Þjóðólfur - 23.12.1892, Síða 1
Keinur öt i. föetudög-
uiu — Vert 4rg. (60 arka)
4 kr. ErleccSis 5 kr. —
Borgíst fyrir 15. Jttlí.
ÐÓLFUR
Oppsögn ekrifleg, bucdin
viö kramót, Agild nema
komi til útgefanda fyrír 1.
obtéber.
Reytjarík, föstudagiim 23. desember 1892.
Nr. 59.
XLIV. árg.
Innlendar ft’éttir.
Tíðarfar, manntjón, fjárskaðar.
Með póstunuHi norðan og vestan, er
komu loks 17. og 18. þ. m. eptir harða
útívist, bárust mestu liarðindafréttir, fjár-
skaðar, slysfarir o. fl., einkum í áklaupa-
veðri miklu 2.-4. þ. m., og hefur þó ekki
enn frétzt um tjón af því í hinum fjar-
lægari sýslum á Norður- og Austurlandi.
Úr Miðfirði er oss skrifað á þessa leið
8. desbr.:
„Þetta voðalega veður skall á undir
kveld. fljótt eins og hendi væri veifað.
Rétt áður var hæg logndrífa á sunnan og
hugðu menn það meinleysi eitt. En þegar
á skall var bæði hríðin og frostharkan á-
kafleg. Margir smalamenn misstu féð út úr
höndunum á sér. Hrakti það langar leið
ir, en hefur þó fundizt mestallt síðan hríð-
ina stytti upp 4. þ. m., flest lifandi, en
þó sumt dautt og með litlu lífsmarki. Eg
hef ekki svo tilspurt, að eg geti sagt með
vissu, hvar hríðin hefur gert mest tjón á
fé. En það mun þó hafa verið á Múla-
bæjunum og um miðjan Miðfjörð. Á út-
nesjum og fram til dala gekk betur að
handsama fé og koma því í hús. — Þrír
menn er taíið að hafl orðið hér úti í þess-
ari hríð: unglingspiltur Benedikt Asmunds-
son frá Miðhópi, Jón bóndi Ounnarsson á
Sporði og sonur hans 16 vetra. Eru tveir
þeir síðarnefndu ófundnir enn og hefur
þó leitin ekki verið látin falla niður til
þessa. Allir þessir menn voru við fé.
28. f. m. gerði og fljótlegt áhlaup og biðu
þá sumir skaða, því að fé hrakti á stöku
bæ. í þessari hríð varð úti á Miðfjarðar-
hálsi, skammt frá Sporði, roskinu kvenn-
maður frá Króksstööum í Miðfirði, Anna
að nafni; ætlaði hún í kynnisferð að Yatns-
hól, hafði átt von á fylgd frá Torfastöð-
um og verið bannað af húsbændum henn-
ar að fara einui yfir hálsínn. En svo
brást henni fylgdin og hún lagði ein á
hálsinn; hafði sést til hennar um það leyti,
sem hríðin skall á. Var hún þá búin að
beygja af veginum upp að bæ þeim, er
hún ætlaði að, en hefur svo slegið sér á
veginn aptur og náði ekki bænum. Um
sama leyti varð og kvennmaður úti í Skaga-
firði að sögn“.
Úr Dölum er ritað 10. þ. m.: „Um
kl. 3 e. m. 2. þ. m. gerði á svipstundu
ofsarok og moldhríð. Fé manna hrakti
víða mjög Iangt, jafnvel þótt það væri rétt
við túnið og maður hjá því; það tættist
út úr höndunum á fólki. Sumstaðar fannst
nokkuð fennt dagana á eptir, en sumstað-
ar hrakti það í ár. Allmargt hefur samt
náðst lifandi, að því er eg hef frétt. Þenn-
an dag varð maður úti frá Ljáskógaseli
Laxárdal, en fleiri voru hætt komnir“.
Sama dag varð einnig úti bóndi frá
Háreksstöðum í Norðurárdal, Árui Brands-
son, og í sömu hríðinni annar maður und-
ir Hafnarfjalli, er Þórður hét.
Hafa þá alls farizt 8 manns í liríð
þessari, að því er enn kefur frétzt.
Daga.na 27.—31. október var stórhríð
í Múlasýslum með svo mikilli fann-
komu, að menn þóttust ekki muna þar
eptir jafnmiklum snjó eptir svo fáa daga.
Fennti þá víða fé og fórst það allmargt.
Þá féllu og nokkur snjófióð á Seyðisfirði,
en urðu eigi að tjóni; úr einu þeirra komu
6 kindur lifandi ofan úr fjallinu. (Eptir
bréfi af Seyðisfirði 2. nóv.).
Af Hornströndum er oss ritað 6. nóv.:
„Grasbrestur var liér mikilí næstliðið sum-
ar, taða af túnum hálfu minni en í fyrra,
en nýting góð. í september var votviðra-
samt, en með október brá til blíðviðra
með frosti og kélufalli, en 25. okt. kom
kafaldshríð, er stóð í 3 daga og varð þá
jarðbann fyrir allar skepnur. 16. s. m.
sást liafís fyrir Norðurströndum og hinn
22. var hann nær landfastur. Það var
ísþekja, sem ekki sást út yfir, en nú er
hann horfinn sjónum um stund“.
Fjársala á Austfjörðuin. í bréfi af
Seyðisíirði 2. nóv. er komizt svo að orði
um fjárverzlunina þar eystra í haust: „Að
þessu sinni komu hingað engir útleudir
fjárkaupamenn og varð sauðfjársala því
með daufara móti. Sumir af kaupmönn-
unum hér eystra tóku þó fé á fæti upp í
skuldir og gáfu betur fyrir, en útlit er
fyrir að þeir fái aptur fyrir það á Eng-
landi. Sanðakjöt munu kaupmenn hér og
hafa borgað betur en víðast hvar annar-
staðar, nefnil. 10, 12, 14 og 16 aura pd.,
fyrir gærur gáfu þeir 1 kr. 50 a. — 2 kr.
50 a. og 18 a. fyrir mörpundið.
Pöntunarfélag Fljótsdalshéraðs og Jón
kaupm. Bergsson á Egilsstöðum sendi rúm
4000 sauði með fjárflutningaskipi Zöllners
„Creole“, er fór héðan 17. f. m. Með
skipi þessu var Coghill gamli og leyfðu
félagsmenn honum að lesa úr eptir geð-
þótta hið lélegasta af fénu, er hann sagði,
að ekki svaraði kostnaði að senda utan,
og var flest af því aptur rekið til Héraðs.
„Stamford“ kom og hingað 22. f. m. og
fór aptur um kveldið með full 1600 sauða
frá Sig. kaupm. Johansen; hafði hann og
leyft Cogkill að lesa úr sínum fjárhóp og
lét hann slátra því kér“.
í öðru bréfi er skýrt svo frá, að Sig.
kaupm. Johansen hafi gefið 11—13 kr. 50 a.
fyrir sauði 8—9,50 fyrir geldar ær og
7—9 kr. fyrir veturgamalt.
Aflabrögð hafa verið dágóð á Seyðis-
firði í haust, þá er síld hefur fengizt til
beitu, en aflinn mjög langt sóttur. Síldar-
afii kefur og verið dágóður á Reyðarfirði
og hefur 0. Wathne sent allmikið af síld
til Englands í ís með enskum fiskveiða-
gufuskipum og hefur hún selzt þar vel.
Á ísafjarðardjúpi kefur nú upp á síð-
kastið verið tregt um afla og á Miðfirði
og Hrútafirði er allur afli farinn fyrir
löngu og eins á Steingrímsfirði. Á Eyja-
firði hefur aptur á móti verið ágætur
þorskafli og síldarafli ákaflega mikill í
lagnet.
Ameríkuferðir. (Eptir bréfi úr Fljóts-
dalshéraði 2. nóv.): „Óvenjulega lítið er
rætt um Ameríkuferðir í jafnstirðu árferði.
Peningafæð mun valda því, enda er hún
mikil næsta. Yesturfara-„agent“ hefur
verið hér á ferðinni, en lítið hefur verið
hlustað á þann ferðalang“.
Það er mjög leiðinlegt — eins og Fjallk
virðist vera að barma sér yfir — að „agent-
unum“ skuli ganga svona meinilla að
„eyða“ landið.
Nýtt blaðfyrirtæbi. Samkvæmt því,
sem auglýst er í „Norðurljósinu“ 22. f. m.,
hefur Hjálmar Sigurðsson realstúdent í
Reykjavík keypt eignar- og útgáfurétt að
því blaði af Friðbirni Steinssyni bóksala