Þjóðólfur - 29.05.1891, Side 2

Þjóðólfur - 29.05.1891, Side 2
102 fremstaleiðin 1. stytst eins og áður er sagt, 2. skriðulaus, 8. hallaminnst, 4. efni nægilegt og auðflutt að veginum, 5. kostnaðarminnst (það munar 26, 700 kr. á henni og miðleiðinni, hvað þá á henni og ystuleiðinni.) 6. Á fremstuleiðinni er gott vað á Blöndu. 7. Skammt þar frá góður ferjustaður, og 8. örskammt þar frá mjög gott brúarstæði. Ef farið væri eptir tillögum vegfræð- ingsins, eru það 11,400 metr. um 5,700 faðmar, sem þarf að gjöra til þess að fá besta veg alla leið frá Giljá að Blöndu, þvi hann ræður til að byrja lítið eitt fyrir sunnan Laxá (fremri), en þangað er allgóður vegur frá Giljs, eins og nú er. En einmitt nærri þessu er ystaleiðin lengri en hin fremsta. Erá Blöndu að Bólstaðarhlíð er væn bæjarleið, og góð- ur vegur eins og er. Þegar þetta skýlausa álit vegfræðings- ins var nú fengið, virtist meiningamun- urinn eiga að vera jafnaður, og hvíla hefði mátt við úrslit hans, sem hlýtur að hafa best vit á þessu. Ef ekkert er eptir á farið að orðum slíkra manna, virð- ist akvæði laganna um þá meiningar- laust, og fjárveitingar þingsins til þeirra hlægilegar. En svo er að sjá, sem lands- höfðingja vorum hafi enn þótt vandi fyr- ir sig að ákveða aðalpóstleiðina hjer í austursýslunni, því eptir allt þetta, er nú málið látið ganga apturábak, frá lands- höfðingja aptur til amtsráðs, frá amtsráði aptur tiL sýslunefndar til þ$ss að segja álit sitt um álit vegfrœðingsins. Það virðist ekki hefði átt að vera vandasamt, að gefa þetta álit, þar sem enginn' hafði hrakið eitt einasta atriði í skýrslu veg- fræðingsins, og enginn af meðferðarmönn- um málsins hefir litið í þá fræði, sem vegfræði heitir. Beinast virtist Jiggja við, að álita, að hann hefði rjett fyrir sjer, og rjeði til hins hentugasta í máli þessu. Þetta hefir og amtsráðinu efiaust fundist, þvi nú þegar það í annað sinn fær máiið til meðferðar, fellur meiri hluti þess (amtmaðui’ og Einar i Nesi) inn á skoðun Siwersons, og ræður til að aðhyll- ast fremstuleiðina (í fyrra skiptið lá eng- in vegfræðingsskoðun fyrir ráðinu). Með þessu viðurkennir amtsráðið, að það standi Siwerson eigi ofar í vegfræðinni. En nú fyrir fáum dögum kemur mál- ið í annað sinn ofan til sýslunefndar, þar er ekki báglega ástatt, þar úir og grúir af „Ingeniörum", sem ekki eru einuugis jafnsnjallir herra Siwerson, held- . ur svo langt fyrir ofan hann, að í skýrslu hans og áliti er ekki heil brú eptir að þeir hafa meðhöndlað það. Að vísu höfðu þeir ekkert mælt af vegarsvæðunum, ekkert grafið, ekkert reiknað, en það var talað allt í rot. Já það er einkennilegt, að sömu sýslunefndarmennirnir, sem 1888 lofuðu mest og best miðleiðina, og töldu henni, bæði í ræðu og riti, flesta kosti fram yfir ystu og fremstu leiðina, þeir kveða nú með einum rómi þá skoðun sína niður, því enginn þeirra vildi nú nýta hana lengur, en samþykkja nú all- ir ystuleiðina, enda er hún nærri 6000 metr. lengri en miðleiðin, og mörgum þusundum kr. dýrari, hvernig gat þá komið til skoðunar, að aðhyllast þá leið, sem var nærri l1/^ núlu styttri, og spar- aði marga tugi þúsunda Tcröna, eins og fremstaleiðfn gjörir? Hver dirfist nú að segja að ísland sje fátækt land? Hver dirfist að segja, að hentugra sje að fara stuttan veg en langan, ódýran veg en dýran? Hver dirfist að segja, að skriður sjeu vegum hættulegar, eða að vatnsföll geti unnið á vegum? Hver dirfist að segja, að ísland eigi núengan „Ingeniör" ? m. Það er svo að sjá sem sýslunefndar- menn hafi viljað forðast, að vera nokk- urstaðar nálægt skoðun Siwersons, og því hafi þeir yfirgefið hinn fyrri dýrðling sinn, miðleiðina, og hörfað út að sjó. (Skaði að engin tillaga lá fyrir um, að láta að- aðalpóstleiðinajliggjaút áSkagastr) — Jeg játa mig vankunnandi mjög í fræði „Ing- eniöra“, óg voga mjer því ekki að rengja eða lítilsvirða álit og áætlanir þessa veg- fræðings, og það hefði jeg aldrei lagt út í, þó hann hefði ráðið til að aðhyllast aðra leið en Svinavatnsleiðina (fremstu leið), því jeg álít sjálfsagt að virða og fara eptir skoðunum þeirra manna, sem hafa full skilyrði fyrir þekkingu sinni, reynslu og lærdómi, meðan skoðanir þeirra eru með öllu óhraktar. En það vill svo vel til, að löngu áður en nokk- ur vegfræðingur var útnefndur til að fjalla um þetta mál, hafði jeg látið í ljósi álit mitt um þessar vegastefnur, og blandast þá eigi hugur um að fremsta leiðin væri alls yfir hentugust. Þessi skoðun mín, sem að eins var byggð á margra ára kunnugleik á vegarsvæðinu og heilbrigðu skyni, en engri vegfræði, stendur eigi að eins óveikluð enn þá, keldur hefur hún nústyrkst ósegjanlega mikið við álit Siwersons. — Jeg skammast mín ekki fyrirað segja það, aðjegtreysti lækninum betur til að tala um og ráðleggja heilt þeim, sem vanheilir eru, en þó 10 eða 11 ólæknisfróðir • menn vildu fara að gefa sig við því. Jeg treysti lögfróðum manni betur til að gjöra rjett úrslit á „juridisku“ efni, sem menn hafa deilt um, en 10 — 11 ólögfróðum mönnum. Af því jeg var og er svona mikið barn í vegfræðinni, gat jeg ekki fylgst með meðnefndarmönnum. mínum í sýslunefnd- inni, nj e gefið atkvæði mitt með hinum afár- stóra vinkilkrók aðalpóstleiðarinnar út á Blönduós og fram ailan Langadal, og sem þá byrjar annan vinkilinn fram við ármót Blöndu og Svartár upp að Hlið að ógleymdum brattanum, skriðunum, landbrotunum af Blöndu, og hinurn voða- legu isbunkum í Hliðarskriðu, sem ýkj u- laust mestallan veturinn er mjög hættu- legleið, og mun sifeilt verða, hversu breið- ur vegur sem þar kæmi, og sem Blanda gin neðanundir. Jeg man ekki allar þær gullvægu á- stæður, sem þessi meiri hluti sýslu- nefndarinnar færði fyrir ystuleiðaráliti sínu; en það man jeg, að á þögn Siwer- sons um Svartá voru allir hattar hengdir. Svartá á að vera jafnaðarlega mikiil far- artálmi. — Jeg leyfi mjer að segja, að af öllum sýsiunefndarmönnunum, er jeg kunnugastur Svartá, og hefi án efa opt- ast átt yfir hana að sækja afþeim öllum. Eins og jeg hefi áður lýst yfir, varð hún mjer á 10 árum alls einu sinni að far- artálma fyrir vaxtar sakir í vorleysingum. Hvaða vatnsfall, já, hvaða lækur á Is- landi, getur ekki orðið ófær, án þess hann sje kallaður verulegur farartáJmi. Úr Svartá rennur mjög fljótt, og aldrei hef jeg heyrt þess getið, að hún hafi verið óf'ær dægri lengur. Að Svartá liggja fla tar eyrar, en hvergi í útdalnum háir bakkar til fyrirstöðu að komast að henni. — Svartá leggur yfir höfuð seint, vegna kuldavermslisvatns, sem í henni er, svo hún er reið lengi vetrar á auðu. Þegar hún ryður sig, hreinryður hún sig vanalega, og aldrei hefi jeg sjeð ruðn- ing til fyrirstöðu á eyrunum. — Það er undarlegt, ef Svartá er mikill farar- tálmi, að jeg skyldi aldrei á 10 árum heyra þess getið, að menn tefðust við hana, en hún er auðvitað engin undan- tekning ailra vatnsfalla frá að geta orð- ið ófær. Auk margra vaða á Svartá í útdalnum, er fyrir utan og neðan bæinn

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.