Þjóðólfur - 14.10.1892, Page 4
192
að ðlíklegt er, að hann hafi neitað þvi staðfesting-
ar til að hnekkja þessum litla framfaravísi, sem
meiri hluti hreppshúa áleit, að gæti orðið til gagns-
muna fyrir eptirkomendurna.
Ástæður amtmanns fyrir nettuninni eru þrjár og
skal stuttlega minnzt á þær hverja fyrir sig.
Pyrsta ástæðan er sú, að ekki sé hægt að skylda
formann til að annast um, að slor sem til fellur á
skipi hans verði flutt aptur á sjð út, eptir að há-
setar eru búnir að flytja það í land í fiskinum ó-
slægðum, en þetta fyrirskipar 2. gr. samþykktar-
innar.
Engum manni, sem kunnugur er i Olafsvík get-
ur dulizt, að þessi ástæða er einkis virði, þvi þetta
atriði mun hafa verið samþykkt í einu hljðði bæði
af formönnum og hásetum, sem hlut áttu að máli.
Að öðru leyti stendur svo á í Olafsvík, að gil eður
stór lækur rennur eptir miðju plássinu, en gömul
venja er, að hver maður hefur borið fisk sinn strax
úr fjörunni óslægðan heim til sín og fleygt öllu slori
í gilið, eða látið það liggja i kös á hverjum árs-
tíma sem var, á þeim stað, sem gert var að fiskin-
um. Slor það, sem fleygt var í gilið, festist hingað
og þangað á steinum eða nam staðar í lygnum
pollum, en aðalvatnsbðl fleBtra Ólafsvíkurbúa er
neðarlega i gilinu. Þegar því slorið grotnaði þann-
ig i vatninu, sem daglega- var drukkið, má nærri
geta, hve heilnæmt það var, aö eg ekki tali um slor-
kasirnar á milli bæja í þéttbyggðu þorpi. Til að
sporna við þessum ðþrifnaði komust menn að þeirri
niðurstöðu, að sú tilraun væri heppileg, að flytja
allt slor fram á fiskimið, ogþótti engum hlutaðeig-
anda það ðaðgengilegt, cinkum þegar sú undantekn-
ing átti sér stað, eins og frumvarpið ber með sér,
að slor inátti nota til áburðar eður jarðræktar, eins
og leiðir af sjálfu sér. Hvað amtmanni hefur geng-
ið til að neita okkur um þessa lítilsverðu snúninga,
sem við ætluðum að gera sjálfir, er alveg ðskiljan-
legt, þar sem það kemur ekki í hága við nein fiski-
veiðalög.
Önnur ástæðan er sú, að 3. gr. samþykktar-
innar sé allóljðs um deilingu áhyrgðar fyrir hrot,
annaðhvort hvíli ábvrgðin á formanninum einum
eða hún hvili á honum og þeim hásetum, sem tek-
ið hafa þátt með honum í ólöglegum verknaði o.
s. frv.
Þessi ástæða sýnist sprottin af allmiklum
ðkunnugleika, því það er öllum mönnum kunn-
ugt, að aðalábyrgð verður formaðurinn að bera
á því, sem gert er á sjó, sérstaklcga þegar um
brot mðti lögum er að ræða, enda er það vafalaust
eptir lögum 28. febr. 1758, að formaður hofur á-
byrgð bæði á sjð og landi á öllu, sem að fiski-
veiðum lýtur. Það er ennfremur kunnugt, að þar
sem brot móti fiskisamþykktum hefur átt sér stað,
þá hefur jafnan formanninum verið talið það til
ábyrgðar og hann sektaður. Annars hafa þau brot
ðvíða átt sér stað nema við Faxaflóa í umdæmi
sýslumannsins í Gullbringusýslu.
Þriðja ástæðan er sú, að í 6. gr. frumvarpsinB segir
svo: „Iíver sem kemst að því, að brotið hafi ver-
ið móti samþykkt þessari skal jafnframt taka upp
lððirnar og tilkynna, o. s. frv“., en fyrir því sé eng-
in heimild í lögum 14. desemher 1877, né lögum 4.
des. 1886.
Það var að sönnu eigi tekið bókstaflega fram í
frumvarpinu, að skipaðir umsjónarmenn skyldu
taka lóðirnar upp, en það mun sjálfsagt hafakom-
ið af þeim misskilningi, að það mundi eiga að
fylgja staðfestingu amtmanns, að umsjðnarmenn
skyldu skipaðir til að taka upp lððirnar og yfir
höfuð sjá um, að frumvarpinu væri fylgt, þegar
það væri búið að fá staðfestingu amtsins, enda er
það skýrt tekið fram í lögum 4. des. 1886, að til
sjðnarmenn skulu skipaðir þar sem fiskisamþykktir
fá gildi; og jafnskjótt sem frumvarpið var sam-
þykkt hér í hreppnum, að fengnu samþykki sýslu-
nefndar þá vðru kosnir 3 menn hér í Ólafsvík, til
þess að sjá um, að þessu frumvarpi væri fylgt
þangað til staðfesting amtsins fengist, sem enginn
gat efast um, þareð þetta gekk svo ljúflega í hér-
aði — enda lýsir það sér glögglega í þvi, hvort
fruinvarpið hefur verið mjög óvinsælt, að nú meir
en heilt ár á meðan frumvarpið hvíldi sig í amt-
inu, hafa okki brot mðti þvi átt sér stað nema tvö
eða þrjú. — Svo þegar litið er til þess, að frum-
varp þetta snerti einungis Neshrepp innri, og hér
við Breiðafjörð sunnanverðan hagar svo til, að hver
veiðistaða hefur hér um bil sin fiskimið út af fyr-
ir sig, svo hvorugur skemmir fyrir öðrum, — þá
sýnist mönuum synjun þessarar staðfestingar á þvi
minni rökum byggð. — Það var tilgangur manna
hér í hrepp að friða grunnmið fyrir Iððum um til-
tekinn tíma (frá 14. marz til 31. okt.) ár hvert —
enda er það viðurkennt af góðum formönnum hér,
að þessi 2 ár, sem frumvarpið hefur verið á þessu
hringsóli, — og þó að mestu leyti fylgt, — hafi
það haft gððar afleiðingar, að þvi Ieyti, að fiskur
hafi haldizt hér stöðugri og betur aflazt að haust-
inu.
Það er því sorglegt þegar yfirvaldið af ðkunn-
ugleika eða hverju sem er, tvistrar þeim litla fé-
Iagsanda, er lifnað hefur í brjóstum þeirra manna,
sem hingað til hafa verið útilokaðir frá samblendni
við menntaða menn og þess vegna fyrir ýmsar or-
sakir gengið margs góðs á mis — tvístrar þeim
frámfara anda, sem meiri hlutinn er kominn að nið-
urstöðu á eptir nokkra reynslu, að miði þeim sjálf-
um til nokkurra bðta, og deyfir þannig þá tilfinn-
ingu og kjark, sem þetta gamla áminningarorð
kennir, „reyndu aptur".
Ólafsvík í ágúst 1892.
Iframfaravinur.
Hótel Alexandra
í Kaupmannahöfn.
Bezti vetrarbústaður fyrir íslenzka kaup-
menn og embættismenn. Húsnæði og allt
fæði með mjög vœgu verði. Hafa margir
íslendingar verið þar næstliðin 4 ár. Mál-
þráður 1514 til frjálsra afnota.
545 Joh. Ludv. Hanson.
E3g undirskrifuð tek að mér að sauma
alls konar kvennfólks utanyfir-klæðnað,
svo sem kjóla, vetrarkápur, sumar-yfir-
stykki, sömuleiðis að „punta“ hatta.
Reykjavík, Austurstræti 5.
546 Helga Sigurðson.
Oþrjótiindi birgðir til af hinum al-
þekkta vatnsstígvélaáburði, sem enginn hef-
ur til annan eins og
Rafn Sigurðsson
647 Reykjavík.
Vottorð.
Eg hef verið rúmfastur nú í 3a/2 ár.
Það sem að mér hefur gengið, hefur verið
óstyrkleiki í taugakerfinu, svefnleysi, maga-
verkur og slæm melting. Eg hef leitað
til margra lækna, en enga bót fengið,
fyrr en eg í síðastliðnum desembermánuði
tók að viðhafa Kína-lífs-élixír herra Valde-
mars Petersens. Þá er eg hafði neytt úr
einni flösku, tók eg að fá matarlyst og
rólegan svefn. Að 3 mánuðum liðnum
tók eg að hafa fótaferð og hef smátt og
smátt gerzt svo hress, að eg get nú verið
á gaugi. Alls hef eg eytt úr 12 flöskum,
og geri eg mér vonir um, að raér muni
mikið til batna við að neyta þessa elixírs
stöðugt framvegis. Fyrir því vil eg ráð-
leggja öllum, er þjást af sams konar kvill-
um, að reyna sem fyrst bitter þennan.
Villingaholti, 1. júni 1892.
Helgi Eiríksson.
Kína-lífs-elixír fæst í flestum hinum
stærri verzlunum á íslandi.
Til þess að fullvissa sig um, að menn
fái hinn einasta elcta Kína-lífs-élixír, verða
menn að taka eptir, að á hverri flösku
er lögskráð vörumerki: Kínverji með glas
í hendi, sömuleiðis verzlunin Valdemar
Petersen í Friðrikshöfn í Danmörk, og á
Y P
innsiglinu p. ' í grænu lakki.
Valdemar Petersen
548 Friðrikshöfn.
Ymisleg bölcbandsverhfœri fást keypt
hjá Árna Jönssyni bókbindara í Hafnar-
firði. 549
Eptir prófbindi, sem M. J. Jensen
hefur innbundið, geta menn fengið inn-
bundið náhvœmlega eins hjá bókbindara
Árna Jónssyni í Hafnarfirði. 550
Skófatnaöur fæst hvergi jafn góður
og ódýr sem hjá
Rafni Sigurðssyni,
skósmið.
551 Reykjavík.
Smáar blikkdósir kaupir
562 Kafn Sigurðsson.
3%Týprentaður leiðarvísir til lífsábyrgð-
ar fæst nú ókeypis hjá ritstjórunum og
hjá Dr. Jónassen, sem einnig gefur allar
nauðsynlegar upplýsingar um Iífsábyrgð.1553
Kirkjuréttur, 2. fitg. aukin og endurbætt,
er til sölu á skrifstofu Þjóðólfs. 554
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Sannes Þorsteinsson, cand. theol.
FélagBprentsmiðjan