Þjóðólfur - 03.05.1893, Síða 3

Þjóðólfur - 03.05.1893, Síða 3
83 Guðjón Jónsson uppeldissonur rnerkis- bóndans Stefáns Pálssonar á Stóru-Vatns- leysu andaðist 24. apríl, 22 ára gamall, eptir 7 vikna þunga legu. Hann var son* ur Jóns bónda Erlendssonar, er síðast bjó á Grímsstöðum við Keykjavík, og konu hans Guðnýjar ívarsdóttur. Hafði hann lært nokkra hríð á gagnfræðaskólanum í Flensborg og næstliðinn vetur gekk hann á verzlunarskólann hér í bænum. Hann var hinn efnilegasti piltur til náms, háttprúður og glaðlyndur í umgengni og yflrhöfuð hezta mannsefni. Þess má geta, að hann hafði fyrir nokkru keypt sér lífsábyrgð upp á 2000 kr. Herra ritstjóri! Gjörið svo vel að Ijá línum þeim, er fara hér á eptir, rúm í blaði yðar: í óþokkagrein um Valtý háskólakenn- ara G-uðmundsson í síðasta blaði Sunnan- fara (H, 11.) hefur dr. Jón Þorkelsson dróttað því að mér, að ég hafi átt þátt í „illgirnisgreinu, er kom út í „Dagbladet“ um háskólamálið íslenzka og ábyrgðar- mann Sunnanfara, og að ég hafi reynt til að klína því á aðra, „sínu sinni hvern nafngreindan mann“, og að „Dagbladet“ hafi úthýst mér sem ósannindamanni eptir | nokkurt orðavask; enn fremur að ég haíi hótað að drepa stúdentafélagið íslenzka með ísiendingafélagi. o. s. frv. Þetta eru lielber ósannindi allt saman, og skal þess getið, að dr. Jón vissí það vel áður en hann reit grein sína, því bæði hafði því áður verið lýst yfir í „Dagbladet11, að grein sú, er hér ræðir um, vœri ekki eptir neinn Islending, og svo hafði ég sagt honum áður, er grein þessi bar á góma milli okkar, að ég ætti alls engan þátt í henni. En homo! Khöfn 21. april 1893 Jóli. Jóhannesson cand. jur. Þýzkur ferðamannahópur óskar að fá fylgdarmann frá Eeykjavík tij Heklu og Geysis og þaðan til Norður- og Vesturlandsins í júlí og ágúst. Tilboð (áþýzku) sendist sem allra fyrst bréflega til H. Bandlow kennara. 142 Tribsees (Pommern). Blómsturpottar af öllum stærðuru fást í verzlun 143 Sturlu Jónssonar. Smáar blikkdósir kaupir 144 Bafn Sigurðsson. Frímerki! Frímerki! tindirskrifaður óskar að kaupa öll brúk- uð íslenzk frímerki, 1000—50,000 í einu, fyrir hæsta verð. Seudið til reynsiu sýnis- horn í ábyrgðarbréfi eða böggli. Borgun út í hönd við móttöku, anuaðhvort í pen- ingum eða öðru, eptir því sem óskað verður Ludwig Zissler frímerkjakaupmaður 65 St. Martins Lane, London W. C. 145 England. Allskonar kramvara nýkomin í 146 verzlun Sturlu Jónssonar. Frímerki og bréfspjöld frá íslandi og öðrum löndum verða keypt og tekin í skiptum. Sendist með verðlista til E. K r a f a c k frímerkjasala. Berlín, 0. Blumenstr. 72. Danskar kartöflur nýkomnar með Laura í verzlun 148 Sturlu Jónssonar. HNTýprentaður leiðarvísir til lífsábyrgð- ar fæst nú ókeypis hjá ritstjórunum og hjá Dr. Jónassen, sem einnig gefur ailar nauðsynlegar upplýsingar um lífsábyrgð.a49 59 þeir nú út, og svipuðust um eptir henni, en sáu hana hvergi. Gengu þeir út til fjárhúsanna, ef svo ólíklega skyldi til vilja, að hún hefði gengið þangað, og farið að raka dreifarstrá í kringum nýþakta heyið. En þ'ar fundu þeir ekkert nema siðhempu eina allmikla, sem þar lá á túninu rétt hjá húsunum. Elgi þekktu þeir hempuna, en tóku hana og geymdu. Þann dag voru göngur þar á dölunum og í Úlfár- heiði; fór Þorsteinn í göngurnar, en Þórarinn dittaði að heyjum um daginn, gerði fyrir stafua, hlóð neðanundir og fleira. Þegar gangnamenn komu að um kveldið, var Guðrún enn ókomin. Fór þá Þorsteinn yfir í Tjarna- rétt, og spurði um Guðrúnu, og kunni enginn neitt um hana að segja. Þar lýsti hann og síðhempunni, og kannaðist enginn við, en einhverjum þótti hún þó lik aiðhempu Þorláks í Hólakoti. Datt það svo niður um kveldið. — Snemma á sunnudagsmorguninn fóru þeir piltar ofan í mýri og út bakka að fást við kindur; hitti Þor- steinn þá Jón bónda Pálsson í Leyningi, og fóru þeir vestur eptir bakkanum með ánni. „Hvaða rækals flyksa er þarna i ánni, Þorsteinn, setl’ það sé rekin kiud — eða hvað. er það?“ „Eg veit ekki — ekki er það eiginlega líkt kind“, svaraði Þorsteinn og bar hönd fyrir auga, „eg lield 49 „Já, aýndu mér það, ef þú getur“. Jón hneppti nú frá sér treyju sinni, og tók bréf upp úr vasa síuum; var bréfið ritað á gráhvítan pappír og stórt innsigli fyrir; utanáskriptin var til Þorláks Benediktssonar í Grenivík. Guðbrandur hripsaði þegar bréfið af Jóni, og skoð- aði það vandlega; síðan hvessti hann augun á Jón og sagði: „En veiztu nú nokkuð, flónið þitt, þetta gæti vel verið banabréfið þitt, lagsmaður — látum okkur uú sjá, það skyldi nú ekki vera að það mætti sjá það“. Hann sneri nú bréfinu við, þannig, að hann gerði fyrst úr því hólk, og náði svo út öðrum endanum með talsverðri fyrirhöfn; hann glotti bæði illilega og háðu- lega, og fór svo að reyna að ná einnig út hiuum end- anum. En það gat hann ekki, af því að þar var klest lakki innan í bréfið. Svo fór hann að horfa og horfa inn í bréfið við grútarlampann. En það sem honum tókst að lesa, var að eins þetta: .....„svo komið, að eg varð að sjá fyrir skepnu, við hvert atvik sá, sem með þetta bréf fer, var nær- staddur, og þar í hluttakandi, hvar fyrir eg bið þig nú, bróðir, að sjá svo fyrir honum, að hann ekki verði sér né mér að klaudri með því í ótíma, ef“........... Meira varð ekki lesið.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.