Þjóðólfur - 09.02.1893, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 09.02.1893, Blaðsíða 1
Árg. (60 arliir) kOBtar 4kr. Erlendis 5 kr. — Borelat fyrir 15. jrlH. ÐOLFUR Uppsögn,bundin við áramót ógild nema komi til útgef- anda fyrir 1. október. XLV. árg. Reykjayík, fimmtudaginn 9. fefirúar 1893. Nr. 6. Verzlunarmálefni. Hugvekja frá alþýðumanni. IV. Hinn álitlegasti liður í verzlun vorri eru pöntunarfélögin. Tilvera félaga þess- ara er að þakka vaxandi menningu og sjálfstæðis hjá þjóðinni- Aukin þekking og lestur nytsamra bóka glæða andlegan þroska, skerpa hngsunarháttinn og stækka sjóndeildarhring manna. Þegar hugurinn kemst út úr hinni dimmu vanþekkingar- huldu, er grúfir yfir fáfræðingunum, og heldur þeim í sama farinu, þá fer hann að litast um eptir óþekktum gæðum. Nokkr- ir framkvæmdarsamir hugsandi menn sneru áhuga og umbótafýsn sinni að verzlun- inni. Þeir sáu, að hér var mikið að starfa, hér þurfti lagfæringar við. Þeir sáu, að vér þurftum að hætta, að láta eina þjóð — jafnvel einstaka menn — skammta oss úr hnefa allar útlendar nauðsynjar, með því verði, er hún ákvað, eins og skrælingjar eða Grænlendingar verða að þola enn í dag. Þeir sáu, að fráleitt var, að hafa eptir langt og strangt stríð þegið alfrjálsa verzlun, þetta hnoss, er öllum siðuðum þjóðum ýtir úr niðurlægingar ástandi á menningar og sjálfstæðis stig, sé vel á haldið. Þetta sáu þeir, að nota átti; þeir vildu eigi lengur sitja auðum höndum, og því risu upp, fyrir ötula framgöngu ein- stakra manna, hin svonefndu pöntunarfé- lög í nokkrnm stöðum á landinu. Aðaltilgangur félaga þessara var og er sá, að fá vörur frá útlöndum í stórkaup- um með góðu verði, selja þær ódýrar en kaupmenn, draga verzlunararðinn inn í landið og verzla skuldlaust. Að sumu leyti hefur þetta heppnazt, þ. e. að félögin hafa mikið bætt verð á aðfluttum vörum, bæði œeö þVí; að selja með betra verði en kaupmenn, og einkum óbeinlínis með því að kaupmenn hafa sett niður vörur sín- ar, og selja nú með miklu betra verði, en þeir gerðu. Pöntunarfélögin hafa graf- ið um sig, og eru nú dreifð um land allt, alstaðar þörf og vel metin, þó misjafn sje áhuginn og einingin í þeim. Þau eiga, eins og flestar nýjungar, við marga erfiðleika að stríða, einna verst er þó, að margir rosknir efnabændur sneiða hjá þeim, sleikjandi úr gömlu kjötkötlum Dana og umboðsmanna þeirra, segjandi: „Eg sé engan hag við að vera í pöntun- inni, hún býður mér eigi betri kosti en kaupmaðurinn minn“. Það lítur út fyrir, að þessir menn geti ekki skilið við þetta gamla form, þennan gamla vana, þessar dönsku fettur og þá mannást(I), er kanp- menn sýna þeim. Þrátt fyrir það, að þeir hafa að minnsta kosti eins gott og opt betra upp úr því, að skipta við pant- anir, auk þess, sem þeir verða 'að játa, að „prísarnir“ hjá kaupmönnum eru beint pöntunum að þakka. Vér verðum að kannast við það, að fyrsta skilyrði alls verulegs félagsskapar er, að allir beztu kraptar, sem fáanlegir eru, séu samverkandi og hlynni að fram- förunum; eyðing er vís, ef margir ganga úr. Sem betur fer er þetta að lagast, og eru flestir yngri menn hlynntir innlendum verzlunarsamtökum; en misjafnar eru skoð- anir manna á fyrirkomulaginu, enda er það atriði, sem nauðsynlegt er að róta upp í og lagfæra. Pöntunarfélög vor skipta mest við hr. L. Zöllner í Nevcastle; hann sendir vörur tii félaga viðsvegar á landinu, og þau borga þær mestmegnis með ull og sauðum. Þótt félögin í fyrstu ásettu sér að verzla skuldlaus, eða að minnsta kosti borga að fullu skuldir sínar að haustinu, þá hefur þetta gengið öðruvisi í reyndinni. Flest félögin munu nú skulda herra Z. stórfé. Þetta er mjög óheppilegt, því af því leið- ir, að þau hafa dýrari vörur að bjóða landsmönnum en ella, og geta því síður keppt við kaupmenn. En þetta er ekki hið versta; hitt er verra, að þessi aðferð bind- ur félögin við einn viðskiptamann, svo að þau eru stirð í öllum hreyfingum, og eiga óhægt með að leita til annara, ef að skipti þessa manns svara eigi þörfum þeirra. Lánardrottni félaganna er eigi eins vand- gert við þau, sem bundin eru á skulda- klafa hans, eins og hin — ef nokkur eru — sem verzla skuldlaus og óháð. Eigi er ólíklegt, að þetta sé að nokkru leyti orsök þess, að Z. sendir vörur til margra félaga með sama skipi, að eins lít- inn slatta til hvers. Þetta er mjög óhent- ugt fyrir félögin, ekki sízt, þá er vöruruar eru sendar með póstskipum, sem þurfa að fylgja áætlun og vera fljót í förum. Þetta verður kostnaðarauki fyrir félögin, því opt er óþægilegt að fá menn í vinnu 2—4 kl.stundir; þeir eru ekki viðlátnir, og ef þeir fást, þá heimta þeir tiltölulega hærra kaup, en þegar þeir fá vinnu allan dag- inn. Bezt er, að fá vörurnar upp hér um bil tvisvar á ári. Ekki gengur sauðaflutningurinn betur. Sama skipið flytur t.. d. fé bæði frá Norður- og Austurlandi. Setjum svo, að það flytji fyrst frá Norðurlandi, og ætli svo að taka fjárfarm á Austurlandi. Af því leiðir, að Austfirðingar koma eigi fé sinu út fyr en undir vetur. Það er rekið á viðkomustaði skipsins, um þær mundir, sem skipsins er von. Skipinu dvelst opt komau, og féð verður að geyma 6—10 daga í misjöfnu veðri og í illum högum. Við þetta horast féð áður en það fer á skip; því hrakar svo enn meir á ferðinni út, svo það verð- ur illa útlítandi, er það kemur til Eng- lands. Þetta er að sumu leyti orsök til óálits þess, er islenzkt fé virðist komið í á Euglandi. Allmikill kostnaður er við að geyma fjárins meðan á biðinni stendur, og lianu leggst á félaglð. Verst er þó, að skipið kemur stundum fyr en áætlað er. Pöntunarféð er þá upp um allar sveitir. Þá er þotið upp til handa og fóta, boð- berar sendir í allar áttir, til að reka menn, sem allra-fyrst, með féð til skips. Bændur mega þjóta af stað, hvernig sem á stendur, og hvernig sem færð er. Þetta er ósnoturt fyrirkomulag. Þegar við þetta bætist, að full líkindi eru til, að kostnað- inum, sem stafar af skipsbiðinni, verði dembt á félagið, þá fer þetta að verða lítt viðunanlegt. Sanngjarut sýnist, að fé- lagið borgi ekki skipsleigu um þá daga, er skipið kemur fyrir hinn ákveðna tíma. Svefti og draumar. (Frli.J. Áhrif vanans á svefninn eru mikil og markverð. Séu menn í æsku vandir á að fara snemma á fætur, verður það að fastri venju síðarmeir og það svo, að menn vakna einmitt í sama mund, hvort lieldur menn

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.