Þjóðólfur - 14.03.1890, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 14.03.1890, Blaðsíða 4
48 Spakmæli frá Ameríku. Þeim, senj }jú get- ur trúað fyrir leyndarmáli, geturðu trúað fyrir öll- um hlutum. — Þekkingin er lík peningum: því meir, sem maður á, því meira vill maður fá. — Ungi maður, lærðu að hlusta — en ekki gegn um skráargatið. — Tveir mestu auðmenn Ameríku eru fyrst og fremst sá, sem á mest af peningum, og þar næst sá, sein hefur minnstar þaríir, og hinn síðarnefndi er hamingjusamari. — Konan líkist bergmáli — hún vill jafnan hafa síðast orðið. — Vonin er hæna, sem verpir fleiri eggjum, en hún getur ungað út. — Tískan (,,móðurinn“) gerir suma að fábjánum, suma að syndurum og alla að þrælum. — Það er torvelt að elska þann mann, sem hef- ur enga ókosti. AUGLÝSINGAR 1 samfeldu máli meö smáletri kosta 2 a. (þakkaráv. 3 a.) bvert orð 15 stafa frekast: meö öðru letri eða setning, 1 kr. fyrir pumlung dftlks lengdar. Borgun út i hönd. Hjer hefur verið selt tvævett óskilatryppi, dökk- grátt, með marki: standfjöður fr. hægra.— Eigandi vitji andvirðisins til mín að frádregnum kostnaði. Syðravelli í Gaulverjabæjarhreppi, 1. febr. 1890. Guðm. Þorkélsson. 135 Fundur í stúdentafjelaginu laugardags- kvöldið kl. 8Y2. — Sigurður Vigfússon, fornfræð- ingur, heldur fyrirlestur um hinn vígða eld í hof- unum. 136 Tímarit um uppeldi og menntamál fæst fyrir 1 krúnu árgangurinn hjá Sig- urði Kristjánssyni bóksala í Reykjavík. 137 Ekknasjóöur Reykjavíkur. Þeir, sem gerast viljastyrkjendur Ekkna- sjóðs Reykjavíkur, eru beðnir að snúa sjer til Grunnars Gunnarssonar í Vesturgötu Nr. 46, til að innskrifa sig, en tillög sín til sjóðsins greiði þeir til Pjeturs G-íslasonar í Ánanaustum. 138 Hin alþekkta skósmíða- vinnustofa mín í Yeltusundi nr. 3 er opin frá kl. 6—7 á morgnana til kl. 9—10 á kveldin. Allt fljótt og vel af hendi leyst. Rafn Sigurðsson. 139 Maður, sem getur talað ensku, frakknesku og dönsku, óskar að fá atvinnu við verslun, kennslu eða belst skrifstofustörf. Eitstjóri vísar á manninn. 140 Arinbj. Sveinbjarnarson: Bókbandsverkstofa. 3_________2 LATJGAVEG 2._______ Skósmíöaverkstæöi og leöurverslun Björns Kristjánssonar 142 er í VESTUKGÖTU nr. 4. Norðanfari, 20., 21., 22., 23. og 24. ár- gangur og nr. 57 -58 úr 17. árgangi, ósk- ast til kaups. Ritstjórinn vísar á kaup- andann. 143 Samskotum til minnisvarða yfir Jón Sigurðsson á (tautlöndum veitir ritstjóri Þjóðólfs viðtöku, og tekur að sjer að koma þeim til forstöðumannanna. 144 Skrifstofa fyrir almenning. 10 Kirkjustræti 10 opin hvern rúmhelgan dag kl. 4—5 e. h. 145 Samkvæmt nákvæmri rannsókn eru engin skaðleg efni í Brama-lífs-elexír þeirra Mansfeld-Bullner & Lassens; í hon- um eru að eins þau efni, sem styrkja og fjörga. Hann er því mjög ágætt maga- styrkjandi meðal, sem skilyrðislaust má ráða hverjum manni til að nota. Berlín. J)r. Hess, lyfsölumaður í 1. flokki og eiðsvarinn efnafræðingur. Einkenni & vorum dna egta Brama-lífs-elexír eru firmamerki vor á glasinu og á merkiskildinum á miðanum sjest hlátt ljón, og gullhani og innsigli vort MB & L í grænu lakki er á tappanum. MansfeJd-Búllner & Lassen, sem einir búa til hinn verðlannaða Brama-llfs-elexlr. Kaupmannahöfn. Vinnustofa: Nerregade No. 6. 146 Eigandi og ábyrgðarmaður: ÞORLEIFUR JÓNSSON, cand. phil. Skrifstofa: 1 Bankastræti nr. 3. Prentsm. Sigf. Eymundssonar. 34 uðu handa mjer. Við leituðum lengi að dýrinu og fund- um ekki, og urðum loks svo búnir heim að hverfa, því að hungur kreppti mjög að oss. Síðar náði jeg þó bungari, og var jeg þá orðinn al- veg úrkuia vonar um það. Þetta dýr er á stærð við meðalhund; það er rauðgult á lit með svart höfuð og útlimi. Það hefur sperrt eyru og langau hala. Ein hin mesta hætta í Ástralíu, bæði fyrir hvíta menn og svertingja eru höggormarnir. Það er hægt að gjöra sjer í hugarlund, hve mikið er til af þeim, af því að á einum degi veiddi maður nokkur 240 afþeim, næsta dag 160 og þriðja daginn kring um 100. Þetta var á vætutímanum og höfðu höggormarnir leitað upp til bústaðar hans; hann lá hátt, svo þar var þurt. Ef menn eru fullvel útbúnir má lækna hvert höggormsbit. Eitrið verður að skera burt, haða sárið í ammoniak- vatni, og drekka ammoniak-vatn, ef nóg er til af því. Vanti það, má drekka brennivín í þess stað og svífur ekki á mann, þótt heil flaska sje drukkin af því; svo mikið er deyfingarafl eitursins; þegar menn fara að finna á sjer, að þeir hafl drukkið, þá er það vottur þess, að hati sje fyrir höndum. Þegar hvítir Ástralíu-húar eru bitnir í fingurinn af höggormi, eru þeir vanir að taka fingurinn af, en ekki er þó þörf á slíkri hrossalækning. Höggormunum má skipta í tvoflokka: eiturslöngur 35 og eiturlausar; miklu fleira er af eiturslöngunum en hin- um. Bit óeitruðu höggormanna ersártogför sjásteptir margar tennur, en hit eiturslanganna er ekki ætíð sárt, og för eru að eins eptir tvær tennur, eiturtennurnar. Höggormarnir ráðast sjaldan á menn að fyrra bragði, en sje komið of nærri þeim eða tekið í þá, bíta þeir. Einn dag varð mjer hverft við; svertingjar mínir sögðu mjer, að höggormur væri í kofa mínum. Jegleit- aði að honum eins og saumnál, en fann ekki. Fyrir utan kofann var hátt gras, og hugsaði jeg, að höggorm- urinn mundi hafa skriðið þangað. Um nóttina vaknaði jeg, jeg veit ekki sjálfur við hvað. Mjer varð litið upp og sá jeg þá, að stór, svartur, eitraður höggormur var að skríða rjett við hliðina á mjer. Jeg lá grafkyrr, og höggormurinn skreið fram hjá mjer og ljet mig hlut- lausan. Ef jeg hefði bært á mjer, eða snert höggorminn í svefni, mundi hann efiaust hafa bitið mig. Merkilega sjón sá jeg einn dag, er jeg dvaldi á hæ nokkrum undir hvarfbaugnum. Jeg sat þar úti á veggsvölunum; þá kom vinnumaður, sem var að vinnu niður í garðinum, hlaupandi upp til mín, og sagði, að niðri í garðinum væri stór höggormur. Þegar jeg kom þangað niður, sá jeg, að stór eiturslanga hjelt annari ó- eitraðri í gininu. Hún hjekk á grein einni og gat ekki jetið þar hráð sína; skreið hún þá niður á jörðu og fór

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.