Þjóðólfur - 31.10.1890, Síða 2

Þjóðólfur - 31.10.1890, Síða 2
202 skulu þingmenn á landsþing (efri deild) næst, og hafa vinstri menn unnið sigur í 4 kjördæmum í Höfn, en kosningar sjálf- ar fara fram 30. september. Ploug býð- sig ekki fram og liefur þó setið á lands- þinginu í mörg ár. í Svíþjóð hafa tollfjendur, enn sem komið er, betur í kosningunum, en toll- vinir, 109 móti 80. Lavigerie kardínáli hefur kallað sam- an alþjóðafund í París, til að ræða um afnám þrælasölu og þrælahalds. Skurð milli bæjanna Liverpool og Birmingham á bráðum að byrja að grafa. Hann verður 13 mílur danskar á Jengd, og er áætlað, að hann kosti um 50—60 miljónir króna. Bamlaríkin ætla að reisa Kolumbus minnisvarða í minningu þess, að 400 ár eru síðan Ameríka fannst. Spanskur mað- ur hefur meðal annarra sent stjórninni í Washington uppdrátt af honum,einsoghann hugsar sjer hann. Hann vill reisa jarðar- hnött úr járni á palli og hafa uppi á honum eptirmynd af skipi því, sem Kólum- bus sigldi á til Ameríku í fyrsta sinn. Minnismarkið verður 1280 fet á hæð og á að kosta milljón króna. Inn í hnett- inum verða söfn og skólar o. s. frv. Lík Jokns Ericssons (Jóns Eiríksson- ar) flutti herskipið Baltimore frá New York til Stokkhólms. Var því tekið með mik- illi viðhöfn og fylgdi 5500 manna kist- unni á járnbrautarstöðina. Var hún síð- an flutt á járnbrautarvagni, sem hafði ver- ið smíðaður til þess, til Filipstad, en þar vildi Jón láta jarða sig. Englendingur að nafni Cowan hefur samið söngleik, sem heitir „Thorgrim“, og mun það vera Þorgrímur goði í Gtísla sögu Súrssonar. Á 4 mánuðum (15. maí til 15. sept.) hafa farið 7500 enskir ferðamenn um Björgvin og er talið til, að þeir hafi eytt í Noregi 5 miljónum króna. Norðmenn eru lægnari en vjer íslendingar að laða ferðamenn inn í landið! í Ástralíu hefur verkfall mikið staðið lengi yfir. — Hinn 30. sept. er útrunninn sá tími, er sósíalistalögin gilda á Þýskalandi, og hugsa sósíalistar sjer þá til hreifings. Sýningin mikla í Bandarikjunum verð- ur haldin 1. maí — 31. okt. 1893. Báturinn „Storni King“ kom fyrir nokkru til Ástralíu og hafði verið 10 mán- uði á leiðinni frá Evrópu. Voru á honuin 2 Norðmenn. Tyrkneskt brynskip fór í sjóinn við Japan með 589 manns og drukknuðu allir. Svíar eru reiðir yfir því, að Óskar konungur fylgdi ekki Jóni Eiríkssyni til grafar. Seyðisfirði 5. okt.: „SauðamarkaMr eru nú um garð gengnir. Er mælt, að umboðsm. Örum & Vullfs verslana hafi keypt um 10 þúsund íjár; Slimon að eins 2000, sem liann sendi út með „Magnetic“ í fyrra dag, og í kveld fer gufuskip Zöllners „Lalande“ hjeðan með sauðfjen- að frá pöntunarfjelagi Fljótsdalshjeraðs, um 3000 að tölu. Fyrir vænstu sauðina mun hafa verið gefið mest 20 kr., en apt- ur að eins 10—12 kr. fyrir sumt af fjenu, er keypt var hjer fyrir sunnan, enda er allur sauðpeningur langtum rýrari þar suður frá. Reikni menn nú hverja út- flutta kind á 15 kr., nemur andvirði þess- ara 15 þúsunda fjár 225.000 eða J/4 millj- ón króna, sem er allálitleg uppliæð. Slæni kvefveiki gengur nú hjer, eink- um í börnum, sem mörg eru mjög þjáð; snýst á mörgum í kíghósta og hafa nokk- ur börn dáið. Vopnafirði 3. okt.: „Heyskapur mun hjer um pláss hafa almennt orðið í meðal- lagi. Síðan í byrjun ágústmánaðar hef- ur heldur lítið fiskast hjer, og er það mest fyrir beituleysi, því allan ágúst og fram eptir sept. fjekkst lítil síld, en nú aptur seinni partinn af sept. hefur tals- vert fengist af henni, og telja menn víst, að hún liafi í allt sumar verið hjer í firð- inum, þó hún hafi ekki veiðst á þeim stöðv- um, sem vant hefur verið að leggja net. Það er nú eitt með öðru, sem hjer vant- ar til að tryggja fiskiveiðarnar — sem hjer gætu eflaust orðið stórkostlegar — að fá vana menn og betri áhöld til að veiða síldina en hjer hafa verið, og er á orði, að hjer verði stofnað fjelag til að bæta úr þessu eptirleiðis. —- Verð á blautfiski var hjer í sumar: 3a/2 eyrir pd. af stór- fiski, 3x/4 af smáf. og 2J/4 af ýsu. — Fjár- markaðir eru nú nýlega afstaðnir, og keyptu ekki aðrir lijer og í nærsveitun- en Örum & Wulf. Fyrir þrevetra sauði fengu menn um 20 kr. og sumir meira fyrir valda sauði, fyrir tvævetra um 18 kr., fyrir veturgamait, ær og sauði frá 13—17 og fyrir geldar ær 13—14 kr.“ Þingeyjarsýslu 26. sept.: „Tídarfarið í sumar hefur yfir höfuð verið mjög rysjult og óstillt, Þurkarnir allt of litlir og nýt- ing heyja f lakara lagi. Sprettan var í meðallagi á túnum og flæðengjnm til jafnaðar, en á harðvelli og háifdeigjum lakleg og sumstaðar í versta lagi. Heyskapnr mun vera í tæpu meðallagi til jafnaðar. Skepnuhöld eru góð. Sauðfje með vænsta móti; sumstaðar betra en í fyrra. Hjá mörgum betri bændum jafna tvævetrir sauðir sig í 130—140 pd. og veturgamalt fje (hver kind talin) í 100—110 pd. Þyngsti sauður tvævetur, sem jeg veit um núna, er 161 pd. (166 í fyrra) og veturg. 140 pd. Sauðir kaupfjelagsins jafna sig líklega í meira en 120 pd., og er þó margur vetur- gamall saman við, en örfáir þrevetrir. Fjársala er fullt eins mikil og í fyrra, og verð til jafnaðar hærra, Veturgamalt og hálfgeldar kvíaær hafa selst frá 12—14 krónur, og mylkar ær hafa svo verið látn- ar fljóta með. Sauðir hafa selst á 17 til 18 kr.; þar á meðal hafa flotið veturgamlir sauðir. Á Hólsfjöllum var verðið 2 kr. hærra á kind og bestu sauðir, sem Valdi- mar Davíðsson á Vopnafirði keypti, fóru í 22 kr. Þar á móti gaf Þórður Guðjohn- sen á Húsavík talsvert minna fyrir, eða 11—13 kr. fyrir veturg. og ær og 16—18 fyrir sauði. En hann mun hafa haft margt af því fje, sem hann keypti, lofað fyrir- fram. Tvennt er einkennilegt við fjár- kaup þessi. Verðið er hærra á fje, sem keypt er í Eyjafjarðarýslu en í bestu sveitum Þingeyjarsýslu, og segja þó þeir, sem þekkja, að þingeyska fjeð sje betra og fallegra. Hitt annað, að 4—5 menn kaupa á sama markaðinum fyrir sama manninn (Slimon) og keppa hver við ann- an. Það er viðurkennt, að kvíaær og ljelegt fje veturg. er best borgað hjer; en því lakara ern kindur borgaðar sem þær eru vænni. Sá, sem t. d. selur væna sauði, fær minna fyrir pundið í þeim, en sá, er selur Ijelega sauði. Kaupfjelag Þingeyinga skiptir verðinu eptir öfugri aðferð, og þykir hún bæði sanngjörn í sjálfu sjer og hafa mjög heppileg áhrif á meðferð fjár- ins. Kj'ótverð hjá kaupmönnum er með lang- besta móti og í rauninni ótrúlegt. Vigtar- stig eru 24—30, 30—40 pd. og svo þriðja stigið þar ofan við. Verðið er 16, 18 og 21 eyr. á pd. Gœrur eru frá kr. 1,60 til 3,35, mör 23 a., tólg 28 a., haustull 50 a. (NB. á Akureyri). Skipaferðir eru miklar hinga,ð til Norð- urlands. L. Zöllner sendi skipið „Mount

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.