Þjóðólfur - 30.03.1894, Síða 2

Þjóðólfur - 30.03.1894, Síða 2
68 hagfelld verzlun getur verið líflð og sálin í öllum framförum, svo er það sannreynt, að ill og óhagstæð verzlun er alla dáð drepandi og lifandi dauði. Sveitabóndinn þarf að líta á landbún- aðinn. Fjárkynið þarf allvíða að bæta; fjárhirðiiigin þarf að batna á mörgum stöðum; fjárhúsin vantar mjög víða lopt og birtu, sem eru nauðsynleg skilyrði fyrir þrifum, heilsu og lífi sauðfénaðarins; svo þarf allvíða grindur í fjárhúsgóifin til að verja féð for og bleytu. Fjósin vantar mjög víða glugga, birtu og and- rúmslopt, til þess að heita ekki með réttu loptlaus yztumyrkur eða uxamyrkur. Gadd- hestana vantar skýli, þegar grimmdar- kuldinn er að pína þá með hungrinu á víðavanginum og undir görðunum; en hest- húsin þurfa einnig að hafa nóga birtu og andrúmslopt sem öunur peningshús. Hey- hlöður vantar í stað heygarðanna, svo torf- ristan minnki, heyskaðar og heyskemmdir. Túnin þarf allvíða að girða og rækta betur. Þúfurnar, þessar margra alda gömlu land- eyður og verkaþjófa, þarf að húðstrýkja og hálshöggva eins og óbótamennina að fornum sið, svo þær hætti að tefja vinnu- fólkið. Það er óhætt að segja, að mörg tún geta gefið af sér */„ */, a/g ®/4 meira en nú gerist. Svo má allvíða stækka túnin meira og minna. Fenin og mýrar- flóana tala ég ekki um. Þá þarf að hirða og hagnýta betur áburðinn en almennt gerist. Það er íhugunarvert, þar sem 2—6 dagslátta túnskækill er hálfur áburðar- laus ár eptir ár, en menn og skepnur vaða áburðarefnið (hlandið og forina) upp í augu árunum saman, þegar ófrosið er í kring um bæinn. Áburðurinn er þó peningar. Hann má selja fyrir hey, mjólk, smjör, ost, skyr, kjöt, ull, tólg, skinn o. s. frv., en sumt af þessu verða menn að kaupa úr búðinni (frá útlöndum) fyrir gull og silfur, og sumt af þessu selja menn Iíka fyrir gull og silfur. Útlendar þjóðir, sem eru íslendingum ríkari, Iáta sér enga læg- ingu þykja í því, að kaupu áburð frá ís- landi og öðrum Iöndum fyrir peninga, til að auka afrakstur síns lands, en mörgum íslendingum er óljúft að hirða það silfur og gull, sem liggur undir fótum þeirra, kringum bæina og undir görðunum. Bún- aðar- jarðabóta- og framfarafélögum þarf að fjölga, til þess að vekja áhuga og glæða framkvæmdir í búnaðarefnum. Þess háttar félög eru næsta líkleg til að lífga margan huliun framfaraneista, svo þar verði ljós af, sem annars kæmi aldrei til sýnis. H. Sjávarútvegur. Sjómaðurinn þarf að lita á sjávarút- veginn, þennan opt arðsama og jafnframt stopula atvinnuveg. Hann sveltur, þegar ekki aflast, svo að segja daglega; hann kaupir á sumum stöðum opt kartöflur frá útlöndum dýrum dómum (8—12 kr. tunnuna), og það stundum skemmdar, en ræktar ekki kálgarð í kring um bæ sinn, þó opt sé ekkert að gera. Stundum er garðholan í órækt fyrir áburðarleysi, en þarahrönnin mannhæð fáa faðma frá býl- inu, og slordyngjurnar og flskúrgangurinn þekur naustin og sjávarströndina í ver- stöðinni og verður möðkunum að bráð, og til óhollustu og óþrifnaðar fyrir mennina, þá sjórinn nær ekki til að skola þessum peningum í burtu. Óræktarmóar, moldar- flög og sandmelar, sem hæfir væru til túna og matjurtagarða, liggja ónotaðir mann eptir mann, þó atvinnuleysið ætli að sálga sjómanninum með hungri. Menn gariga út og inn og um stéttina dag eptir dag í góðu veðri, en komast ekki á sjóinn fyrir brirai við landsteinana, og horfa á „Franzmennina“ vera að fiska vikunum saman skammt frá landi og stundum í landhelgi, en ekkert er þilskipið. í einni veiðistöðinni er mokfiski, svo aflinn kemst ekki í lóg, en í næstu veiðistöðu, jafnvel 4—12 mílur frá, ætla menn að deyja úr hungri og hor, en vita ekkert um aflann svona nærri, því samgöngufæri vantar, og ef það fréttist af hendingu seint og síðar- meir, þá eru opnu bátarnir ekki til þess að f'ara á þeim svo langa leið að leita sér bjargar, þilskip ekki að nefna. Þó atvinnuskortur og iðjuleysi sé á einum staðnum, en erfiði og atvinna á næstu grösum, fréttist það ekki fyr en blöðin koma mygluð og möletin eptir mánuði og vikur, og gagna þá ekki meira í þessu efni en 400 ára gamlir annálar eða þjóð- sögur. Þegar lognið og ládeyðan kemur, erfarið að draga sig út á djúpið. Nú fara allir, sem vetiingi valda í veiðistöðinni, að róa, þar á meðal þeir, sem komið hafa úr sveit- inni og yfirgefið þar fjárhirðingu og fengið hana kvennfólkinu, fyrirlitið jarðabætur og ýmsa sveitavinnu, en „legið við í verinu“, ef til vill nokkrar vikur, án þess að kom- ast á sjó, en setið og legið, sumir yfir spiium, milli máltíða! Allt gengur að óskum, þegar „fiskurinn er vitlaus“ og „stendur á hverju járni“. En þegar hlaðið er orðið, kemur stundum vindurinn og fer þá opt af gamanið, sé ofhlaðið hjá þeim, sem álíta það óttalega svívirðing og löður- mennsku að fieygja út fiski („kasta framan í skaparann aptur því, sem hann hefur gefið“) og fara heldur undir með þyrsk- lingunum ; sigla heldur um koll en að setja lægra og hefla af seglunum eptir vindinum, eins og allir skynsamlr sjómenn gera á þilskipum, að eg ekki nefni þá makalausu aðgætni þeirra, er „hlaða sig í sjó“ eða sökkva í sátri með öllu saman. Formað- urinn hefir stundum minni þekkingu á því, sem að sjómennsku lýtur en háseiarnir, þó hann beri formannsnafn og haldi í sveifina. Hann þekkir ekki á áttavita og kann þess vegna ekki að stýra eptir honum í þoku eða dimmu. Hann þekkir ekki „reglur fyrir stjórn og siglingu11 og veit þess vegna ekki hvorum ber að víkja úr vegi, þá hann nálægist opinn bát eða þilskip, og getur átt það á hættu, að eiu- hver útlendur „fiskari“ sigli á hann og drepi hann ásamt skipshöfninni að vítalausu fyrir þekkingarleysið. Hann þekkir ekki skyldur sínar og réttiudi við háseta og skipseigendur o. fl. o. fl. Hásetar þekkja opt heldur ekki skyld- ur sínar og réttindi, enda munu ákvæði um þetta efni, í kóngsbréfinu frá 28. febr. 1758 um fiskiútveg á íslandi, allmörgum óljós og á eptir timanum og ekki sem hagfelldust. Mundi því ekki vera með öllu óþarft, að semja ný lög fyrir sjómenn á opnum skipum og hvíla kóngsgersemið frá 1758. Heimskulcgur prakkaraskapur má það heita, að varla er svo nokkurt mannvirki á almanna-leiðum, að ekki sé það að einhverju leyti skemmt, ef unnt er. Vörður stundum felldar eða færðar úr lagi. Steinar, sem látnir hafa verið á vegbrúnir eða á brúnir við brúarsporða, settir ofan fyrir, og má sjá glögg dæmi þeBS víða (sbr. sporðinn á Hólmsárbrúnni). Nú er Vatna-sæluhús- kofinn, sem er nýbyggður, eitt dæmi pesB, því fyrir stuttu ætluðu menn að leita sér par skýlis í kaf- aldsbil um næturtíma, en þá var kofinn opinn, hurðin á öðru hjarinu og glugginn brotinn og kof- inn þar af leiðandi hálffullur af snjó, svo mennirn- ir urðu frá að hverfa, og komust nauðulega til byggða. Svona var nú frágangurinn á þessu sælu- húsinu; máske svona séu fleiri? Hvaða hugsunar- háttur getur verið svínslegri en þessi, að fara avona með skýli, sem einmitt er ætlað til athvarfs í vond- um veðrum og sem auðvitað hafa orðið mörgum til lífs? Enn má geta þess i sambandi við þetta, að siðan „Reglugerð fyrir umferð um brúna á Ölfusá“ var fest upp, hefur í þrjú skipti verið brotið glerið fyrir auglýsingunum, sem eru að norðanverðu við brúna (stungið í gegnum glerið með broddstaf) í öll skiptin um dimma vetrarnótt, svo ekki hefur verið hægt að komast eptir, hverjir þetta hafi unnið. Ljótar eru sögurnar, en ÞV1 miður eru þær sannar. Hvenær ætlar þjóðin eða réttara sagt ein-

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.