Þjóðólfur - 13.06.1890, Síða 3
111
cnda í dag nokkuð selt á 28 kr. (210 pd.)
~~ Leifarnar frá f. á. af sundmögum enn
óseldar Þetta litla, sem kom af þeim
með Lauru, komst á 25 a. pd.—Af gömlu
leifunum af æðardúni enn óseld 700—800
pd., mestpart lakari tegundir, sem eigi
ganga út nú sem stendur. Fyrir bezta
seðardún fjekkst seinast 10l/2kr. fyrir pd.
1‘restko.siiingin í Grlaumbæjarpresta-
kalli fór fram 17. f. m.; var sjera Jakob
Lenediktsson á Víðimýri kosinn með 25
atkvæðum, en sjera Tómas Bjarnason á
Larði fjekk 18 atkv., og eigi annars getið
en allt hafi farið löglega fram við þá
kosningu.
X»iiig-xnáiafund fyrir báðar Múlasýsl-
nrnar átti að halda 10. þ. m. á Þórsnesi
1 Vallahreppi eptir fundarboði frá þing-
monnum Norður-Múlasýslu, og átti þar að
ræða ýms þingmál, einkum stjóruarskrár-
málið.
Baijarbruni. 30. f. m. brann bærinn á
Qrfinsstöðum á Mýrum til kaldra kola, án
Þess að nokkru yrði bjargað, nema ein-
fiverju lítilsháttar úr stofu í bænum. Þetta
var um hábjartan dag, er bærinn brann,
en enginn heima nema tveir kvennmenn
og börn. Það er haldið, að eldurinn hafi
komið upp við eldavjelarpípu, sem eigi hafi
verið búið nógu vel um. Skaðinn mikill,
því bærinn var að mestu nýbyggður, og
var þegar stofnað til samskota meðal hjer-
aðsmanna að tilhlutun hins ötula og vin-
sæla verslunarstjóra Thors Jensens í Borg-
arnesi, sem sjálfur gaf 100 kr.
Drukknan. 5. þ. ni. fórst fjögra-
maunaíar með 4 mönnum af Akranesi á
beitutúr 0fan fra Rauðanesi á Mýrum.
h ormaðuritm var Ingimagn Eiríksson hús-
n/aður í Lykkju á Akranesi, en hásetarn-
“ þrir voru allir úr Borgarhreppnum í
m„?íslu: páU Gí-uðmundsson, aldraður
Brer,„!'nj;i"1 1,ílfði íerið “”di 4
fra oi„iass;M ;me,m,“ciuRr 9uðmu"dasðu
,,gSP’‘ ‘ri E1,,»«si. Ingimagn
sal. var otnll s,om,«uri
sig konu og 4 born. Ætlað er að skinið
hafi sokkið, því stormur var mikin og rok
og skipið mjög hlaðið, er þeir iögðn J
stað frá Rauðanesi.
Jón Ólafsson kom til Winnipeg 20
aPLl. Hann skrifar ferðasögu sína í Lög-
^6rg- Með 16. tbl. tók liann við ritstjórn
hess ásamt Einari Hjörleifssyní.
Heiinsending Yesturfara. Eptir því
stendnr í Lögbergi, hefur stjórnin í
^anada gert ráðstafanir til, „að þeir inn-
flytjendur verðí sendir lieim aptur, sem
koma hingað til landsins (o: Kanada) og
eru af einhverjum ástæðum ófærir til að
hafa ofan af fyrir sjer sjálfir, en eiga
engan hjer (í Kanada) að, sem veitir þeim
viðtöku í því skini að sjá þeim far-
borða“.
Þessu hefur fyrir löngu verið framfylgt
í Bandafylkjunum í Ameríku og er nú
tekið upp í Kanada. Það er því ekkert
vit í, að sveitarstjórnir sendi lengur þess
konar fólk til Ameríku, með því að búast
má við, að það verði sent heim aptur á
kostnað sveitanna.
Þjóðviljlnn ísfirski þreytist ekki að
bera á borð fyrir lesendur sína ósannindi,
óhróður og illkvitnisþvaður um mótstöðu-
menn sína. Hinu hógværa svari herra
Páls Briems til „fjelags eins í ísafjarðar-
sýslu“ í Þjóðólfi 18. og 19. tbl. svarar
ritstjórn Þjóðviljans með ósannindum og
brigslum, segir, að „Páll Briem og Þor-
leifur Jónsson liafi algerlega hafnað fund-
aráskorun ísfirðinga“, þótt Páll Briem
tæki skýlaust fram í svari sínu, að hann
væri reiðubúinn til að mæta á fundi í
Reykjavík eða á miðri leið með fulltrúum
fjelagsins. En þetta ókunna fjelag virð-
ist hafa skriðið í felur, því að það svar-
ar ekki með einu orði áskorun Páls Briems
um að gefa upplýsingar um, hver von
væri um samkomulag hjá Þjóðviljamönn-
um, heldur hefur Sigurður Stefánsson og
hinn nafnlausi ritstjóri Þjöðviljans svarað
fautalega og borið á þá Pál Briem og
Þorleif Jónsson brigsl, sem einmitt eiga
best við þá sjálfa. Þeir brigsla þeim t. a.
m. um leti, af því að þeir færast undan
að að fara landveg alla leið vestur á ísa-
fjörð, en sjálfir nenna þeir ekki að ómaka
sig neitt, þótt það sje miklu hægra fyr-
ir þá.
Inflúenza-sýkin hefur nú breiðst út
um Rangárvallasýslu, og er nú óðum að
breiðast út um Árnessýslu. Eigi er hún
svo væg, sem frjettist í fyrstu; flestir veikj-
ast af henni, margir liggja lengur eða
skemur, og allir, sem hana fá, auðvitað
frá verki á meðan, svo að það verður
meira en lítið tjón, sem hún gerir um allt
land í sumar. Nokkrir hafa þegar dáið
úr henni og menn að deyja úr henni eða
afleiðingum hennar í Rangárvallasýslu.
Til Hafnarfjarðar er hún komin; þang-
að barst hún með manni austan úr Ölfusi.
Maður, sem hann gisti hjá í firðinum, fór
daginn eptir á fiskiveiðar með þilskipinu
Hebrídes, en veiktist þegar á skipinu og
7 skipverjar aðrir, svo að þeir komust
með illan leik inn í Hafnarfjörð aptur.
í Reykjavík eru allmargir veikir af
kvefi, og sumir liggja í því; er líklegt, að
sumir þeirra sjeu veikir af inflúenza, eða
hún sje hingað komin, því margar ferðir
hafa orðið þessa dagana frá sýktu stöðun-
um fyrir austan.
í Yestmannaeyjum er sýkin búin að
vinna flesta eða alla upp, en er nú óðum
í rjenun; nokkrir liggja þar þó enn í eptir-
köstum af lienni (lungnabólgu) og 3 hafa
þar dáið úr henni.
Frakkneska lierskipið kom hingað í
í gær; hafði legið á Akureyri í illvíðris-
kastinu um daginn; hafði þar snjóað þá
talsvert, en eigi varð það nokkurstaðar
vart við hafís.
Póstskipið Laura kom hingað í nótt
frá Höfn, og með því hingað til bæjarins:
dómkirkjuprestur Jóhann Þorkelsson, verzl-
unarstj. G. Briem í Hafnarf. og kona hans,
kaupm. H. Th. A. Thomsen, læknaskóla-
kandídatarnir Björn Blöndal og Sigurður
Sigurðarson, stúdent Jón Helgason, Óisen
verzlunarm. og 6 Englendingar; til Stykk-
ish. frú Clausen; til ísafj. kaupmennirnir
Ásgeir Ásgeirsson með konu sinni, Zöyl-
ner og Tang; til Akureyrar frú G. Hjalta-
lín og fröken Anna Erlendsdóttir; til
Seyðisfj. frú Scheving og kaupmaður
Thostrup.
Strandferðaskipið Tliyra fór í morg-
un hjeðan vestur og norður um land með
allmarga farþegja, þar á meðal farþegana
með Lauru til Vesturlandsins.
Læluiisembættið í Itangárvallasýslu
veitt iækni Ólafi Guðmundssyni á Ákranesi.
Um 1000 Færeyingar hafa komið
hingað til lands í vor, þar á meðal nokkrir
nú með Lauru.
Sigurður Yigfússon fornfræðingur
fer nú til Austfjarða með Lauru, til þess
að rannsaka þingstaði og sögustaði um
Fljótsdalshjerað allt norður til Vopnaíjarð-
ar, og safna forngripum. Hefur hann
ekki áður farið um Austfirði, og er því
mikilsvert, að Austfirðingar greiði ferð hans
ekki síður en aðrir hafa gert annarstaðar
á landinu.
Grestur Pálsson cand. phil. fer til Ame-
ríku með Magnetic í þessum mánuði, til
að verða ritstjóri við blaðið Heimskringlu
í Winnipeg.
Skagafjjarðarsýslu 29. maí. Tíðarfarið
allt af hið æskilegasta; sauðburðurinn
gengur ágætlega það sem af er; bráðum
kominn nægur gróður fyrir allar skepn-
ur.