæmt að borða og hefur ónotalegt atlæti; eins og mað- ur sáir, sker maður upp. Vjer þekkjum bónda; iágústlok í sum- ar átti hann 1400 kr. tilgóða hjá einum kaupmanni í bænum; eptir 6 vikur vildi kann taka út um 100 kr., en kaup- niaðurinn sagði: „En nú eigið þjer ekki meira til góða“. „Það er ómögulegt“, sagði bóndi, jeg hlýt að eiga nokkur hundruð krónur tilgóða". En svo fjekk hann að sjá reikning sinn, ogþá sá hann, að hann hafði tekið út á liðugum sex vikum — 1400 kr. Þá sá hann, hvern- ig menn geta eytt peningunum, efmenn gá ekki að sjer. En ekki er þetta hollt fyrir sjálfan mann og ekki fyrir landið og ekki fyrir konuna og börnin, og þetta er það, sem menn þó elska mest í heim-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.