Þjóðólfur - 04.03.1892, Síða 4
44
an allri og yfirhöfuð líklegur til mikillar
menningar, hefði honum enzt aldur.
Sjónleikir. Víkingarnir á Eálogalandi
eptir Henrik Ibsen voru i fyrsta sinn
Ieiknir í Goodtempiarahúsinu 26. f. m. og
og þótti allvel takast, svo erfitt sem efnið
í sjálfu sér er. Að voru áliti var Örnolfur
(Kr. Ó. Þorgrímsson) einna bezt leikinn
og Hjördís, hin langerfiðasta persóna i
leiknum, vonum framar (fröken Ólafía Jó-
hannsdóttir), Sigurður sterlci (Ól. Kósin-
kranz) dável o. s. frv. Leikrit þetta er
nú nýprentað og liafa þeir Indriði Einars-
son og Eggert Ó. Brím snúið því á ís-
lenzku.
Sjálfsmorð. Frétzt hefur með mönn-
um að vestan, að maður nokkur í Stykkis-
hólmi, Jón Jónsson, hafi skotið sig fyrra
mánudag (22. f. m.). Hann hafði verið í
kirkju á sunnudaginn og á dansleik um
kveldið, en keypti á mánudagsmorguninn
hyssu í búð nokkurri og þóttist ætla að
skjóta rjúpur. Yar þá eitthvað annarlegur
á svipinn og var því farið að leita hans
von bráðar. Fannst hann þá dauður í
hlöðu; liafði liann skotið sig undir kverk-
ina, svo að höfuðið var allt sundurtætt.
Hafíshroði var sagður kominn inn á
Hrútafjörð, er síðast fréttist.
Aíiahrögð. í Grindavik, Höfnum og
á Miðnesi er sagður ágætis-afli af mjög
vænum fiski. í þessum veiðistöðum voru
um síðustu helgi komnir á 3. hundrað eða
hæst 3 hundraða hlutir. í Garðsjó hefur
verið allmikill þyrsklingsafli nokkra hríð
og á Eyrarbakka og í Þorlákshöfn er nú
kominn bezti afli (um 300 hlutir er skrif-
að þaðan 27. f. m.).
HITT OG IÞETTA.
Óheppileg' afsökun. Prakkneski listadómarinn
Scudo, sem var nokkuð einrænn og opt annars-
hugar, kom einu sinni til málarans Ch. Girardet,
er hann var einmitt að ljúka við andlitsmynd
af kvennmanni. Scudo hrósaði mjög málverkinu,
en sagði að síðustu: „En hvers vegna hafið pér
málað svona ljótan kvenmnann ?“ „Það er hún
móðir mín“, svaraði Girardet stillilega. „Eg bið
yður mikillega fyrirgefningar11, mælti Scudo; „eg
hefði átt að sjá það undir eins, því að þér eruð
lifandi eptirmyndin hennar“.
Ferðamaður: „Eg fór á seglskipi frá Ameríku
til Hamborgar á sex dögum. Er það ekki eins
dæmi?
Annar ferðamaður: „Það er alls ekki neitt
undarlegt, þegar slíkur vindbelgur var á þilfarinu“.
Drykkjumanua rökleiðsla. „Á eg að drekka
enn þá einn bjór, eða ekki? Höfuðið segir nei,
maginn já,. en höfuðið er miklu hyggnara, og
sá, sem er hyggnari, slakar ávallt til. Þess vegna
dreklc eg enn þá einn“.
Tilgangslaus vinátta. Móðirin: Hvers vegna
hefur þú, Lára min! svo Iitla umgeugni við her-
foringjadæturnar? Þær eru þó svo laglegar og
siðprúðar stúlkur.
Dóttirin: Þær eiga hvorki bræður né frændur,
svo að það er alveg tilgangslaust fyrir mig að hafa
nokkuð saman við þær að sælda, eins og þú sér.
„Hérna kem eg með ánamaðka handa þér,
systir min!“
„Hvað á eg að gjöra við þá, bjáninn þinn!“
„Af því að hann pabbi sagði, að þú yrðir með
á dansleiknum að eins til að veiða“.
AUGLÝSINGAR
1 samfeldu m&li með smáletri kosta 2 a. (pakkaráv. 3 a.)
hvert orð 15 stafa frekast; meö öðru letri eða setning
1 kr. fyrir Immlung dálks-Iengdar. Borgun út 1 hönd.
Lárus Bjarnason
yfirréttarmálaflutuingsmaður
gegnir öllum réttarslörfum og ídvegar
mönnum lán gegn veðrétti. 103
HllS til sölu, stórt og lítið, hvort
sem óskað er, með góðum borgunarskil-
málum. Kitstj. vísar á. 104
Nýkomið í verzlun Sturlu Jónssonar:
Súpuefni í pökkum.
Það er einkar hentugt á ferðalagi, þar eð
menn geta haft mjög mikið af því með
sér. Nægileg súpa lianda 5 manns úr ein-
um pakka, sem að eins vegur 25 kvint.
Sexmannafar áttróiö með ölium
útbúnaði fæst til kaups nú þegar með
góðum borgunarskilmálum. Sömuleiðis
BÁTUIt. Ritstj. vísar á. 106
Fataefni, nýkomin í verzlun
107 Sturlu Jbnssonar.
Verzlun Eyþórs Felixsonar seiur:
saltíisk nr. 2, ágætlega góðan, fyrir 10 kr.
vættina — minna sé mikið keypt í einu gegn
peningum. 108
• Ekta anilínlitir fcrj
•p—< 1 fást livergi eins góðir og ódýrir eins og s»r r4- 88
v'rH í verzlun 88 0
c3 Sturlu Jónssonar K E
ci Aðalstræti Nr. 14. i— r— c+
•JlþlIUJITUU TIJHH 109 •
Jörðin Herdísarvík (eign Krísu-
víkurkirkju) fæst til ábúðar í næstu far-
dögum. Semja ber við eiganda. no
JNTýprentaður leiðarvísir til lífsábyrgð-
ar fæst nú ókeypis hjá ritstjórunum og
hjá Dr. Jónassen. sem einnig gefur allar
nauðsynlegar upplýsingar um lifsábyrgð.[m
Skotfæri fást í verzlun
112 Sturlu J'onssonar.
Skyldu-auglýsing samkvæmt 11. gr. tilsk.
9. maí 1855.
í máli því, er séra Pétur M. Þorsteinsson á
Stað í Grunnavík höfðaði gegn fyrv. ritstjóra Þor-
leifi Jónssyni út af meiðyrðum í 42. árg. Þjóðólfs,
48. tölublaði, var kveðinn upp svolátandi dómur á
bæjarþingi Reykjavíkur, að hin átöldu ummæli
skyldu dauð og marklaus, en Þorleifur gjalda 50 kr.
sekt (15 daga einfalt fangelsi til vara) og svo
málskostnað. Þessi dómur var staðfestur í lands-
yfirrétti 30. nóv. 1891. 113
Dakkarávarp.
Eg undirskrifaður, sein er fæddur og uppalinn
á Suðurlandi, en hef nú dvalið allt að 10 árum í
Staðarhreppi í Skagafirði, finn mig knúðan til að
færa íbúura þessa hrepps, einkum í Sæmundarhlíð
og Víkurtoríu, mitt innilegast.a hjartans þakklæti
fyrir alla þá velvild og bróðnrlega bjálpsemi, er
þeir hafa auðsýnt mér í minni fátækt alla þá stund,
er eg hef dvalið hjá þeim. Eg bið góðan guð að
launa þessum göfuglyndu mannvinum þessar vel-
gjörðir þeirra við mig — sjálfur get eg það ekki. —
Hinn snauði maður getur að eins varðveitt minn-
ingu velgjörðamanna sinna í þakklátu hjarta.
Staddur i Reykjavik 29. febr. 1892.
114 Bjarni Narfason.
LAM15SKINN óskast til kaupe. Ritstjóri
vísar á. 115
Seldar éskilakindur í Þingvallalireppi
haustið 1891.
1. Hvítur sauður, 2 vetra, mark: sýlt, biti apt.
h., gat, standfjöður fr, v.
2. Hvítur sauður, 2 vetra, mark: boðbílt apt.,
stig fr. h., fetúfrifað v.
3. Svört ær, 2 vetra, mark: stýft, gagnbitað h.,
þrístýft apt. v.
4. Hvitt geldingslamb, mark: miðhlutað, biti fr.
h., sfandfjöður apt. v.
5. Hvítt gimbrarlamb, mark: blaðstýft og biti
apt. v.
6. Hvítt gimbrarlamb, mark: stýft, biti fr. h.
sneitt, apt., biti fr. v.
7. Hvítt geldingslamb, mark: sýlt, gagnbitað h.,
gagnfjaðrað V.
8. Svart hrútlamb, mark: standfjöður fr. h., stig
fr. v.
9. Hvítt lamb, mark: blaðstýft fr. h., sýlt v. Af
því að fleiri en einn eiga þetta mark, verða
þeir, ef geta, að koma með auðkennis-lýsingu.
Andvirðis ofanskrifaðra kinda mega réttir eigend-
ur vitja, að frádregnum kostnaði, hjá undirskrif-
uðum, til veturnótta 1892.
Hrauntúni 12. desember 1891.
116 Jénas Halldórsson.
Fundur í stúdentafélaginu annað kvold
kl. 8Va,___________________________________117
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Félagsprentsmiðj an.