Þjóðólfur - 02.02.1894, Side 4

Þjóðólfur - 02.02.1894, Side 4
24 stofna háskóla hér og var hann málinu hlynntur. Þorbjörg Sveinsdóttir hélt lang-a ræðu á fundinum og mæltist vel. Að því búnu voru valdar 18 konur hér í bænum, tii að annast um undirbúning hinnar fyrir- huguðu tombóln og á nefnd þessi einnig að sjá um allt, er þessu máli geti til stuðn- ings orðið og fá aðrar konur á landinu til að veita því eptirtekt og taka þátt í þess- um félagsskap. Má eflaust búast við, að þessi hreyfing hér í höfuðstaðnum hafi mikil áhrif málinu til sigurs og verði jafnframt til þess, að karlþjóðin láti eitthvað til sín taka og sitji ekki auðum höndum og hreyf- ingarlaus, þá er kvennþjóðin er farin af stað, því að það væri stór minnkun. Er ekki ólíklegt, að hér og hvar á landinu verði farið að dæmi Reykjavíkurkvennanna og stofnaðar tombólur hinum litla vísi — há- skólasjóðnum — til aukningar. Óveitt prestakall: Olaumbær í Skaga- firði metinn 1653 kr. Uppgjafaprestar tveir eru í brauðinu og fær annar þeirra 453 kr. í eptirlaun af prestakallinu. Póstskipið „Laura“ kom í fyrri nótt- Með því kom Signrður (Andrésson) Fjeld- sted frá Hvitárvöllum, er sigldi með Birni Kristjánssyni i haust, til að sjá um s-uða- sölu ásamt honum fyrir hönd Borgfirðinga, ennfremur Þórarinn Bjarnason frá Utah, og á hann að boða Mormónatrú hér á landi um tvö ár. Frá Yestmannaeyjum komu: Friðrik Gíslason bókbindari, Jes Thomsen verzlunarmaður og einn maður til að leita sér lækninga við augnveiki. Björn Kristjánsson kom ekki að þessu 8inni og dvelur hann í Leith. Mál það, er hann höfðaði gegn umboðsmanni sínum (í Glasgow), eins og getið hefur verið um í blöðunum, var enn ekki kom- ið fyrir rétt, en málsfærslumenn Bjarnar kváðu gefa honum góðar vonir, að hann vinni það. Ankaþingið í sumar á að koma sam- an 1. ágúst. Séra Jón Bjarnason í Winnipeg hefur „resignerað“. Hafði hann talið ísl. lút- erska söfnuðinum ofvaxið að launa tveim- ur prestum, en sjálfur treystist hann ekki til að þjóna eitin, og sagði því af sér prestþjónustu. Ný lög staðfest af konungi auk þeirra, er áður hefur verið getið: 15. Lög um gæzlu og viðhald á brúm yfir Ölfusá og Þjórsá. 16. Lög um afnám athugasemdar um lög- dagslegging í stefnum. 17. Lög um breyting á 1. gr. laga 27. febr. 1880 um skipun prestakalla (ár- gjaldslækkun á Stað á Reykjanesi). 18. Viðaukalög við lög 12. júlí 1878 um lausafjártíund. 19. Lög um breyting á 3. gr. í lögum 22. marz 1890 um löggiltar reglugerðir sýslunefnda. 20. Lög um afnám kóngsbænadagsins sem helgidags. 21—24 Löggilding 4 nýja verzlunarstaða: Hlaðsbótar í Arnarfirði, Reykjatanga, Búða í Fáskrúðsfirði og Vogavíkur. Lelðrétting við nr. 3 í óskilafjárauglýsingu úr Mosfellahreppi i 4 tölubl. Þjóðólfs ]). á.; þar á að standa: Brennim. I. E. S., en ekki við nr. 4. „Þjóðólfur“ kemur út tvisvar í næstu viku, þriðjudag og fóstudag. Viöey. Einn þriðji hluti úr jörðinni Viðey, sem er þjöðkunn fyrir gæði og fegurð, fæst til kaups. Slægjur eru þar miklar og góðar, hagbeit mjög góð, æðarvarp tals- vert. Lysthafendur semji við Sigfús Ey- mundsson í Reykjavík, sem gefur allar nauðsynlegar upplýsingar. Sjónleikir. Laugardag 3. þ. m. verður, að forfalla- lausu, leikið í Good-Temparahúsinu í Hofn arfirði nýr sjónleikur: „Tveir veitinga- mennu, og byrjar kl. 6% e. m. Inngangur: sitjandi 60 aura. — 50 — standandi 40 — barna 25 — Tómas Helgason „praktiserandi" lækni í Reykjavík er allan daginn að hitta í Bankastræti nr. 7. Eyrna- nef- og hálssjúkdómar kl. 12—2. Ekta anilínlitir fcrj *ri 9T fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og & VH í verzlun & P S ce Sturlu Jónssonar K B CS Aðalstræti Nr. 14. (-4- M* •jpnujnin? niTH • Fundur í stúdentafélaginu verður haldinn annað lcveld kl. 9 á hótel Island. Ein skólaskýrsla frá Bessastöðum (1841—42) og tvœr skólaskýrslur frá Reykjavíkurskóla (1847—48 og 1850—51) verða keyptar liáu verði á skrifstofu Þjóðólfs. „Piano“-verzlun „Skandinavien“ verksmiðja og sölubúð Kongens Nytorv 22, Kjöhenhavn. Verksmiðjunnar eigið smíði ásaint verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum. Birgðir af Orgel-Harmonium. Er allt selt með 5°/o afslætti gegn borgun í peningum, eða gegn afborgun. Gömul hljóðfæri tekin i skiptum. Verðskrá send ókeypis. :=T=JL==r=JL=rp=i==T^ ^=J=T=*=T=l=T=r=T=*=T^T=r=T^ Nýir kaupendur aö þessum nýbyrjaða 46. árg. Þjóðólfs (1894) fá ókeypis fjögur fylgirit: 1. Sögusafn Þjóðólfs V. 1892, 144 bls., 2. Sógusafn Þjóðólfs VI, 1893, 134 bls., 3. Söguna af Þuríði for- manni og Kambsránsmönnum, 1- hepti, 64 bls., og 4. Sömu sögu, 2. hepti, um 64 bls., er verður prentað á næstkomandi vori. Þetta 2. hepti fá og allir gamlir kaup- endur blaðsins, er i skilura standa. Nýir lcaupendur, er gefa sig fram fyrir 15. maí næstkomandi í'á þannig ókeypis 3 kr. virði í fylgiritum, en eptir 15. maí standa slik kjör ekki lengur til boða, þar eð 1. lieptið af Kambsránssögu verður ekki látið ókeypis til nýrra kaup- enda eptir þann tíma. enda mun upp- lagið þá tekið að minnka, svo að þeír, sem vilja eignast álla söguna, ættu að gefa sig fram sem fyrst. Bók. þessa fá engir nema kaupendur Þjóðólfs. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorstelnsson, cand. theol. Félagsprentsmiðjan.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.