Þjóðólfur - 03.05.1893, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 03.05.1893, Blaðsíða 4
84 Þingmálafundur. Þriðjudaginn hinn 20. júní næstkom- andi höldum við undirskrifaðir að öllu for- fallalausu fund með kjósendum okkar á Blönduósi, til að ræða um alþingismál. — Fundurinn byrjar kl. 12 á hádegi. Björn Sigfússon. Þorleifur Jónsson. W Ódýrt far til Austfjarða. Gufuskipið ,.Ernst“, skipstjóri J. Rand- ulff, kemur hingað til Reykjavíkur 12. júní næstkomandi, ef ófyrirsjáanleg for- fóll hindra ekki, og fer héðan aptur eptir stutta dvöl sunnan um land til Austfjarða. Með því geta þeir fengið far, er komast vilja til Austurlandsins, og kostar farið 15 kr. fyrir mann. Þeir, er sæta viija þessu tækifæri, snúi sér til mín, og er mig jafn- an að hitta í bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar. Það skal fram tekið, að „Ernst“ er ágætt farþegaskip, allt yfir- Úyggft. Rej’kjavík 1. maí 1893. Ól. Bunólfsson. 150 (xóð zinklivíta fæst i verzlun 151 Sturlu Jönssonar. Skófatnaður ýmisk. nýkominn í verzlun 152 Sturlu Jónssonar. Til Vesturfara Allanlínan flytur vesturfara með dönsku gufuskipunum „Laura“ og „Thyra“ í júní- mánuði eins og auglýst var í 18. tölubl. „Þjóðólfs“. 14. f. m. Reykjavík 2. maí 1893 153 Sigfús Eymuntlsson. Reikningur yfir tekjur og gjöld sparisjóðsins í Ólafsvík frá stofnun hans, l.marz 1892, til 1. jan.1893 Tekjur: kr. au. 1. Innlög í sparisjóðinn: a, ábyrgðarmanna, sem ekki greiðast vextir af . 333,38 b, annara samlagsmanna 225,83 Yextir þar af lagðir við höfuðstól . ._ 2,16 561,37 1. Borguð sjálfskuldarábyrgðarlán 45,00 3. Yextir af lánum................ 23,72 4. Andvirði 22 viðskiptabóka á 0,40 8,80 AIIs 638,89 Gjöld: kr. au. 1. Lánað út á reikningstímabilinu: a, gegn veði í fasteign 35,00 b, gegn sjálfsk.ábyrgð 502,00 c, gegn veði i lausafé 10,00 547 00 Flyt 547,00 Flutt 547,00 2. Kostnaður við stofnun sjóðsins 75,45 3. Vextir af sparisjóðsinnlögum . 2,16 4. í sjóði 1. janúar 1893 . . . . 14,28 Alls 638,89 Ólafsvík 2. marz 1893. í stjórn sjóðsins: Hélgi Árnason. Jón Jónsson. Ágúst Þórarinsson. Reikning þennan höfum við endurskoðað og ekkert fundið við hann að athuga. Einar Markússon. Gísli Ól. Pétursson. Nýkomið með „Laura“ í ensku verzlunina: Epli — Apelsínur — Brjóstsykur Hollenzkur ostur — Margarine—Reyktóbak Vasaúr — Úrkeðjur — Ljáblöð Matvörur — Margs konar álnavörur og aðrar vörur, sem verða auglýstar síðar. í ensku verzluninni seljast vörurnar einungis fyrir borgun út í hönd. Þetta tölublað Þjóðólfs kemur 2 dögum fyr en venjulega, svo að það geti komizt með pöstum og skipinu vestur. Eigandi og abyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Félag sprentsmiðj an. 50 „Jú, átti eg ekki von á því“, sagði Guðbrandur, að svona væri; hann er bara að biðja Láka bróður sinn að sálga þér, svo þú segir ekki eptir sér — það er svo sem auðséð. Skilurðu það ekki, flónið þitt?“ Jóni brá auðsjáanlega við, ou sagði ekkert. Hann fann það, þó heimskur væri, að eitthvað var ekki með feldu i þessu öllu saman; en liann gat ekki almennilega trúað því, að Magnús hefði búið sér banaráð, eins og hann liafði reynzt honum vel, séð um hann með konu og tveim börnum, og heldur haft hann í æðri vegum en hina vinnumennina. Hann var í fullkomlega and- legu ráðaleysi. „Það er nú.bezt fyrir þig, Jónki, að snúa nú heim aptur til húsbónda þíns, og segja honum að eg hafi tek- ið af þér bréfið, og skuli koma því, af því að eg fari næstu daga út á Strönd. En vel máttu segja honum, ef þú villt, að eg hafi tekið það af þér með svikum eða valdi — mér er sama um það“. Svo stakk Guðbrandur bréfinu í vasa sinn. Jón var þar um nóttina, og fór timanlega af stað daginn eptir, og hélt heimleiðis. Kom hann heim á fimmtudagskveld seint, 0g lét lítið á sér bera. Daginn eptir hitti hann Magnús; brá húsbónda hans eigi lítið við að sjá hann. Sagði Jón nú alla sína ferða- 51 sögu, og svo hvað um bréfið hefði orðið, en sleppti því, að Guðbrandur hefði snúið því um og lesið í því. „Allur djöfullinn kemur fyrir og seinast förum við báðir líklega til helvítis, og allt fyrir asnaskapinn úr þér Jón“, sagði Magnús og var þungt, „fyrst með síð- hempuna og svo með bréfið — en það verður nú að vera. . . . . En í fáar hendur hefði eg viljað siður það hefði komizt en Guðbrands.......Hvernig lízt þér á Jón, ef þú missir nú hausinn fyrir allt saman?“ Hann glotti við—. „En bara að vera nógu duglegur að þræta!“... Svo fór haun inn. En af öllu þessu fór Jón að fá nóg; hann var ekki maður fyrir miklu. — En Guðbrandur reið næsta dag með bréfið út að Möðruvallaklaustri til Lauritz Schevings, sem þá var sýslumaður í Eyjafirði, og sagði honum tíðindi þau, er þá voru sögð í firðinum. VII. Nú víkur sögunni að Úlfá. Þegar þeir Þorsteinn og Þórarinn komu á fætur á Iaugardagsmorgunlnn, var bærinn opinn upp á gátt, Guðrún horfin úr bóli sínu og voru rúmfötin öll í bendu á bálkinum, þar sem þau voru vön að vera. Gengu

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.