Þjóðólfur


Þjóðólfur - 29.03.1889, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 29.03.1889, Qupperneq 1
Kemur út á, föstudags- morgna. Verö árg. (60 arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyrir 15. júli. ÞJÓÐÓLFUR öppsögn skrifleg, bund- in viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. Reyb,Íavík föstudaginn 29. mars 1889. Nr. 14. LXI. árg. Bókaverslun Kr. Ó. Þorgríms- sonar selur Helgapostillu innhefta meö mynd fyrir aö eins 3 kr. (áð- ur 6 kr.). 104 Helga-Postilla, lieft 3 kr.; í velsku kandi fryltu 4 kr.; í alskinni, g-ylt, 4 kr. 50 au. og1 5 kr. 105 Sigf. Eymundsson?í Bókverslun. 105 Svíaríki og verslunin. Fyrir liðugri hálfri fjórðu öld var nokk- uð líkt ástatt í Svíaríki, eins og hjer á landi er nú. En þá skipti uin; þeir höfðu áður verið í sambandi við Dani, Kalmarsambandinu, um liðug 100 ár og lotið Danakonungum, en eptir Stokk- bólmsvígin 1520 gerðu þeir uppreisn og tóku Giustaf Vasa til konungs. Það var hann, sem lagði grundvöllinn til vegs og | veldis Svia. Svíar voru fátækir, landið j í órækt, samgöngur í bágu ástandi, engir almennilegir vegir. iðnaður litill og versl- unin i hönduiii Lybikumauna. Þetta tók stórum stakkaskiptum, meðan Gustaf Vasa sat að völdum, og einna mest er þetta því að þakka, að hann gat losað ver3lunina. úr höndum Lybikumanna og gert hana innlenda; einmitt þetta at- riði þykir A. W. af Sillén, sem ritað hef- ur sögu vprslunar og iðnaðar Svía und- ir Vasaættinui, svo mikilvægt, að hann segir: „Vjer þorum að staðhæfa það, að lausnin undan verslunarveldi Lybiku- manna, er eins dýrmætur gimsteinn í kórónu Q-ustafs, eins og frelsunin und- an oki Dana og páfaus. Bláfátæk þjóð hefur eigi mikla ástæðu til að gleðja sig yfir frelsinu" (A. W. af Sillén, Svenska handelns och naringarnes historia under ^asaátten, 4. bd., Stockb., 1865, bls 69 til 70). Lybikumenn voru búsettir í Lybiku, en höfðu sina þjóna í Svíariki. „Versl- un var þung", segir Sillén, „Lybikumenn höfðu hjer sína föstu þjóna, sem skipuðu upp vörum þeirra eptir því, sem þeim þóknaðist og settu það verð á þær er þeir vildu“. Fyrir sænskar vörur og peninga „Ijetu þeir í staðinn ónýtt „kram“ eða verðlitlar vörur“. „Þær vörur, sem þeir sendu til Sviarikis voru sviknar og ónýtar“ (S. b. bls. 61 og 67). Verslun- arlagið var líkt og hjer með það, að inn- lendar vörur voru stundum í hærra verði, en fjekkst fyrir þær í útlöndum. „Þann- ig kom upp hið einkennilega ástand, að ein lest af járni var keypt fyrir 40 mörk innanlands og seld í útlöndum fyrir 30 —36 mörk; það sem á vantaði varð að bætast með hækkuðu verði á innfluttum vörum“ (S. b. bls. 195). „Gustaf Vasa hafði nóg að gjöra inn- anlands; en samt er lausnin undan kúg- un Lybikumanna og hin færandi verslun Sviarikis við vesturríkin í Evrópu hans verk“, segir Sillén. En til þess að fá þessu framgengt beitti hann hörðu, „ þann- ig bannaði hann alla verslun við Lybiku- menn 1548, og gerði upptæk skip þeirra og muni“, og margt var Hkt þessu. Sví- ar voru jafnvel sjálfir i móti honum, því að þeir voru í stórskuldum við kaup- menn í Lybiku „og margir sænskir kaup- menn voru jafnvel þjónar og þrælar þeirra“. Gustaf Vasa lagði þunga skatta á Svia, og landsmenn undu svo illa við, að þeir gerðu jafnvel uppreistir gegn honum. En árangurinn var þó sá, að „á siðustu árum Gustafs konungs voru Svíar orðnir all- miklir kaupmenn og farmenn og fluttu j vörur á skipum sjálfra sin til annara landa“, segir Páll Melsteð (Nýja sagan 1. h., bls. 155). Gustaf Vasa sagði við Svia: „Það er j kunnugt, að mörgmn hefur þótt jegvera I ærið harður konungur, en þeir tímar munu koma, að Svíar mundu kjósa, að ná mjer aptur upp úr moldinni, ef þess væri kost- ur“. — Sviar hafa sjálfir best viðurkennt, hvílka ávexti starf hans hefur borið, með j því að kalla hann föður fósturjarðarinnar. títlendar frjettir Hifn, 28. febr. 1888. Sllillll BOllAtifiERS 0« A1 AIIMiJA JAKIIB. Jeg gat þess í síðustu frjettum, að kosning til þings ætti að vera í París ‘27. janúar, og að Boulanger hefði boðið sig fram á móti Jacques, formanni í sýslunefnd Seine- fylkisins. Boulangistar og þjóðveldis- menn kepptust allt hvað þeir gátu að ná kjósendunum í sitt lið. Ávörp frá Bou- langer og Jacques voru límd á götuhorn- in, hvert ofan á annað, svo að það varð kaka marga þumlunga á þykkt. Dagana næst á undan kosningunni gengu sendi- menn Boulangers um göturnar syngj- andi visur um Jacques (Jakob). ,,Awm- ingja Jakob, hvar ertu?“ og „Þekkið þið Jakob?“ Svo kom hinn mikli dagur og kosningin fór fram með spekt. Nokkru j eptir miðnætti var lokið að telja atkvæð- in, Boulanger fjekk 244,070, Jakob 162,520 og Boulé nokkur 16,760. Sama dag var kosning í Cðté d’Or og þar völdu 11,707 kjósendur Boulanger og þó bauð hann I sig ekki fram þar (!!!). Floquet fjell all- ur ketill í eld við þetta og bauðst til að segja af sjer, ef Carnot forseti vildi. En | það varð ekki úr því. Floquet lagði fyr- | ir þingið frumvarp um að engar auka- kosningar til þings skyldu hafðar á und- ; an hinum almennu kosningum (október 1889), og lika annað um að listakosning (scrutin de liste*) skyldi úr lögum num- in og hjeraðakosning (scrutin d’arrondis- sement; hver þingmaður valinn sjerstak- lega) koma í staðinn. Þessi frumvörp voru í snatri afgreidd frá báðum þing- deildum og gerð að lögum. Eptir þetta var Floquet svo djarfur, að hann ljet koma til umræðu frumvarp sitt um end- urskoðun á stjórnarskránni, sem hefur verið lengi í nefnd. En þingið samþ. uppástungu um, að fresta því þangað til í haust eptir nýjar kosningar. Þetta var 13. febrúar og Floquet lagði strax nið- ur völdin. Hann hefur haft forstöðu hins 24. ráðaneytis hins franska þjóðveld- is siðan í marslok 1888. Carnot forseti var nii í 10 daga að basla við að fá nýtt ráðaneyti og fjekk loksins Tirard, sem hafði forstöðu ráðaneytis frá 12. desem- ber 1887 til 20. mars 1888 (fyrsta ráða,- neyti Carnots), til að skipa ráðaneyti. Þetta er 25. ráðaneyti þjóðveldisins og *) Þingmenn hvers fylkis (departement) valdir í einu lagi og hefur þannig hver flokkur sinn lista.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.