Þjóðólfur - 05.11.1888, Page 4
204
Þ j ó ö ó 1 fu r
í „Armaimi á al])in£i“.
Maður hjet Sighvatur og var Atlason; hann bjó
norður í Skagafirði; hann var vel viti borinn og
búsýslumaður mikill. Það var eitt vor, að hann
fór suður á land til skreiðarkaupa og áði á Hof-
mannaflöt á Jónsmessunótt; þar láu tveir menn
fyrir, er komið höfðu að sunnan. Annar hjet Ön-
nndur; hann var þurrabúðarmaðnr sunnan af Sel- i
tjarnarnesi, oflátungur og fremur flysjungslegur.
En hinn hjet „Þjóðnlfur og var ættaður austan úr
Elóa; hann var lágur maður vexti og þreklegur,
móeygður og svarthærður, stórskorinn i andliti og
heldur ófríður, örðugur í skapi, þegar svo hauð
við að horfa, og ekki þótti hann mikill vitsmuna
maður veru. Hann var yfrið mótfallinn ölluin ný-
breytingum og fylgdi torfeðra sinna siðvenju í öll-
um sínum háttum'ú Þessa menn lætur Baldvin
Einarsson koma fram á alþingi og þar hlýða þeir
á ræður manna, og reyndist Þjóðólfur besti kall.
Árið 1832 kom út 4. árg. af „Ármann á alþingi11.
Þjóðólfur var sá seinasti, sem hjelt ræðu og end-
aði þannig: „Hugsum við nú allir um engja og
túnarækt, þangað til að ári. Jeg vona, að við get-
um haft miklu fleiri ær og kýr á eptir og fyrnt
hey til frambúðar i hallærum“.
Það var auðsjeð, hvað Baldvin Einarsson ætlaði
sjer i næsta árgangi, en svo dó hann í æsku blóma
litlu síðar.
Þjóðólfur hefur haldið uppi nafninu og starfað
að landsmálum í 40 ár.
P j óöólfur
er einbeitt og stefnufast blað. í hann
skrifa ýmsir meðal hinna merkari þing-
manna, bænda og yngri menntamanna
landsins. Hann er fjölbreyttur að efni,
en fremur öllu ræðir hann framfaramál
landsins í heild sinni.
Sögusafn Þjóðúlfs
flytur sögur og fræðandi greinir eptir
góða höfunda.
Nýir kaupendur að næsta árgangi
fá ókeypis og kostnaðarlaust sent sögu-
sajn Þjbðólfs yfirstandandi ár með 7—8
sögum og fræðigreinum, sem verða nm
220 bls., æfisögu Sigurðar málara 48 bls.,
fyrirlestur Páls Briems um stjórnarskrár-
málið 32 bls., sem þeim verður allt sent,
þegar sögusafnið fyrir þetta ár er allt út
komið. Enn fremur fá nýir kaupendur
16 síSustu blöcíin af þessum árgangi, sem
þeim verða send jafnóðum og þau koma
út. Það, sem þeir fá ókeypis, verður þann-
ig hátt ujip í það, sem einn árgangur af
blaðinu kostar.
Nýir kaupendur gefi sig fram sem
allra fyrst. 496
Þjöðólfur á ferð.
Þjóðólfur: Gnð gefi yður góðan daginn, og sæl
verið þið nú öll sömun“.
Fólkið: „Sæll og blessaður Þjóðólfur minn“.
Þjóðölfur: „Nú er jeg 40 ára og nú vevðið
þið að taka vel á móti mjer. Margt sporið hef
jeg farið um landið og margan kætt og margan
frætt. En ekki er jeg samt þreyttur. Munið þið,
þegar jeg kom hingáð í fyrsta skipti ? Þásagðijeg
líka: Guð gefi yður góðan daginn, og þetta segi
jeg við alla mína kaupendur og eins þá, sem ekki
kanpa mig, en lesa mig samt“.
Bóndi: „Þetta er satt, Þjóðólfur minn. „Marg-
an kætt og inargan frætt“ Jeg held jeg muni
eptir, þegar þú komst hingað í fyrsta skipti. Þú
fórst þá strax að tala um þjóðerni vort og þjóð-
lega stjórn. Þá var Jón Sigurðsson upp á sitt
besta, og þú varst að hvetja oss til að lesa Nýju
Ejelagsritin; margir voru þá á mðti, eins og nú,
og betur hefði verið, að allir hefðu farið að ráð-
um Jnnum. En gerðu svo vel og kastaðu mæðinni
og segðu tíðindin. Viltu ekki þiggja kafflsopa?"
Þjóðólfur: „Þakka þjer fyrir. En bestu góð-
gjörðirnar væru, ef þú útvegaðir menn til að kaupa
mig; ef þjer tækuð ykkur nú saman á öllu landi,
til að kaupa mig meira en áður, svo að jeg fengi
nokkur hundruð nýja kaupendur, þá skyldi jeg
verða meir en helmingi stærri en jeg er“.
Auglýsingar.
óð kýr, snemmbær eða miðsvetrarbær, fæst
keypt eða ljeð. Bitstjórinn vísar á. 495
Greiöasala.
Hjer eptir sel jeg ferðamönnum næturgisting og
greiða eptir föngum.
Hvassahraunskoti, 2. nóv. 1888.
Hallur Pálsson. 497
M Y N D
af Einari Asmundssyni í Nesi
(kostar 50 aura)
fæst í Reykjavík hjá
Sigurði Kristjánssyni. 498
H u 1 s t u r
(á 10 :i 11 ra)
til að geyma í
viöskiptabækur við landsbankann
(Sparisjóðsbœkur)
fást á afgreiðslustofu landsbankans
og hjá
Sigurði Kristjánssyni. 499
Ekta anilinlitir, mjög ódýrir,
hollenskt reyktdbak, (tvær Stjörnur)
o. fl. fæst í verslnn Sturlu Jónssonar. 500
Hjer með auglýsist, almenningi til vitundar,
að frá nóvemher byrjun þ. á. selur undir-
skrifaður ferðamönnum allan þann greiða, er hann
lætur af hendi, mót sanngjarnri borgun.
Þormóðsdal, 29. okt. 1888.
Halldór Jónsson. 501
Commercial Union,
vátryggmgarfjelaq í Lundúnum, tékur í
ábyrgð hús, vörubirgðir, alls konar innan-
hússmuni o. fl. o. fl. fyrir lægsta vátrygg-
ingargjald. Umboðsmaður í Beylcjavík er
Sighvatur Bjarnason bankabókhaldari.
502
Svart geldingslamb hefur mjer verið dreg-
ið í haust með mínu rjetta marki: sneiðrifað fram-
an hægra, sneitt framan vinstra. Með því aðjeg
á ekki lamb þetta, er hjer ineð skorað á eigand-
ann að semja við mig um markið.
Úlfmannsfelli í Mosfellssveit, 3. nóv. 1888.
Jón Þórðarsson. 503
er ekki
oitta
nema ájjhverjum pakka staudi eptirfylgjandi ein-
kenni:
Máttþrot, magaveiki, svefnleysi.
Fyrir ári síðan var jeg mjög þjáður
af máttþrotum. Allur líkaminu var
magnlan8! þar með fylgdi magaveiki og
svefnleysi. Jeg leitaði ráða til lækn-
is mins, Dr. Rörby, og keypti síðan 1
glas af Mansfeld-Bullners & Lassens
Brama-lífs-elixír. Fann jeg fljótt bata á
mjer, er jeg neytti þess, mjer óx styrk-
ur, fjekk betri matarlyst og gat sofið.
Jeg get með góðri samvisku sagt, að
bitter þessi heldur heilsu minni við. Ræð
og þeim öllum, er þurfa, að reyna þenn-
an ágæta bitter, er á allt það lof skilið,
er honum er svo ríkulega veitt.
Jaberg við Skive. J. Hansen.
Einkenni á vorum eina egta Brama-lífs-elixír
eru firmamerki vor á glasinu og á merkiskildin-
um á miðanum sjest blátt ljón og gullhani, og
innsigli vort MB & L í grænu lakki er á tappan-
um.
Mansfeld-Búllner & Lassen,
sem einir báa til hinn ver&launaða IlrQfrtUzlifs-elixír.
Kaupmannahöfn.
Vinnustofa: ISI'órregade No. 6. \ 505
-
Eigandi og áhyrgðarmaður:
Þorleifur Jónsson, cand. phil.
Skrifstofa: í Bankastræti nr. 3.
Prentsm. Sigf. Eymundssonar.