Þjóðólfur


Þjóðólfur - 22.07.1892, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 22.07.1892, Qupperneq 1
Kemur út á. föstudög- '1 um — Yerð úrg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — BorgiEt fyrir 15. júli. -I ÞJ( ÓÐÓLFl "W- OppBÖgnskrifleg, bundin 1 M við úramöt, ögild nem* I int komí til útgefanda lyrir 1. X. ® oktöber. XLIV. árg. Eeykjavík, fostudagiim 22. júlí 1892. Kr. 34. t Vilhjálmur Ludvig Finsen dr. jur., hœstaréttardómari Kvæntur var hann danskri konu og áttu þau eina dóttur barna, Valgerði, er gipt- ist dönskum verzlunarmanni, en dó skömmu síðar. mikils sóma sem vísindamaður, og vann því einnig allmikið gagn á þann hátt, en hann var þó einkum þjóð vorri til gagns og sóma sem dómari í æðsta dómstóli rík- andaðist í Kaupmannahöfn 23. f. m. á 70. aldursári. Hann var fæddur í Reykjavík 1. apríl 1823 og voru foreldrar bans Ólafur Finsen dómari í landsyfirréttinum (f 1836), sonur hins nafnkunna lærdóms- og merkis- manns Hannesar biskups Finnssonar, og kona hans María (-j- 1886), dóttir Óla Möll- ers kaupmanns í Reykjavík. 1841 var hann útskrifaður úr Bessastaðaskóla með beztu einkunn, þá 18 ára gamali, og sigldi samsumars til háskólans, tók aðgöngupróf („examen artium“) s. á., annað lærdóms- próf árið eptir og embættispróf í lögfræði vorið 1846, öll með 1. einkunn, en tveim árum síðar fékk hann heiðurspening há- skólans úr gulli f'yrir ritgerð um Gtrágás, og sést bezt af því, að hann hefur snemma farið að rar.nsaka hin fornu lög vor á vís- indalegan hátt, er hann síðar gat sér svo mikla frægð fyrir. Hann var um tíma í rentukammerinu og síðar í íslenzku stjórn- ardeildinni, en 1861 var hann skipaður sýslumaður í Kjósar- og Grullbringusýslu, kom út hingað 1852 og var þá jafnframt skipaður land- og bæjarfógeti í Reykjavík. Frá 1856—1859 var hann einnig settur meðdómari við landsyfirréttinn, sat á 4 þingum (1853, 55, 57 og 59) sem konung- kjörinn, sleppti embættum sínum liér á landi 1860, er hann varð meðdómandi í landsyfirdóminum í Yébjörgum á Jótlandi. 1868 varð hann meðdómandi í landsyfir- rétti Kaupmannahafnar og 1871 í hæsta- rétti, en það embætti hefur enginn íslend- ur haft á hendi auk hans nema Jón kon- ferenzráð Eiríksson. 1888 fékk hann lausn frá embætti sínu með fullum launum til þess að geta betur gefið sig við vísinda- legum störfum. Hann var sæmdur ýms- um tignarmerkjum, bæði riddarakrossi dannebrogsorðunnar, heiðursmerki danne- brogsmanna, kommandörkrossi af æðra stigi o. fl. Á 400 ára afmæli Hafnarháskóla 1879 var hann gerður að heiðursdoktor í lögfræði og 1890 bauð háskólinn í Oxford honum doktorsnafnbót í lögfræði, er aldrei hefur verið boðin íslendingi fyrri af þeim háskóla, og má telja það mikla sæmd. — Vilhjálmur Finsen var ekki að eins einhver hinn mesti lagamaður íslenzkur, er verið hefur, heldur einnig mikill vís- indamaður. Hinar alkunnu útgáfur hans af elztu lögbók vorri, Grágás, (Konungs- bók og Staðarhólsbók), bera ljósan vott um skarpskyggni hans og nákvæmni og geta kallazt sannar fyrirmyndir að því er snert- ir vísindalegar fornritaútgáfur. Af rit-' gerðum hans er merkust: „Om den oprindelige Ordning af nogle af den is- landske Fristats Institutioner“, er út kom í ritum hins danska visindafélags 1888, og hefur Páll sýslumaður Briem lýst henni nákvæmlega i 15. árg. „Andvara“ 1889. Hefur Finsen þar allvíða komizt að ann- ari niðurstöðu en Maurer, og hvívetna fært hinar gildustu sannanir fyrir skoð- unum sínum með frábærum lærdómi og glöggskyggni, einkum að því er snertir dómaskipun í fornöld, sem er mjög flókið verkefni og fárra meðfæri. Ritgerð þessi getur skoðazt sem einn mikilvægur, sjálf- stæður þáttur úr almennri íslenzkri réttar- favssögu að fornu, er Finsen vann að síð- ustu ár æfi sinnar, en hversu langt það verk hefur verið komið áleiðis nú, er hann lézt, er oss ókunnugt. Þótt sæti hans sem vísindamanns verði vandfyllt, að minnsta kosti fyrst um sinn, er samt ekki óhugsandi, að það verði fyr eða síðar skipað af' íslendingi, en það er annað sæt.i hans, sem oss ríður meir á, að verði skipað íslenzkum manni, og það er sæti hans sem dómara í hæstarétti, en til þess eru litlar líkur. Það er engum vafa bundið, að hann hefur ráðið mestu um úrslit, íslenzkra mála, er fyrir hæstarétt komu meðan hann átti þar sæti, eins og eðlilegt er. Hann var sá eini, er þekkti íslenzk lög, því að meðdómendur hans vissu auðvitað liYorki upp né niður í þeim. Meðan hæstiréttur er æðsti dómstöll í ís- lenzkum málum, hversu lengi sem það verður hér eptir, gengur það hneyksli næst, að enginn íslendingur skuli eiga þar sæti. En það tjáir lítt að tala um það. Dr. Finsen var landi voru til stór- isins. Vér höfum því meiri ástæðu til að sakna hans úr þeim sess, sem hann var þjóð vorri hlynntur, enda hugljúfi hvers manns, er honum kynntist. Hvaimeyrarskóliim (frh. af amtsráðs- fundarskýrslu í síðasta blaði). Reikningar stofnunar þessarar, er lagðir voru fyrir amtsráðið, þóttu mjög ófullnægjandi og var því forseta ásamt skólanefndinni falið á hendur að sjá um, að reikningar skólans og skólabúsins yrðu gerðir svo ítarlega sem unnt væri yfir tímabilið frá stofnun skólans 1889 til fardaga 1892. Ennfremur kom það fram í umræðun- um, að fjárhagur skólans væri mjög bág- borinn og fól amtsráðið forseta að reyna, hvort ekki væri unnt að fá lán úr lands- sjóði (viðlagasjóði) veðsetningarlaust með 6 °/0 afborgun á 28 árum, en greiða skyldi þá bankalán skólans ef svo stórt lán fengist. Taldi amtsráðið lán þetta óhjákvæmilegt til að inna af hendi nauðsynleg útgjöld skólans, bæði til aukningar á bústofni, greiðslu á áföllnum skuldum og undir- búnings til endurbyggingar Hvanneyrar- kirkju á næstkomandi hausti. Að þeirri niðurstöðu komst amtsráðið, að innieign Sveins heit. skólastjóra í skólabúinu mundi ekki fara fram úr 1000 krónum. Ólafur búfræðingur Jónsson (frá Mun- aðarnesi), er veitt hefur skólanum forstöðu síðan Sveinn lézt, var sjálfur staddur á fundinum og samdist svo, að hann tæki að sér forstöðu skólans og skólabúsins til næsta vors með 800 kr. árslaunum auk ókeypis fæðis, húsnæðis og þjónustu. Vonandi er, að stofnun þessi nái betri þrifum hér eptir en hingað til, eða verði að minnsta kosti nokkurn veginn sjálf- bjarga innan skamms. Það er ekki glæsi- legur fyrirmyndarbúskapur, er borgar sig ekki betur en Hvanneyrarbúið hefur gert, síðan skólinn var stofnaður, og það er engin furða, þótt þing og þjóð kynoki sér við að leggja fram stórfé á ári hverju til búnaðarskóla í hverju amti, þá er ávöxt-

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.