Þjóðólfur - 19.07.1889, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 19.07.1889, Blaðsíða 3
131 gjald eptir öllum efnaliag sínum, nema þeir á gjaldárinu liaíi líka haft fastaðset- ur annarstaðar; sje svo, má ekki leggja hærra gjald á þá, en samsvari þeim tíma, er þeir hafa haft fast aðsetur í hreppn- um. Fast aðsetur í hreppnum skemmri tíma en 4 mánuði kemur ekki til greina. Sömuleiðis má leggja gjald á ábúð ájörðu eða jarðarhluta og á fastar verslanir og aðrar arðsamar stofnanir og fyrirtæki í hreppnum, er sjeu rekin að minnsta kosti 4 mánuði af gjaldárinu, þótt eigendur þeirra hafi þar eigi fast aðsetur. Á þessa stofna skal leggja gjald, er samsvari útsvarinu eptir efnum og ástandi, eptir því er hæfa þykir eptir árlegri veltu og arði, án þess að tillit sje haft til annara tekja eða eigna þess, sem í hlut á. Lög þessi ná eigi til ákvæða 2. gr. í lögum 19. júní 1888 um bátfiski á fjörð- um. —o>©«e«5---- Reykjavík, 19. júlí 1889. Magnetie, gufuskip Slimons, kom hingað að morgni 17. þ. m. frá Skot- landi og með því útilutningsstjóri Sig- fús Eymundsson og kaupmennirnir Geir Zoéga, Jón Ó. Y. Jónsson og nokkrir útlendir ferðamenn. Octavius Hansen, hæstarjettarmálfærslu- maður í Kaupmannahöfn, kom hingað með gufuskipinu Magnetic. Hann hefur mikið orð á sjer í Danmörka, sem málfærslumað- ur og ræðumaður ; hann er hinn frjáls- lyndasti maður; hefur kveðið mikið að | honum í baráttu vinstri manna gegn yfir- gangi Estrups ráðaneytis og hefur flutt fyrir þá öll hin vandasömustu mál, sem risið hafa af baráttu þeirri. Fyrir ályktun síðasta alþingis um máls- höfðun gegn Nellemann ráðgjafa út af Fensmarksmálinu sneri Jón sál. Sigurðs- son á Gautiöndum sjer til Octavius Han- sens, sem liefur vandlega íliugað það mál. Hann liefur tekist ferð þessa hingað á hend- ur, til þess persónulega að tala við þingmenn um málið, en ætlar jafnframt að ferðast norður um land, annaðhvort til Sauðár- króks eða Akureyrar. Fer hann þaðan með Magnetic til útlanda. Sjera Jón Bjarnason í Winnipeg í Ameríku, sem hafði fengið áskorun frá nokkrum mönnum hjer, um að sækja um Reykjavíkurbrauðið, hefur nú svarað þeim, að hann geti ekki orðið við þeirri áskorun, en kvað væntanlegur ásamt konu sinni hingað í sumar, til að útvega prestefni til Ameríku. Hafsteinn Pjetursson, prestaskólakandí- dat, hjelt fyrirlestur hjer í bænum kveld- ið 13. þ. m. um skáldið Oehlensláger. Fyrirlesturinn var fróðlegur og fluttur með mikilli málsnilld. Bæði á undan og eptir fyrirlestrinum ljek Björn Kristjáns- son á harmonium og Nickolin söng solo. Skemmtun þessi, sem fór vel fram, var sótt af fjölda manns. íslenskt náttúruíræðisfjelag. — Á fundi þeim, sem boðaður var með aug- lýsingu í síðasta blaði, var ijelag þetta stofnað, lög samþykkt fyrir það og í stjórn kosnir: Stefán Stefánsson kennari á Möðruvöllum, Ben. Gröndal, dr. J. Jónassen, Þorv. Thoroddsen og Björn Jensson. Tilgangur fjelagsins er að koma á fót íslensku náttúrugripasafni, sem sje eign landsins. Fyrir nokkrum árum var líkt Ijelag stofnað meðal landa í Höfn og rennur það nú saman við fjelag þetta og lætur það fá nokkra náttúrugripi til að byrja með. Á fundinum gengu milli 40 og 50 manna i fjelagið og hefur það mætt bestu undirtektum, enda verðskuldar fyrirtækið það fyllilega. Garðyrkjufjclagið hjelt ársfund 15. þ. m. Eptir skýrslum, sem formaðurinn, landlæknir Schierbeck, gaf á fundinum, 120 andi, „og nú hef jeg ekki aðra en yðnr við að styðjast í þessum heimi'1. „Haflð þjer ekki aðra en mig!“ sagði búðarmaður- inn, „það eru ekki góðar ástæður . . . en ef jeg get gert eitthvað fyrir yður, skal jeg gera allt, sem jeg get, og meira er ekki liægt; . . . viljið þjer ekki fá nokkr- ar sveskjur ?“ bætti hann við og lagði af gömlum vana nokkrar sveskjur á borðið. „Jeg lield nú annars, að það gangi ekki svo illa, sem við hugsuðum“, sagði hún og setti á búðarborðið pjáturkistil með lás fyrir og lykli í skránni; „þessi kassi hefur allt af staðið undir rúminu lians föður míns sál.“, sagði hún enn fremur, „áður en hann dó, bað liann mig að taka kistilinn fram undan rúminu, og sagði, að í hon- um væri meira, en þyrfti til útfararinnar. Jeg hef skoðað í hann og hef sjeð marga böggla með banka- seðlum og lítinn pappírsmiða, þar sem stendur á 25000“. „25000!“ sagði búðarmaðarinn. „Viljið þjer ekki sjálfur telja það, sem er í kistl- inum ?“ Búðarmaðurinn opnaði kistilinn, fann miðann, sem skrifað var á 25000, taldi síðan 25 böggla og — það stóð heirna — i hverjum böggli voru 1000 kr. í seðlum. „Og faðir yðar lætur eptir sig þessi ógrynni fjár, 117 hef drepið; en engan hamarhákarl hef jeg þó drepið fyr. Hann vildi ekkert við mig eiga, og ef liann hefði komist fram hjá mjer, hefði Vilhjálmur beðið bana“, og liann leit næsta glaðlega til vinar síns, „en það mátti ekki verða. Þess vegna greip jeg um hausinn á hákarl- inum vinstra megin, renndi mjer niður á hrygginn á honum, og þrýsti inn vinstra auganu með þumalfingrin- um ; inn í hægra augað rak jeg hnífinn upp að skapti“. Honum líkaði þetta miður“, sagði Tómas brosandi, „og hann brölti í ósköpum til að kasta mjer af baki. Mjer hefði nú líka verið óhætt að lofa honum að fara, af þvi að hann var orðinn blindur, en jeg vildi vera alveg viss um hann og veitti honum því 10—12 áverka með hnífnum í síðurnar11. Vjer lilutum stórlega að undrast hugrekki svert- ingjans. En þó vakti hvötin til hreystiverksins miklu meiri virðing hjá oss fyrir þessu náttúrubarni. Vinátta sprottin af þakklætistilfinningu knúði liann tafarlaust til, að leggja út í orustu, einstæða af því, hve hræði- leg hún var, og í lienni sigraði hann. (Norðstj. 1889, ur. 20).

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.