Þjóðólfur - 11.10.1889, Page 1

Þjóðólfur - 11.10.1889, Page 1
Kemur út á föstudags- morgna Verö árg. (60 arka) 4 kr. (erlendis 5 kr.). Borgist fyri) lö. júli. ÞJÓÐÓLFUR. Dppsögn skrifleg, bund- iniviö áramöt, ógild nema komi til útgefanda fyr- ir 1. október. XLI. árg, lteykjaYÍk fíistudaginn 11. okt. 1889. Nr. 48. Stjórnarskrármál íslands. i. Stjórnarskrármálið á þingi og eptir þing. Þegar stjórnarskráin var síðast rædd í neðri deild í sumar, var hún samþykkt með öllum atkvæðum þjóðkjörinna þing- manna, er greiddu atkvæði með henni a þingi 1886. Höfðu þingmenn þannig aptur myndað flokk í þessu máli; allar miskliðir frá fyrra þingi voru nú gleymdar og þing- menn einhuga. Þóttu þetta næsta heppi- leg úrslit, eptir því sem ahorfðist. En mörgum sagði þungt hugur um, hvernig fara mundi í efri deild. Samt sem áður leið eigi á löngu, áður menn urðu þess vísari, að sumir hinna konungkjörnu al- þingismanna mundu vilja veita málinu fylgi sitt; voru það einkum tveir þing- menn, er setu fengu á þingi 1887. Þegar þetta frjettist niður í neðri d., þótti mörgum þetta mikil tíðindi og goð, því að það hefur hingað til verið mein mikið, hversu margir hinna konungkjörnu þingmanna hafa verið andvígir í málinu. Nú þótti mönnum, sem ekki mundi á löngu líða, þangað til stjórnarharáttan mundi fá farsællegan enda. En nú var mest um vert, að sem flestir gætu orðið sammála um þær breytingar, sem g.íöra skyldi á frumvarpinu. Eins og kunnugt er, hefur frumvarpið sem mest verið sniðið eptir hinum dönsku grundvallarlögum, en hjer um bil ekk- ert tillit verið tekið til enskra grund- vallarlaga. Jón A. Hjaltalín, sem verið hefur lengi í Englandi, vildi helst láta breyta nokkru í líka átt og er hjá Eng- lendingum, og má telja þetta eitthvert hið happalegasta, sem fyrir gat komið, því að Englendingar standa öllum öðr- um þjóðum til fyrirmyndar í sjálfstjórn og þingræði. Jón A. Hjaltalín var í nefndinni í efri deild. Sömuleiðis var í nefndinni Jón Ólafsson ; hefur hann bæði verið í Ameríku og þekkir einnig stjórn- arháttu Bretaveldis, og því var engin furða, þótt hann gæti fellt sig við breyt- ingar þær, er sniðnar voru eptir lögum Breta. Aptur á móti mátti búast við, að ! sumir þingmenn, er eingöngu þekkja [ danska stjórnháttu, mundu verða hik- andi, en hinu gat enginn búist við, að nokkrir myndu þeir verða, er eigi vildu sinna tillögum efri deildar manna í neinu eða vilja einu sinni athuga þær grand- gæfilega, áður en þeir færu að hamast móti þeim; en sist mátti búast við, að þeir færu að villa sjónir fyrir þeim þing- mönnum, er einna minnsta þekkingu höfðu á málinu; því að þótt þeim hefði ekkert þótt fyrir; að slá hendinni móti liðveislu hinna konungkjörnu þingmanna, þá var það þó að minnsta kosti Ijettúð- ugt, að leggja þegar til orustu móti þjóð- kjörnum 'þingmönnum, sem voru að minnsta kosti engu ófróðari eða óskyn- samari, en þeir sjálfir. Þetta var næsta ólíklegt, en þetta átti þó svo að verða. Þegar er breytingar efri deildar manna spurðust til neðri deildarinnar, fóru þeir Sigurður Stefans- son og Benedikt Sveinsson að [ hamast; fyrst fengu þeir Sighvat Árnason í lið með sjer og svo þá Þorvald, sjera Svein og Ólaf á Höfðabrekku; sögðu þeir þeim, að með breytingunum væri Island gert að nýlendu, landsrjettindi Islands ofur- seld, og þeir, sem styddu þær, sagði Bene- dikt Sveinsson að væru pólitískir svik- arar. Með þessu orðaglamri gátu þeir haft þessa menn með sjer, og var þetta þeim mun verra sem Skaptfellingar voru um þessar mundir opt ekki algáðir. Það er ekki skemmtilegt á þetta að minnast, en það verður að segja hverja sögu, eins og hún gengur, og úr þvi, að „Þjóðviljinn“ ætlar að fara að taka í sama strenginn og þeir, verður að segja satt frá öllu; þjóðin verður að fá að vita allan gang málsins, þótt ófagur sje. ____ Hver verður að koma til dyranna, eins og hann er klæddur. Síðan voru gerð samtökin við sjera Þórarinn og Grím Thomsen, og eptir það var gjört allt til að eyðileggja mál- ið. Sighvatur Árnason greiddi þannig meðal annars atkvæði móti breytingar- tillögu Jón Ólafssonar í efri deild. um að alls framkvæmdarvaldsins skyldi neytt með ráði og samþykki hinnar innlendu stjórnar, og fyrir því fjell hún. Þegar þannig var komið, vildu neðri deildarmenn fyrir hvern mun, að frum- varpið næði fram að ganga í efri deild, til þess að hægt væri að ræða um málið í neðri deild, því að á þann einn hátt var hægt, að slá orðaglamrið í hel, en frumvarpið kom eigi til neðri deildarinn- ar aptur fyrri en daginn, áður en síðasti fundur var þar. Um þetta leyti var afarmikið að gjöra, en samt var nefndarfundur þegar hald- inn. Þar var þá Sigurður Stefánsson, en hann annaðhvort gat eða vildi ekki ræða annað um breytingarnar en það, að hann sæi enga ástæðu til þess, að taka breytingar efri deildar til greina. Nefndarmenn allir voru samhuga á því, að samþykkja eigi frumvarpið alveg ó- breytt, og því gat frumvarpið eigi geng- ið fram; hins vegar þótti þeim leitt, að þingið skildi svo við málið, að það ljeti stjórnina ekkert frá sjer heyra; datt þeim því í hug, að koma með þingsályktun um málið, og var þetta borið mfdir sjera Sigurð Stefánsson; tók hann þá þessu liklega og kvaðst ekki sjá neitt sjerstak- legt móti því, en vildi þó ekki vera með. Hafði hann svo ekkert frekara að segja og fór af fundi, en hinir nefndarmenn bjuggu þá til tillöguna, og síðan var farið að semja nefndarálitið; en Sigurð- ur aptur á móti samdi ekkert álit, held- ur kom að eins með breytingartillögur, án þess að láta nokkra skoðun í ljós um breytingar efri deildarinnar a annan hatt. Næsta dag notuðu þeir Sigurður og Grim- ur tækifærið, þegar 3 þingmenn voru fjarverandi, til að ónyta fundinn í neðri deild með gjörræðisfullu lagabroti; var þá tillagan ónýtt, en þegar svo var kom- ið og hinir 3 þingmenn, sem voru fjarver- andi, voru aptur komnir, þá vildu menn fá fund um stjórnarskrármálið sjálft, en þessu neitaði Ben. Sveinsson með öllu. Þeir Sigurður og Benedikt fengu þann- ig spornað við því með lagabroti og gjörræði, að rætt yrði um málið í neðri deild; en það liggur í augum uppi, hversu þetta var mikilsvert. Bæði hefði þá verið, eins og áður er um getið, hægt

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.