Þjóðólfur - 31.10.1890, Page 3
203
Park“ til kaupíjelaganna með vörur til haustsins j
og vetrarins. Var skipað upp á Hftsavik 19. og
20. þ. m. nál. 1200 tunnum af matvöru til kaup-
fjelagsins, og sínum 200 vættum af hverju salti og
kolum. Sömuleiðis flestum vanalegum nauðsynja-
vörum. Tvö fjárflutningaskip frá Zöllner áttu
einnig að vera komin á Byjafjörð fyrir þann 20.,
og taka fje kauptjelaganna í Þingeyjar- og Eyja-
fjarðarsýslu; sömuleiðis fyrir Tr. Guimarsson og
Hftsavíkurverslun. Bæði skipin fóru á stað i eínu.
og kom annað þeirra á Eyjafjörð 18. þ. m.; tók
það um 3200 af fje kaupfjei. Þingeyinga þ. 21.;
það skip heitir „Lalande“. Hitt skipið, sem hjet
„Creole“ og átti að taka 5000 fjár, er enn ókomið,
og líkl. strandað eða stórskemmt. Tvö skip, sem
taka likl. um 6000 fjár bæði, hafa og komið á
Eyjaíjörð eptir fje Coghills, og 1 skip, sem tekur
um 2000 fjár til Thordahls, hafði Thordahl og
förunautar hans beðið eptir því i 16 daga að sögn.
En svo mun og skip þetta þurfa að biða allt að
viku eptir farmi, þvi peningar komu eigi fyrri en
með því, og litt gekk með fjárkaup, meðan pen-
ingana vantaði.
Rannsólm Jóhannesar sýsium. Olafssonar í mfttu-
máli B. Sveinssonar var víst mjög rækileg; þvi
margir voru yfirheyrðir og margir látnir sverja
framburð sinn. En i staðinn fyrir þann árangur,
sem menn vænta, að annaðhvort sannaðist: sakir
B. Sv. eða sýkna, þá er nú sagt, að engín sönnun
hafi fengist fyrir því, að hann hafl þegið mútu, og
þó mun grunurinn um það hafa styrkst hjá mörg-
um að miklum mun við þessa rannsókn1'.
Strandferðaskipið Thyra, sem eptir áætluniuni
átti að koma hingað 15. þ. m., kom loks að morgni
hins 29.; hafði tafist vegna veðurs, mest á Sauðár-
króki, Skagaströnd og Stykkilshólmi. Óveður hreppti
það mest á Húnaflóa; hafði þá skemmst eitthvað
af flutningsgóssi (smjöri kjöti, og fl.) og þvi varp-
að fttbyrðis. — Með skipinu voru undir 200 manns,
flest af þvi kasað niður í lest og auðvitað full
önnur „káeta“, sem er svo lítil, að hftn tekur ekki,
nema nokkra menn, og varla lifandi þar eða i lest-
inni fyrir ólopti og þrengslum.
Fjárllutningaskip Zöllners, Lalande fór af
Akranesi 24. þ. m. með 3120 fjár, þar af um 1300
sauði ,frá Kaupfjelagi Árnnesinga, en hitt hafði
alþm. Jón Jónsson á Beykjum keypt fyrir Zöllner.
Fjárflutningaskip Thordahls Vrn. Connel fór
hjeðau í fyrri nótt með 2000 fjár.
Fjárflutniugaskip Coghills, Newcastle, kom
hingað 27. þ. m. og fór i dag með 4500 fjár.
Jarðskjálpta varð vart hjer að morgni hins
28. þ. m.; komu nokkrir kippir, einn allharður.
Prestkosning. Frjetst hetftr, að sjera Jóhannes
L. Jóhannsson á Sauðafelli hafi þar verið kosinn
prestur 13. þ. m.
Hús- og bæjarbruni. Á Hallbjarnareyri í Snæ-
fellsnessýslu brann seint i f. m. bærinn allur og i-
bftðar hús úr timbri.
Mannalát. 25. þ. m. varð Bjarni Hannesson
bóndi i Herdísarvík bráðkvaddur í Hafnarfirði á
heimleið ftr Bvík.
3. f. m. andaðist Bjarni Halldórsson i Hnifsdal
í ísafjarðarsýslu, einhver merkasti bóndi þar vestra.
199 hvali fengu allir (þ’rir) hvalveiðamennirnir
fyrir vestan i sumar,
Kaupfjelag Árnesinga hjelt fund 14. þ. m.;
þar var samþykkt að biðja Zöllner að senda segl-
skip á Stokkseyri í miðjum júni næsta ár; skyldi
skipið vera um 70 tons og leigt fyrir 2 ferðir.
„Takist það“, er oss skrifað að austan, „að koma
skipi á Stokkseyri, mun meiri hluti Bangæinga
ganga í fjelagið, en þá yrði líklega að skipta fje-
laginu í tvennt, með því að fjelagsraenn vestan
Hvitár og Ölfusár og enda fleiri vilja eptir sem
áður fá sinar pantanir upp í Beykjavik, en svæðið,
sem fjelagið þá næði yfir, afarstórt. Hingað til
liafa meun austau Ölfusár ekki verið i fjelagiuu,
nema að nafninu, vegna erfiðleika á að nálgast
vörur úr Bvik, en ekki getað komið í fjelagið
einni aðalvöru sjávarhreppanna, fiskinum; þetta
ætti að lagfærast með mörgu fleiru, ef sigling yrði
komið að Stokkseyri, og væri óskandi, að það fyrir-
tæki heppnaðist og blessaðist'1.
Mig undirskrifaðan vantar af fjalli svartan hrftt
veturgamlan með marki: sneitt aptan hægra og
stig neðan undir og sneitt framan vinstra, brenni-
mark að mig minnir, Þ. H. og hvítan lambhrftt
með sama eyrnamarki.
Presthftsum þ. 18. október 1890.
527 Þorsteinn Helgason.
Til Fornöjelse i Hjemmet og Selskabskredse
andbefales mit righoldige Lager af de mest forbau-
seude Trylle-Apparater. Lager af Laterna magica
er fra 3’Á til 100 Kr. Ordres pr. omgaaende
Post udföres pr. Contant. Priskuranter tilsendes
gratis til Enhver paa hele Island.
Kjöhenhavn Richard Beher
Fabrikant af Trylle-Apparater
528 etableret 1870.
160
ná þeim saman, með því að enginn lifandi maður taldi
mögulegt, að fengist gætu inn 3000 dollarar fyrir einn
einasta samsöng, en þá upphæð þurfti Barnum að fá fyrir
hvern samsöng til jafnaðar, til þess að standast kostnaðinn.
Allir hjeldu, að þetta mundi setja hann á hausinn.
Eptir að hann hafði fengið peningana, var hann
ekki aðgerðalaus. Blöðin fóru að flytja hverja lof-
dýrðina af annari um hina sænsku söngkonu, en innan
skamms fóru og að heyrast raddir um það, að söng-
kona sú, sem hann liefði ráðið til sín, væri ekki Jenny
Lind, heldur einhver önnur; þetta allt væri ekki annað
en hjegómi og svik; en ekki skorti mótmælin. Ut af
þessu reis svo mikil rimma og blaðadeila, að menn töl-
uðu ekki um annað. Hvert flugritið kom út á fætur
öðru bæði í ljóðum og óbundnu máli. Auðvitað hefur
Barnum sjálfur komið öllum þessum gauragangi af stað,
enda hafði karlinn verið glaður þá dagana, því að hann
vissi, að því meiri von var um góðan árangur, því meiri
eptirtekt sem málefni þetta vakti.
Á meðan þessu fór fram, hafði Wilton aptur farið
til Evrópu, til þess að sækja Jenny Lind og fylgdar-
menn hennar. Skrautlegt gufuskip Atlantic var fengið
til fararinnar. Fyrir utan Benedikt og Belletti hafði
Jenny Lind með sjer vinstúlku sínaeina, skrifara og marg-
ar þernur. Hún lagði af stað frá Liverpool. Ferðin
Barnum og Jenny Lind.
Sumir af lesendunum hafa auðvitað heyrt getið um
Barnum og Jenny Lind, en margir eru þó hjer á landi,
sem þekkja hvorugt þeirra. í öðrum löndum hafa bæði
fræg orðið ekki fyrir hið sama, heldur sitt á hvern hátt.
Jenny Lind er nú dáin fyrir nokkru; hún var sænsk
söngkona, fræg um víða veröid fyrir söng sinn.
Barnum aptur á móti er enn á lífi. Hann heitir
fullu nafni Plnneas Taylor Barnum, er fæddur i Am-
eríku 1810; hann var í uppvexti sínum bláfátækur, en
á nú um 150 miljónir króna. Hefur hann grætt. þenn-
an auð sinn mest á sýningum; hann hefur keypt fágæt-
ustu dýr í heimi og ferðast með þau borg úr borg og
land úr landi til að sýna þau ásamt íþróttamönnum og
listamönnum, sem hann hefur fengið í þjónustu sína.
Seinast í fyrra fór hann frá Ameríku til Lundúnaborg-
ar, til þess að halda þar sýningu. Hann hafði þá með
sjer 12 fíla, rostunga, nokkur ljón og tígrísdýr, pardus-
dýr, úlfa nashyrninga og alls konar fágæt dýr önnur,