Þjóðólfur - 28.06.1889, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 28.06.1889, Blaðsíða 2
110 finningu og svo lireina ættjarðarást, að vjer sjeum fyllilega færir um, að stjórna oss sjálfir, að það verði oss til blessunar og framfara. Reykjavík, 28. júní 1889. Fundargjörð tir Suður-Múlasýslu hef- nr oss verið send til birtingar í blaðinu. Fundur var haldinn þar 23. f. m. á Eg- ilsstöðum á Völlum „samkvæmt áskorun Þingvallafundarmannanna í fyrra úr Suð- ur-Múlas., þar eð 2. þingmaður sýslunnar, sjera Lárus Halldórsson, hafði ekki kvatt til fundar sjálfur, þrátt fyrir . . . áskor- un um það". Fundarstjóri var sjera Páll Pálsson í Þingmúla og skrifari sjera Þorsteinn Þórarinsson á Berufirði. — A fundinum var samþykkt í einu hljóði áskorun til alþingis um að framfylgja stjórnarskrárbreytingunni, að æðsti dóm- stóll landsins sje í landinu sjálfu og að dómsvaldið og umboðsvaldið sje algjör- lega að skilið. Fundurinn var með toll- um á aðfl. munaðarvöru, en vildi fá beina skatta afnumda, sem frekast er kostur á, vildi, að alþing ráði sem fyrst til lykta menntamáli landsins með lögum, stofnað verði sjerstakt amtsráð fyrir Austfirð- ingafjórðung, launamálið tekið fyrir til breytingar á næsta þingi og eptirlauna- lög úr lögum numin, prestateknamálinu verði ekki ráðið til lykta að svo komnu, spítali á Austurlandi stofnaður, að kosn- ingarlögunum verði breytt þannig, að kjósendum sje gjört hægra fyrir að sækja kjörfundi, Eyðaskólanum yrði veittur til- tölulegur styrkur við hina búnaðarskól- ana. Samþykkt var og að senda fund- argjörðina 2. þingmanni sýslunnar til flutnings á þingi, og jafnframt að senda hana beina leið til alþingis, „þar eð ekki væri trútt um, að hann mundi ekki í þetta sinn hafa sannfæringu tilaðfylgja stjórnarskrármálinu“. Þórsnessf'umlur Snæfellinga var hald- inn 19. júní. Var þar rætt um ýms mál og stóð fundurinn frá kl. 12—8 e. m. Stjórnarskrármálmu vildu menn halda fram í sömu stefnu og neðri deild 1887. Bankamálið var rætt; vildu menn fá hent- ugra fyrirkomulag með afborganir og vaxtagreiðslu og bankastjóra, sem ein- göngu gæfi sig við stjórn bankans. Fund- armenn vildu eindregið fa meiri friðun á œðarjugli og banna mönnum að hafa æðarfugl til afnota öðru vísi en til varps. Um tollmál urðu miklar umræður og voru allir á því að auka tekjur landssjóðs, svo að eigi yrði tekjuhalli og þótti tiltæki- legast að auka toll á tóbaki og vínföng- um og leggja toll á kaffi, sykur, gos- drykki og innflutt smjör. Til að ljetta fyrir kaupmönnum með borgun á tollin- um, vildu menn fá fram frumvarp neðri deildar 1887 um tollgreiðslu. I mennta- málum var samþykkt að fylgja fram lagaskolamálinu, fá sjómannaskóla og auk- inn styrk til sveitakennara, er væri mið- aður við námstima og nemendafjölda. Breytingar á tekjum presta og kirkna vildu menn ekki hafa að svo stöddu. Bænarskrá úr Staðarsveit um eptirgjöf á hallærisláni vildu menn eigi láta bera upp á alþingi; menn vildu fá löggilta Stapahöfn, aukalækni í Ólafsvík og strand- ferðir þangað og styrk til gufubátsferða. Þiiiginálufundur í Hafnarfirði var haldinn 22. þ. m.; mættu þar 37 kjós- endur, auk þingmannanna sjera Þórar- ins Böðvarssonar og Jóns Þórarinsson- j ar og nokkrir utan kjördæmis. 1. Um tollmál urðu allmiklar umræður; var j flestum illa við kaffi- og sykurtoll, en vildu aptur á móti útflutningstoll af land- varningi. Tillaga um 5 a. kaffitoll felld; I 4. kaffitollur sömuleiðis felldur, en 3 a.(!) kaffitollur samþykktur, en þó skyldikafíi- bætir vera undanþeginn öllum tolli! 2 a. sykurtollur felldur. 50 aura tóbaks- j tollur og 1 kr. á hverjum 100 vindlum I samþykktur. Þessir útflutningstollar voru samþykktir: 2 aura á ull, 2 aura á tólg, 50 a. á æðardún (en 2 kr. tollur á dún felldur), 75 a. á hverja sauðkind, 2 kr. á hvert hross; hækkun á laxtolli samþ.; hækkun á öllum vínfangatolli, hæfileg- ur tollur á óáfenga drykki og hæfilegt farmgjald af skipum samþykkt. 5 kr. útflutningsgjald á hvern vosturfara fellt. 2 kr. skattur á hvern hund samþ. Tolli á óekta smjöri mótmælti fundurinn harð- lega. 2. í alþýðumenntamálinu aðhylltist meiri hlutinn frumvarpið frá Kennara- fjelaginu. 3. Um stjórnarskrárbreyting- una urðu nokkrar umræður; var þeim ; Gruðmundi í Elliðakoti og Birni í Reykja- koti mikið áhugamál, að þingið fram- ; fylgdi henni af alefli og kom fram hjá þeim megn óánægja yfir framkomu þeirra ! feðga, sjera Þórarins og Jóns, í því máli á síðasta þingi; tók sjera Þórarinn það óstinnt upp og bar fjrir sig Hafnarfjarð- arfundinn á undan þingi 1887, var og j enn á móti að halda málinu áfram á næsta þingi og gleymdi ekki að minn- ast á aukaþingskostnaðinn; virtist það j falla í frjósaman akur hjá ýmsum fund- armönnum og við atkvæðagreiðsluna var meiri hlutinn á móti, að þingið hjeldi málinu áfram. 4. Samgöngur landsins vildi fundur- inn styðji eptir mætti, en að því er snertir gufubátsmálið, voru menn yfir höfuð mjög vondaufir um, að það fyrir- tæki mundi borga sig, vegna þess, að gufubáturinn fengi ekki nógan flutning; í því máli samþykkti þó fundurinn þá yfirlýsing, „að æskilegt sje, að kosin verði nefnd á þinginu, þegar i þingbyrjun, er rannsaki flutningsþörfina á suður- og vesturströnd landsins og að tillögur nefnd- arinnar hafi nokkur áhrif á framlag lands- sjóðs til gufuskips á Faxaflóa“. 5. Þingmennirnir skýrðu frá, að þeir ætluðu að bera upp á þinginu frumvarp um breyting á fátækrareglugjörðinni, þar sem meðal annars væri farið fram á, að hver maður ætti þar sveit, er hann er fæddur, og í umræðunum kom fram, að nauðsynlegt væri, að fátækrastjórar (oddvitar?) fengju nokkur laun. 6. Hjá fundarmönnum kom fram megn óánægja með bankann og sumir vildu afnema hann sem allra fyrst(!); samþ. var áskorun til þingsins um, að sjá svo um, að bankinn kæmist sem fyrst í við- skiptasamband við erlenda banka, að leiga af innlögðum peningum verði hækk- uð upp í 4°/0 og lán veitt til 20 ára, svo og að bankinn taki eigi rentur fyrir fram. 7. Brúartoll vildi fundurinn fá á brúna á Ölvesá. 8. Þurrabúðarmannalögunum breytt. 9. Þingmennirnir kváðust bera upp á þingi frumv. um umsjón og fjár- hald kirkna. 10. Fundurinn taldi óheppi- legt, að ræða að sinni búsetu fastakaup- manna. 11. Yildi fá Yogavík löggilta sem verslunarstað og 12., að veittar væru 100 kr. til hvers vörðuvita i Gullbringu- sýslu. 13., að úr gildi væru numdar 17. og 18. gr. í II. kafla tilsk. 13.júní 1787 um skyldur kaupmanna til að halda við- skiptabækur við verslunarmenn sína, og 14., að þingið skoraði enn að nýju á stjórnina, að koma á nýjum samningum við Spán um afnám tolls á ísl. saltfiski. Þingmcnn ísfirðinga hjeldu þingmála- fund á ísafirði 17. júní og daginn eptir á Mýrum í Dýrafirði. Dar voru menn með- al annars eindregið moð kaffi- og sykur- tolli og hækkun á tóbaks- og enda vín- fangatolli, afnámi vistarskyldunnar og rýmkvun á kosningarrjetti til alþingis. I Þingniannskosningin í Novður-Múla-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.