Þjóðólfur - 05.11.1888, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 05.11.1888, Blaðsíða 3
203 inum. Því segi jeg, munið eptir feitu og mögru kúnum hans Faraó. Munið ið eptir sparisjóðnum. Þjer, sem lesið gamla Þjóðólf, segið þeim, sem ekki lesa hann, frá þessum sögum um vinnumenn- ina og bóndann, því að þær eru sannar. Bóndinn er hjer nálægt, en vinnumenn- irnir eru suður með sjó. Vöxtur Þióðólfs. Þjóðólfur fæddist eins og Aþena; hann stökk albrynjaður fram á vígvöll- inn; varð höfðingjunum bilt við, er þeir heyrðu vopnagnýinn, og b'tu ófrýnum augum á hinn unga svein; vörpuðu þeir öndinni mæðilega, og var sem þeim segði hugur um, að hann myndi standa yfir höfuðsvörðum sínum, enda hefur svo átt að verða, að Þjóðólfnr hefur átt eptir flesta ijandmenn sína að mæla. Sveinn- inn var þegar knálegur og harðgjör, og fær í flestan sjó, en lítill var hann vexti. Hann var ekki nema ein spönn og hálf fingurhæð á iengdina, en svaraði sjer nokkurn veginn á breidd. Og ekki kom hann nema tvisvar í mánuði. Þegar hann var fjögra ára, óx hann töluvert; lengdinni og breiddinni hjelt hann að vísu, en varð þriðjungi gildari og kom nú út þrisvar í mánuði. Svo var hann að smágildna hjá Jóni Gruðmundssyni og var hið gildasta blað, er þá var uppi á landinu. Þegar Þjóðólfur var orðinn 26 vetra, missti hann Jón Guðmundsson, og rann hann þá svo, að hann varð þynnri en hann hafði nokkru sinni verið, síðan hann var á fjórða árinu; en svo varð hann langur, að hann varð fullar tvær spann- ir og að því skapi breiður. Árið 1884 óx Þjóðólfur allmikið ; leidd- ist honum lengdin, og gekk saman á þann veginn, en varð hinn gildasti á velli, og kom nú út á hverri viku. Síðan hefur Þjoðolfur þreknað allmikið, og er hann hið þreknasta blað, sem nú er uppi hjer á landi. En honum er ekki enn fullfarið fram; hann munvaxajafnt og Þjet'ú; hann veit, að íslendingar hafa óbeit á öllum ofvexti, sem ef til vill hjaðnar niður á miðju ári, en veit, að þeim þykir vænt um eðlilegan vöxt og viðgang. Ofsóknir gegn Þjóðólfi. Snemma var Þjóðólfur ofsóttur og banaráð brugguð gegn honum af ófrjáls- lyndum embættislýð og skilningslausum almúgamönnum. Reykj aví kurpósturinn, embættismannablað, hið eina blað, sem út kom hjer, er Þjóðólfur var stofnaður, tók þegar að níða hann; en Beykjavík- urpósturinn dó árið eptir; stofnuðu þá embættismennirnir í Keykjavík annað blað, Landstíðindin, sem áttu að drepa Þjóðólf. Stiptsyfirvöldin, sem þá höfðu yfirstjórn landsprentsmiðjunnar, gerðu Sveinbirni Hallgrímssyni erfitt fyrir með að fá blaðið prentað í þessari einu prent- smiðju, sem þá var hjer, og á öðru ári bönnuðu þau prentun á honum með öllu, þegar 6.—7. tölubl. annars árg. var al- sett, þvert ofan í skriflegan samning um prentunina. I þessu tbl. átti að koma grein um uppþot skólapilta gegn Svein- birni Egilssyni, þar sem ritstjórinn tók málstað pilta. Stiptsyfirvöldunum hefur þótt bera vel í veiði, að fá þetta sem á- stæðu til að reyna að fá Þjóðólfi í hel komið, en þeim varð ekki kápan úr því klæðinu. Landstiðindin gáfu í skyn, að i þessu tölubl. hefði átt að koma nokk- uð, „sem landinu væri skaðiegt og frem- ur til að spilla en bæta“. Sveinbjörn Hallgrímsson gat ekki þolað þennan á- burð, og rjeð því af að sigla til Khafn- ar og láta prenta hið bannaða tölublað þar; en hann var ekki svo efnum bú- inn, að hann gæti kostað för þessa af eigin rammleik ; skutu þá bændur í kring um Reykjavik saman 100 rd. á einum sólarhring handa honum til fararinnar, og tveir menn lánuðu honum sína 100 rd. hvor. Sýnir þetta, hve mikil alþýðu- hylli blaðsins var þá þegar orðin og jafn- framt skörungskap bænda á Seltjarnar- nesi, því að þá var hver skoðaður varg- ur í vjeum, er Þjóðólf studdi. „Með þessum 300 rd. frelsaði jeg æru mína og Þjóðólfs“, segir Sveinbjörn Hallgríms- son (Þjóðólfur 1850, 34.—35. tbl.). Það blað, sem prentað var erlendis, heitir Hljóðólfur. í utanför sinni kærði Svb. Hallgrímsson þetta gjörræði stiptsyfir- valdanna fyrir stjórninni, en fjekk aldr- ei leiðrjetting á því. Þetta ofríki stiptsyfirvaldanna, er merkilegt, ekki að eins í sögu Þjóðólfs, heldur einnig í sögu landsins, þvi að það sýnir, hversu skammt menn voru þá á veg komnir hjer á landi í prentfrelsi og málfrelsi. Þótt ekki væri eptir þetta reynt að banna prentun blaðsins, þá var þvi þó sýnd sama mótspyrna og fjandskapur, eptir að Jón Guðmundsson tók við því. Embættismennirnir reyndu hvað eptir annað að halda blöðum úti, til þess að ríða Þjóðólf niður, en þau þrifust ekki, vesluðust upp og hættu innan skamms aptur. Og á annan hátt reyndu þeir, sumir hverjir, að spilla fyrir blaðinu, eptir mætti, í smáu og stóru. Þannig var t. d. hinn þáverandi háyfirdómari svo smásmuglegur að neita Jóni Guð- mundssyni um, að fá eptirrit af dómum yfirdómsins til birtingar í blaðinu, þótt J. G. byði fulla borgun fyrir. Ekki fjekkst Þjóðólfur prentaður í landsprent- smiðjunni, nema prentkostnaðurinn væri borgaður fyrir hvert blað, jafnóðum og það var prentað, en aptur á móti vægt mjög til við önnur blöð, og lenti stund- um nokkuð af prentkostnaði þeirra á prentsmiðjunni sjálfri. Meðan Jón Ólafsson var ritstjóri Þjóð- ólfs, rjeðust embættismennirnir hjer í staðnum á auglýsingarnar. Þeir fóru baktröppurnar hjá Nellemann, eins og vant er að vera í mikilsvarðandi mál- um og fengu hann til að veita Suðra þær, en síðan gaf Magnús Stephensen ísafold dúsu þessa, því að það blað kunni hann „spakast11 á landi voru. Jón Ó- lafsson átti í mörgum meiðyrðamálum. Síðan vjer höfum tekið við ritstjórninni, hafa verið hafin tvö meiðyrðamál á hend- ur blaðsins. I öðru var blaðið sýknað algjörlega fyrir yfirdómi, en í hinu hætti sækjandinn í miðju kafi, og varð að borga oss ómak og timatöf við það. Reykjavík, 5. nóv. 1888. Tíðarfar. Fptir því, sem fvjettist með póstunr að norðan og vestan, sem nú eru nýkomnir, hef- ur tíðarfar verið úgætt i haust allstaðar, þangað t.il 23. f. m. að hríðarkast gerði snögglega fyrir norðan, en mun þó eigi hafa staðið lengi. Gufuskip til Kuudsens kaupmanns kom á Borðeyri 16. f. m. með vörur; það kom og með stýri fyrir gufuskipið Lady Bertha, sem braut stýrið á skeri á Húnaflóa í sumar og hefur legið síðan á Borðeyri. Bæði skipin fóru siðan norður á Sauðárkrók og hafa farið þaðan til Englands með íje og hesta. Ailabrögð. Því nær fiskilaust víðast fyrir Norð- urlandi; en góður afli fyrir vestan.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.