Þjóðólfur - 19.01.1894, Page 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr.
Erlendis 5 kr. — Borgist
fyrir 15. júlí.
PJÓÐÓLFUR.
Uppsögn, bundin við áramót,
ógild nema komi til ttgefanda
fyrir 1. október.
XLYI. árg. Reykjayík, föstudaginn 19. janúar 1894. Nr. 4.
Erfidrykkjur.
í 47. og 48. tölubl. Þjóðólfs f. á., er
grein eptir herra Sig. Sigurðsson „um brúð-
kaupsveizlur11. Eg er að því leyti ekki
samdóma hinum háttvirta höfundi, að eg
álít það ekki þjóðarnauðsyn, að leggja nið-
ur brúðkaupsveizlurnar. Eins og hinn
háttv. höf. kannast við, er brúðkaupsdag-
urinn gleði- og vonardagur. Það er því
í alla staði eðlilegt, að hlutaðeigendur vilji
gera sér þennan dag sérstaklega hátíðleg-
an eptir efnum og ástæðum. — í því er
eg aptur samdóma hinum háttv. höf., að
það eigi alls ekki við, að fátæk brúðhjón
hleypi sér í skuldir til þess „að gera
veizlu“. Með öðrum orðum: eg get ekki
betur séð, en að það færi einkar vel á því,
að þeir sem geta, geri sér brúðkaupsdag-
inn að gleði- og skemmtidegi með vinurn
sínum og vandamönnum. En hinir, sem
ekki hafa efni til þess, virðast siðferðilega
skyldir til, að neita sér um þessa nautn.
— En það eru önnur veizluhöld hjá okk-
ur, sem fremur virtist þörf á að leggja
niður, en brúðkaupsveizlurnar og það eru
erfidrykkjurnar. Eg get ekki séð neitt
sem mælir þeim bót eptir því, sem þær
líta og hafa litið út. Greptrunardagurinn
kemur hálfundarlega fyrir sjóuir. Við söfn-
uinst saman hryggvir í huga, til þess að
heiðra útför hins framliðna, hljóðir hlustum
vér á orð þau, sem töluð eru yfir líkbör-
unum, hljóðir fylgjum vér honum til graf-
ar, hljóðir sitjum vér í guðshúsi og mirm-
umst hins látna, hljóðir nemum vér staðar
við gröíina, og hugsum um hverfleika lífs-
ins. Svo er hljóðleikinn búinn, að minnsta
kosti fyrir þeim, sem ekki hafa verið ná-
tengdir hinum látna í lífinu. Á leiðinni
frá kirkjustaðnum að heimili hins látna,
spretta boðsmennirnir úr spori og reyna
gæðingana, eins og ekkert hefði í skorizt,
og þegar þangað er komið setjast menn
að dýrindisveizlu með glaumi og gleði —
þar skortir ekkert á: matur, kaöi og súkku-
laði, brennivín og púns. Það eru vanalega,
einkum eptir efnamenn, hinar íburðarmestu
veizlur. Unga fólkið flokkar sig saman, til
þess að skemmta sér, einkum með söng.
Sjaldan er dansað. — Og eins og að lík-
indum lætur, er alls eigi dæmalaust, að
áflog og ryskingar verði. Hvernig sem á:
er litið, er ómögulegt annað að segja, en
að slíkar erfidrykkjur séu þjóðarhneisa,
lýsi skort á velsæmistilfinningum hjá þjóð-
inni. Dauðinn er í sjálfu sér alvarlegur,
og getur aldrei annað, en geflð oss tilefni
til alvöru. Og auk þess komum vér ein-
mitt í þeim tilgangi saman við jarðarfarir
framliðinna, að láta í Ijósi söknuð vorn
við burtför hins látna, og taka þátt í sorg
þeirra, sem honum voru nákomnastir. En
hvað sýnast erfidrykkjurnar benda á? Ein-
mitt á hið gagnstæða, að vér gleðjum oss
yfir því, að þessi sé horfinn úr flokki sam-
ferðamannanna. Það lítur eins út og að
erfingjar hins framliðna vilji nú einu sinni
„gera sér glaðan dag“, fyrst hann eða
hún sé hrokkin upp af, og þeir megi nú
hér eptir sukka í eigunum eptir vild sinni.
Eg fæ því ekki betur skilið, en það væri
mikil framför í menningar-áttina, að vér
hættum alveg við erfidrykkjurnar, hættum
að bjóða í „begravelse“ eins og það er
kallað. Hitt þykir mér mikið vel við eig-
andi, eins og stöku menn hafa gert nú á
síðari árum, að tilkynna vinum og vanda-
mönuum hins framliðna lát hans og hinn
ákveðna greptrunardag, svo að þeir geti
sjálfir ráðið því, hvort þeim finnst sér skylt
eða eigi, að vera viðstaddir jarðarför-
ina. En vegna þess, að gera má ráð fyr-
ir til sveita, að menn komi nokkuð langt
að, sýnist nauðsynlegt, að veita þeim ein-
hvern beina, og auðvitað húsaskjól, ef svo
stendur á vegalengd eða árstíma. En að
stofna til stórveizlu sýnist í alla staði ó-
sæmilegt.
Góðir landar! leggið því sem allra fyrst
niður átveizlurnar og drykkjuveizlurnar vib
jarðarfarir. Þær eru illa sæmandi og ó-
kristilegar. a_j_^
Flugan hans Þorláks í Fífuhvammi,
Einhver náungi hefur skotið þeirri
flugu að alþingismanninum í Fífuhvammi,
að honum liafi verið send fluga í greinar-
formi í 50. tölubl. Þjóðólfs, f. á. og þing-
maðurinn hefur trúað því að svo væri, og
gleypt þessa imynduðu flugu, og fengið þá
þegar rækals mikla ógleði, og verulegan
vindþembing, eins og berlega kemur í Ijós
í 2. tölubl. ísafoldar 13. þ. m.
Þá er vér rituðum greinina „Fljóthugs-
uð lagasmíð“ hugðum vér ekki, að hún
mundi valda jafnmiklum geig, eins og uú
er raun á orðin og sízt af öllu gat oss
komið til hugar, að þingmaðurinn í Fifu-
hvammi mundi verða svo skelkaður við
hana, eins og hann hefur orðið. Það lítur
svo út, sem hann telji hana hina háskaleg-
ustu sendingu, er honum hafi nokkru sinni
send verið, því að þótt hann harki af sér
og þykist klæddur öruggum hlífum, er
engin vopn festi á, þá skín samt geigur-
inn við greinartetrið í Þjóðólfi út úr hverri
setningu í flugugreininni hans. Þetta er
því undarlegri skelkur, sem þingmaður-
inn var ekki nefndur á nafn í áður um-
getinni grein, og að engu leyti sveigt að
honum persónulega. Þar var að eins blátt
áfram minnzt á málið, að brúargæzlufrum-
varpið hefði verið miður heppilegt og fljót-
hugsað o. s. frv. Af hverju stafar þá all-
ur þessi mikli hvellur, sem bæði ritstjóri
ísafoldar, ýmsir nafnleysingjar í blaði hans
og nú síðast Þorl. í Fífuhvammi hafa gert
út af þessu? Yér sjáum hvergi i Þjóðólfs-
greininni þessa háskalegu flugu, sem farið
hefur ofan í þessa höfðingja og gert þá
hálfærða, en það hlýtur að vera einhver
voðaskepna, þar eð hún hefur valdið öllpm
þessum ærslum. Sjálfur þingmaðurinn hef-
ur ekkert annað ráð tií að verja sig gegn
þessari geigvænlegu sendingu, en að telja
upp, hve mikil gæði Árnesingar hafa öðl-
azt hjá þinginu (náttúrlega fyrir hans til-
stilli!), þar á meðal eigi þeir að fá akbraut
og vegi um alla sýsluna þvert og endi-
langt, þ. e. með öðrum orðum, að þeir
verði svo margra hlunninda aðnjótandi í
samgöngum, að þeir geti vel sætt sig við,
þótt þessu brúargæzlufrumvarpi hafi verið
dembt á þá. Hver hefur talað um það,
að Árnesingar hafi orðið á hakanum í
seinni tíð eða eigi að verða það, að því er
vegabætur snertir? Enginn. En það keniur
alls ekki þessu máli við. Brúargæzlufrum-
varpið er í sjálfu sér jafn-óheppilegt fyrir
það, og hlunnindi vegalaganna Árnesing-
um til handa eru alls ekki Þorl. í Fífu-
hvammi að þakka, heldur leiðir það bein-
línis af eðli þeirra laga i sjálfu sér, að