Þjóðólfur - 21.03.1890, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 21.03.1890, Blaðsíða 4
52 Frá íslendingum í Ameríku. Sjera Jón Bjarnason kom til Winnípeg 3. febr. úr íslands ferð sinni. — 9. s. m. vígði hann prestaskólakand. Hafstein Pjetursson, sem er nú orðinn prestur íslendinga í Argylenýlendunni. — Lögberg hefur stækk- að um helming, eins og áður er get- ið og kostar í Ameríku 2 dollara, en sent heim til íslands 6 kr., en ekki 7 kr., eins og áður liafði frjetst. — Heimskringla hefur og stækkað talsvert, en kostar sama og áður. Um þingmannskosninguna í Eyja- firði er oss skrifað þaðan: „Eptir ósk margra hefur umboðsmaður Einar Ás- mundsson í Nesi gefið kost á sjer til þing- mennsku, og er hann viss. Annars höfðu margir augastað á Halldóri Briem kenn- ara á Möðruvöllum, ef Einar hefði ekki gefið kost á sjer“. Fyrirspurnir og svör. 1. Getur innköllunarmaður eða uppboðshaldari, hvort sem borgunarfrestur er lengri eða skemmri á seldum munum, heimtað innheimtulaun, ef kaupandi hins selda býður og greiðir allt andvirðið í pen- ingum við hamarshögg? Svar: Nei. 2. Er veitingamönnum leyfilegt á sunnu- eða helgidögum, að veita eða selja vín og aðra áfenga drykki? Svar: Nei. 3. Hverjum stendur næst, að sjá um eða vaka yfir, að þeim eða öðrum gildandi lagaboðum sje veitt hlýðni? Svar: Lögreglustjórunum (sýslumönnum og bæj- arfógetum. 4. Er það nokkur skylda sýslumanna eða bæjar- fógeta, þótt, þeir heyri getið um, að einhver hafi framið lagabrot, að veita því frekari afskipti, sjeu þeir sjálfir ekki sjðnar- eða heyrnarvottar þess, eða einhver ákæri það? Svar: Það fer eptir því, hvert lagabrotið er; ef lagabrotin eru stórglæpir, ber sýslumönnum og bæjarfógetum af sjálfsdáðum að taka þau fyrir, og svo er um mörg fleiri lagabrot, sem ofiangt yrði upp að telja; aptur á móti eru ýms lagabrot, t. d. smáhnupl, sem sýslumenn og bæjarfógetar þurfa ekkert að skipta sjer af fyr, en kært er. Þjóðólfur kemur út næst, áður en póst- skipið og póstar fara. AUGLÝSINGAR I samfeldu máli með smáletri kosta 2 a. fþakkaráv. 3 a.) hvert orð 15 stafa frekast: meS öðru letri eða setning, 1 kr. fyrir þumlung dálks lengdar. Borgun át 1 hönd. Arinbj. Sveinbjarnarson: Bókbands verkstofa. S 2 LAUGAVEG 2. 1Skósmíöaverkstæði og leðurverslun Björns Kristjánssonar 148 er í VESTURGÖTU nr. 4. Volta krossinn, sem hver maður ætti að bera á sjer frá vögg- unni til grafarinnar sakir hinna dásamlegu læknandi verkana, sem honum fylgja, er að eins ekta, þegar hver kross er mótaður með Voltasiílu; menn eru sömuleiðis beðnir að at- huga nákvæmlega, að á umbúðirnar utan um hvern pakka er prentað skráða vörumerkið, sem hjer stendur fyrir ofan. Hinn eini ekta Volta-kross kostar 1 krónu og er í öskju með leiðarvisi um, hvernig eigi að nota hann. Ef þjer þjáist af gigt, hjartslætti, mjaðmagigt (ischias), brjóstve'kl, svefnleysi, heyrnardeyfu, í- myndunarveiki, máttleysi, krömpum, tann- verk, taugaveiklun eða fluggigt, skuluð þjer jafnan bera á yður einn af vorum alkunnu einu ekta V olta-krossum. Vottorð. Þakkarorð til þess, sem fundið hefur upp hinn eina 'ekta Volta-kross. Frederiksberg, 22. febr. ’90. í meir en eitt ár bef jeg undirrtaður þjáðst af húðsjókdómi, útbrotum og hringormum, sem þrátt fyrir læknisbjálp breiddist meir og meir út, og loks um andlitið og hálsinn, hendurog fætur. Eptir að jeg mörgum sinnum hafði f| lesið i ýmsum blöðum um hið mikla lækn- andi aíl hins eina ekta Volta-kross, afrjeð jeg að kaupa einn þeirra í aðalútsölu-staðn- um Rosenborggade Nr. 6. Mjer til mikill- ar undrnnar og gleði, fann jeg talsverðan bata dag frá degi og er nú eptir hálfsmánað- artíma alheill. Og það er sannfæring mín, að hinn eini ekta Volta-kross hafi í raun og veru til að bera segulafl það hið mikla, sem er nauð- synlegt til lækningar á sjúkdómi þeim, sem jeg hef þjáðst af. Th. Thorstensen, Bernstorfsvej Nr. 16. Kaupmannahöfn. Útsölumenn eru beðnir að snúa sjer til Hoved-Depot for det eneste ægte Volta-IBLors. Rosenborggade 6. Stuen. Kjöbenhavn. 149 „L ö g b e r g“, stœrsta íslenzka blað í heimi, kemr út í Winni- peg, siðan um nýjár stækkað ura helming frá því sem áðr var. Ritstjórar: FÁnar Hjörleifsson og Jón Ólafsson.— Blaðið kostar 6 kr. árg. og má panta það í Reykjavík hjá bóksölunum Birni Jónssyni(ísaf. prentsm.), Sigf. Eymundssyni, Sigurði Kristjánssyni. Út um land taka allir útsölumenn Bóksalafélagsins við pöntnnum. Skyldi einhver óska, að fá blaðið heldr sent beint frá Winnipeg, fæst það fyrir sama verð frítt sent, hvert sem er á íslandi, ef kaupandi borgar blaðið fyrirfram til einhvers af bóksölunnm í Reykjavík, og sendir kvittun hans með pöntun- inni. 150 Ávallt með hverju skipi nýjar vörur* Nú með Lauru sendi jeg heim ýmsar Yörur, til dæmis: Allavega lit flöjel. Smá herðasjöl, prjónuð, allavega lit. Kvennnærbuxur prjóuaðar. Karlmanns-ullarskyrtur, margar teg. Og margt, margt annað fleira. Humle Ale. Af læknum reyndan „Alkohol“-lausan Grood-TempIara-drykk. Limonade. Ö1 frá Bryggerinu í Eabbeks-Allé. Og margt, margt annað fleira. P. t. Kaupmannahöfn, 2. mars 1890. W. Ó. Breiðfjörð 151 Skrifstofa fyrir almenning. 10 Kirkjustræti 10 opin hvern rúmhelgan dag kl. 4—5 e. h. 152 ÚíT Sylinder-úr á 12 kr., sömuleiðis með ekta gull- rönd á 16—18 og 20 kr. Allt selt með 2 ára á- byrgð og sendist gegn peningaborgun fyrir fram með pósti. Aðgerðir leystar af hendi. S. Rasmussen. Wiederveltsgade 39, Kjöbenhavn 0. 153 Enskt-íslenskt fjárkaupafjelag. Fyrir reikning ofannefnds fjelags kaup- ir undirskrifaður hesta og fje á næstkom- andi sumri og hausti. Markaðsdagarnir verða síðar auglýstir. P. t. Liverpool, 4. mars 1890. Georg Thordahl. 154 Fundur í stúdentafjelaginu 22. mars kl. 8V2 e. h. 155 Eigandi og áþyrgðarmaður: ÞORLEIFUR JÓNSSON, cand. phil. Slorifstofa: i Bankastræti nr. 3. Prentsm. Sigf. Eymundssonar.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.