Þjóðólfur - 22.07.1892, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 22.07.1892, Blaðsíða 4
136 Hina mestu trygging fyrir gœðum Kína-lífs-elixírsins veita þessar yfirlýsingar frá valinkunnum mönnum á íslandi: í sex undanfarin ár hef eg þjáðst af megnum veikindum á sálunni, og hef eg brúkað ýms meðöl, en ekkert hefur dugað, þar til nú fyrir 5 vikum að eg fór að brúka Kína-lífs-elixír Valdemars Petersens frá Friðrikshöfn; brá þá strax svo við, að eg fór að geta sofið reglulega, og þegar eg var búinn að brúka 3 flöskur, var eg orðinn talsvert betri, og hef þá von, að eg með áframhaldandi brúkun verði albata. Þetta er rnér sönn ánægja að votta. Staddur í Keykjavík, 12. júní 1891. Pétur Bjarnason frá Landakoti. Vottorð þetta er gefið af fúsum vilja og fullri ráðdeild. L. Pálsson læknir. Þegar eg á næstliðnum vetri þjáðist af magaveiki, sem leiddi af slæmri meltingu, var mér ráðlagt af lækni að reyna Kína- lífs-elixír hr. Valdemars Petersens í Frið- rikshöfn, sem hr. konsul J. V. Havsteen á Oddeyri hefur útsölu á; brúkaði eg því nokkrar flöskur af honum. er læknaði veik- ina smámsaman til fulls. Eg get því af eigin reynslu mælt með bitter þessum sem ágætu meðali til þess að styrkja meltinguna. Oddeyri, 16. júní 1890. Kr. Sigurðsson. Nær fyrst frá því að eg man til, hef eg verið þjáður af magaveiki (dispepsia). En eptir að eg hef lesið auglýsingu frá hinum nafnkunna prakt. lækni Lárusi Pálssyni viðkomandi Kína-lífs-elixír Valde- mars Petersens í Friðrikshöfn, sem er nú í flestum dagblöðum okkar, þá hef eg fund- ið stóran mun á mér til batnaðar síðan eg fór að taka, hann, og held þess vegna á- fram að brúka þennan heilsusamlega bitter, og ræð öllum nær og fjær, sem þjást af samskonar veiki og eg, til að brúka bitter þennan, með því reynslan er sannleikur, sem áldrei bregzt. Akranesi, 10. júní 1891. Þorvaldur Böðvarsson (pastor emeritus). í mörg umliðin ár hef eg undirskrifaður þjáðzt af óþekkjanlegri og illkynjaðri maga- veiki, sem mjög illa hefur gengið að lækna. Fór eg þá og fékk mér nokkrar flöskur af Kína-lífs-elixír hr. Valdemars Petersens hjá hr. kaupm. J. V. Havsteen á Oddeyri, og með stöðugri neyzlu þessa bitters sam- kvæmt notkunarleiðbeining, sem fylgir hverri flösku, er eg mikið þrautaminni innvortis: eg vil því í einlægni ráðleggja öðrum, sem finna til. ofannefndrar veiki, að reyna þennan sama bitter. Hallfriðarstaðakoti, 5. april 1890. O. Þorleifsson, bóndi. Fæst hjá flestum kaupmönnum og verzlunarstjórum á íslandi. Til þess að vera vissir um að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír eru kaupendur beðnir að líta eptir því, að VpP> standi á flöskunum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og flrmanafnið Yaldemar Petersen, Frederikshavn, Danmark. 410 ISTýlega er út komið eptir frú Torfh. Holm: „Draupniru 1. ár 2. hepti og „Tíbráu, ársrit fyrir eldri og yngri börn, 1. ár. í þessu hepti „Draupnis“ er mestmegn- is saga Jóns biskups Vídalíns og svo fram- hald af Styrjaldarsögu Gyðinga eptir Jós- efus. Hvort hepti „Draupnis" kostar kr. 1,25 og „Tíbrá“ 55 aura; þó fæst „Draupnir“, hvort hepti, fyrir kr. 1,00 og „Tíbrá,, 50 aura, fyrir þá sem eru (eða gerast) áskrif- endur. 411 Saltfiskur, harðfiskur, tros, sauðskinn Og ýms önnur íslenzk vara fæst í verzlun 412 verzlun Sturlu J'onssonar. En norsk Seilbaad af Eg, med Segl og audet Tilbehör, er tilsalgs i Löbet af nogle Dage ved T. Simonsen 413 pr. Galeas „Vikingstad“. Undirskrifaður kaupir smáar blikk- dósir háu verði. Óþrjótandi birgðir til sölu af hinum góða og alþekkta vatnsstígvélaáburði. 414 Rafn Sigurðsson. S^eino;4 fæst í verzlun Sturlu Jónssonar. Iferðamönnum bannast að liggja með hesta í Laugavdælalandi eða fara völlinn fyrir framan bæinn í staðinn fyrir þjóð- veginn fyrir norðan liann. Laugardælum 20. júlí 1892. 416 Ouðm. Ouðmundsson. Rauölietta, skemmtileg saga handa ungum börnum með afbragðs- fögrum myndum, fæst á skrifstofu Þjóðólfs með niðursettu verði fyrir 75 aura. 417 Okkar hjartanlegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem á ýmsan hátt hafa reynt að hæta úr böli Guðrúnar dóttur okkar, er legið hefur rúm- föst í 3 ár; skal eg fyrst nefna dr. Jónassen, sem allan þennan tíma hefur vitjað hennar án endur- gjalds, og þar að auk glatt hana með gjöfum; þar næst hinar háttvirtu frúr hér i bæ, er hafa gefið henni miðdagsmat, og ennfremur þann fjölda, er á ýmsan hátt hafa tekið þátt í kjörum hennar. Góður guð launi þeim öllum kærleiksverk þeirra með tímanlegri og eilífri blessun. Keykjavik 17. júlí 1892. Margrét Gestsdóttir. Arni H. Hannesson. Yfirlýsing. Eg Guðríður Jónsdóttir, vinnukona á Bíldsfelli í Grafningshreppi í Árnessýslu, apturkalla sem ó- töluð, ósönn, dauð og ómerk öll þau kala-, móðg- unar- og skammaryrði, sem eg hef haft hér á bæn- um að Bíldsfelli, og líka annarstaðar af hæ, bæði um herra Jósef Kristófer Jónsson og húsmóður mína, hús- frú Steinunni Hannesdóttnr. Bið eg þau hér með fyrirgefningar og lofa að áreita þau aldrei framvegis, hvorki til orða né verka, og mega þau birta þessa viðurkenningu mína á prenti á minn kostnað. Bildsfelli 29. júni 1892. Gnöríður Jönsdóttir. Vitundarvottar: Jón Guðbrandsson (handsalað). Hólmfriður Bjarnadóttir. 419 Tapazt hefur af Torfeyri um Jónsmessuna bleikálóttur hestur, dökkur á tagl og fax, vetrar- afrakaður, járnaður sexboruðnm dragstöppuskeifum, markaður: standfjöður fr. h., stór biti fr. v. Hvern, sem kynni að finna hest þennan, bið eg að koma honum til skila til undirskrifaðs, mót sanngjarnri borgun. Tungufelli í Ytrihrepp 16. júlí 1892. Guðmi Þórarinsson. 420 Gul vaxkápa og tvær skinnbrækur týndust 15. þ. m. á leiðinni frá Kolviðarhóli niður í Reykja- vík og suður í Kaplaskjól. Finnandi er beðinn að skila þessu annaðhvort á skrifstofu Þjóðólfs eða til Jónasar Erlendssonar i Hnausi í Flóa. 421 Fundizt hefur á götum bæjarins lítil, röndótt peningabudda. Eigandi hennar getur leitt sig að henni á skrifstofu Þjóðólfs með því að lýsa henni nákvæmar og skýra frá upphæð peninga þeirra, er hún inniheldur; hann borgi einuig fundarlaun og þessa auglýsingu. 422 UáTalÖÖÍH góðu (mörkuð fil) fást uú í 423 verzlun Sturlu Jbnssonar. Kirkjuréttur Jóns Péturssonar er til sölu á skrifstofu Þjóðólfs. Nærsveitamenn eru beðnir að vitja Þjóðélfs á afgreiðslustofu hans (Vcltusundi nr. 3). Eigandi og ábyrgöavmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Félageprentsmiðjan

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.