Þjóðólfur - 28.07.1893, Side 4
144
hestsins, sem er eitt hið jiægasta, duglegasta, nauð-
synlegasta og skemmtilegasta húsdýr yort.
Reykjavík 20. júlí 1893.
Gísli Þorbjarnarson.
MANNALÁT.
Bjarni Ghitimundsson, almennt nefndur „ættfræð-
ingur“, eða „ættatölu-Bjarni“ er látinn (2ð. f. m.).
Hann var síðustu æfiár sín á sveit í Stokkseyrar-
hreppi i Árnessýslu. Þar var hann fæddur 1829.
Hann var snauður alla æfi, því að fræðigrein sú,
ættvísin, er hann helgaði alla krapta sína og hafði
svo mikla unun af, gaf honum steina fyrir brauð.
Guðmundur faðir hans (f 1858) bjð á Starkarhús-
um við Stokkseyri og var Jðnsson frá Ásgauts-
stöðum Jónssonar á Kekki Þórðlfssonar lögréttu-
manns í Ossabæ Guðmundssonar á Gerðum í Plða
Guðmundssonar á Velli Þðrðlfssonar á Sandlæk
Guðmundssonar á Hofi á Rangárvöllum Eyjðlfsson-
ar, en sá Eyjðlfur teija sumir að væri Eyjðlfur
Einarsson í Dal maður Helgu Jðnsdðttur bÍBkups
Arasonar, en naumast hyggjum vér þá ættfærslu
rétta. Móðir Bjarna ættfræðiugs var Málmfríður
Loptsdðttir frá Rauðárhól Arnðrssonar. Bjarni
dvaldi lengi á Suðurnesjum (einkum í Hvalsnessðkn)
og kvæntist þar Jðrunni Indriðadóttur, er lézt 6.
febr. 1877 og flutti hann þá nokkru síðar til Reykja-
vikur og dvaldi hér nokkur ár örfátækur, unz hann
fluttist austur á fæðingarhrepp sinn. Hann hafði
alls engrar meuntunar notið í æsku, en las mikið
og ritaði. Ættatölusafn hans kvað vera allstðrt
og er eflaust margt á því að græða, einkum að þvi
er snertir ættir manna á þessari öld, en þá er lengra
dregur upp, hætti honum opt við að geta um of
í oyðurnar, og verður því að nota safn hans með
hinni mestu varkárni. Það er aðalgallinn, en hitt
er þð meira vert, hve mikinn og gððan grundvöll
hann hefur víða lagt undir síðari rannsóknir um
þetta efui, ef svo færi, að ættfræði yrði einhvern-
tíma skipað í þann sess, er hún ætti að hafa, og
meiri rækt lögð við hana en verið hefur. Munum
vér einhverntíma siðar minnast rækilega á þetta
efui. Það má með sanni segja, að Bjarni sál. ætt-
fræðingur var einn þeirra manna, sem vert er að
minnast með viðurkenningu sakir binnar miklu
elju, hins mikla áhuga, er hann sýndi í æfistarfi
sínu, þrátt fyrir ðblíð lífskjör og ýmiskonar and-
streymi. ___
Hinn 3. febrúar þ. á. lézt að Öndverðarnesi í
Grímsnesi merkisbðndinn Þorsteinn Guðmundsson.
Hann var fæddur að Efstadal í Laugardal 24. inaí
1824, og bjó þar faðir bans Guðmundur, er almennt
var talinn son séra Guðin. Guðmundssonar „prest-
lausa“. Ólst hann upp hjá foreldrum sínum unz
hann kvæntist 1862 Guðrúnu EinarsdótturfráBjarna-
stöðum á Álptanesi og fluttist með henni að Mið-
dal í sömu sveit og byrjaði þar búskap á parti
nokkrum úr jörðinni. Bjuggu þau hjón þar við
Iítil efni þangað til um vorið 18ö7, að þau fluttust
að Öndverðarnesi; bjuggu þan þar fyrst á liálfri
þeirri jörð og síðan allri. Þorsteinn sál. þjáðist
síðari hluta æfinnar af vanheilsu mikilli; lá opt
mánuðuin saman rúinfaBtur og opt þungt haldinn,
og það því meir sem á leið; þrátt fyrir það grædd-
ist honum þó talsvert fé hin síðari búskaparár, og
það svo, að óefað hefur mátt telja þetta heimili
eitt með hinum efnuðustu nú orðið, þar í sveitinni,
enda var og Þorsteinn sál. ráðdeildar- og útsjónar-
maður hinn mesti, þegar hann naut sín, og konan
honum samhent í öllu.
Þeim hjðnum varð 6 barna auðið, dðu 5 þeirra
á unga aldri; 2 að eins nokkuð stálpuð. Einn son-
ur þeirra hjóna, sem náði þroskaaldri, andaðist
rúmlega þrítugur eptir langar og þungar þjáning-
ar. Þessi barnamissir°mun án efa hafa aukið ekki
svo litlu á þjáningar Þorst. sál., þvi fáa hef eg
þekkt jafnmikla barnavini og hann var. Þorst. sál.
var sérlega hjálpfús við alla þá, er fátækir voru
og á hans fund leituðu; og þess er eg fulltrúa,
að fjölda raargir fátæklingar, ekki að eins þar
úr sveitinni, heldur og úr fjarlægum héruðum,
minnist sjúka mannsins með þakklæti fyrir margar
þáðar velgerðir þegar þeiin lá mest á. Þeir liinir
mörgu af öllum stéttnm, sem komu á heimili hins
dána, munu og minnast hans með þakklæti fyrir
viðtökurnar, því ef nokkursstaðaðar er til íslenzk
gestrisni, þá var hún þar. P. G.
Hinn 8. jan. síðastl. andaðist að heimili sínu,
Víðidalstungu í Húnavatnssýslu, merkiskonan Odd-
ný Ólafsdóttir. Hún var fædd 5. jan. 1811. For-
eldrar hennar voru Ólaíur bóndi Björnsson á Beina-
keldu fróðleiks og gáfumaður mikill, og kona hans
Gróa Ólafsdóttir. Árið 1835 giptist Oddný sál.
Ólafi syni Jóns Péturssonar prðfasts og prests á
Höskuldsstöðum, og fluttu þau hjón eptir nokkur
búskaparár að Sveinstöðum í Sveinstaðahreppi.
Maður Oddnýjar, Ólafur sál. Jónsson dannebrogs-
maður, var hinn merkasti maður eins og hann átti
kyn til, atorkumaður og atkvæðamikill í héraði,
en almæli var, að Oddný sál. væri ekki síður en
hann að sínu leyti prýði stéttar sinuar. Hún var
Þetta ættu menn að lesa!
Eg vil láta hina heiðruðu þingmenn og
aðra ferðamenn, er koma til Beykjavíkur
í suiuar, vita, að kvergi fá þeir iafngóðan
skófatnað og ódýran eptir gæðum, sem kjá
undirskrifuðum.
320 Itaf'n Sigurðsson.
Kýr til sölu. Guðmundur Guðmunds-
son á Apavatni vill selja unga, miðsvetrar-
bæra kú á næstkomándi kausti, fyrir pen-
inga út í bönd. 321
einkar skynsöm kona og vel að sér, geðprúð og
hógvær. Hinu andlega atgjörvi hennar var og
Bameinað mikið þrek, heimilisstjðrnsemi og vinnu-
dugur, svo að hún var eins virt af öllum, er þekktu
hana, sem ein hin merkasta dugnaðarkona í bænda-
stétt, eins og hún var elskuð af eiginmanni og
börnum. Sérstakra vinsælda naut hún meðal ná-
granna og sveitunga fyrir alúð sína, góðvild og
hjálpsemi, og munu þeir lengi geyma minningu
hennar.
Hjðnabanils- og búskaparár þeirra hjóna voru alls
38. Af 14 börnum þeirra dóu 4 í æsku, en 10
komust á fullorðins ár, öll mjög efnileg og mann-
vænleg; lifa nú 8 þeirra: 4 synir og 4 dætur, 3 af
þeim eru í Vesturheimi, en 5 hér á landi, búsett
og í röð virtra og velmetinna manna. Eitt þeirra
er Jón sýslunefndarmaður og breppstjóri á Sveins-
stöðum. N.
Hinn 12. maí andaðist í Ólafsvík Ghiðmundur
útvegsbóndi Jónsson, 41 árs. Hann var þrekmað-
ur mesti að burðum og kröptum. en bliðmenni
meBta að skapferli. Hafa „Jöklarar“ við fráfall
hans að sakna eins síns göfugasta og nýtasta fé-
lagsmanns. Hann lét eptir sig konu og þrjá unga
syni. 8-\-10
26. júní dó úr krabbameini Jóhanna Jólianns-
dðttir, kona Jóns Árnasonar borgara í Ólafsvík, 54
ára; hafði tekið út ákafar þjáningar tvö síðustu æflár
sín. Húu var dugnaðarkona mikil, gáfuð vel og
kappsöm í öllu, sem hún gekk að. 8-\-10
Kaupenduni Þjóðólfs í Ameríku,
sem standa í skuld við blaðið frá fyrra
ári, verður ekki sent fylgiritið (1. hepti
sögunnar af Puríði formanni og Kambs-
ránsmönnum) fyr en þeir hafa að fullu
borgað skuld sína, bæði 44. og 45. árg.
blaðsins, og eru þeir beðnir að gera það
sem allra fyrst, því að öðrum kosti neyð-
ist útgef. til að stryka þá út af kaupenda-
skrá blaðsins frá næstkomandi nýári.
Eigandi og ábyrgðarmaftur:
Hannes Þorstelnsson, carA. theol.
FélagsprentBiniöjan
Electropletvarer.
Storste Udvalg af alleslags Brugs- og Luxusgenstande, passende til Brude- og Festgaver
samt Udstyr, forefindes hos
C. C. DREWSEN
34, 0stergade 34, Kjöbenhavn.
Moderneste Faeon. — Billigste Priser. — Garanteret Holdharlied indtil 20 Aar.
Reparationer og Opforsolvning af al Slags afslidt Electroplet udföres hurtigt, solidt og billigt,
og bliver i Regelen som nyt.
Illustreret Priseourant gratis og franco. Ordres forsendes pr. Post.
Mine prima Nysolvs forsolvede Skeer og Gafler i dansk Solvfaeon anbefales til nedenstaaende Priser:
Spiseskeer eller Gafler pr. Dus. V. 12 Kr. I 16 Kr. II 20 Kr. III 24 Kr. IV 28 Kr.
Mellemgafler — 10 — 14 — 18 — 22 — 26 —
Dessertskeer eller Gafler — 9 — 12 — 15 — 18 — 21 —
Theeskeer, store — 6 — 8 — 10 — 12 — 14 —
Do. mindre — 5 — 7 - 8,50 — 10 — 12 —
Suppeskeer pr. Stk. 4 — 5 — 6 — 7 — 8 —
For Forsolvningen garanteres ved ordentlig Behandling til dagligt Brug, i private Huusholdninger, i 10 Aar 15 Aar 20 Aar
Ved Indkjob af mindst Vs Dousin i de tre bedste Kvaliteter paasættes 2 Bogstaver frit.