Þjóðólfur - 01.05.1891, Síða 2
78
um og einn af Welfaflokknum buðu sig
fram. Ótal kjörfundir voru haldnir, en
Bismarck kom hvergi nærri. Var borinn
ót margur óhróður um hann. Meðal ann-
ars var honum borið á brýn, að hann
væri nískur. Haun hafði gefið 24 trje,
sem áttu að gróðursetjast í lundi og kalla
eptir Vilhjálmi fyrsta keisara, og borgaði
ekki undir þau og kostaði það 24 mörk,
en trjen voru 10 marka virði. Hinn 15.
apríl fór fram kosningin, Bismarck fjekk
7558 atkvæði, sósíalistinn 3928 og hinir
tveir, hvor um sig, 2—3000. Verður að
fám dögum liðnum kosið aptur milli Bis-
marcks og sósíalistans. Hinn 15. apríl
kom nefndfrá helstu verkstjórum á Þýska-
landi og færði konum lieiðursgjöf, borð-
búnað úr silfri, listasmíði. Bismarck hjelt
ræðu og kvaðst ekki geta setið hjá, þeg-
ar ríkinu væri hætta búin, og illt væri
að kenna gömlum hundi að sitja. Afblöð-
um hans má ráða, að hann ætlar að berj-
ast fyrst á þingi móti tolllækkuu þeirri,
sem Þýskaland er að semja um við Aust-
urríki.
Bandafylki istralíu, (The Common-
wealth of Australia). Nýtt ríki er komið á
fót, lýðveldi Ástralíu. Nýlendur Engla
hafa verið að þinga um þetta í Sidney. Var
þar samþykkt stjórnarskipun fyrir hið nýja
ríki, sem sníður sjer stakk eptir Banda-
ríkjunum, og kallast hvert fylkiríki- (state).
Englandsdrottning skipar jarl yfir lýðveld-
ið' með 10,000 punda í laun, en að öðru
leyti er hið nýjaríki óháð Englandi. Stjórn-
arskipunin verður nú samþykkt á hverju
ríkisþingi í Ástralíu fyrir sig. Með tím-
anum verður lýðveldi þetta voldugt.
Maimavíg .Fyrir nokkru var veginn lög-
reglustjóri í New Orleans í Bandaríkjunum
af ítölskum ribböldum; 11 ítalir voru tekn-
ir fastir, en kviðdómur dæmdi þá sýkna
af ótta fyrir fjelögum þeirra. Bæjarbúar
ruddust þá inn í fangelsið og drápu band-
ingjana. ítalastjórn reiddist og kallaði
sendiherra sinn burt úr Washington. Er
nú verið að rannsaka málið og láta bæjar-
búar borginmannlega.
Ófriðarliorfur. Kússakeisari hefur
gefið Carnot „orðu“ hins helga Andrjesax-,
Rússar auka lið sitt á landamærum og í
Búlgaríu hefur verið skotið á Stambúlofí.
Hann sakaði ekki, en ráðgafi hans Belt-
sjeíf fjeli. Kenna menn þetta Rússum. Þýsku
blöðin taka þvert fyrir að þetta viti á ó-
frið. Morðingjarnir hafa ekki náðst.
Ýmisleg-t. Rússakeisari hefur rekið
bræðrung sinn úr Rússaher fyrir þá sök,
að liann hefur kvongast í óleyfi hans suð-
ur á Ítalíu rússneskri stúlku, dótturdótt-
ur Púsjkins, skáldsins míkla.
Manntal hefur verið tekið á Þýskalandi
og voru íbúar 49,422,000. í Berlín eru
1,588,000 íbúar.
Margir hafa misst allt traust á meðali
Kocks, en ýmsir ágætir læknar halda því
enn á Iopti.
Kolumbusturninn á sýningunni í Chicago
verður 1500 fet á hæð, Ættingi Kol-
umbusar á að opna sýninguna.
Parnell hefur aptur beðið ósigur í auka-
kosningu til þings, en lætur þó sem sjer
sjeu allir vegir færir enn þá.
Nokkrir enskir herforingjar og nokkur
hundruð af indversku herliði, sem var
með þeim, hafa verið drepin norðaustan til
á Indlandi í smáríki, sem er undir vernd
1 Englands. Verður þess nú hefnt.
Tveir enskir þingmenn eru ákærðir fyr-
ir brot á siðferði og eru þeir báðir utan-
lands; annar þeirra ætlar heim til að
verja _sig.
Á Ítalíu er fyrir rjetti mikið mál, sem
er risið út af því, að ítalskir lögreglumenn
í nýlendu þeirra við rauða hafið hafa myrt
menn til fjár, óvíst hve marga; ganga
ljótar sögur af þeim.
Hjeðinn þingmaður í Stokkhólmi, hefur
borið upp uppástungu um að liöfða mál
gegn ráðaneyti Svíakonungs útafembætt-
ismeðferð sjómálaráðgjafans.
Innanlandsóeirðum í Chili heldur áfram
og þykjast hvorir um sig stjórnin og upp-
reistarmenn hafa betur og er engum frjett-
um trúandi.
Manntal var tekið í Bretaveldi 5. apríl.
Enn hefur ekki frjetst af því annað eu
að á Euglandi, írlandi og Skotlandi munu
vera um 40 miljónir manns og áludlandi
rúmlega 285 miljónir.
19. apríl.
Daginn eptir kosninguna lijelt Bismarck
ræðu á Friedricksruhe fýrir apturhalds-
mannafjelagi frá Kiel. Apturlialdsmenn
þyrftu ekki að vera stjórnarsinnar. Að
breyta til þess að breyta og gera þeim
greiða, sem ekki hefðu beðist þess, væri
ráðleysa, þess hefur verið krafist af mjer,
að jeg gæfi mig ekki meir við pólitik og
og stjórnmálum. Jafnmikla heimsku hef
jeg aldrei heyrt. Þeir, sem best hafa vit
á málunum, hafa líka mestan rjettinn og
skylduna til að láta sitt uppi. Að láta í
ljósi álit mitt um það, er mjer þykir skað-
vænlegt, það hvorki mun nje skal nokkur
geta bannað mjer. Kvaðst hann vona, að
apturhaldinu á Þýskalandi mundi ekki
liraka, þá er hann væri liðinn undir lok.
Hinir tveir vinstriflokkar í Danmörk
eru að hnakkrífast út um land ogervan-
sjeð, hvorum betur vegnar. Er haldið á-
fram að víggirða Höfn og verður því ekki
lokið fyr en hjer um bil 1895.
Póstskipið Laura kom liingað frá Khöfn
seint í gær og með því þessir farþegar frá
útlöndum hingað til bæjarins; kaupmenn-
irnir D. Thomsen, Eyþór Felixson með konu
sinni og Ásgeir sonur hans, W. Ó. Breið-
fjörð með kouu sinni, Þorlákur Ó. Johnson
með 2 börnum sínum, cand. theol. Friðrik
Jónsson, Jul. Jörgensen og Jón Jónsson
frá Ökrum. Til annara staða: Jón Norð-
mann í Hafnarfirði, cand. med. & chir.
G-uðmundur Magnússou frá Höfn snöggva
ferð til Vestur- og Norðurlands, ThorJen-
sen í Borgarnesi með konu sinni, Holg.
Clausen til Stykkishólms, S. Sæmundsen,
Thejl með dóttur sinni til Ólafsvíkur,
Björn Sigurðsson í Flatey, kaupmennirnir
Gram, R. Riis, Markús Snæbjörnsson með
konu sinni, Magnús Jochumsson og tann-
læknir Páll Þorkelsson; enn fremur frá
Vestmannaeyjum sjera Oddgéir Guðmund-
seu og Aagaard sýslumaður. Með skipinu
voru og um 30 Færeyingar, sem fara með
því til Vestfjarða.
Cog'liill, sem vanur er að koma með
þessari ferð, var veikur, svo að liann gat
ekki komið með Lauru í þetta sinn.
Heiðursmerki. Landshöfðingi er orð-
inn kommandör af dannebr., biskup denne-
brogsmaður og sýslumaður Lárus Blöudal
riddari af dannebr.
Fyrirlestur um ísland og myndasýn-
ingu (panorama) hjelt kaupmaður Þorlákur
Ó. Johnson 14. f. m. í Newca3tle á Eng-
landi fyrir fjölda áheyrenda (1000 manns),
sem gerðu góðan róm að fyrirlestrinum.
Hann drap á helstu atriði í sögu landsins,
stjórnarskipun, hið merkilegasta í náttúru
landsins, landsháttum og landsvenju m. m.,
og blöðin gátu fyrirlestursins með lofsorð-
um.
Hanska herskipið íngólfur kom hing-
að í morgun.
Tíðarfar. Á laugardaginn fyrsta í
sumri (25. f. m.) gerði hjer norðangarð
með talsverðu frosti, sem stóð þangað til
í fyrra kveld að gerði aptur kyrrt og
gott veður, en er þó við norður enn.