Þjóðólfur - 19.07.1889, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 19.07.1889, Blaðsíða 4
132 er fjelagið farið að gera mikið gagn; garðyrkja hefur siðari ár lagast og út- breiðst talsvert, margir t. d. nú farnir að nota vermireiti. Stjórn fjelagsins var endurkosin. Drukknan. 11. þ. m. drukknaði skip- stjóri Þormóður Gíslason í Hafnarfirði af fiskiskipi, sem lá þar á höfninni. Hann hafði verið einn úti á skipinu, er þetta slys vildi til, og vita menn því ekki, hvern- ig það hefur atvikast. Gufuskipið Clutlia kom hingað i fyrri nótt frá Newcastle á Englandi með kol; fer norður á Akureyri og tekur þar hesta; á leiðinni norður kemur það ef vill til við á ísafirði. Frá útlöndum frjettist með gufuskip- inu Magnetic, að Sverdrups ráðaneyti í Noregi sje vikið frá völdum, en í þess stað sje myndað ráðaneyti úr flokki hægri manna, og sje Stang forseti þess. Strandferðaskipið Thyra kom hingað í gærkveldi og með því sýslamaður Sig- urður Jónsson í Stykkishólmi og Fischer sýslumaður Barðstrendinga, læknir Ólafur Sigvaldason í Bæ, dbrm. Hafliði Eyjólfs- son í Svefneyjum, sjera Matthías Jochums- son frá Akureyri og ýmsir fleiri. Tfðarfar er ágætt að frjetta alstaðar af landinu, og hagstætt fyrir heyskap, sem alstaðar hefur byrjað með langfyrsta móti, víða 10 vikur af sumri. Verslunarfrjettir frá Kliöfn 28. f. m. Sakir mikils fiskafla í Finnmörk i Noregi eru útlit fyrir fiskverð á Spáni fremur dauft, og hald manna, að verðið á sunnl. saltfiski muni verða eins og fyrst í fyrra 42— 44 ríkismörk. Smáfiskur, sem komið hefur með Thyru, hefur selst í Liverpool 15—16 pd. sterling smálestin. Af þeim saltflski, sem hingað hefur komið, hefur stór vestfirskur, hnakkakýldur flskur selst 48—52 og 53 kr. skppd., óhnakkakýldur stór jaktafiskur 48—50 kr. og stór al- mennur verslunarfiskur 43—47 kr., smár 36—37 kr., ýsa 36 kr.; sunnlenskur, norð- lenskur og austfirskur, stór 43—45 kr., smár 36 kr., ýsa 35 kr. — Lysi, Ijöst, gufubrætt hákarlslýsi 311/.;—32 kr., pott- brætt 30—311/* kr., döklct 20—25^/jj kr., óselt um 300 tunnur. Haustull 56 a. pd. Sundmagar: óselt um 2000 pd., sem ekki ganga út á 40 a. pd. Enn fremur óselt um 400 pd. œðardúns, 1000 tunnur af kindakjöti og 1200 tunnur af síld, sem ekki ganga út jafnvel með niðursettu verði nú sem stendur. Auglýsingar. 1 samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning, 1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar Borgun út i hönd. Bókbandsverkstofa, Thorvardson & Jen- sen, Bankastræti 12 (kúsi Jóns Ólafss. alþm.). 280 ann, sem kefur fengið að láni kjá mjer fransk- danska ORÐABÓK, kið jeg að skila mjer kenni sem fyrst. Ártúni, 12. júlí 1889. Sigurður Jónsson. 281 Tlu króna seðill tapaðist kjer á götunum i gær. Pinnandi er keðinn að skila konum á skrif- stofu Þjóðólfs gegn riflegum fundarlaunum. 282 Leiðarvisir til iifsábyrgðar fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr. med. Jónassen, sem einnig geíur þeim, sem vilja tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýsingar. 283 r BTTIT' A ÞTH (kafflblendingur), sem eingöngu má D U JViir r I n°ta í stað kafflbauna, fæst eins og vant er fyrir 56 aura pundid í verslun H. Th. A. Thomsens í Reykjavík. 284 Fernisolíu-flaska hefur verið skilin eptir kjá O. S. Endresen. 285 Eigandi og ábyrgðarmaður: JÞorleifur Jónsson, cand. phU. Skrifstofa: i Bankastræti nr. 3. Prentsm. Sigf. Eymundssonar. 118 Vel borgaðar sveskjur. Eptir August Blanche. Fyrir hjer um bil 10 árum dó maður nokkur í Stokkhólmi, sem hafði verið skipstjóri; hann var fædd- ur í Gautaborg, en síðustu 10 ár æfi sinnar bjó hann í Stokkhólmi. Þegar hann fluttist þangað, hafði hann með sjer dóttur sína, sem var þá 15 ára gömul. Skip- stjórinn hafði varla komið út fyrir húsdyr þessi 10 ár, sem hann bjó í Stokkhólmi, sumpart af því, að hann var heilsulítill, en sumpart af því, að hann átti engin almennileg föt til að vera í, eptir þvi sem nágrannar hans sögðu. Dóttir hans yfirgaf hann varla nokkurn tíma. Enginn í nágrenninu mundi eptir því, að hún hefði sjest öðruvísi búin en í stórgerðum, grænstykkj- óttum kjól úr viðarull og með stóran silkiklút um háls- inn; var klúturinn orðinn upplitaður af elli og stöðugri hrúkun. Hún var mjög fölleit og mögur, en hafði blá augu undurfalleg og mikið hár svart, en menn tóku 119 ekki mikið eptir því, þar sem hún gekk svo fátæklega til fara, og af því að hún var heldur feimin og hjákát- leg í viðmóti. Það leit svo út, sem hún sneiddi hjá öðrum mönnum, líklegast af því að menn ljetu rigna yfir hana háði og spotti, þá sjaldan hún kom til ann- ara. Hinn eini maður, sem ljet sjer nokkuð annt um hana, var búðarmaður í sölubúð á móti húsinu, sem hún og faðir hennar bjuggu í. Sama árið, sem hún kom með föður sínum til Stokkhólms, var honum komið fyr- ir sem dreng, þar sem hann var nú, og hafði verið í sölubúðinni nál. 10 ár ; þau voru bæði nærri jafngömul. Karl W. hjet búðarmaðurinn; honum tók sárt til aumingja-stúlkunnar; liann sagði æfinlega nokkur vin- samleg orð við hana, þegar liún kom í búðina að kaupa eitthvað, og þegar liann sá sjer færi, laumaði liann til bennar nokkrum sveskjum. Það urðu ekki svo fáar sveskjur á 10 árum, en það var ef til vill eina ánægj- an, sem stúlku-auminginn hafði. Einn morgun kom hún með tárin í augunum inn í búðina. „Það hryggir mig mikið yðar vegna“, sagði búðar- maðurinn, „að jeg frjetti í þessu augnabliki, að faðir yðar dó snemma í morgun“. „Faðir minn dó klukkan 7“, sagði stúlkan kjökr-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.