Þjóðólfur - 29.01.1889, Qupperneq 2
18
burt af meginlandinu. Á Samoaeyjunum
Jiafa Þjóðverjar beðið ósigur í bardaga;
þeir hafa troðið nýjum konungi upp á eyjar-
skeggja, sem þeir með engu móti vilja
þýðast. Nú kvað Bismarck á morgun
ætla að leggja fyrir þing frumvarp um
nýlendur Þjóðverja. Hann kom til Berlín-
ar á fimmtudaginn var, en hefur verið
hás, svo hann gat ekki talað á þinginu
fyr en nú á morgun.
í nóvemberlok var lagt fyrir þingið
merkilegt frumvarp til laga um sjúkra og
örvasa sjóð fyrir vinnumenn. Ríkið, hús-
bóndinn og vinnumaðurinn leggur hver
um sig þriðjung í sjóðinn (vinnumaðurinn
fimtugasta hlut af vikulaunum sínum);
með þessu móti fá vinnumenn eftirlaun
eins og embættismenn. Um 12 miljónir
vinnumanna er sagt að lög þessi nái yfir
(kvennmenn og karlmenn).
Ekkja Vilhjálms fyrsta hefur á prenti
neitað, að hún hafi borið í Morier 1870
njósnir um her Þjóðverja. Nú verður
gaman að sjá á morgun, hvernig Bismarck
bjargar við öllum þessum málnm.
England. írska málið situr við sama.
Parnellsmálið heldur áfram og hvað kosta
Times 100,^? (18,000 krónur) á dag!
Kemur það mest til af því, að það Ieiðir
fram írsk vitni svo hundruðum skiptir.
Gladstoue var 79 ára 29. desember og
ernúáltalíu; hannfer þangað á hverjum
vetri vegna loptslagsins. Grenfell liðstjóri
Englendinga í Suakim, vann mikinn sigur
yfir Osman Digma og Súdansbúum 20.
desember; Osman hafði þá nýlega iogið
upp að Mahdíinn í Khartum hefði tekið
Stanley og Emin pasja höndum. Pessu var
almennt trúað um tíma, en nú trúir eng-
inn því lengur.
Nýlendan Queensland (í Australíu) neit-
aði að taka við Blake, fyrverandi lands-
stjóra í Newfoundland, sem Governor af
stjórninni í London, eptir að hún hafði
skipað hann í embætti. Ástæðan var sú,
að Blake var á móti sjálfsforræði íra.
Þessu lauk svo, að stjórnin varð að láta
undan og setja annan mann sem lands-
stjóra yfir Queensland.
Danmörk. Stjórnarafmæli konungs 15.
nóvember var ekki haldið af vinstrimönn-
um. Konungur er sjötugur, en Óskar
Svía og Norðmanna konungur er sextugur
21. janúar. Stjórnin er nú að víggirða
Höfn milli Utterslev og Kjöge Bugt, hér
um bil 2 mílur vegar; þegar það er búið,
þá er Kaupmannahöfn öll víggirt; 8 milj-
ónir króna ganga til þessa hluta af víg-
girðingunni.
Sljesvíkingar hafa fengið jólagjöf, ný
lög um að eingöngu skuli kenna á þýsku
í öllum almúga og barnaskólum, og þykir
það hart.
Tveir Sænskir fjelausir skósmiðir voru
reknir yfir í Svíaríki; Svíar eru fokvondir
út af þessu, og í fólksþinginu hjer
á að gera fyrirspurn um það til
stjórnarinnar. Sagt er að nýjar kosningar
til fólksþingsins eigi að vera í lok þessa
mánaðar.
Noregur. Árið 1884 voru 84 vinstri-
menn og 30 hægrimenn á þingi í Noregi;
nú eru eitthvað 54 hægrimenn, 27 Sver-
drupsmenn og 33 vinstrimenn á þinginu ;
ef hægrimenn hefðu orðið 56 hefðu þeir
haft meiri hluta atkvæða á þingi.
Stanley og Nansen. Það hafa komið
flugufregnir um Stanley (Klettabrjót kalla
Afríkumenn hann), sem hafa reynzt lygi.
Um jólin kom hraðfrjett frá landsstjóra í
Kongoríkinu, sein er sönn. Stanley hafði
komið 17. ágúst 1888 tilAruwimi fljótsins
að sækja vistir, en ætlaði aptur til Emin
pasja. Brjef frá honum geta ekki komist
til Kongó fyr en í mars, og þangað til
verður nánari frjetta að bíða. Dr. Nansen
situr í Godthaab á Grænlandi, og skipið
sem sækir hann fer í fyrsta lagi af stað
31. mars svo ekki koma frjettir af honum,
fyr en í maílok.
Ýmislegt. Franz Jósef Austurríkiskeis-
ari hélt 2. desember 40 ára afmæli sitt í
kyrþey og gaf stórgjafir.
Vilhjálmr 3. Hollendiuga konungur liggur
fyrir dauðanum ; ríkiserfingi er dóttir hans
6 ára gömul.
Serbaþing hefur samþykt stjórnarskip-
un, sem Mílan konungur lagði fyrir það
og sem er sú frjálslegasta í Evrópu.
Salisbury sagði í ræðu i Edinburgh í
desember, að hann væri með kosningarjetti
kvenna, að fullu og öllu. Rjett á eptir
vann frú Kovalevski í Stokkhólmi verð-
laun hins franska vísindafjelags (Institut
de France), fyrir svar upp á spurningu
þess i talfræði, sem allir vísindamenii í
Evrópu höfðu leyfi til að svara. Svarið
var svo gott 'að fjelagið hækkaði launin
úr 3000 frönkum upp í 5000 franka.
Reylcjavík, 29. jan. 1889.
Tíðarfar fyrir norðan segir Norður-
ljósið „ágætt“ til ársloka, og sama er
skrifað úr Skagafjarðardölum. Úr Svína-
vatnshreppi er skrifað 5. þ. m. „Nú er
skipt um tíð; síðan fyrir jól mátt heita
stöðugar hríðar og ofsaveður af suðvestri.
Ófærð er svo mikil af fönn hjer í sveit,
að naumast mun vera farandi milli bæja.
Allt fje inni síðan fyrir jól“. I Vatns-
dal voru ýmsir farnir að taka inn úti-
gangshross eptir nýjárið.
Ofsaveðrið á Þorláksmessu. Úr Dala-
sýslu er skrifað 17. þ. m. „Á Þorláks-
messu gerði aftaka veður af suðri. Mest
var veðrið um kveldið frá kl. 9—12, enda
er það eitthvert hið hvassasta veður, er
menn muna hjer eptir. Á Þorbergsstöð-
um í Laxárdal fauk járnþak af heyhlöðu.
Á Narfeyri á Skógarströnd fauk ný
timburkirkja, sem komið var langt með
að endurbyggja, og brotnaði í spón“.
Af Ströndum er skrifað, að ofveðrið hafi
verið „óminnilegt“, og úr Húnavatns-
sýslu, að það hafi verið „ofsaveður með
fannkomu af suðvestri. Sumstaðar gerði
það skemmdir á húsum og heyjurn".
Afialítið eða nær aflalaust er að frjetta
nú hvarvetna af landinu. I Strandasýslu
hefur afli verið lítill í haust, gæftir mjög
slæmar. „200 hæstur hlutur á Gjögri af
fremur smáum fiski“.
50 kr. sektin. Ymsir borgarar á ísa-
firði hafa sent sýslumanni Skúla Thor-
oddsen ávarp, þar sem þeir láta í ljósi
megna óánægju yfir, að hann skuli hafa
verið sektaður fyrir för sína á Þingvalla-
fundinn, og þakka honum fyrir framkomu
hans á þeim fundi.
Gufuskijiið á Sauðárkróki, sem get-
ið var um í siðasta blaði, heitir „AVaa-
gen“ og stýrir því Otto AVathne; er
hann sendur af vátryggingarfjelagi til
að bjarga skipi Knudsens kaupmanns,
„Lady Bertha“. Er hann góðrar vonar
um að það takist.
Verslunarmál. í Skagafirði er all-
mikill áhugi hjá ýmsum að koma á pönt-
unarfjelagi. „í fyrra hættu menn við
pöntun hjá J. Coghill og eru nú að hugsa
um, að snúa sjer til Zöllners, sem Þing-
eyingar eiga skiptin við, og panta fram-
vegis fyrir eigin reikning". „Kaupmenn
á Blönduósi settu þegar upp matvöru í
haust, er vörur fórust með skipi Knud-
sens, því er strandaði á Sauðárkrók“
(o: Lady Bertha). Á Ólafsvík var allc
allt uppgengið nema salt, grænsápa og
brennivín.
26 lömb brunnu inni í fjárhúsi á
Ögri í Helgafellssv^it 27. f. m. og 10
hestar af heyi.