Þjóðólfur - 27.08.1889, Síða 1
Kemnr út á föstudags-
morgua. VerÖ árg. (60
arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.).
Boiviet fyrir 15. júlí.
ÞJÓÐÓLFUR
Dppsögn skrifleg, bund-
in^yiö áramót, ógild nema
komi til útgefanda fyr-
ir 1. október.
XLI. árg.
Reykjayík þriðjudaginn 27. ágúst 1889.
Nr. 40.
Útlendar frjettir
Hnfn, 13. ág. 1889.
Vilhjálmur TÍðfðrli. Þýskalandskeis-
ari var í Noregsferð sinni, þangað til um
síðustu mánaðamót. Hann fór sjer hægt
á gufuskipi sínu „Hohenzollern" fram
með ströndinni, dró þorsk, reri upp á
víkur Og voga, klifraði upp fjallshlíðar,
gaf 1000 kr. til dómkirkjunnar í Þránd-
heimi og var loks svo óheppinn, þegar
hann kom til Nordkap, að hann komst
þar ekki á land fyrir sjógangi. Þegar
hann kom heim, sendi hann Óskar kon-
ungi brjef og lofaði mjög náttúrufegurð
Noregs. Norðmenn urðu þessu guðs-
fegnir, því þeir vita, að eptir þessi um-
mæli flykkjast Þjóðverjar til Noregs. —
Keisari stóð ekkert við á Þýskalandi, en
lagði af stað til Englandsmeð brynskipa-
flota og hitti Yiktoríu drottningu á eynni
"Wight. Lá þar fyrir mikill floti, hinn
friðasti, sem nokkru sinni hefur á sjó
komið, um 118 stórskip. Keisari lofaði
flotann í ræðu sinni, og prinsinn afWa-
les lofaði aptur Þýskalandsher. Síðan
var hersýning á landi. Flotaforingjar
Englendinga og Þjóðverja hjeldu hvorir
öðrum veislur, en þrátt fyrir allt þetta
bróðerni hafa Englendingar þó ekki geng-
ið í neitt samband við Þjóðverja. Vil-
hjálmur kvaddi síðan ömmu sína og gerði
hana að foringja yfir prússneskri her-
sveit, en hun gaf honum admirals nafn-
bót. Keisari flýtti sjer nú til Berlínar
að taka á móti Austurríkiskeisara, sem
kom þangað í gær. Þaðan ætlar hann
til Bayreuth að heyra tónleika Wagners
og síðan ætlar hann til Hannóver, Grrikk-
lands og víðar.
Meðan keisari er í þessu slangri, hefur
Bismarck setið upp í sveit í hallargarði
sínum Varzin og stýrt þaðan deilunni
við Sviss. Brjefaskriptum milli hans og
Svissastjórnar heldur áfram, og hann
hefur sagt upp samningum þeim viðvíkj-
andi þýskum mönnum búsettum í Sviss,
sem verið hafa milli landanna. Svissar
vilja ekki þoka, en þýsk blöð hóta, að
skipta Sviss eptir mállýskum milli Þýska-
lands, ítaliu og Frakklands. Þeim verð-
ur samt varla kápan úr því klæðinu.
Á Þýskalandi hefur komið út bók um
nýlendur Þjóðverja, og er þar farið fram
á, að þeir skuli hafa sjerstaka nýlendu-
stjórn og sjerstakt nýlendulið. Bismarck
hefur ritað höfundinum, að hann væri
honum samdóma. Þjóðverjar eruaðberj-
ast í Austur-Afríku, en þar sjer ekki
högg á vatni, þó þeir vinni allt af sig-
ur, og þeir haldast að eins við á blá-
ströndinni.
Boulanger í öngum sínum. í lok
júlímánaðar voru kosningar til hrepps-
nefnda um allt Frakkland. Boulanger
bauð sig fram á eitthvað 100 stöðum,
en var ekki valinn nema á 12. Þótti
hann hafa farið sneypuför ogfjandmenn
hans ætluðu nú að sálga honum að fullu
og öllu. Ákæran gegn honum var birt
í blöðunum. Hún var á þá leið, að hann
hefði stofnað samsæri gegn þjóðveldinu,
og var raktur lífsferill hans síðan 1882,
til að sýna það; í öðru lagi hefði hann
dregið undir sig fje ríkisins, meðan hann
var ráðgjafi. Eitt af blöðum Boulangers
komst yfir nokkuð af vitnaleiðslu þeirri,
sem ákæran var byggð á, og var hún
mögur. Ritstjórinn var settur í fang-
elsi. Boulanger og fjelögum hans, Dil-
lon og Rochefort, var nú stefnt og stefn-
an lesin upp fyrir húsdyrum þeirra í
París og negld á dyrastafinn, en þeir
eru í Lundúnum, og sendi Boulanger
þaðan opið brjef, sem var 7 dálkar prent-
aðir í frönskum blöðum, „til hinnar
frönsku þjóðar, míns eina dómara“. I
því hrekur hann kæruna. Káðherra-
} deildin skipaði sig sem dómnefnd 8. a-
| gúst og var þá byrjað að lesa upp kær-
una. Þar er enginn málsverjandi af
hendi Boulangers og hafa því ráðherrar
af hægrimanna flokki gengið úr skapt-
inu. Búist við, að dómur verði upp kveð-
inn um 20. ágiist.
Lík af tveim ágætismönnum Frakka
á stjórnarbyltingartímanum, sem voru
grafnir á Þýskalandi, Oarnot og Latour
D’Auvergne, hafa verið flutt heim og á-
samt Marceau sett í Pantheons-musteri í
Paris; Hoche átti að setja þar líka, en
ættingjar hans vildu það ekki.
Sýningin í Paris stendur með mesta
| blóma, og eru hátíðahöld á hverjum degi
þar, einkum síðan Persakonungur kom til
Parísar. Ekki hefur hann þorað upp á
Eiffelturninn, en verið að skeggræða við
konung frá Afríku, sem hann hitti þar í
París. Persakonungur skrifar upp á hverj-
um degi, livað fyrir liann ber, og hefur
nú lofað frönsku blaði, að senda því dag-
bók sína til prentunar. Georg Grikkja-
konungur er sá eini Evrópu stjórnandi,
sem hefur komið á sýninguna. Til að
sýna, hvað blöðin leyfa sjer í París, skal
jeg geta þess, að daginn áður en Const-
ans innanríkisráðgjafi heimsótti Georg, þá
aðvaraði Rochefort Grikkjakonun^ í blaði
sínu, að láta ekki Constans stela neinu,
úri, peningum o. s. frv. Blöð Boulangers
liafa nefnilega komist að því, að hann hefur
þegið mútur og þvíumlíkt í Tonkin.
Ný háskólabygging hefur verið vígð í
í París og voru þar viðstaddir stúdentar
frá öllum Evrópulöndum, nema Þýska-
landi.
Rússneskur herforingi liefur riðið til Par-
ísar og hafði ekki tvo hesta til skiptanna;
hann var mánuð á leiðinni. Tveir menn
frá Vín fóru þangað gangandi með farang-
ur sinn á hjóibörum.
Eugland. Parnell hefur verið gerður
að heiðursborgara í Edinburgh. Hann er
hættur ailri vörn fyrir dómsnefndinni, því
honum þykir hún hlutdræg. Dómsnefnd-
in hefur frestað fundum til 24. október.
Tvö brúðkaup hafa staðið þar í landi,
Gladstone hefur lialdið gullbrúðkaup sitt,
og Louise, elsta dóttir prinsins af Wales,
hefur gipst jarlinum af Fife, skoskum að-
alsmanni.
Nú er komið nýtt hljóð í strokkinn með
stríð. Salisbury sagði í ræðu, að því fylgdu
j slíkar skelfingar og hörmungar, að eng-
inn stjórnandi þyrði að taka þá ábyrgð á
sig, að steypa sinni þióð í það. Hið nýja
í púður, sem er reyk- og smell-laust, veld-
ur því líka, að óp hinna særðu heyrast
! og allar hörmungarnar sjást, svo stríðið
verður hryllilegt.
Á eyimi Krít er uppreisn, sem er að
aukast; Grikkir liafa sent stórveldunum
brjef á þá leið, að verið geti, að hin gríska
þjóð neyði stjórnina til að hjálpa eyjar-
skeggjum. Rússar eru samhentir þeim, en