Þjóðólfur - 16.09.1892, Side 1

Þjóðólfur - 16.09.1892, Side 1
Kemur (lt & (öetudög- nm — VerB Arg. (60 arka) 4 kr. Erlendls 5 kr. — Borgist fyrir 15. Júlí. ÞJÓÐÓLFUR Uprsögn skrifleg.bundin yiB (iramðt, ðgild nema konoi til fltgefanda fyrir 1. oktðber. XLIV. árg. Reykjavík, föstudaginn 16. septemlber 1892. Nr. 43. Þingmálafundir og þingkosningar. Hér nærlendis hefur varla verið rætt um annað en kosningarnar til alþingis, er farið hafa fram næstliðna viku. í 3 kjör- dæmum, Reykjavík, Borgarfjarðarsýslu og Q-ullbringu- og Kjósarsýslu, hafa verið haldnir þingmálafundir á undan kosning- unum, en hér verður fljótt yfir sögu farið, enda virðast fundir þessir hafa verið hyer öðrum líkir, þar eð sömu málin hafa að miklu leyti verið rædd á þeim öllum, og flest þingmannaefnin lýst stefnu sinni ein- dregið í frelsis- og framfaraáttina. Þingmálafundur hér í bænum, er 5 kjósendur höfðu boðað, var haldinn í Good- templarahúsinu á föstudagskveldið var, 9. þ. m. Voru um 300 manns á fundi, þar af eflaust 2/s kjósendur. Þar komu bæði þingmannaefnin, H. Kr. Friðriksson yfir- kennari og séra Jóhann Þorkelsson dóm- kirlcjuprestur. Fundarstjóri var Ólafur Rósenkranz biskupsskrifari. Séra Jóhann lýsti fyrst skoðunum sín- um á hinum mikilvægustu málum. Vildi hann t. d. efla atvinnuvegi landsins, eink- um sjávarútveginn, með því að koma upp þilskipum með ábyrgðarsjóði og að þingið hlypi undir bagga, með því að veita mönn- um lán til þilskipakaupa. H. Kr. Frið- riksson var að mestu leyti á sama máli, og vildi jafnvel ganga enn lengra, því að hann vildi einnig styrkja ábyrgð á opnum skipum. Séra Jóhann vildi láta veita næg- an styrk til gufuskipaferða með ströndum fram og fcil gufubátsferða á Faxaflóa. H. Kr. var deigari í því, en var þó loks pínd- ur til að lofa því að verða meðmæltur gufubát á Faxaflóa. Séra Jóh. vildi láta halda stjórnarskrármálinu hiklaust áfram, en H. Kr. talaði lítið um það, en skír- skotaði til framkomu sinnar í því máli 1885, en þá vildi hann fá íslandsráðgjaf- ann hingað á þiug, og þótti ekki frumv. alþingis frambærilegt að því sinni. Bæði þingmannaefnin voru sammála um lækkun eptirlaunanna, en töldu vankvæðí á af- námi þeirra., Séra Jóh. var meðmæltur afnámi amtmannaembættanna og biskups- embættisins einnig með vissum skilyrð- um. H. Kr. var því mótfallinn, einkum afnámi amtmannaembættanna. Honum var meinilla við, að blöðin höfðu talið hann sem liðsmann konungkjörna flokks- ins, og þótti það hrópleg rangindi og sér til vanvirðu gert (!), en einn aðalandmæl- andi hans (Björn Jónsson ritstjóri) sýndi honum fram á með ástæðum, að hann hefði verið á sama bandi og hinir konungkjörnu bæði í stjórnarskrármálinu og amtmanna- málinu, og að skoðanir hans á seinni ár- um hefðu yfirhöfuð hneigzt að þessum flokki m. fl. H. Kr. þrætti harðlega fyrir allt þetta, og þóttist ávallt hafa verið hinn mesti frelsismaður. Kvaðst vilja af- nema vistarskylduna og öll atvinnuhöpt, láta konur hafa sömu réttindi sem karl- menn o. fl. o. fl., og það komst svo langt, að hann var farinn að játa hér um bil öllu, er hann hugði, að kjósendurnir vildu fá framgengt, til að missa ekki þingmennsk- unnar, enda fóru svo leikar daginn eptir 10. þ. m. að H. Kr. Fríðriksson yfirkeunari var valinn þingmaður fyrir Reykjavík um næstu 6 ár með 101 atkv., en séra Jóhann fékk 56. Að embættismennirnir og þeirra fylgifiskar, er flestir kusu yfirkennarann, hrósi happi, er ekki láandi, því að liann er allveglegur þessi sigur og árangur hans glæsilegur. Hann sýnir ljóslega, að stjórn- arflokkurinn hér í bænum stendur ekki einn og hjálparlaus uppi, þar eð hann hef- ur fengið svo ágætan fulltrúa á þing og hefur auk þess svo öruggan bakhjall í mörgum bæjarbúum með Yalgarð kaup- mann í broddi fylkingar. Nú er að eins eptir að vita, hvort yfir- kennarinn reynir að losa sig úr skrúfjárni því, er hann var hnepptur í á þingmála- fundinum. Hann hefur lofað svo miklu í viðurvist fjölda áheyrenda, að honum veit- ir erfltt að ganga frá því síðarmeir, enda ímyndum vér oss, að hann vilji ekki gera sér þá vanvirðu á gamalsaldri, heldur standa við orð sín. Það er miklu drengi- legra. Að mótstöðumenn H. Kr. hafi orðið sér til minnkunar á fundinum og etið ofan í sig rangan áburð um hann, eru hrein og bein bsannindi. Þingmálafundur fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslu var haldinn í Ártúnum 12.þ.m. af einu þingmannsefninu, Þórði héraðslækni Thoroddsen. (Þórður hreppstjóri á Hálsi hætti við að bjóða sig fram í þessu kjör- dæmi). Fund þennan sóttu um 30 manns, þar á meðal að eins 13—14 kjósendur, hinir héðan úr bænum. Jón Þórarinsson skólastjóri var þar staddur, en 3. þingmanns- efnið (Þór. próf. Böðvarsson) ekki. Skýrði Þórður læknir fyrst frá skoðunum sínum á helztu landsmálum, og þykir oss nægja að geta þess, að hann vildi eindregið halda stjórnarskrármálinu áfram, en ekki í „miðl- unar“-áttina, vildi láta afnema eptirlaun eða að minnsta kosti lækka þau að mikl- um mun, efla samgöngur á sjó og landi, veita konum jafnrétti við karlmenn, af- nema óþörf embætti, og taka bankamálið og póstávísanamálið til alvarlegrar ihug- unar á þingi; var mótfallinn álögu nýrra tolla m. fl. Jón Þórarinsson var honum samdóma um flest, nema í sijórnarskrármálinu, er honum þótti Thoroddsen leggja ofmikla á- herzlu á. Kvað hann þjóðinni vera að kenna sundrungu þá, er komin væri á þetta mál. Hún hefði ekki staðið nógu örugg á bak við fulltrúa sína síðan 1886. Yæri litt ráðlegt að halda þessari baráttu áfram, eins og nú væri komið, enda kvaðst hann ekki vilja skipa máli þessu i æðsta sæti á þingi. Afnámi biskupsembættisins var hann einnig mótfallinn, en vildi láta amtmannaembættin fara veg allrar verald- ar. Guðm. Magnússon í Elliðakoti lireyfði mótmælum gegn því, að sundrungin í stjórnarskrármálinu væri þjóðinni að kenna. Það væru fulltrúar hennar, sem farið hefðu með það í hundana, einkum „miðlunar“- mennirnir 1889. Væri það alls ekki al- mennur vilji þjóðarinnar að leggja nú ár- ar í bát. Þingmeun væru ekki bundnir við neinar reglur frá kjósendum sinum og hefðu því ekki þurft að taka tillit ti) þess, þótt 'einhver þytur hefði heyrzt heima í héraði um að hætta þessari baráttu. Ýmsar spurningar voru lagðar fyrir þingmannaefnin, einkum af Guðm. í Elliða- koti, Gísla Gíslasyni í Leirvogstnngu og séra Jens Pálssyni. Jón Þórarinsson tal- aði alllangt erindi um gagnfræðakennslu (hvernig og hvar hentugast mundi að koma henni fyrir) og um breytingu á farmanna-

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.