Þjóðólfur - 12.09.1890, Page 1
Kemur ftt & föstudöp-
um — YerS árg. (60 arka)
4 kr. Erlendis 5 kr. —
Borgist fyrir 15. jftli.
ÞJÓÐÓLFUR.
Uppsögn Bkrifleg, bundin
viö áramót, ógild nema
komi til útgefanda fyrir 1.
október.
XLII. árg.
Reykjayík, föstudaginn 12. september 1890.
Nr. 42.
Styrktarsjóðir handa alþýðufólki.
Ein aí lögunum frá síðasta alþingi eru
lög um styrhtarsjóði handa alþýðufólki, ein
með hinum þörfustu og nytsömustu lög-
um, sem sett hafa verið hjer á landi. E>að
er alþingismaður Þorlákur Guðmundsson,
sem hefur heiðurinn af að vera frumkvöð-
UH þessara laga. Hann ritaði 1886 um,
hve nauðsynlegt væri að fá þvílik lög, og
bar frumvarp til þeirra upp á þingi 1887,
en þá fjell frumvarpið í efri deild fyrir
mótstöðu hinna konungkjörnu og Sighvatar
■^fnasonar. Á þinginu 1889 mætti málið
enu allmikilli mótstöðu hjá mannfrelsis-
mönnunum í efri deild, Sighvati gamla
Árnasyni, Arnljóti Ólafssyni og fleirum
hinna konungkjörnu; en með þvi að tveir
konungkjörnir (amtmaður E. Th. Jónas-
seT> og Jón Hjaltalín) voru með því, var
frumvarpið samþykkt. Eptir þvi nær árs
hvíldartima öðluðust síðan lögin staðfest-
ingu ii. júií j sumar.
Eá lög ná til jat'nmargra landsmanna
sem lög þessi. Er því áríðandi, að menn
kynni sjer þau vel, og sjerstaklega ekki
vanþörf á að benda mönnum á, hve mikið
gagn þau geta gert, er tímar líða, því að
ætla má, að ýmsir muni líkjast mann-
frelsismönnunum í efri deild þingsins og
Þykja lög þessi skerða persónulegt frelsi
°g fram eptir þeim götunum.
I lögunum er ákveðið, að í hverjui
kaupstað og hverjum hreppí skuli stofn
styrktarsjoði handa heilsubiluðu og ell
mnmu alþýðufólki, á þann hátt, að all
arlar 0g konur, sern eru fullra 20 ái
ekki yflr 60 ára, og eru hjú, þar
meðal börn hjá foreldrum sinum, og þei
sem vinna fyrir sjer í lausamennsku, skul
gfmða á ári hverju, karlmaður 1 kr. c
svmumaður 30 aura 1 sjóði þessa;undai
f \ ir ^jaldinu eru fjelausir menn, se:
eða ómö&um hafe að sjá, se
. . r’ er fyrir heilsubrest eða af öðru:
as æ um eigi geta unnj^ fyrir kaup
somuleiðia þelr, sem 4 ^
tryggt sjer fl. til framtwslu eptir »ð þe
eru orðntr 65 íra að aldri. Hver hú
raðandl er skyldur til, fyrlr hver,
vistarar, að mna fjaMM af f
alla, er hjá honum hafa heimili haft það
ár og gjaldskyldir eru, en húsbændur hafa
rjett til að halda gjaldinu eptir af kaupi
þeirra, er vinna hjá þeim.
Það var eitt með öðru, sem mótmæl-
endur frumvarpsins liöfðu á móti þvi á
þinginu, að gjaldið mundi lenda á hús-
bændunum, með því að þeir næðu því eigi
hjá gjaldendunum, en engin vorkun sýnist
það fyrir húsbændur að draga það af kaupi
hjúanna eða reikna þeim það upp í kaup-
ið. Sama er að segja um þá húsráðend-
ur, sem eiga að inna gjaldið af hendi
fyrir lausamenn á heimili sínu; húsráðand-
anum er innan handar að leyfa engum
lausamanni að teija sig til heimilis hjá
sjer, nema hann borgi þetta gjald, og það
væri enda tryggilegast fyrir húsráðanda
að fá gjaldið hjá lausamanninum fyrir-
fram, því að óvíst er, að hann næði því
greiðlega síðar, er lausamaður væri ef til
vill kominn langt burtu. Yafasamt er
það, að hverjum húsráðanda innheimtu-
menn eiga aðgang með gjald þeirra lausa-
manna, sem liafa mörg heimili sama árið,
t. d. 1 mánuð á einum staðnum, 2 mán-
uði á öðrum, 3 mánuði á þriðja o. s. frv.
En eðlilegast virðist vera og beinast liggja
við eptir lögunum, að hver húsráðandi
greiði fyrir þann tima, sem gjaldandi hef-
ur hjá honum haft heimili, þannig að hús-
ráðandi inni af hendi helming gjaldsins,
ef gjaldandi hefur haft hjá honum heimili
hálft árið o. s. frv., og að sömu reglu sje
fylgt, hvort heldur gjaldandinn er hjú
eða lausamaður. Húsráðandi verður að
inna gjaldið af hendi, þótt gjaldandinn
sje frá lionum kominn á gjalddaga og
þótt hann hafi eigi hirt um að ná því frá
gjaldandanum.
Hreppsnefndir skulu fyrir lok marsmán-
aðar ár hvert senda viðkomandi hreppstjóra
skýrslu um alla þá menn í hreppnum,
sem gjaldskyldir eru til styrktarsjóðanna,
en í kaupstöðum semja 3 menn, er bæjar-
stjórnin kýs úr sínum flokki, skýrslur þess-
ar og senda þær fyrir sama tíma til odd-
vita bæjarstjórnarinnar. Þeir, sem álíta
sig ranglega talda á gjaldskrá, geta borið
sig undan því við hlutaðeigandi hrepps-
nefnd eða bæjarstjórn, er hefur fullnaðar-
úrskurð i því máli.
Þetta er nýtt starf, sem bætt er við
hreppsnefndir og bæjarstjórnir, sem áríð-
andi er að þær leysi vel af hendi. í
fyrsta sinni eiga þær að gera þetta fyrir
lok næstkomandi marsmánaðar, því að
lögin koma fyrst til framkvæmda á næsta
ári. (Niðurl. næst).
Stúdentar frá Reykjavíkurskóla
1880—1889.
Hvað er orðið um alla þá, er útskrifast
hafa á þessu tímabili? 1880—89 (incl.)
hafa útskrifast 181 stúdent úr lærða skól-
anum. Af þeim hafa siglt til háskólans í
Khöfn 82*, og þar að auki hafa 2 siglt
undir eins beint til Ameríku; í presta-
skólann hafa gengið 78, í læknaskólann
18 og 1 liefur enn þá í engan skóla geng-
ið að loknu burtfararprófi.
Af stúdentum frá þessum árum voru
taldir við háskólann um árslok 1889 55
við prestaskólann...................17
við læknaskólann....................7
Samtals 79
Þegar þeir 2 (Þórður Þórðarson og
Jóhannes Sigurjónsson), sem til Ame-
ríku fóru strax, og sá (Bjarni Símon-
arson), er í engan skóla hefur gengið,
eru taldir........................... 3
þá verður spurn: Hvar eru hinir . 99
(samtals 181)
nefnil. 27 frá háskólanum, 61 frá presta-
skólanum og 11 frá læknaskólanum, sem
burt hafa horfið á þessu árabili?
1. Frá háskólanum hafa farið á þess-
um tíma af þessum stúdentum:
a. þeir sem tekið hafa embættis-
próf.........................7**
(3 þeirra eru komnir hingað
til lands og 1 af þeim (Hannes
Havstein) hefur veitingu fyrir
embætti; 4 þeirra eru enn þá
Flyt 7
*) 1880 sigldu 5, 1881: 6, 1882: 11, 1883: 8,
1884: 10, 1885: 8, 1886 5, 1887: 11, 1888: 8,
1889: 10.
**) Á þessu ári (1890) hafa að auki 4 tekið em-
bættispróf, 3 í læknisfræði og 1 í mag. confer. og
og eru allir utanlands enn þá.