Þjóðólfur


Þjóðólfur - 29.11.1889, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 29.11.1889, Qupperneq 2
222 assessorsembætti, og kom sú veiting hing- að til lands með póstskipinu, sem kom hingað 26. ág.; daginn eptir komu Stjórn- artíðindin út, og í þeim var landritaraem- bættinu „slegið upp“ og áttu bónarbrjefin að vera komin til ráðgjafans 15. okt. 1889. Um landritaraemhættið geta einungis sótt þeir, sem hafa leyst lögfræðispróf afhendi og það verða þá einkum sýslumennirnir. Til þess nú að fullnægja þeirri aðalreglu, sem á að eiga sjer stað við embættaveitingar, að gefa öllum kost á að sækja, sem til þess liafa hæfilegleika, þurfti fresturinn að vera svo langur, að þeir ættu þess kost, og því einir 3—4 mánuðir, enda virðist engin nauðsyn vera til þess að liraða veit- ingunni (Jón Jensson var yfir ár settur, áður en hann fjekk veitingu fyrir land- ritaraembættinu), því eins og nú stóð á, urðu þeir, sem vildu sækja, að senda bón- arbrjef sín með Lauru, sem fór 7. sept., því Tliyra, sem átti að fara frá Reykja- vík 2. okt., átti ekki að koma til Khafn- ar fyr en 25. Með öðrum orðum, sýslu- menn út um landið, sem ef til vill hefðu viljað sækja, höfðu tímann frá 27. ág. til 7. sept. til þess að fá Stjórnartíðindin, hugsa sig um, hvort þeir vildu sækja, og senda bónarbrjefið til Reykjavíkur, því setjum svo, að einhver sýslumaður hefði fengið Stjórnartíðindin t. d. 15. sept. og hefði þá beina ferð til Khafnar, þá dugar honum það ekki neitt, því bónarbrjefum, sem koma beina leið til stjórnarinnar, án þess að hafa gengið gegn um landshöfð- ingjann og fengið hans meðmæli eða mót- mæli, er enginn gaumur gefinn. En hvaða menn geta þá sótt um þetta embætti á 10 dögum. Einungis þeir, sem búaíReykja- vík og allra næst henni. Þannig full- nægði veitingarvaldið í þetta sinn aðal- reglunni fyrir veitingunni, en svofelda aug- lýsing á lausu embætti er ekki mikið varið í ; það er eins og þeir hafi óttast eitthvað. En livað ? Sum embætti hafa staðiö óveitt svo árum skipti, þegar það þurfti að veita öðrum embættismanni aukagetu og assess- orsembættið var auglýst í Stjórnartíð. 1. maí og bónarbrjefin áttu að vera komin 6. júlí til ráðgjafans, og þetta var um há- sumar, þegar ferðir eru sem tíðastar og miklu lengri frestur, en nú undir vetur- inn, þegar ferðum fer að fækka. Með því að auglýsa embættin á þennan hátt, þannig, að hjer um bil engum gefst kost- ur á að sækja, er brotin aðalreglan, og þá er alveg eins gott að stinga þvi þegjandi að þeim, sem þó annars er fyrir fram á- kvarðaður til embættisins. Xx. Undirtektir manna í stjórnarskrár- niálinu. Þjóðólfur hefur nú fengið fregn- ir frá málsmetandi mönnum úr nálega öllum sýslum þessa lands, og eptir þeim að dæma, er almenningur fylgjandi nefnd- inni í neðri deild og meira hluta þing- manna i sumar, en þykir aptur á móti óheppileg framkoma þeirra Sigurðar Stef- ánssonar á þingi og Þjóðviljans utan þings. Sjera Oddur V. (xíslason er óþreyt- andi að ferðast meðal sjómanna og brýna fyrir þeim bjargráð á sjó og gefa leið- beiningar um hvað eina, sem stutt get- ur og eflt fiskveiðar. Nýlega hefur hann ferðast um allar verstöðir í Arnes- og Rangárvallasýslu, haldið fyrirlestra og stofnað 5 bjargráðanefnir i Rangárvalla- sýslu og 6 bjargráðanefndir í Árnessýslu. Hörinulegt slys. „Miðvikudaginn 13. þ. m. vildi það sorglega óhappaslys til, að yngismaður Jón Sigurðsson (eldri) frá Efstabæ í Skorradal, er ásamt fleirum var við rjúpnaveiðar á fjalli fjarri bæn- um, fjell fyrir skoti úr byssu þeirri, er hann var með, og var að skömmum tíma liðnum örendur. Þegar slysið vildi til var enginn með Jóni sál., en bræður hans tveir voru þar eigi alllangt frá, og sá hinn eldri, sem heitir Ásgeir, að Jón sál. gekk greifct ofan halla, en að hann fjell eða hvarf, og heyrði þá samstundis skot úr bissu hans. Þegar Ásgeir sá, að Jón sál. stóð eigi upp, hljóp hann þeg- ar til og sá þá hvers kyns var. Hlúði hann að Jóni sál., sem þá lé í öngviti, en hljóp síðan til bæjar. Móðurbróðir þeirra bræðra, er þar var líka staddur, sá hlaup Ásgeirs og flýtti sjer þangað, sem slysið var. Var hann síðan yfir Jóni sál., er skildi við eptir litla stund. Skotið hafði komið í bakið skammt fyr- ir ofan mjöðmina, en þó eigi gengið út að framan. Þykja mestar líkur til, að Jóni sál. hafi skrikað fótur og hann fallið aptur á bissuhlaupið, en bissan að lík- indum rekist í stein og skotið þá riðið af. Skotið hafði alls ekkert dreift sjer, og má af þvi ráða, að bissuopið hefur legið fast að líkamanum, þar sem skotið hljóp á. Jón sál. stóð í fremstu röð yngri efnis- manna hjer um slóðir, og er því mikill mannskaði að honum. Hann var maður vel að sjer gjör, ráðvandur, ötull og reglu- samur; hann var og maður hjálpsamur, enda hafði hann efnast vel með dugn- aði og forsjá. Hann var um þrítugt, er hann andaðist, og hafði eigi kvongast. Hans verður saknað af mörgum bæði fjær og nær“. (Úr brjefi úr Skoradal 16. þ. m.). Dáinn er nýlega Guðmundur Ólafsson jarðyrkjumaður á Fitjum i Skoradal, fyrr- um alþingismaður (1875—79), maður gáf- aður og vel að sjer. Maður rjeð sjer bana 1. þ. m. á ísa- firði, Kristján Pálsson, beykir; hann hafði skotið sig, „auðsjáanlega sett bissu- hlaupið upp í munninn og hleypt svo af“; „hann var hinn fjölhæfasti og ötul- asti maður til allra verka“. (Þjóðviljinn). Skipstrand. Skip frá Grams verslun, sem hafði farið úr Stykkishólmi til Piat- eyjar til að taka þar vörur, varð í ofsa- veðrinu 7. þ. m. að höggva niður mastr- ið, þar sem það lá við Fiatey. Þar var það eigi búið að taka neitt af vörum, en í því voru þó um 200 tunnur af kjöti o. fl. Skipið og vörurnar átti að selja við uppboð í gær. Eyjaíirði 5. nóv... „Tíðin má alltaf heita ágæt, lengstum verið auð jörð og nú að eins grátt í rót í Eyjafirði. — Afli fremur lítill. — Fje var í haust ó- vanalega vænt, enda seldist það á mörk- uðunum með afarháu verði. — Heilbrigði almenn góð“. Skagafjarðarsýsln 9. nóv... „Frjett- ir hjeðan litlar, nema þær, sem nú ber- ast að hvaðanæfa úr öllum hornum þessa lands, að tiðin er ágæt og heyföng manna með langmesta móti, svo að varla er hugsanlegt, að heyskortur verði hjer, þótt vetur verði allharður. Fjársalan hjer í haust var sótt af miklu kappi og mark- aðirnir líktust reglulegum uppboðsþing- um, enda voru fjárkaupmennirnir fleiri hjer en nokkru sinni áður (J. Coghill, C. Knudsen, S. Sæmundseu fyrir L. Zöllner í Newcastle og G. Thordahl og allir kaupmennirnir á Sauðárkróki). Fje mun hafa orðið hvað dýrast hjer í Skaga- firði, eptir því sem til hefur spurst, vet- gamalt á 14—16 kr., sauðir tvævetrir og eldri 18—20 kr., enda hefur fje hækk- að mjög hjer í verði manna á milli; þannig hafa t. d. lömb gengið hjer kaup- um og sölum á 6 kr. og þar yfir. Sum- ir hafa haldið, að íslendingar misbrúki fjársöluna og selji sjer og búum s’ínum í óhag. Jeg hef allt til þessa eigi ver- ið neitt hræddur um það, því að, hvað

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.