Þjóðólfur - 06.04.1894, Blaðsíða 2
62
eyjasand, Eyjafjallasand og enda hjá sjálf-
um verzlunarstaðnum Yík; en eins og menn
vita hafa þilskip verið affermd á öllum
þessum stöðum á seinustu árum.
Hvað kostnaði viðvíkur, sýnist það ekki
vera laudsjóði ofvaxið að leggja í hann,
því þó allmikil útgjöld sé árlega til Reykja-
nesvitans, svo og vörður vitanna, (á Garð-
skaga, Akranesi og víðar), vegur vitagjald-
ið vel á móti þeim, enda er löggjafarvald-
inu ætlandi að sjá landsjóði borgið í því
efni.
Þjóöargröfin.
Hún snýr frá suðri til norðurs, þvert
á móti því, sem aðrar grafir snúa. Allir
menn „hvíla“ með ásjónuna móti austri,
uppkomu dagsins og sólarinnar. öamla
fólkið sagði mér, þegar eg var barn, að
hinir látnu væru lagðir þannig til þess,
að þeir gætu risið upp móti „degi drott-
ins“ þegar þar að kæmi, því hans væntu
menn úr austri, eins og annara daga.
En þeir, sem strita kófsveittir við að
taka þjóðargröfina, hafa ekkert þessháttar
bak við eyrað. Þeir óska eigi þess, að
þjóðin rísi aptur upp úr gröfinni eptir að
búið er að ausa hana moldu, og trúa held-
ur eigi, að slíkt geti átt sér stað — sumir
hverjir. Og þessi gröf er bæði feikna-
löng og heljar-breið, miklu Iengri og
langtum breiðari heldur en venjulegar
grafir. En hversu djúp hún verður —
það fá þeir að sjá og vita, er uppi verða,
þegar hún verður fulltekin, ef óhamingju-
dísir lands vors láta nokkurn tíma reka
svo langt, sem aldrei skyldi ske.
Og þeir eru fjölmargir, sem starfa að
grafartökunni. Ekki vantar verkalýðinn.
Fremstir í flokki eru vesturfara-agentarnir
með dollarinn „almáttuga“ í pússinu. Það
er sú eina vinna, sem þeir þykjast geta
verið þekktir fyrir að leggja höndurnar
að: að taka gröf sinnar eigin þjóðar.
Og þar eru einokunar-kaupmenn, og
stór þvaga af ónýtum og óþörfum embættis-
mönnum o. fl. o. fl., og allir hafa þessir
menn sitt graftólið hver, og öll eru tólin
bitur og hvöss.
En alstaðar er mótspyrna og stríð.
Bsendurnir og vinnulýðurinn skara jafn-
óðum niður í gröfina og úr henni er tekið.
Og fari svo, sem vonandi er, að hún verði
aldrei fulltekin, þá verður það þeim að
þakka — þeim og engum öðrum.
Ouðmundur Fridjónsson.
Fólksflutningar til Ameríku héðan
af landi verða að líkindum ekki miklir
þetta ár. Það er ekki svo glæsilegt að
frétta af ástandinu þar vestra. Einn landi
í Manitoba skrifar t. d. til kunningja síns
hér á þessa leið: „Eg hef varla rænu á
því að skrifa neinum heim núna, þegar
allt gengur eins illa og nú á þessum
tímum; hér um bil engin vinna fengizt í
allt sumar og það sem af er vetrinum.
Allir kvarta og bera sig illa, og atvinnu-
leysið um allt landið svo mikið, að eg hef
aldrei heyrt né séð neitt því líkt. Héðan
fór mesti sægur af fólki til Norðurálfunn-
ar í sumar, af því atvinnuleysið var svo
almennt, og enn er enginn vottur um
neina breytingu til hins betra.---------
Eg vil því eigi ráða neinum til að fiytja
sig hingað til álfu að heiman, og tel það
mestu vitleysu, því hér tekur ekkert annað
við en sultur og eymdu.
í bréfi úr Norður-Þingeyjarsýslu til
ritstjóra þessa blaðs, dags. 28. jan. þ. á.,
segir svo:
--------„Eg get sagt yður það héðan
með rökum, að Sigurður Kristófersson
narraði tvo bræður sína, Sigurjón og Pétur,
báða mjög vel virta dugnaðar- og efna-
menn í Mývatnssveit, með sér til Ameríku
með konu og börnum. — Nú hafa merkir
menn eptir úr bréfum frá þeim fyrri, að
hann hafi engan blett fundið í Ameríku,
sem hann vilji festa yndi við, eptir langa
leit, en þeim síðari, að svo sé af honum
gengið, að hann eigi ekki meira eptir af
öllum eigum sínum, en gripsvirði (!), en
konan, sem hér var hin hraustasta, Iigg-
ur veik“.---------
Ekki virðast þær svo girnilegar þess-
ar lýsingar af lífinu vestra, að þær ættu
að hvetja landa vora að flytja héðan að
þessu sinni.
Mannalát.
Hinn 18. f. m. andaðist að heimili sínu
Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi Ounnar
bóndi Bjarnason Jónssonar Bjarnasonar
frá Grímsfjósum í Stokkseyrarhreppi, 56
ára að aldri. „Hann var lengi hrepps-
nefndarmaður og þótti koma mjög vel
fram í öllu. Hann var búhöldur góður og
hjálpsamur, og vildi hverjum manni vel;
einnig var hann vel að sér og fróður um
margt, var t. d. rímmaður góður, sem nú
mun mjög fátitt. Hann var yfir höfuð
drengur hinn bezti og er hans því sakn-
að að maklegleikum af vinum og vanda-
mönnurn". (8.).
19. s. m. lézt merkiskonan Ouðný
Jónsdóttir á Ytra-Hólmi á Akranesi, kona
hins alkunna sóma- og dugnaðarmanns
Péturs dbrm. Ottesen. Hún var 76 ára
að aldri, og höfðu þau hjón búið saman
57 ár liinu mesta rausnarbúi, fyrst lengi
á Munaðarhóli undir Jökli. Guðný sál.
var mesta sæmdarkona og manni sínum
samhent í rausn og dugnaði. Meðal barna
þeirra hjóna eru Oddgeir og Guðmundur
kaupmenn á Akranesi, Jón bóndi á Ing-
unnarstöðum o. fl.
Látinn er hér í bænum Nikulás Sig-
váldason, faðir séra Ingvars í Gaulverja-
bæ.
í Ameriku hafa þessir íslendingar látizt,
eptir því sem vestanblöðin skýra frá:
Ouðmundur Ouðmundsson fyrrum bóndi
í Brattagerði á Jökuldal (faðir Jóns, sem
nú býr á Aðalbóli). 22. nóv. f. á.
Eggert Jónsson frá Söndum í Miðfirði.
4. janúar.
Jóhanna Bannveig Jónsdóttir, kona Ein-
ars Engilbertssonar fyrrum bónda á Víði-
læk í Skriðdal. 4. jan.
Sigurður Einarsson frá Eyjaseli í Norður-
Múlasýslu.
Sigurður Rógnváldsson frá Skíðastöðum
í Tungusveit. 8. jan.
Pétur Ouðlaugsson fyrrum bóndi á Mikla-
hóli í Viðvíkursveit. 15. jan.
Af nafnkenndum útlendingum eru þess-
ir nýlátnir: Theodor Billroth frægur sára-
læknir í Vín, Hans von Biilow nafnkunn-
ur þýzkur söngfræðingur, og Rohert Bál-
lamtyne enskur skáldsagnahöfundur. Enn-
fremur eru látnir Ingvald Undset norskur
fornfræðingur rúml. fertugur, og Essendrop
biskup í Kristjaníu. í hans stað hefur
verið kjörinn biskup F. W. Bugge háskóla-
kennari í guðfræði í Kristjaníu, lærður
maður og nafnkenndur.
Tveir menn urðu úti á Eskifjarðar-
heiði í f- m., hét annar Stefán ísleifsson
og átti heima á Þuríðarstöðum, hinn
Friðrik Halldórsson. Þriðji maðurinn
komst lífs af. Voru þeir að flytja póst-
flutninginn frá Kollstaðagerði á Völlum til
Eskifjarðar, en pósturinn lá lasinn heima
(í Kollstaðagerði).
Hvalrekar. Tvo hvali hefur rekið í
Hornaíirði, annan 16. f. m. 30 álna lang-
an og hinn 20. s. m. 34 álna, og var
hvorttveggja eign Bjarnaneskirkju.
Influenza-súttin mun nú hér um bil